Morgunblaðið - 11.03.1987, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1987
KOSNINGARIHASKOLANUM A MORGUN
Valið stendur um þrjá lista til
Stúdentaráðs og háskólaráðs
Nemendur Háskóla íslands ganga að kjör-
borði á morgun til þess að velja fulltrúa sína
í Stúdentaráði og Háskólaráði. Frambjóðend-
ur kynna stefnumál sín á fundi í stofu 101
í Odda Háskóla íslands í kvöld og hefst hann
kl. 20.00. Kosningar til ráðanna fara fram
árlega. í Stúdentaráði sitja 30 menn.
Kjörtímabil fulltrúa er tvö ár og er því kos-
ið um helming þeirra hverju sinni. Af þessum
þrátíu fulltrúum sitja fjórir í Háskólaráði.
Verður kosið um tvo þeirra núna af sérstök-
um framboðslistum. Meirihluta í Stúdenta-
ráði mynda nú 12 menn af lista Vöku, félags
lýðræðissinnaðra stúdenta og fjórir menn
undir merki félagsins Stígandi sem klufu sig
úr félagi Umbótasinnaðra stúdenta við
stjómarmyndun síðastliðið vor. Að þessu
sinni er um þijá lista að velja, Félags umbóta-
sinna, Vinstrimanna og Vöku. Blaðamaður
átti ræddi við efstu menn af framboðslistun-
um og birtast viðtölin hér á síðunni.
Sveinn Andri
Sveinsson fyrsti
maður á lista Vöku:
Stúdentaráð
verði áfram
vettvangur
faglegrar
hagsmuna-
baráttu
„Kosningarn-
ar fela að
mínu mati í sér
uppgjör á milli
gamla og nýja
tímans," sagði
Sveinn Andri
Sveinsson efsti
maður á lista
Vöku, félags
lýðræðissinnaðra stúdenta. „Gamli
tíminn er sú tíð þegar Stúdentaráð
var pólitísk stofnun slitin úr
tengslum við hinn almenna stúd-
ent. Nýi tíminn.er sú stefna, sem
verið hefur við lýði í Stúdentaráði
síðasta kjörtímabil þar sem rekin
hefur verið öflug, fagleg- og um-
fram allt árangursrík hagsmuna-
barátta. Um þessi sjónarmið kjósa
nemendur á morgun."
Sveinn sagði aðallega tvær ástæð-
ur fyrir því að Vaka setti þetta
sjónarmið á oddinn. í fyrsta lagi
væri fyrirsjáanlegt að átök yrðu við
stjómvöld um Lánasjóð námsmanna.
Forsenda þess að ná árangri í þeirri
rimmu væri samheldni stúdenta. „Við
teljum okkur ekki geta náð því marki
nema að umræðu í Stúdentaráði verði
lyft upp yfir pólitískt dægurþras sem
bíður einungis upp á sundrung,"
sagði Sveinn.
„í öðru lagi er það eitt helsta
vandamál Stúdentaráðs hversu mikið
andvaraleysi hinn almenni stúdent
virðist sýna störfum þess og veiti því
lítið aðhald. Orsökin er án efa það
pólitíska yfirbragð, sem ráðið hefur
haft á sér. Þessu við breyta.
Okkar hugsjón er sú, að Stúdenta-
ráð verði í framtíðinni eins og hvert
annað faglegt hagsmunafélag, þar
sem vinna er lögð í hagsmunamálin
í stað þess að karpa um dægurmál.
Eina leiðin til þess að sú hugsjón
verði að veruleika, er að stúdentar
mæti á kjörstað og kveði upp sinn
endanlega úrskurð."
Um árangur meirihlutans á liðnu
kjörtímabili nefndi Sveinn stórátak
sem gert hefði verið í húsnæðismál-
um. Stefnt væri að því að flutt yrði
inn í fyrstu íbúðimar í nýjum hjóna-
görðum á næsta ári. Þá hefði
Félagsstofnun sótt um leyfi til að
byggja stórt dagvistarheimili. Þegar
það risi muni dagvistarrými fyrir
böm stúdenta stóraukast.
„Það hefur verið mál manna að
Stúdentablaðið hafi sjaldan verið
læsilegra en einmitt í vetur. Það verð-
ur áfram stefna okkar að hafa blaðið
skemmtilegt og fræðandi en ekki
neinn áróðurssnepil," sagði Sveinn.
„Helsta gagnrýni andstæðinga okkar
hefur raunar verið að starfsemi Fé-
lagsstofnunar skili hagnaði. Um hana
er það að segja að þennan gróða má
rekja til þess reikningsárs er Vinstri-
menn voru í meirihluta.
Við höldum fast við þá stefnu að
hallarekstur eigi ekki að vera á
rekstrareiningum Félagsstofnunar.
Því lögðum við matsöluna niður að
þar var stöðugur halli og aðeins örfá-
ir notuðu sér þjónustuna. Það er út
í hött að meirihluti stúdenta greiði
niður mat annarra."
Um það sem framundan væri í
hagsmunabaráttu námsmanna sagði
Sveinn að brýnast yrði að fá fram
leiðréttingu á upphæð námslána. Hún
ætti réttilega að vera um 26.000
krónur ef „frystingin" svonefnda
hefði ekki komið til. „Frystingin átti
sér stað í stjómartíð meirihluta
Vinstrimanna," sagði Sveinn. „Hún
var síðan afnumin eftir að núverandi
meirihluti tók við. Hvaða töfrbrögð-
um Vinstrimenn hyggjast beita til að
ná fram leiðréttingu, sem þeir ekki
gátu galdrað fram á sínum tíma,
veit ég ekki.“
Sveinn sagði að bylting hefði orðið
í ýmsum málaflokkum stúdenta á
liðnum vetri. Hátíðahöld á fyrsta des-
ember hefðu verið endurreist með
samvinnu deildarfélaganna. Þau
væru því ekki lengur pólitísk eins og
tíðkast hefði um árabil. „Stefna okk-
ar er að eiga sem besta samvinnu
við deildarfélögin og efla þannig sam-
stöðu innan Háskólans," sagði hann.
Valborg Snævarr
efsti maður á lista
Vöku til Háskóla-
ráðs:
Gott sam-
starf og
traust gildir
mestu
„Stúdentar
eru i minni-
hluta innan
háskólaráðs.
Þar gildir
mestu að ná
góðu sam-
starfi og
ávinna sér
traust. Því
miður hafa verið brögð að því á
undanförnum árum að stúdentar
í ráðinu hafi lent í andstöðu við
meirihluta þess,“ sagði Valborg
Snævarr efsti maður á lista Vöku
til Háskólaráðs.
„Háskólaráð er æðsta stofnun
skólans og valdsvið þess er ákveðið
í lögfum. Hlutverk okkar fulltrúa er
að standa vörð um.hagsmuni stúd-
enta. Við munum leitast við að bera
fram tillögur sem bæta stöðu þeirra
gagnvart yfirvöldum og kennurum.
Þetta næst ekki með andstöðu heldur
jákvæðu hugarfari," sagði Valborg.
Af einstökum stefnumálum nefndi
hún að samstarf háskólans við aðila
utan skólans og sala á þjónustu há-
skólafólks hlyti að vera nemendum í
hag. „Vinstri menn hafa reynt að
koma vondu orði á þessa sjálfsögðu
þróun. Eins og málum er komið í dag
getur Alþingi með fjárveitingavaldi
sínu algjörlega stjómað skólanum,
en ein leið úr þeim fjötrum er að
hann skapi sér fleiri tekjustofna,"
sagði Valborg.
Ástráður Haralds-
son efsti maður á
lista Vinstrimanna
til Háskólaráðs:
Ekki djúp-
stæður
ágreiningur
um stefnu
innan ráðs
„Ólíkt kosn-
ingum til
Stúdentaráðs
snúast kosn-
ingar til
Háskólaráðs
ekki um af-
stöðu stúdenta
til einstakra
mála, nemend-
ur velja fremur um persónur og
þá grundvallar lífsskoðun sem þeir
hafa,“ sagði Ástráður Haraldsson
efsti maður á lista Vinstrimanna
til Háskólaráðs. „Það er ekki djúp-
stæður ágreiningur á milli fylking-
anna varðandi stefnu stúdenta i
ráðinu og okkur er enginn akkur
í þvi að búa hann til. Samstarf
stúdenta innan ráðsins hefur i'ram
til þessa verið gott og ég stefni
að viðhalda því.“
Ástráður sagði að stúdentar hlytu
að beita sér fyrir því sækja hlut skól-
ans gagnvart ríkisvaldinu af meiri
hörku. Skólinn hefði í raun búið við
fjársvelti og stefna stjómvalda væri
að skera fjárframlög niður enn frek-
ar. „Vinstri menn leggja á það
áherslu að þetta er ekki einangrað
vandamál Háskólans, heldur angi af
þeim vanda sem hijáir menntakerfíð
í landinu. Engin heildarstefna er til
og mikið starf fyrir höndum að móta
hana.“
Ástráður sagði það eitt helsta bar-
áttumál að koma á fót Háskólaút-
gáfu. Það væri ekki aðeins um
hagsmuni nemenda að tefla heldur
ekki síður kennara. „Innan skólans
ríkir algjört ófremdarástand í útgáfu-
málum. Kennarar em að bisa' við
þetta hver í sínu homi og fá engin
ritlaun fyrir. Ég vonast til að sterk
Háskólaútgáfa geti orðið skólanum
lyftistöng og tekjulind," sagði Ást-
ráður.
Runólfur Ágústsson
efsti maður á lista
Vinstrimanna:
Sjaldan verið
brýnna að
stúdentar
veiti yfir-
völdum
aðhald
„Við teljum að
núverandi
meirihluti hafi
rekið varnar-
baráttu og
ekki sótt hlut
stúdenta
gagnvart yfir-
völdum
menntamála,"
sagði Runólfur Ágústsson efsti
maður á lista Vinstrimanna. „Þessi
stefna hefur borið lítinn árangur.
Það að frumvarp menntamálaráð-
herra sofnaði er ekki meirihlutan-
um að þakka heldur upphlaupi
Finns Ingólfssonar sem rekja má
til kosningaskjálfta innan Fram-
sóknarflokksins."
Runólfur sagði það skoðun Vinstri-
manna að lögum um Lánasjóð
íslenskra námsmanna frá árinu 1982
væri ekki framfylgt. Vantaði 20% upp
á að stúdentar fengju það lán sem
þeim bæri. Su skerðing næmi 5303
krónum á mánuði. Það yrði því eitt
af markmiðum listans að sækja þenn-
an skerta hlut og færa námslán að
almennum launum í landinu.
„Þar sem allt útlit er fyrir að hægri
öflin taki völdin í landinu eftir næstu.
Alþingiskosningar, annnaðhvort með
myndun hægri stjómar í núverandi
mynd eða Viðreisnar hljóta stúdentar
að þurfa að veijast árásum á hags-
muni sína,“ sagði Runólfur. „Við
höfnum alfarið hugmyndum sjálf-
stæðismanna og Alþýðuflokks um
vexti á námslán.
Það hefur sjaldna verið brýnna að
Stúdentaráð veiti yfírvöldum aðhald.’
{ núverandi landslagi stjómmála inn-
an háskólans em vinstri menn einir
um að geta það því hægrimenn í
Vöku em ekki færir um að veita
hægri mönnum í menntamálaráðu-
neytinu aðhald.“
Rúnólfur sagði Vinstri menn
andvíga því að reka Félagsstofnun
stúdenta með gróðarsjónarmiðið eitt
í huga eins og nú væri gert. „Meiri-
hlutinn hefur lagt niður þær rekstrar-
einingar sem ekki bera sig, eins og
Matsöluna og Stúdentakjallarann.
Við teljum rangt að á meðan heildin
skilar hagnaði séu einingar sem ekki
bera sig lagðar niður," sagði hann.
Aðspurður hvort stuðningsyfírlýs-
ing Lám V. Júlíusdóttur frambjóð-
anda Alþýðuflokksins til Alþingis í
kosningariti Vinstrimanna táknaði að
listinn væri meðmæltur stefnu for-
ystumanna flokksins í lánamálum
stúdenta sagði Runólfur að svo væri
ekki.
„Þeir sem veittu' okkur þessar
stuðningsyfírlýsingar koma fram sem
einstaklingar. Með því em þeir að
lýsa yfir að nauðsynlegt sé að Stúd-
entaráð veiti menntamálaráðherra
aðhald og að vinstri mönnum sé best
treystandi til þess. Ég lýt svo á að
Lára og Guðmundur Ami Stefánsson
séu með þessu að lýsa sig ósammála
þeirri stefnu sem Jón Sigurðsson
boðaði á fundi um lánamál með stúd-
entum í Háskólabíói," sagði Runólfur.
Hann svaraði spumingu um hvort
Stúdentaráð ætti að taka afstöðu til
þjóðfélagsmála játandi. „Ég lít svo á
að við getum ekki grafíð skurð í
kringum Háskólalóðina og lokað aug-
unum fyrir því sem er að gerast í
þjóðfélaginu," sagði Runólfur. „At-
burðir á vettvangi þess geta skipt
stúdenta mjög miklu máli. Stefna
núverandi meirihluta hefur hinsvegar
verið að hafna allri pólitík í Stúdent-
aráði og segjast þeir líta á það sem
stéttarfélag nemenda. Við getum ver-
ið sammála um það, en ágreiningur-
inn snýst þá um hlutverk stéttarfé-
laga.
Ég get nefnt sem dæmi að núver-
andi meirihluti vísaði frá ályktun til
stuðnings kjarabáráttu BHMR á
þeirri forsendu að hún kæmi stúdent-
um ekki við. Þar sem flestir stúdentar
munu ganga inn í það stéttarfélag
að loknu námi og kennarar þeirra eru
aðilar að því teljum við að þessi kjara-
bárátta snerti okkur mjög mikið.“
Runólfur sagði að fímm fulltrúar
Vinstrimanna í stúdentaráði hefðu
nú lokið kjörtímabili sínu. í þeirra
stað hyggðist listinn ná inn sjö mönn-
um. Fulltrúatalan yrði þá 15 og
Vinstri menn því í aðstöðu til að geta
ráðið meirihlutanum. „Þannig tryggj-
um við að umbótasinnar verði að
semja við okkur því reynslan sýnir
að þeim hættir að síga til hægri,"
sagði Runólfur.
Ágúst Ómar Ágústs-
son efsti maður á
lista Félags umbóta-
sinnaðra stúdenta:
Yiljum stilla
öfgar í
stjórnmálum
stúdenta
„Helsta bar-
áttumál
umbótasinna
er að standa
vörð um lána-
sjóð náms-
manna. Við
stöndum ein-
örð gegpi
hugmyndum
um vexti eða þak á námslán sem
nefnd á vegum menntamálaráð-
herra lagðj fram sem _ kunnugt
er,“ sagði Ágúst Ómar Ágústsson
efsti maður á lista Félags umbóta-
sinna til Stúdentaráðs. „Markmið
framboðsins verður sem áóur að
stilla þær öfgar sem verið hafa
við liði í stjórnmálum stúdenta.
Tveggja flokka kerfið gengur ein-
faldlega ekki upp.“
Agúst sagði að húsnæðismál stúd-
enta væru ofarlega á stefnuskrá
Jk.x.
ÍMBMS
Js*t.
f.