Morgunblaðið - 11.03.1987, Síða 64
Þjónusta
íþínaþágu
SAMViNNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíðum Moggans!____________x
MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Verkfall
bygginga-
manna
hófst í nótt
VERKFALL 1637 bygginga-
manna i Trésmiðafélagi
Reykjavíkur, Iðnsveinafélagi
Suðurnesja, Félagi bygginga-
manna á Selfossi og Félagi
byggingamanna í Hafnarfirði
hófst á miðnætti í nótt. Sátta-
fundur stóð yfir hjá ríkissátta-
semjara í allan gærdag og stóð
enn þegar Morgunblaðið fór í
prentun eftir miðnættið.
Fimm félög innan Sambands
byggingamanna semja sér við sína
vinnuveitendur en sambandið hefur
samningsumboð fyrir önnur félög
og þar af hafa byggingamenn í
Hafnarfírði einir boðað verkfall.
Morgunblaðið ræddi í gær við
nokkra byggingamenn í Reykjavík
um verkfallið. Fram kom hjá þeim
nokkur óánægja með verkfalls-
boðunina en að rétt væri að styðja
verkfallið úr því sem komið væri
til að sýna samstöðu.
Sjá viðtöl á blaðsíðu 47.
Tollfrjáls innflutn-
ingur ferðamanna:
Hámarksupp-
hæð hækkuð
úr7í 14þúsund
VÆNTANLEG er ný reglugerð
fjármálaráðuneytisins, þar sem
innflutningsmarkið hjá ferða-
mönnum er tvöfaldað, úr 7
þúsund krónum í 14 þúsund krón-
Geir H. Haarde aðstoðarmaður
fjármálaráðherra var spurður hvort
þessi hækkun væri nægileg: „Þetta
er nú umtalsverð hækkun, eða tvö-
földun, en vel kann að vera að
sumum fínnist hámarkið mega
hækka enn. Það verður einnig að
hafa í huga, að það er ekki okkar
markmið að flytja verzlunina úr
landinu. Innlend smásala verður að
fá sín tækifæri einnig," sagði Geir.
. Morgunblaðið/Sigurgeir
Loðnubatar hafa komið drekkhlaðmr að landi í Eyjum síðustu dagana. Hér er það Erling KE sem kemur að landí með meira en 800
lestir og er svo siginn að ókunnugur hefði getað haldið að þarna væri kafbátur á ferð. Bátarnir eru svona mikið hlaðnir vegna þess
hve stutt sigling er af miðunum. 6 1
Loðnubátarnir drekkhlaðnir til Eyja
Vestmannaeyjum.
BÚIÐ er að frysta um 1200 lestir af loðnuhrognum í Vestmanna-
eyjum á vertíðinni. Hefur vinnslan gengið vel þrátt fyrir frekar
rysjótt tíðarfar og verið unnið á vöktum allan sólarhringinn í
frystihúsunum.
Loðnu er landað á tveimur móttökustöðum, hjá Fiskmjölsverksmiðj-
unni og Fiskmjölsverksmiðju Einars Sigurðssonar. Hefur verið gott
skipulag á hlutunum og skipin raðast vel niður til löndunar. Landað er
úr tveimur skipum samtímis hjá FIVE en einu hjá FES.
Skip hafa jafnan beðið tilbúin að renna sér undir löndunardælur
verksmiðjanna og löndun því verið stöðug. Loðnu eru skipin nú að fá
alveg við bæjardymar í Eyjum og á öllu svæðinu vestur á Breiðafjörð.
— hkj.
Sjá einnig loðnufrétt á bls. 4.
Happdrættismiðar fyr-
ir 180 milljóiiir í mars
Miðar fyrir 70 milljónir um eina helgi
ÍSLENDINGAR kaupa happ-
drættismiða fyrir að minnsta
kosti 180 milljónir í marsmánuði
einum. Þessi upphæð er fengin
samkvæmt upplýsingum frá
Happdrætti Háskóla íslands,
DAS, SÍBS, íslenskri getspá og
íslenskum getraunum. Skyndi-
happdrætti líknar- og íþróttafé-
laga eru ekki talin hér með.
Jóhannes L.L. Helgason, fram-
kvæmdastjóri Happdrættis Háskóla
íslands, sagði að Happaþrennumar,
nýja happdrættið sem hleypt var
af stokkunum um síðustu helgi,
væm uppseldar hjá umboðinu, en
hann vissi ekki hvort eitthvað væri
til hjá söluaðilum. Heildarsöluverð-
mæti miðanna var 50 milljónir.
„Auk þess er endumýjað í gamla,
góða happdrættinu hjá okkur fyrir
rúmlega 50 milljónir á mánuði. Þar
hefur enginn samdráttur orðið á
þessu ári, þrátt fyrir harðnandi
samkeppni. Sennilega vegna þess
að þar er vinningshlutfallið mjög
hátt,“ sagði Jóhannes.
Hjá Ólafí Jóhannessyni, fram-
kvæmdastjóra happdrættis SIBS,
fengust þær upplýsingar að sölu-
verðmæti þeirra miða næmi um 10
milljónum á mánuði. Salan gengi
því þokkalega. Hún hefði þó dregist
Séra Ólafur Skúlason dómprófastur:
Barnaefni Stöðvar 2 hefur stór-
dregið úr kirkjusókn barna
Segir útsendingartíma á bamaefni vera kirkjunnar mönnum mikið áhyggjuefni
KIRKJUNNAR menn hafa
miklar áhyggjur af því hvaða
áhríf útsendingar Stöðvar 2 á
barnaefni á sunnudagsmorgn-
um hafa á aðsókn barna i
barnaguðsþjónustur. Að sögn
séra Olafs Skúlasonar dóm-
prófasts dró verulega úr
kirkjusókn barnanna fyrst eftir
að útsendingarnar hófust. Hún
hefur eitthvað aukist aftur, þó
hún sé engan veginn hin sama
og áður var.
„Kirkjusókn bama hér á
Reykjavíkursvæðinu hefur snar-
minnkað eftir að Stöð 2 hóf
útsendingar á bamaefni á sunnu-
dagsmorgnum. Sérstaklega var
það áberandi fyrst eftir að þessar
útsendingar hófust. Þá hrandi
aðsóknin," sagði séra Ólafur í
samtali við Morgunblaðið.
„Ég hringdi til þeirra á Stöð 2
eftir fyrstu útsendinguna og
kvartaði. Stöðvarstjórinn Jón Ótt-
ar Ragnarsson hafði svo samband
við mig og við ræddum þetta fram
og til baka, m.a. möguleika á því
að auka útsendingar á kirkjulegu
og kristilegu efni. Ég lagði á það
áherslu að þeir væru ekki með
þessar útsendingar á þeim tíma
sem við eram sérstaklega að höfða
til bamanna, en hann sagði að
það væri ekki endanlega frá því
gengið að útsendingar yrðu með
þessum hætti, en það yrði núna
um sinn að minnsta kosti,“ sagði
séra Ólafur.
„Við höfum miklar áhyggjur
af þessu og ég vona að Stöð 2
átti sig á því að það er ekki æski-
legt að hefja samkeppni um sálir
bamanna, annars vegar með
guðsorði og hins vegar með
skrípamyndum," sagði séra Ólaf-
ur.
eitthvað saman um áramótin. Að-
spurður hvort SIBS-menn hygðust
fara út á nýjar brautir í happ-
drættisrekstri, sagði Ólafur að
menn væra svona rétt að byija að
spjalla saman um breytingar um
næstu áramót. Ekkert væri ákveðið
enn um það.
Baldvin Jónsson, framkvæmda-
stjóri happdrættis DAS, kvað
söluna hjá þeim vera 8—10 milljón-
ir á mánuði. Salan gengi eins og
venjulega. Hinsvegar væri happ-
drættisárið hjá þeim frá maí til
apríl, svo erfítt væri að segja ná-
kvæmlega til um hvort hún hefði
eitthvað aukist.
„Við seljum fyrir um það bil 50
milljónir á mánuði," sagði Vilhjálm-
ur Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri
Islenskrar getspár, „það fer svona
eftir því hvort era fjórar eða fímm
helgar í mánuði. Salan hjá okkur
er alltaf að aukast. Um síðustu
helgi seldum við fyrir 17,4 milljónir
og það er algert sölumet."
Bima Einarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri íslenskra getrauna,
sagði söluverðmæti seðlanna mis-
mikið milli mánaða. Leikárið hjá
þeim væri frá ágúst fram í maí.
Nóvember væri yfírleitt besti sölu-
mánuðurinn, þá hefðu íslenskar
getraunir selt fyrir 20 milljónir.
Núna væri salan um 8—10 milljón-
ir á mánuði.
Ef aðeins er tekið mið af skyndi-
happdrættunum, Happaþrennu,
Lottó og Getraunum, kemur í ljós,
að söluverðmæti þeirra um síðustu
helgi nam um 70 milljónum króna.