Morgunblaðið - 11.03.1987, Síða 54
54
fclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1987
Reuter
Tutu (t.v.) stendur hér við
vaxmyndina glettinn á svip.
Reuter
Willie Thorne sýnir hér Kou
Nan, liðsforingja í Kínaher,
hvernig fara eigi að við að
hreinsa af borðinu. Er ekki ann-
að að sjá en Kou Nan sé fullur
áhuga.
Snóker
í Kína
w
|„alþýðulýðveldinu“ Kína var
haldið alþjóðlegt snókermót í
fyrsta skipti nú um helgina. Það
var snókerkempan Willie Thome,
sem rúllaði andstæðingum sínum
upp og hremmdi þannig bikarinn
og vegleg verðlaunin.
Þetta þýkir þykir vera enn eitt
dæmið um að kommúnistastjómin
í Peking, sé að opna landið fyrir
vestrænum áhrifum, en að undan-
fömu hefur borið í síauknum mæli
á hverskonar tískufyrirbrigðum,
sem eiga rætur sínar að rekja til
hins fijálsa heims. Segja sumir að
fyrst að snókerinn sé kominn til
Kína, styttist í að opnaðir verði
pöbbar að bresku sniði og menn
fari að keppa í pílukasti. Líklega
þurfa Kínvetjar þó að bíða nokkuð
enn eftir því.
Snjó kastað.
Reuter
Frá Krizia koma þessir kvöldklæðnaðir, en þeir eru ekki alls
óskyldir þeim klæðnaði, sem vinsælastur hefur verið það sem af
er árinu. Þrátt fyrir að herðparnar séu miklar um sig er sniðið
kvenlegt og áhersla á það lögð með satínsiaufunni um hálsinn,
en slaufur hverskonar hafa notið æ meiri hylli að undanförnu.
Pilsið við er líka úr satíni, en jakkinn er úr flaueli og gljáir
langar leiðir.
* -
m
m
....
*
.
mm
Erkibiskup
í tvíriti
Reuter
Snjókast á Akropolis
Þó svo að íslendingar njóti einmuna veðurblíðu og
mildur vetur hafi verið samstíga góðærinu, þá
hafa ekki allir notið siíks hins sama.
Beggja vegna Atlantshafs reyndist veturinn mönnum
þungur í skauti — frost vom mikil og langvinn, illviðri
tíð og veðurfar almennt slæmt. Yfírreið Veturs konungs
er þó greinilega enn ekki lokið, því nú á mánudaginn
gengu snjóstormar yfir Grikkland. Hlóðust upp
snjóskaflar og þurftu menn að klæðast vetrarfötum,
en til þessa hefur Grikkjum nægt að renna upp í hálsinn
þegar kaldast hefur orðið.
Meðfylgjandi mynd var tekin á Akropolis-hæð, en
þar fóm ferðamenn í snjókast.
Séra Desmond Tutu,
erkibiskup af Jóhann-
esarborg, hefur loks slegið
í gegn svo um munar. Það
gerði hann á mánudag, þeg-
ar afhjúpuð var vaxmynda-
stytta af honum í safni því,
sem kennt er við Tussaud
maddömu. Biskupinn flaug
sérstaklega frá Suður-
Afríkuna til þess að vera
viðstaddur afhjúpunina.
„Menn geta orðið svo og
svo frægir, en það er ekki
fyrr en að vaxmynd er sett
upp af manni hjá Madame
Tussaud’s að það er opin-
berlega staðfest að maður
sé eitthvað", var einhveiju
sinni haft eftir George Best,
knattspymumanninum
kunna. Tutu biskup er
greinilega sammála Best,
því að þegar þess var farið
á leit við hann að hann
sæti fyrir hjá listamannin-
um Steve Swales, sagði
hann það auðsótt mál og sat
hann fyrir í rúmlega tvær
vikur síðastliðinn maí og gaf
föt af sjálfum sér til þess
að klæða vaxmyndina. Hvað
gera menn ekki fyrir frægð-
ina?
Það er hætt við að
þessari stúlku yrði nú
kalt hér á landi, ef
alvöruvetur skyldi
gera. Þessi dragt frá
Versace Couture er
úr smáköflóttu efni
þar sem á skiptist
hvítt og svart. Yfir
allt saman er stúlkan
síðan sveipuð slá, sm
hægt er að taka betur
um sig ef þarf. Það
er Gianna Versace,
sem hannaði flíkina.
Nýjasta
tíska
frá
Mílanó
Nú þegar eru
tískuhönnuðir
byijaðir að huga að vetrar-
og hausttískunni, þó svo
að varla sé nú byijað að
örla á vorinu ennþá. Geta
íslenskir tískuáhugamenn
vonandi merkt af
meðfylgjandi myndum
hveijir straumar og stefnur
verða í hérlendri tísku
næsta vetur.