Morgunblaðið - 11.03.1987, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1987
17
Hlýlegt, fallegt og persónu-
legft hádegisverðarboð
- segir Edda Guðmundsdóttir, forsætisráðherrafrú um hádegisboð Raisu Gorbachevu
„ÉG fékk ekki að vita um há-
degisverðarboð Raisu fyrr en
ég var lent í Moskvu," sagði
Edda Guðmundsdóttir, forsæt-
isráðherra-frú, i samtali við
Morgunblaðið. „Þetta var al-
gjörlega hennar einkaframtak
enda voru Gorbachev-hjónin
ekki gestgjafar okkar, heldur
Nikolai Ryzhkov forsætisráð-
herra og kona hans Ljudmila."
Raisa Gorbacheva bauð frú
Eddu til hádegisverðar í ráð-
herrabústað þeirra Kremlveija
sem stendur á Lenin-hæðum í
Moskvu og bjuggu þau
Steingrimur og Edda i gesta-
húsi þar skammt frá.
„Raisa var mjög hlýleg og sagð-
ist hafa langað til að fá stund
með mér án blaða- og frétta-
manna til að endurgjalda boð
mitt frá því í haust. Ein kona úr
íslenska fylgdarliðinu mátti koma
með mér og fannst mér Kristín
Claessen, eiginkona Guðmundar
Benediktssonar ráðuneytisstjóra,
sjálfkjörin. Þetta var mjög per-
sónulegt boð. Raisa sagði að
góður vinskapur hefði tekist með
okkur þegar leiðtogafundurinn
var haldinn á íslandi í haust og
við ættum það sameiginlegt að
vera giftar mönnum, sem væru í
forsvari fyrir þjóðir sínar og því
væri viss samkennd með okkur.
Ég tók undir þessi orð hennar,
en sagði að munurinn væri mikill
á þjóðum okkar. Maður hennar
væri í forsvari fyrir eitt af stór-
veldum heimsins, en eiginmaður
minn fyrir eina af smæstu þjóðum
heims. Þó breytti það því ekki að
smáu þjóðimar hefðu oft mikil-
vægu hlutverki að gegna,“ sagði
Edda.
„Hádegisverðurinn stóð yfir
lengi og var margréttaður, ég
held sex eða sjö réttir, bæði fran-
skir og rússneskir. Við töluðum
um matinn og um hinar mismun-
andi matargerðarlínur. Þegar
„blinis og kavíar“, sem er gamall
rússneskur réttur, var borinn á
borð, barst talið að því er við
Steingrímur smökkuðum þann
Eftir hádegisverðinn var borið fram kaffi í dagstofu ráðherrabústaðarins. Þær Raisa og Edda
ræða málin og túlkurinn Alexander er einnig á myndinnni
rétt í fyrsta sinn sem var á rúss-
neskum matsölustað í París í
llS.tit K ' brúðkaupsferðinni okkar."
v ’tíl Edda sagði að margt fleira
hefði borið á góma svo sem staða
fek. N® konunnar og hve rniklu erfiðara
BWf konur ættu uppdráttar en karl-
fllRI iÁMí ' ri menn, sérstaklega varðandi
' ■ JrfttLJni' IPS^Hu. '/ lykilstciður i | 'i'
mi V- -IBAjHiV' ^:u1 þyrft
ÆqKL ;Bl '>IH|^^Hjk i
helst tekið eftir þvi hvort hún
HH MUjHEpiB'u’ hefði hrukkur Ivkkjuföll
rjsgly sokkutn sínum eða hvort kjóllinn
hennar væri í lagi. Hún sagði að
•jmpv • ‘•í|l b.ir.ð h.-l'ði .i 1 >r.-ytin>-iii i ku
samfélagi
' —- HHBhy. ^ / jte'--é£>3r|gti hefði tekið við völdum þótt margt
l* Q, - . „Við ræddum einnig um fatnað
: I il' IMti tl 11111 ls«íöl 0g snyrtivörur eins og konur
Kristín CLaessen heilsar hér Raisu og á milli þeirra stendur frú gjaman gera þegar þær setjast
Ryzhkova. Edda er lengst til hægri og túlkurinn lengst til vinstri. niður til að ræða málin og sagði
hún mér að rússneskar snyrtivör-
ur væru orðnar miklu betri en þær
frönsku og fannst mér það nokkuð
merkilegt."
Raisa talaði um heimsóknina
til Islands og var mjög hrifín af
þeirri menningu sem hún sagðist
hafa kynnst hér. Hún sagðist hafa
lesið töluvert um land og þjóð
síðan hún kom aftur heim til Sov-
étríkjanna frá íslandi og sagðist
geta hugsað sér að heimsækja
okkur aftur. „Hún minntist sérs-
taklega á hversu gaman það hefði
verið að koma á íslenska
sveitabæinn Búrfell í Grímsnesi,
til Böðvars Pálssonar og Lísu
konu hans. Raisa sagði að Böðvar
hafí orðið mjög hissa þegar hann
uppgötvaði hve mikið hún vissi
um sauðfé. Ástæðan var hinsveg-
ar sú að Gorbachev-hjónin voru
eitt sinn búsett í sauðfjárræktar-
héraði og sagðist hún þar hafa
lært það mikið að hefði strax vit-
að af hvaða tegund íslenska
sauðkindin hafí verið."
Edda hefur tvisvar áður heim-
sótt Sovétríkin, fyrst árið 1975
þegar Steingrímur var fram-
kvæmdastjóri Rannsóknaráðs
ríkisins. Þá voru þau hjón boðin
á 250 ára afmæli Sovésku vísinda-
akademíunnar. Síðan fóru þau í
opinbera heimsókn til Sovétríkj-
anna árið 1982 þegar Steingrímur
var sjávarútvegsráðherra.
Steingrímur sagðist, í samtali
við Morgunblaðið, hafa sannfærst
í ferðinni um það að Gorbachev
meini það sem hann er að boða
þessa dagana, bæði á sviði af-
vopnunarmála, að íjarlægja
meðaldrægar eldflaugar, og eins
hvað varðar sovéskt þjóðskipulag.
Steingrímur sagði Gorbachev
hafa tekið vel undir þá hugmynd
sína um að koma á fót stofnun á
íslandi til betra mannlífs, sem
yrði til að bæta samskipti austurs
og vesturs, norðurs og suðurs.
„Gorbachev bað að heilsa
íslensku þjóðinni og hóf umræður
sínar á að þakka fyrir gestrisni á
meðan á leiðtogafundinum stóð
og vék að því hve allur undirbún-
ingur hefði verið góður. „Það voru
auðvitað viss vonbrigði með niður-
stöður fundarins, en hann lagði
áherslu á að það sem er nú að
gerast, sé beinlínis tengt
Reykjavíkurfundinum og hann
talaði alltaf um „Eftir Reykjavík"
og „Fyrir Reykjavík" í samræðum
okkar. Þetta boð mitt til Sovétríkj-
anna er einnig beint tengt
Reykjavikurfundinum," sagði
Steingrímur.
HF. ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON
CANADA DRY
Þrumu
3