Morgunblaðið - 17.02.1987, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRUAR 1987
57
Þorlákshöfn:
Loðnufrysting haf-
in af fullum krafti
Þorlákshöfn.
LOÐNUFRYSTING er nú hafin
á tveimur stöðum og unnið á
vöktum bæði í Meitlinum og Suð-
urvör (Eyrarbakka). Hjá Glett-
ingi er það mikið af öðrum fiski
að ekki hefur verið hægt að fara
í loðnufrystingu og óvíst hvort
það verði gert.
Meitillinn er búinn að taka við
tæpum 300 tonnum af þrem bátum
og að sögn Benedikts Thorarensen
er loðnan orðinn góð og nýting
ágæt. Hjörleifur Brynjólfsson verk-
stjóri í Hraðfrystihúsinu á Eyrar-
bakka sagði að þar gengi frysting
mjög vel og væri nú unnið á vöktum
og búið að taka á móti um 200
tonnum. Ekki er hægt að vinna það
sem gengur úr loðnunni hér í Þor-
lákshöfn og er það því sent í lýsi
og mjöl í Reykjavík.
Botnfiskaflinn í síðustu viku var
648.940 kíló af 25 bátum sem skipt-
ist þannig: 21 netabátur 573.020
kíló í 95 róðrum, 1 línubátur með
6.630 kíló í 5 róðrum, 1 trollbátur
með 29.680 kíló í 2 róðrum, 2 drag-
nótabátar með 39.610 kíló í 2
róðrum.
Aflahæstir bátar í vikunni voru
Þorleifur Guðjónsson ÁR 350 með
46.460 kíló í 2 róðrum, Jóhann
Gíslason ÁR 42 með 44.970 kíló í
2 róðrum og Höfrungur III ÁR 250
með 42.760 kíló í 5 róðrum.
Aflahæstir frá áramótum eru
Höfrungur III ÁR 250 með 222.010
kíló, Þorleifur Guðjónsson ÁR 350
með 199.620 kíló og Jóhann Gísla-
son ÁR 42 með 192.300 kíló.
- JHS
Sandgerði:
Þokkalegur af li
hjá línubátunum
Sandgerði.
SANDGERÐISBATAR fiskuðu
ágætlega í síðustu viku. Línubát-
arnir voru með jafnbesta aflann,
en afli netabátanna var heldur
lakari. Þuríður Halldórsdóttir
sem rær með net var samt afla-
hæsti báturinn eftir vikuna með
65 tonn í 6 sjóferðum og var
uppistaðan í aflanum ufsi. Alls
lönduðu bátarnir 712,340 tonnum
og er það rúmlega 100 tonnum
meira en í vikunni á undan.
Þuríður Halldórsdóttir hefur
verið með netin í Kantinum,
40-50 mílur í vestur af Sand-
gerði.
Jón Gunnlaugsson var aflahæst-
ur línubátanna með 47,170 tonn
og hann kom einnig með rnestan
afla í einni sjóferð 18,450 tonn.
Sigurður Bjarnason var með 46,960
tonn, Mummi 38,780 tonn og Víðir
II með 37,870 tonn. Línubátarnir
hafa róið með tvöfalda setningu
sem er 90 bjóð og hafa þeir ýmist
verið í Jökuldýpi og upp á Vestur-
kahti eða við Eldey á Skeijunum
sem kallað er.
Smærri bátarnir róa flestir með
línu og þar munaði litlu á efstu
bátunum eftir vikuna, Fram var
með 14,940 kíló, Ragnar 14,790
kíló og Bragi 14,780 kíló. Ragnar
var með mestan afla í einni sjóferð,
4,730 kfló. Af handfærabátunum
var Skúmur RE með mestan afla
4,830 kíló.
- BB
Stykkishólmur:
Saltskipið komið
netavertíð í nánd
Stykkishólmi.
FYRSTI boðberi þess að vetrar-
vertíðin þ.e. netavertíð bátanna
hér í Stykkishólmi væri í nám-
unda og saltfiskvinnslan að
hefjast, birtist fréttaritara í
síðustu viku. Þá var hið stóra
flutningaskip, Hvalvík, mætt
með stóran saltfarm sem skipað
var upp og flutt á vörubílum á
áfangastað allan daginn og vel
það.
Saltið var tekið úr lestinni og
sett í þar til gerða stóra trekt og
úr henni streýmdi saltið í til þess
gerða stóra plastpoka sem síðan var
ekið á bílavogina niður á plássi til
að alls réttlætis væri gætt. Þá vakti
það ekki síður athygli að Hvalvík
hafði lagst við bryggju í nýju höfn-
inni okkar í Skipavfk, líklega
stærsta skip sem þar hefir að ból-
verki lagst. Sú höfn er mikið lengur
laus við ís ef eitthvað verður um
frost, því eldri bryggjan hér verður
fljótt umleikin íshroða og ís ef frost-
in verða yfir 8 til 10 stig. Þá er
erfitt að nota hana því stundum
hefir ísinn náð út um allar eyjar.
Þá er gott að geta gripið til betri
hafnar.
í vetur hefir hinsvegar veður
verið okkur svo hliðstætt að ísinn
hefir ekki sést og getum við lofað
guð fyrir það. Þessi eindæma veðr-
átta hefir gert okkur hér það mikið
gagn að ekki mun einn róður hafa
farist fyrir á skelinni þess vegna,
en ekki má veiða skel í vissum
gaddi.
En sem sagt, það líður að vertið.
Saltið komið og eins og gamli mað-
urinn sagði fyrir austan: Og þá
fara menn að græða. — Betur að
satt væri.
- Árni.
Keflavík:
Jafnbest hjá
línubátunum
Keflavík
HEILDARAFLI Keflavíkurbáta
var 374 tonn í síðustu viku og
er það heldur lakari afli en vik-
una á undan. Aflahæsti báturinn
var Stafnnes sem er á netum,
54,1 tonn i fimm sjóferðum. Afli
linubátanna var hinsvegar ekki
eins mikill en jafnari.
Albert Ólafsson var með mestan
afla af línubátunum 31,7 tonn.
Síðan kom Boði með 36,6 tonn og
Búrfell sem var með 28,6 tonn.
Happasæll var næst hæsti neta-
báturinn með 29,9 tonn. Gunnar
Hámundarsson var með 26,9 tonn,
Svanur með 25,8 tonn og Skaga-
röst með 19,3 tonn.
BB
itheiður
athe»ou« * kennir
"°d 9kl. 17.00.
. rQeV Ol3(sd0tt'r
'&vssr*
og þrekæfingar hjá Dansstúdíói Sóleyjar eru sérstaklega ætlaðar þeim sem
eru stirðir og úthaldslausir.
Teygju-
SÓLEYJ/vn *4
Engjateigi 1, símar 687701 og 687801.
EFÞÚ
KAUPIR
KORK-O-PLAST
KORKFLÍSAR NÚNA 1ÁR
ÞÁ REWWR SLÍTÁBYRGÐirS
OKKAR EKKl ÚT FYRR EIS
Þetta mer'ti ásamt ábyrgðarsktrteini, ttyggir 10 ára slitábyrgð
á KORK-O-PLAST gólfflísum.
Við erum þeir einu sem flytjum þessa gœðavöru fll landsins.
KORK-O-PLAST er með slitsterka vinylhúð og notað á gólf sem mikið
mæðir á, svo sem á flugstöðvum og á sjúkrahúsum.
KORK-O-PLAST er auðvelt að þrífa og þægilegt er að ganga á því.
Sérlega hentugt fyrir vinnustaði, banka og opinberar skrifstofur.
KORK-O-PLAST byggir ekki upp spennu og er mikið notað
í tölvuherbergjum.
KORK-O-PLAST fæst í 14 mismunandi korkmynstrum. mida
EF ÞÚ BÝRÐ ÚTI A LANDI ÞÁ SENDUM VID ÞÉR
ÓKEYPIS SÝNISHORN OG BÆKLING.
Einkaumboö á Islandi
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 16 - REYKJAVlK - SÍMI 38640