Morgunblaðið - 17.02.1987, Page 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1987
V estmannaeyjar:
Þoi’skafli að glæðast
Vestmannaeyjum.
MIKIL veðurblíða og vaxandi þorskgengd glöddu Eyjasjómenn í
síðustu viku en á móti kom að mikill straumur angraði netasjó-
menn. Hjá sumum netabátum, einkum þeim sem hafa lagt net sín
í austurkantinn, fór allt á svarta kaf þegar verst lét. En svona
nokkuð gengur fljótt yfir og menn eru lukkulegir yfir því að sá
guli er að gefa sig til.
Raunar er þorskurinn á ferðinni
á mjög svipuðum tíma og vant er
að því er sjómenn segja. Það er nú
einnig svo, að sjómenn eru harla
ánægðir með það verð sem þeir
hafa fengið borgað fyrir ufsann í
vetur.
Netabátamir voru með sæmileg-
an afla í síðustu viku þó svo dagar
kæmu sem ekki var hægt að draga
vegna straumsins. Aflinn var þó
misjafn milli báta og frá degi til
dags, þetta frá 2 og uppí 20 tonn
í löndun. Aflakóngurinn á Suðurey,
Akranes:
Aflabrögð góð
Akranesi.
AFLABRÖGÐ Akranesbáta í
síðustu viku voru góð enda gæft-
ir mjög góðar. Tveir togarar
lönduðu í vikunni, Sturlaugur
Böðvarsson með 145 tonn og
Höfðavík með 120 tonn og fór
hluti afla þeirra beggja í gáma
á eriendan markað.
Víkingur landaði tvívegis loðnu
’f vikunni rúmum 1000 tonnum í
fyrra skiptið og 1400 tonnum í
seinna skiptið. Skírnir sem stundar
línuveiðar landaði þrisvar í vikunni,
alls 30 tonnum af slægðum fiski.
Sólfari landaði sínum fyrsta afla
eftir að hann hóf netaveiðar nú í
lok vikunnar og var afli frekar treg-
ur. Afli hans var sendur ferskur á
erlendan markað í gámum. Smærri
bátamir öfluðu sömuleiðis vel, sér-
staklega línubátamir, mestan afla
af þeim fékk Hrólfur í vikunni, tæp
7 tonn í einum róðrinum og alls 17
tonn í þremur sjóferðum.
Afli netabátanna var tregur frá
400 til 1300 kíló í róðri. Akumes-
ingur AK kom úr sinni fyrstu
veiðiferð á árinu en hann stundar
úthafsrækjuveiðar. Afli hans var
um 60 tonn og fara um 20 tonn
af því á Japansmarkað en 40 tonn
til endurvinnslu í rækjuvinnslu
Kambs hf. hér á Akranesi.
- JG
Sigurður Georgsson, er að vanda
fengsæll og er nú kominn með
meiri afla á land en á sama tíma í
fyrra, þrátt fyrir verkfallið. Hann
landaði mest 20 tonnum í síðustu
viku.
Þómnn Sveinsdóttir, en þar um
borð er skipstjóri annar margfaldur
aflakóngur, Sigurjón Óskarsson,
hefur nú skipt yfir á netin. Hættur
í bili með snurvoðina sem hann
þrælfiskaði í. Hann var með 21
tonn í fyrstu löndun, en að vísu
tvídregið. Sveinn Valdimarsson á
Valdimar Sveinssyni er svo annar
fengsæll skipstjóri sem hefur land-
að ört og þétt góðum afla, mest
20 tonnum í síðustu viku. Margir
fleiri góðir fiskimenn hafa landað
góðum afla og verður spennandi
að sjá aflaskýrsluna sem bráðlega
kemur.
Togarar og togbátar hafa einnig
aflað ágætlega. I síðustu viku lönd-
uðu fímm togarar, Halkion 72
tonnum, Klakkur 94, Vestmannaey
130, Breki 135 og Gideon 63. Eng-
ar áreiðanlegar aflatölur er að hafa
hjá trollbátum, þar fer mestur hluti
aflans í gáma. Framvegis verða
gámadagamir tveir í Eyjum, því
Sambandsskip munu taka hér gáma
á laugardögum í vetur, Eimskip er
með skip á miðvikudögum.
Mikil töm er nú í loðnufrystingu
og unnið á vöktum allan sólarhring-
inn í fjórum frystihúsum. Loðnu-
bræðslumar spúa peningalyktinni
þráðbeint í loft upp í veðurblíðunni.
— hkj.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Loðna hefur verið fryst af krafti í Vestmannaeyjum síðustu dagana.
Hornafjörður:
Mun meiri afli,
en í fyrravetur
Höfn, Hornafirði.
VERTÍÐ hófst 9. janúar strax
að loknu verkfalli sjómanna. Frá
því vertíð hófst og þar til 15.
febrúar komu á land 1460 tonn
í 230 sjóferðum en á sama tíma
í fyrra komu á land 1323 tonn í
178 sjóferðum.
Af þessum afla hefur togarinn
Þórhallur Daníelsson landað 283
tonnum en 6 bátar hafa landað yfír
yfír 110 tonnum, en þeir eru Erling-
ur 139 tonn í 15 sjóferðum, Skinney
137 tonn í 13 sjóferðum, Vísir 133
tonn í 11 sjóferðum, Skógey 132
tonn í 18 sjóferðum, Sigurður Ólafs-
son 122 tonn í 16 sjóferðum, Bjami
Gíslason 114 tonn í 16 sjóferðum.
Nokkrir stærri bátar byrjuðu með
línu og botnvörpu en nú em flestir
komnir með net og hefur fiskast
vel eins og sjá má af aflatölum,
t.d. var Erlingur með 21 tonn (net)
síðastliðinn laugardag. Þrír nýjir
bátar yfír 100 tonn hafa bæst við
flotann frá síðustu vertíð en það
eru Garðey og Hafnarey sem koma
í stað eldri báta og Skinney. Mikil
aukning smábáta hefur orðið og
hafa þeir fískað vel bæði á línu og
handfæri, t.d. fékk Mímir, 1 maður
á með handfæri, 2,5 tonn nú á
sunnudaginn.
Búið er að landa 12 þúsund tonn-
um af loðnu sem er svipað magn
og á allri vqrtíðinni í fyrra. Húna-
röstin hefur landað um helmingi
þess afla eða rúmlega 6 þúsund
tonnum. Síðastliðinn fimmtudag
landaði Pétur Jónsson RE 840 tonn-
um en það er mesti afli sem landað
hefur verið úr einu skipi hér.
Enginn vandkvæði hafa verið
fyrir loðnubátanna að koma inn á
Homaijörð nú enda er unnið að
dælingu úr höfninni. Loðnufrysting
hófst í síðustu viku og er búið að
frysta um 200 tonn. Loðnan er
komin vestur undir Ingólfshöfða og
er vel hæf til frystingar.
— Fréttaritari.
Frá Ólafsvíkurhöfn
Ólafsvík:
Lítíll afli í netin
ólafsvik.
DAUFT var yfir afla Ólafsvíkur-
báta í síðustu viku, og komu
ÚRVALS
FILMUR
Kvnnínqarverb
^onica
Dreifing:
TOLVUSPIL HF.
sími: 68-72-70
• •
aðeins 481 tonn á land. Helst var
að eitthvað fengist á línuna og
var Garðar II með 49,5 tonn í 6
róðrum.
Afli var lítill í netin og var viku-
aflinn skástur tæp 30 tonn hjá Ólafi
Bjamasyni. Reytingur fékkst í
dragnótina og fékk Skálavík mest-
an vikuafla, 22 tonn.
í síðasta pistli héðan frá Ólafsvík
var farið rangt með afla Skálavík-
ur, vikuaflinn var gefínn upp sem
Grindavík:
„Þornaði upp yfir lín-
una er leið á vikuna“
heildarafli frá árarnótum. Hið rétta
er að nú hefur báturinn fengið nær
100 tonn á þeim mánuði sem hann
hefur róið.
Síðari hluta vikunnar gaf á sjó
fyrir smærri línubátanna. Þeirra
hæstur varð ívar, með 11,7 tonn í
þremur róðmm. Jökull landaði 56
tonnum í vikunni og fékkst það í
troll. MS Eldvík tók hér 270 tonn
af saltfiski í vikunni og Hvalvíkin
lagði 720 tonn af salti á land.
- Helgi.
Grindavík.
AFLI hjá Grindavíkurbátum var
verulega tregur er leið á vikuna
en þá þornaði upp yfir alla línuna
eins og einn skipstjórinn orðaði
það.
Sigurður Þorleifsson GK var með
30 tonn af tveggja nátta ufsa í
byijun vikunnar og Kópur GK 25
tonn en aðrir miklu minna. Um
miðja vikuna var aflinn í kringum
15 tonn hjá stóm bátunum en á
laugardaginn var Þórsnesið GK
aflahæst með 9 tonn, Kópur GK tæp
9 tonn og Geirfugl GK með 8,5
tonn, aðrir vom með minna.
Litlu bátamir vom með gegnum
gangandi 2 til 3 tonn í róðri. Nokkr-
ir aðkomubátar sem róa með
tvöfalda lögn af línu lönduðu í
Grindavík á laugardaginn, Hringur
GK 14 tonn, Freyja GK 13 tonn
og Siguijón Arnlaugsson 12,5 tonn.
I vikunni komu tveir loðnubátar
með afla í bræðslu, Svanur RE 540
tonn og Hrafn GK 650 tonn. Yfir
helgina lönduðu síðan 4 bátar loðnu
til frystingar, Magnús NK 390 tonn,
Kap II VE 287 tonn, Gísli Ámi RE
300 tonn og Gullberg VE 300 tonn.
Nú er að bíða og vona að hann
bresti á aftur.
Kr.Ben.
Patreksfj ör ður:
Gæftir góðar
Patreksfirði.
AFLI hefur verið sæmilegur
síðustu viku og gæftir góðar.
Eftirfarandi bátar lönduðu:
Patrekur BA, 57,3 tonnum í 3
löndunum; Vestri BA, 38,5
tonnum í 3 löndunum; Andri,
15,4 tonnum í 3 löndunum;
Egill, 37,6 tonnum í 5 löndun-
um; Brimnesið, 11,2 tonnum í 2
löndunum og Togarinn Sigurey
BA, 48,7 tonnum í 1 löndun.
Það er allt slægður fískur sem
landað er hér á Patreksfirði.
- Fréttaritari.
IJ h
V n
lamps and bghtmg equipment
RAFTÆKJAVERSLUN ISLANDS
S: 688 660 • 688 661
I