Morgunblaðið - 11.03.1987, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1987
Til þess voru
þorskastríðin háð
GUNNAR G. Schram, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes-
kjördæmi, deildi á sjónarmið
Karls Steinars Guðnasonar um
erlent fjármagn í sjávarútvegi í
þingræðu i fyrri viku. Ræða hans
fer hér á eftir í heild:
„Við íslendingar höfum á liðnum
árum og áratugnm háð langa og
harða baráttu fyrir því að ná yfír-
ráðum yfír auðlindum landgrunns-
ins, fiskimiðum okkar. Við getum
rakið þá baráttu allt aftur til ársins
1950, þegar landhelgin fyrir Norð-
urlandi var færð út í 4 sjómílur
undir forystu Ólafs Thors og síðan
í kringum allt ísland 1952. Þessari
löngu baráttu og mörgu þorska-
stríðum lyktaði árið 1976 þegar
ísland lýsti yfír 200 sjómílna efna-
hagslögsögu undir forystu Geirs
Hallgrímssonar og ríkisstjómar
hans.
Það var mikið stríð, sem á þess-
um árum var háð, og það voru
ýmsar fómir færðar í því stríði. Það
gekk ekki þrautalaust og kostaði
úlfúð og illdeilur við marga okkar
ágætu nágranna. Sú barátta var
fyrst og fremst _háð til þess að ís-
lendingar og íslendingar einir
fengju eignarhald og óskoruð yfír-
ráð yfír auðlindum landgrunnsins.
Auðlindir landgrunnsins hafa verið
og eru undirstaðan undir velmegun
og framfömm íslensku þjóðarinnar
í dag. A því leikur ekki hinn minnsti
vafí, þótt þáttur iðnaðar hafí farið
vaxandi í íslenskum þjóðarbúskap
á síðustu árum.
Með þetta í huga og þá sögu sem
er að baki er við losuðum okkur
við útlendingana af íslenskum mið-
um fyrir — til þess að gera —
aðeins örfáum ámm, þá vekur það
stóra undran og mikla furðu að lesa
Alþýðublaðið þriðjudaginn þann 3.
mars sl. í stórri forsíðufyrirsögn
segir og efst á forsíðu: „Erlent fjár-
magn í fískvinnsluna. Fögnum nýju
framtaki í atvinnumálum, segir
Karl Steinar Guðnason alþingis-
maður.“ Og síðan segir orðrétt í
frétt Alþýðublaðsins af þessum at-
hyglisverðu ummælum þessa þm.
Alþfl. Karls Steinars Guðnasonar,
6 landsk. þm. og ég með leyfi
hæstv. forseta les orðrétt:
„Við fögnum öllu nýju framtaki
í atvinnumálum. Með þessu móti
hefur fengist fjármagn. Erlendir
aðilar hafa nýverið keypt sig inn í
tvö fyrirtæki. Við frábiðjum okk-
ur“, og ég held áfram að vitna í
orð þingmannsins, „við frábiðjum
okkur allan gamaldags hugsunar-
hátt og einangrun. Það er því engin
ástæða til annars en horfa björtum
augum til framtíðarinnar því að
þessi fyrirtæki vita nákvæmlega
hvað þau eru að gera sagði Karl
Steinar", og tilvitnun lýkur.
Ég efast ekki um það að þau
erlendu fyrirtæki sem þingmaður-
inn tíundar hér vita nákvæmlega
hvað þau eru að gera. Til þess hafa
þau verið að kaupasig inn í íslensk-
an sjávarútveg. Ég efast heldur
ekki um það, að það er einhver
skammvinnur — hugsanlega lang-
vinnur stundargróði að slíkum
kaupum, fyrst og fremst þó vitan-
lega fyrir hinn erlenda flármagns-
aðila, en hugsanlega einhver
skammvinnur gróði fyrir hina
íslensku samstarfsmenn, ég skal
ekki neita því. En það sætir mikilli
furðu að maður sem jafn gerkunn-
ugur er sjávarútvegsmálum og á
það langa þingsögu að baki sem
Karl Steinar Guðnason skuli ekki
gera sér ljóst hvílíkar dyr hættunn-
ar eru opnaðar með slíku skrefí.
Að jafnan reyndur þm. með jafn
mikla þekkingu á sjávarútvegsmál-
um skuli fagna því sérstaklega að
erlendu fjármagni sé á þennan hátt
greidd leið inn í íslenskan sjávarút-
veg. Að með þessu skuli horfíð aftur
inn á þá braut sem íslenska þjóðin
hefur ötullega á undanfömum ára-
tugum barist fyrir að yrði ekki
gengin lengra. En þingmaðurinn
fagnar þessu nýja framtaki í at-
vinnumálum svo að orð hans sjálfs
séu notuð.
En hvemig mega þessi undur og
stórmerki gerast, að erlent fjár-
magn sé að kaupa sig — og þetta
eru aðeins fyrstu skrefín — inn í
íslenskan sjávarútveg, þar sem Is-
lendingar hafa vitanlega alla burði
til þess að standa sjálfír að verki
og til þess voru þorskastríðin háð.
Það er vegna þess að það er í
íslenskri löggjöf þar sem lögfræð-
ingar nefna oft og tíðum einfaldlega
gat í lögum og ég vil skýra það
örlítið nánar og í því sambandi lang-
ar mig til þess að vitna í skýrslu
sem viðskiptaráðherra, sem hér sit-
ur í salnum í dag sem endranær,
hefur nýlega lagt fyrir Alþingi og
er 389. mál þessa þings og heitir
„Skýrsla viðskiptaráðherra um er-
lenda íjárfestingu og íslenskt
atvinnulíf."
í þessari skýrslu kemur það fram
sem sjávarútvegsráðherra rakti, að
í lögum frá 1922 um fiskveiðar í
landhelgi segir að einungis
íslenskum ríkisborgurum sé
heimilt að stunda fiskveiðar í
landhelgi við ísland. Þessi regla
nær ekki aðeins til einstaklinga
heldur og til sameignarfélaga og
annarra félaga sem rekin eru með
ótakmarkaðri ábyrgð félagsmanna.
Um hlutafélög gegnir að vissu leyti
öðru máli. Þar kveða iögin svo á
að meira en helmingur hlutaflár í
hlutafélögum sem reka útgerð skuli
vera í eigu íslenskra ríkisborgara.
Félagið skuli eiga lögheimili hér á
landi og stjóm þess skipuð íslensk-
um ríkisborgurum og sé a.m.k.
helmingur þeirra búsettur hér.
Ákvæði þessara gömlu laga sem
hafa verið grundvöllurinn fyrir
íslensku forræði í fiskveiðum frá
1922 em ekki eins skýr að því er
varðar fískvinnsluna eins og físk-
veiðamar. Og í skýrslu þeirri sem
nú liggur fyrir Alþingi segir um
það, að samkvæmt athugasemdum
sem fylgdu frumvarpinu frá 1922
var megintilgangur þeirra sá að
koma í veg fyrir að útlendingar
gætu stundað fiskveiðar innan land-
helgi og verkað aflann þar eða á
landi. Og síðan segir orðrétt hér í
skýrslu viðskrh. um erlendar fjár-
festingar „að um það álitaefni
hvemig með skyldi farið ef útlend-
ingur fjárfesti í fyrirtæki sem
einvörðungu stundar fískvinnslu en
ekki útgerð, virðist ekki fjallað í
lögunum." Tilvitnun lýkur í þessa
fjárfestingarskýrslu sem viðskipta-
ráðherra lagði nýlega fyrir þing og
hefur ekki verið hér enn til umræðu.
M.ö.o. þá er það einfaldlega
vegna þess að það er eyða í lögun-
um, að lögin nr. 33 frá 1922 era
fyrst og fremst ætluð til þess að
koma í veg fyrir veiðar erlendra
manna hér við land í íslenskri land-
helgi, en þau taka varla og senni-
lega ekki til fískvinnslunnar. Þar
Rýmkun reglna um erlendar
fjárfestingar til athugunar
NEFND á vegum forsætisráðherra
kannar nú, hvort grundvöllur sé
fyrir því, að rýmka rétt manna til
þess að afla erlends áhættufjár-
magns til fjárfestingar í íslenskum
atvinnurekstri.
Þetta kom fram í svari Matthiasar
Bjamasonar, visðkiptaráðherra,
við fyrirspum frá Gunnari G.
Schram (S.-Rn.) á Alþingi í gær.
Ráðherrann minnti á, að nýverið lét
hann dreifa til þingmanna skýrslu
um þetta efni, sem tekin var saman
á vegum viðskiptaráðuneytisins. Þar
hefði komið fram, að ýmsar takmark-
anir væru á rétti manna til koma
með erlent fjármagn inn í íslenskan
atvinnurekstur. Ef auka ætti hlut-
deild erlends áhættufjármagns yrði
því að breyta ýmsum lögum. Mikil-
vægt væri, að gæta þess að útlent
fjármagn flæddi ekki inn í íslenskar
útflutningsatvinnugreinar.
Svavar Gestsson (Abl.-Rvk.)
sagði, að fyrirspumin tengdist einu
viðamesta deilumáli íslenskra stjóm-
mála um langt skeið. Nauðsynlegt
væri því, að ákvarðanir yrðu ekki
teknar í þessu efni nema undan færi
þverpólitísk könnun á öllum atriðum
málsins. Gjalda yrði varhug við opnun
landsins fyrir erlendu fjármagni, þar
sem efnahagslegt sjálfstæði okkar
kynni að vera stefnt í voða.
Gunnar G. Schram (S.-Rn.) sagði,
að reynsla annarra þjóða af erlendri
fjárfestingu væri sú að hún hefði í
för margvíslegt hagræði umfram er-
lendar lántökur. Hann kvaðst fagna
því, að athugun færi nú fram á rýmk-
un á reglum um þessi efni. Jafnframt
sagðist hann taka undir það, að fara
yrði varlega, sérstaklega í útflutn-
ingsgreinunum. Aftur á móti gæti
erlent áhættufé nýst vel í iðnaði og
þjónustu.
Viðskiptaráðherra sagði vegna
orða Svavars Gestssonar, að þegar
nefnd forsætisráðherra hefði lokið
störfum væri að sínu kominn tími til
pólitískra ákvarðana. Þar ættu full-
trúar allra þingflokka að eiga aðild.
Hjörleifur Guttormsson (Abl.-
Al.) fagnaði því, að allir þingflokkar
fengju aðild að stefnumörkun um
erlendar fjárfestingar. Hann beindi
síðan orðum sínum til sjálfstæðis-
manna og sagði, að þeir yrðu að
skilgreina betur, hvar nota mætti
erlent fjármagn. Atvinnugrein, sem
ekki hefði verið útflutningsgrein,
gæti t.d. orðið það.
Matthías Bjarnason, viðskipta-
ráðherra, sagði, að eðlilegt væri að
Alþingi markaði sjálft stefnuna, þeg-
ar um meiriháttar íjárfestingar
útlendinga hér á landi væri að ræða,
“eins og reyndin hefði t.d. verið þegar
álverið í Straumsvík var reist. Þegar
um minniháttar fjárfestingar útlend-
inga væri að ræða ætti ekki að vera
þörf á slíkum afskiptum þingsins.
Gunnar G. Schram
er eyða í lögin eða gat í lögin. Það
er í skjóli þessa sem erlent fjár-
magn sér sér nú leik á borði að
komast inn í íslenska fiskvinnslu
og það er í skjóli þessarar eyðu sem
sumir þingmenn Alþfl. eða þing-
maður Alþfl., því ég ætla þeim ekki
öðram að hafa þessa sömu skoðun,
fagna þessu nýja framtaki í at-
vinnumálum.
Herra forseti. Ég held að það
fari ekki á milli mála þegar við
ræðum um fískmarkað og þau mál
sem því efni tengjast, þá sé óhjá-
kvæmilegt að minnast á þessi atriði
einnig vegna þess að hér er um það
stórvægilegt atriði að ræða, þ.e.
kaup erlendra aðila á fiski í gegnum
íslensk fyrirtæki og félög, að mikil
áhrif gæti raunveralega haft á
væntanlega fískmarkaði hér í
Reykjavík og annars staðar á
landinu. En það er kannske ekki
aðalatriðið. Aðalatriðið er að það
er nauðsynlegt að setja skýr og
ótvíræð lagaákvæði. Eins og þessi
skýrsla sýnir og eins og ummæli
sjávarautvrh. bára með sér hér áð-
an um það hvort við Islendingar
viljum að erlendir aðilar, erlent fjár-
magn, eigi hér beina hlutdeild í
íslenskri fískvinnslu eða ekki.
Við getum fallist á að erlent §'ár-
magn og erlendar fjárfestingar séu
á mörgum sviðum íslensks atvinnu-
lífs nauðsynlegar. Sjálfur er ég
talsmaður þess að víða geti verið
gagn að erlendu fjármagni og er-
lendum fjárfestingum og þá frekar
oft á tíðum heldur en í formi beinna
lána þar sem áhættan hvílir öll á
herðum íslendinga einna. En þau
lán era orðin yfrið há. En við verð-
um hér að gera skýran greinarmun
á því á hvem hátt erlend fjárfesting
er notuð í íslensku atvinnulífí og á
hvaða sviðum hún getur átt sér
stað og þar verðum við fyrst — og
það er meginatriði þessa máls —
að undanskilja auðlindir íslands
þannig að útlendingar nái aldrei
tangarhaldi á auðlindum landsins
hvort sem er til lands eða sjávar.
Og því er í ljósi þessara ummæla
þingmanna Alþýðuflokksins fagnað
innreið þessa erlenda fjármagns í
íslenska fiskvinnslu. Því er brýn
nauðsyn, höfuðnauðsyn fyrir Ál-
þingi íslendinga, að setja skýr
ákvæði um það hvort löggjafarsam-
kundan er sammála skoðun þessa
forystumanns Alþýðuflokksins eða
ekki.“
Island verði friðlýst
fyrir kjamorku- og
eiturefnavopnum
FRAM er komið á Alþingi frum-
varp til laga um friðlýsingu
íslands fyrir kjarnorku- og eitur-
efnavopnum. Fyrsti flutnings-
maður er Steingrímur J.
Sigfússon, þingmaður Alþýðu-
bandalagsins, en aðrir flytjendur
eru samflokksmenn hans Guðrún
Helgadóttir, Hjörleifur Gutt-
ormsson og Svavar Gestsson,
Guðrún Agnarsdóttir þingmaður
Kvennalistans, og Páll Péturs-
son, formaður þingflokks
framsóknarmanna.
I 1. gr. frv. segir, að lögin geri
ísland að friðlýstu svæði, þar sem
bannað sé að koma fyrir, staðsetja
eða geyma, flytja um eða með-
höndla á nokkurn annan hátt
kjamorku- eða eiturefnavopn. í
2.gr. segir, að markmið laganna sé
að gera allt íslenskt yfírráðasvæði
kjarnorku- og eiturefnalaust, afla
hinu friðlýsta svæði alþjóðlegrar
viðurkenningar, draga úr hættunni
á kjarnorku- og eiturefnaóhöppum
á og í grennd við ísland og stuðla
að afvopnun og friði af íslands
hálfu.
Frumvarpið er lagt fram til kynn-
ingar og „til að hefja umræður um
hvemig staðið skuli að því að festa
í lög þá yfirlýstu stefnu Alþingis
og ríkisstjóma að hér skuli ekki
geymd kjarnorkuvopn“, eins og
komist er að orði í greinargerð.
Kvennalist-
inn á Suð-
urlandi
Selfossi.
KVENNALISTINN á Suðurlandi
samþykkti framboðslista sinn
fyrir komandi Alþingiskosningar
á félagsfundi á Selfossi föstudag-
inn 6. mars síðastliðinn.
Listinn var síðan kynntur á há-
tíðafundi á Hótel Selfossi 8. mars,
sem er alþjóðlegur baráttudagur
kvenna. Listinn er þannig skipaður:
1. Kristín Ástgeirsdóttir kennari,
Reykjavík, 2. Lilja Hannibalsdóttir
hjúkranarkona, Selfossi, 3. Ragna
Björg Bjömsdóttir húsfreyja,
Lambalæk, Fljótshlíð, 4. Edda Ant-
onsdóttir kennari, Vík Mýrdal, 5.
Sigurborg Hilmarsdóttir kennari,
Laugarvatni, 6. Ólafía Sigurðar-
dóttir meinatæknir, Selfossi, 7.
Guðrún Halla Jónsdóttir kennari
Kirkjubæjarklaustri, 8. Ólína
Steingrímsdóttir verkakona, Sel-
fossi, 9. Drífa Kristjánsdóttir
húsmóðir, Torfastöðum, Biskups-
tungum, 10. Kolbrún Baldursdóttir
húsmóðir, Vestmannaeyjum, 11.
Margrét Aðalsteinsdóttir nemi,
Hveragerði, 12. Sigríður Jensdóttir
bæjarfulltrúi, Selfossi.
Sig.Jóns.
Staðgreiðslu-
frumvarpið:
Útsvars-
prósentan
úr 7% í 7,5%
STJÓRNARFLOKKARNIR hafa
komist að samkomulagi um að
útsvarsprósentan samkvæmt
nýju skattalögunum verði að
hámarki 7,5% i stað 7%, eins og
frumvarpið gerði ráð fyrir. Eyk-
ur þetta skattbyrðina eitthvað,
en ekki er Ijóst hversu mikið, þar
sem ekki er vitað hversu mörg
sveitarfélaganna munu notfæra
sér réttinn til hámarksálagning-
ar.
Geir H. Haarde aðstoðarmaður
fjármálaráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að þegar unn-
ið var að gerð framvarpsins, hefði
verið stuðst við álagninguna 1986
sem grandvallaðist á tekjum ársins
1985. Þessar tölur hefðu verið
framreiknaðar eftir þeim upplýsing-
um sem legið hefðu fyrir. Þjóð-
hagsstofnun hefði síðan verið beðin
um að gera spá um álagninguna
fyrir árið 1987 á grandvelli gild-
andi álagningarreglna. „Þá kom í
ljós að ríkissjóður mun fá svipaða
upphæð og við gengum út frá við
undirbúning málsins," sagði Geir,
„en hins vegar kom í ljós, að tekjur
sveitarfélaga munu væntanlega
aukast veralega á þessu ári, eins
og margt benti raunar til. Þessar
forsendur benda til þess að skatt-
heimta sveitarfélaganna aukist um
900 milljónir króna á þessu ári.“
Hann sagði að af þeim sökum
færa sveitarfélögin upp fyrir þakið
í framvarpinu, sem hefði verið mið-
að við síðustu álagningu. Til þess
að halda sömu tekjum og 1986, þá
hefði ekki þurft að leggja á nema
6,25% útsvar, en samkvæmt þessu
þá þyrfti álagningin að vera 7,2%
og því hefði þakið verið hækkað
úr 7% i 7,5%.
„Þetta þótti sjálfsögð breyting,
þar sem aldrei hefur staðið til að
takmarka álagningarmöguleika
sveitarfélaga, frá því sem nú er í
tengslum við upptöku staðgreiðslu-
kerfisins," sagði Geir.