Morgunblaðið - 11.03.1987, Side 50

Morgunblaðið - 11.03.1987, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUÐAGUR 11. MARZ 1987 Erla Þórdís Jónsdóttír Fædd 9. febrúar 1929 Dáin 28. febrúar 1987 Safnaðu sólargeislum og sumarsins hnossum. Mundu eftir gleðinnar gjöfum og gæfunnar kossum. Þeir munu á dimmum dögum í dauðans skugga draga sviða úr sárum sefa og hugga. (E.ÞJ.) Vorið 1948 útskrifaðist stór hóp- ur stúdenta frá Menntaskólanum í Reykjavík. í þeim hópi voru 24 stúlkur, sem allar voru í sama bekk utan tvær. I þessum stúlknabekk var Erla Þórdís Jónsdóttir, sem hér er kvödd, sú þriðja á jafnmörgum árum. Erla var einkadóttir hjónanna Jóns Alexanderssonar, útvarps- virkja hjá Ríkisútvarpinu, og konu hans, Þórunnar Jónsdóttur, yndi þeirra og eftirlæti. Há og grönn með ljómandi augu full af sólskini, þannig kemur hún upp í hugann frá skóladögunum. Alltaf glöð, alltaf hlý, en viljinn á sínum stað og ekki endilega farnar alfaraleiðir. í þessum bekk var mik- ið um sönggleði og þar var Erla fremst í fiokki, enda hafði hún ágæta söngrödd, var hagmælt og lék auk þess allvel á píanó, svo hún var sjálflqörinn undirleikari bekkj- arins þegar á þurfti að halda. Erla var mjög góð námsmanneskja, enda reyndist henni menntaskólanámið leikur einn. Það eru engar ýkjur að segja, að hún hafi verið í miklu uppáhaldi bæði hjá skólasystrum og kennurum vegna einlægrar framkomu sinnar og mannkosta. Árin liðu og samverustundum fækkaði um sinn, slík er lífsins saga. Heimili eru stofnuð og böm fæðast. Guð gefur og guð tekur. Hann gaf Erlu okkar sjö mann- vænleg böm. En auk þess að annast þau öll og heimili sitt fann hún tíma til að öðlast kennararéttindi ug stundaði kennslu við Kópavogs- skóla í 12 ár. Gjafmildi, fómfýsi og hæfíleikinn til að miðla öðrum voru snar þáttur í skapgerð Erlu. Þeir eiginleikar hafa án efa notið sín vel í kennslustarfinu. Hún var alla ævi frekar gefandi en þiggj- andi og margir, sem minna máttu sín, urðu þess aðnjótandi. Svo kom áfallið. Heilsan bilaði. í mörg ár barðist hún hetjulegri baráttu við vágestinn, sem svo marga leggur að velli, og margar omstur vann hún. Lengi var engan bilbug að fínna á okkar góðu skóla- systur, hún átti í fórum sínum meira hugrekki en hægt er að hugsa sér. Það var eins og trú hennar styrkt- ist við hveija raun. Okkur fínnst, að vísan hennar, sem birtist í upp- hafí þessarar greinar, lýsi betur lífsviðhorfi hennar en mörg orð. Á síðustu árum hafa vináttubönd okkar bekkjarsystra styrkst, svo venjulega hittumst við einu sinni á ári eða oftar. Á slíkum stundum hefur Erla jafnan verið fyrst til að mæta og verið hrókur alls fagnaðar. Loksins, eftir 15 ára harða bar- áttu við manninn með ljáinn, var þrótturinn búinn og Erla sofnaði svefninum langa þann 28. febrúar síðastliðinn, 58 ára að aldri. í latínunni lásum við um það, að æskan skilaði ellinni hrömuðum lík- ama en hvað með sálina? Sálin hennar Erlu lifír áfram í hugum okkar, í bömunum hennar efnilegu speglast hún, og sólin heldur áfram að skína og hella geislum sínum yfír þá, sem eftir lifa. Við þökkum Erlu fyrir samfýlgd- ina og sendum öllum ástvinum hennar innilegar samúðarkveðjur. Anna S. og Hildur í dag er kvödd hinstu kveðju kær vinkona og skólasystir, Erla Þórdís Jónsdóttir, sem lést 28. febrúar sl. nýorðin 58 ára gömul. Hetjulegri baráttu við erfíðan sjúkdóm sem staðið hefur í 15 ár er lokið. Erla vissi að vistaskiptin væru á næsta leyti, og hún óttaðist þau ekki. Þvert á móti þráði hún nú að losna úr fjötrum þessa örlagavalds — sjúkdómsins — sem hafði leikið hana svo grátt öll þessi ár og fagn- aði því að öðlast eilífa hvíld og frið. Hvað er Hel? Öllum líkn sem lifa vel.“ Svo kvað sálma- og trúarskáldið Matthías Jochumsson. Þrátt fýrir þjáningar og raunir síðustu æviárin sat ávallt í fyrirrúmi hjá Erlu sama óslökkvandi löngunin til þess að lifa vel, og ásamt svo mörgu öðru kom það fram í því að láta eitthvað gott af sér leiða. Það voru ekki einungis hennar nánustu sem nutu þess í ríkum mæli, heldur ýmsir vanda- lausir og minni máttar sem á vegi hennar urðu á lífsleiðinni og hún fann þörf til að rétta hjálparhönd. Erla aðhylltist hugsjón bindindis- stefnunnar og starfaði á þeim vettvangi um árabil. Oft ræddi hún um að þjóð okkar væri á villigötum m.a. vegna of mikillar áfengis- neyslu og hafði áhyggjur af því böli sem fylgir drykkjuskap og öðr- um eiturlyfjum. Margt mætti nefna sem staðfestir það hversu hugur hennar snerist um fegurra og betra mannlíf. Leiðir okkar Erlu lágu fyrst sam- an í Menntaskólanum í Reykjavík er hún hafði hlaupið yfir 3. bekk og bættist í hóp okkar bekkjar- systra í 4. bekk. Það skref reyndist henni leikur einn, enda var Erla gædd frábærum námsgáfum og mikilli eðlisgreind. Hún hafði auk þess yndi af tón- list og hóf ung píanónám í einkatím- um, og þegar bömin hennar voru ung lék hún oft fyrir söng í bama- guðsþjónustum í kirkjunni sinni. Einnig var söngurinn henni mikill gleðigjafi og söngrödd hafði hún góða. Erla naut þess að miðla öðram, ekki síst bömum sínum og bama- bömum, af kunnáttu sinni á þessu sviði eins lengi og kraftar hennar leyfðu. Afkomendur hennar hafa svo sannarlega erft þessa náðar- gáfu að meira eða minna leyti, og hafa tvær dætur Erlu helgað sig tónlistinni og starfa að henni. Erla átti einnig mjög létt með að túlka hugsanir sínar jafnt í bundnu sem óbundnu máli. Árið 1951 eða þremur áram eftir stúd- entsprófín kom út bók eftir hana sem ber heitið „Bernska í byijun aldar“. Var hún samin eftir minn- ingum móður Erlu, Þórannar Jónsdóttur, og fjallar um líf lítillar stúlku í Reykjavík skömmu eftir aldamótin. Ein skólasystra okkar las bókina upp í útvarpinu rétt eft- ir að hún kom út. Þegar í bemsku komu þessir hæfíleikar Erlu glöggt í ljós, þ.e. að skapa eitthvað í bundnu eða óbundnu máli. Og til er lítið kver sem hún handskrifaði aðeins 10 ára gömul með ýmsu blönduðu efni, m.a. ljóðabréf til frænda hennar í Ameríku, hnyttið og vel samið af svo ungum höfímdi að vera. Til þess að lýsa þessu nán- ar langar mig til að láta hér fylgja með vísu sem hún yrkir um sjálfa sig á tíu ára afmælisdaginn sinn, bamsleg að sjálfsögðu en skýr hugsun að baki. Ég er tíu ára fljóð basla við að yrkja Ijóð og semja stuttar sögur. Stundum undur vel það tekst, en líka sumt mér alveg bregst þá verð ég nú ekki fögur. Síðari árin fór Erla að semja mest í bundnu máli í tómstundum sínum, og hefur hún án efa oft fundið huggun og styrk í ljóðagerð- inni sem svo hefur hjálpað henni til þess að sætta sig betur við þau þungu örlög sem hún varð að lúta. Sum þessara ljóða Erlu hafa birst í litlu kveri sem hún nefndi „Maldað í móinn" og kom út árið 1985. í ritdómi um þessi ljóð sem ég leyfi mér að vitna í eftir Eystein Sigurðs- son stendur m.a.: „Kveðskapur Erlu Þórdísar er býsna lipurlega gerður og nokkuð margþættur. Hún yrkir um hvað eina sem fyrir auga ber úr daglega lífinu. Annars er það kanski sterkasta einkennið á þess- ari bók, hve greinilega hún ber það með sér að vera ort af konu sem eignast hefur fjölda afkomenda og er vakin og sofín í því að halda yfir þeim vemdarhendi. — Það er umhyggja góðrar móður sem hvar- vetna vakir í bókinni." Árið 1966 tók Erla kennarapróf og stundaði bamakennslu í rúman áratug eða meðan heilsan leyfði. Ég veit að Erla hafði ánægju af kennarastarfínu og þótti leitt að þurfa að segja skilið við það starf sem hún hafði ákveðið að helga krafta sína. Það var svo sterkur þáttur í fari hennar alla tíð að gefa af sjálfri sér og vilja fræða aðra og verða þannig öðram til gagns. En enginn má sköpum renna. Vinátta okkar Erlu hefur aldrei roftiað öll þessi ár, og fyrir það er ég þakklát. Oft leið alllangur tími milli funda okkar eins og gengur og gerist í erli daganna. En ávallt fann þá önnur hvor okkar þörf til að styrkja vináttuböndin með því að sjást eða talast við og frétta þannig hvor um annarrar hagi. í fóram mínum á ég lítið ljóð sem Erla sendi mér eitt sinn fyrir mörg- um áram. Það Ijallar um vináttuna og felur í sér góðar óskir mér til handa. Þessa minningu þykir mér vænt um að eiga og hana mun ég varðveita vel. Hér era vegaskil. Sérstæð og ógleymanleg kona hefur lokið dags- verki sínu. Æviskeiðið er á enda rannið. En framundan ber bjarma af eilífðarljósi. „Vort líf sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir.“ Með þá vissu og trú í huga kveð ég Erlu Þórdísi Jóns- dóttur hinstu kveðju og bið henni blessunar Guðs um alla eilífð. Veit ég að svo hugsa einnig allar skóla- systur hennar. Ég og fjölskylda mín sendum eiginmanni Erlu, börnum og öðram nánum ástvinum hennar einlægar samúðarkveðjur. Guðrún Kristinsdóttir Fljúgðu, sál, í svefnsins heim, svífðu út í stjömugeim, laus úr Jarðar lúaböndum, langt frá heimskauts kuldalöndum. Frá geimsins háa himinsal horfðu á mannsins táradal, fijáls á hugarvængjum veikum í vímu svefnsins glöð skalt reika’um. Öllu basli og böli gleym, sem bíður þín, er kemur heim. Þig endumærða ársól vekur, aftur þú til starfa tekur. Þannig orti Erla Þórdís Jóns- dóttir um Heim svefnsins. Nú þegar hún er lögst til hvíldar og horfín á vit hinna ævarandi drauma er líkt og storm hafi lægt. . . Líf manneskjunnar er sjaldan átakalaust, en lífsaga Erlu er í mínum huga hetjusaga, fögur og einstök eins og hún sjálf. Erla var auðug manneskja frá Jóhann Kr. Þor- steinsson — Minning Mig setti hljóða, er hringt var i mig kl. 9 að morgni föstudaginn 27. febrúar og mér sagt, að Jóhann Þorsteinsson væri látinn. Reyndar kom mér það ekki á óvart, ég vissi þegar ég kvaddi hann, að nú væri stundin þegar komin, því það var aðeins ein leið út úr þessu heljarst- ríði í rúmt ár, en hann lét ekki bugast og reyndi alltaf að halda sinu striki meðan hann gat staðið á eigin fótum. Þessvegna var hann ekki rúmfastur nema fimm sólar- hringa, þessi hrausti, stóri og sterki maður, heljarmenni að mínu mati. Fleiri munu vera mér sammála, því þeir sem þekktu hann, vissu hvern- ig hann var og þeir sem kunnu að ipeta hans högu hönd ættu að vita ' <-"«■ ' - hvað hann kunni. Hann var ekki aðeins húsasmiður, var allt í öllu sem þúsundþjalasmiður. Það var gaman að kynnast Jóhanni, hann var svo heima í öllu. Vel greindur maður sem alltaf var svo gott að leita til. Hann skildi mann svo vel þeg?.r vandi steðjaði að. Þó hann hefðir, nóg að gera og þurfti aldrei að auglýsa eftir vinnu. Alltaf var nóg að gera hjá honum. Það lá fyr- ir höndum mikil vinna þegar hann varð að láta aí' störfum vegna þess- ara hræðilegu veikinda sem heltóku hann, og meira að segja rétti hann fram sínar hagleiks hendur er hann varð orðinn mikið veikur. Nú mun mörgum brégða við. Ég vil þakka af heiluip hug fyrir allt sem hann ■ *'■1 ’-v' ' ' •* ~v___ gerði fyrir mig og minn yngsta son, Bjama. Gott er að geyma minninguna um Jóhann. Nú leggst hann til hinstu hvíldar við hlið sinnar - ágætu konu, Gestheiðar Árnadóttur, sem hann missti 1961. Ég vil nota tækifærið og þakka alla þá hjálp og stuðning sem hann naut hjá Jóni Guðgeirssyni, lækni, Höllu og Hallgrími, Þorsteini og konu hans og bamabömum svo og Ingólfí Þorsteinssyni, Ögmundi Þorsteinssyni og konu hans, Bjam- ey Guðmundsdóttur. Einnig Sigríði systur hans, Lúðvík Ögmundssyni, Sigrúnu Alexandersdóttur og Kristni Alexanderssyni. Ég votta vinum og vandamönn- um mína innilegustu samúð. Bles- suð sé minning Jóhanns. Megi hann hvíla í friði. „Nú legg ég augun aftur o, guð þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virst mig að þér taka mér yfír láttu vaka, þinn engil svo ég sofi rótt.“ (Sveinbjöm Egilsson þýddi.) María Jónsdóttir náttúrannar hendi. Hún var glæsi- leg kona og gáfuð, bar með sér sterkan persónuleika og þeim, sem kynntust henni, duldist ekki að í bijósti hennar sló í senn viðkvæmt en stórhuga hjarta. Tónlistarhæfi- leikar vora henni í blóð bomir og hún var sérstaklega söngelsk alla tíð, en bókmenntir og ljóð vora einn- ig hennar líf og yndi og sjálf skrifaði hún tvær bækur, skáldsögu og ljóðakver. Erla var tvígift og eignaðist sjö böm með fyrri eiginmanni sínum, sem nú era öll uppkomin, en seinni maður hennar er Helgi Kolbeinsson. Þau Erla höfðu aðeins verið gift um fárra ára skeið þegar sjúk- dómurinn, sem að lokum lagði hana að velli, gerði fyrst vart við sig. Þá var Ásdís, yngsta bam Erlu og æskuvinkona mín, aðeins níu ára að aldri. Sjúkdómsbaráttan var því löng og erfið svo að örðugt er að gera sér í hugarlund alla þá þján- ingu og hugarstríð sem hún gekk í gegnum á ríflega fímmtán áram. En Erla var óbugandi og allan þann tíma ógleymanlega atorkusöm og sterk. Gamansemin var heldur aldr- ei langt undan, en sem manneskja var hún einstaklega gefandi, svo lífsglöð og opinská í allri framkomu og viðræðum að eftir var tekið. Hún leit svo á að erfiðleikarnir væra til að kljást við og læra af og sýndi sjálf, bæði í lífi sínu og ljóðum, hvers manneskjan er megnug, ef hún kann að meta gildi líðandi stundar. Einlæg trú var henni mik- ill styrkur á erfiðum tímum, en í reynd virtist hugrekkið henni svo fullkomlega áskapaður eiginleiki. Persónuleg lífssýn hennar og hrein- lyndið, sem af henni geislaði, verða mér ávallt minnisstæð. Ég votta börnum hennar, tengda- bömum og bamabömum mína innilegustu hluttekningu, sömuleið- is Helga, sem reyndist henni stórkostlega og aldrei betur en þeg- ar á reyndi. Ég kveð Erlu með þakklæti og virðingu. Blessuð sé minning henn- ar. Guðrún Þorsteinsdóttir Þegar miskunn dauðans náði til Erlu Þórdísar Jónsdóttur 28. þ.m. var lokið löngu stríði og þungu. í 15 ár hafði hún horfst í augu við dauðann með sérstökum hætti. Erla Þórdís Jónsdóttir fæddist í Reykjavík 2. nóvember 1929. Hún var einkabam foreldra sinna, Jóns Alexanderssonar útvarpsvirkja og Þórannar Jónsdóttur konu hans. Hún varð stúdent 1948, það sama ár giftist hún Valdimar Ölafssyni, flugumferðarstjóra. Þeim fæddust 7 böm á 15 áram, en þau era: Alex- ander kennari, Ragnheiður dag- skrárklippari, Þórann sagnfræðing- ur, Liija homleikari, Trausti læknir, Vala sem hefur BA-próf í bók- menntum og Ásdís víolettuleikari. Þau Valdimar og Erla skildu 1965. Erla tók kennarapróf 1966 og stundaði kennslu meðan heilsa leyfði: Hún giftist aftur 1967. Seinni maður hennar er Helgi Kol- beinsson bifvélavirki. Árið 1972 varð Erla að ganga undir mikla læknisaðgerð vegna krabbameins og missti meðal ann- ars annað auga sitt. Eftir þá aðgerð hafði hún sæmilega heilsu í sjö ár, sinnti kennslu og vannst tóm til að koma bömum sínum til þroska. En svo tóku meinin sig upp og síðustu átta árin var óslitin barátta. Slíkt et hin mesta mannraun og væri ofurmannlegt ef sú lífsreynsla setti ekki mark á manninn. í því stríði öllu var Erlu mikill styrkur að eigin- manninum sem hvergi brást. Erla hafði á yngri áram skrifað bókina Bemska í byijun aldar, sem er aldarfarslýsing og mun hún þar einkum hafa stuðst við minningar móður sinnar. í veikindum sínum hvarf Erla á vit skáldskaparins svo sem ljóðabók hennar, Maldað í móinn, er best vitni um. Sú bók vitnar um andlega reynslu og þroska til hliðar við þrautir og sár- indi. Jón Alexandersson var templari frá bamsaldri til æviloka. Alexand- er Valentínusson faðir hans var líka virkur liðsmaður í bindindishreyf- r ;C-. :!/ -r ■*»*• jrr- •fcrúsfr*" * W

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.