Morgunblaðið - 24.03.1987, Page 71
l^ORGtr^IBLAÐIÐ, ^álájutÍAGXÍR 24. kARZ 1987
Benedikt Antonsson, oddviti Sundhallarflokksins flutti ávarp og
afhjúpaði styttu Helga Gíslasonar.
Þuríður Erla Erlingsdóttir sem tók fyrstu sundttökin í lauginni
við vígslu hennar fyrir hálfri öld endurtók sundið við fögnuð
viðstaddra.
Hátiðlegt var um að lítast í Sundhöllinni þennan morgun og hýrt yfir afmælisgestum. Fánar og blóm skrýddu stóra brettið, en inn-
um glugga teygðu sig geislar morgunsólarinnar.
Sundhöllin hálfrar aldar gömul:
Um tíu milljónir manna syntu
í lauginni fyrstu fimmtíu árin
Afmælisveisla á laugarbakkanum
HÁLFRAR aldar afmæli Sund-
hallar Reykjavíkur var fagnað
við hátíðlega athöfn í gær-
morgun. Að loknu ávarpi
Júliusar Hafstein, formanns
íþrótta og tómstundaráðs
Reykjavíkur stakk Þuríður
Erla Erlingsdóttir sér til sunds
en hún tók fyrstu sundtökin í
lauginni við vígslu hennar 23.
mars árið 1937, sjö ára að aldri.
Þá skoruðu fulltrúar fasta-
gesta laugarinnar, „Sundhall-
arflokksins", á lið ráðsins í
boðsund sem lauk með sigri
þeirra siðarnefndu. Að athöfn
lokinni var boðið upp á kaffi
og meðlæti á laugarbakkanum,
en ókeypis var í Sundhöllina
allan daginn.
Sundhallarflokkurinn færði
höllinni að gjöf listaverkið „Hlýjar
hjartarætur" eftir Helga Gíslason
og afhjúpaði oddviti þeirra Bened-
ikt Antonsson það. Hann sagði
nafn verksins táknrænt fyrir þær
taugar sem gestir laugarinnar
bæru til hennar og starfsfólksins.
Benedikt færði starfsfólki hallar-
innar þakkir fyrir alúð og þolin-
mæði ásemt blómaskreytingu sem
Stefán Tryggvason laugarvörður
veitti viðtöku.
í samtali við blaðamann sagðist
Benedikt hafa farið í laugina í
fyrsta sinn daginn sem hún var
vígð. Hefði hann stundað laugina
óslitið síðan. „Það er margir sem
hafa haldið slíkri tryggð við Iaug-
ina, þótt auðvitað hafi verið
höggvin skörð í hópinn. Við urðum
einnig fyrir mikilli blóðtöku þegar
laugarnar í Vesturbæ, á Seltjarn-
arnesi og síðan upp í Breiðholti
voru opnaðar.
Það eru nokkrir hópar sem
hafa hver sinn fasta mæting-
artíma í laugina, þeir fyrstu við
opnun klukkan sjö, aðrir klukkan
átta ,í hádeginu eða síðdegis,"
sagði Benedikt. „Það rikir um-
fram allt léttur andi í Sundhöll-
inni, hér er aldrei talað í alvöru
og hversdagsmálin látin liggja
milli hluta. Sundinu fylgir ekki
aðeins líkamleg hressing heldur
einnig andleg.“
Við athöfnina afhenti borgar-
stjóri Sundsambandi íslands bikar
sem nefndur verður Sundhallar-
bikarinn. Guðfinnur Ólafsson
formaður sambandsins veitti
gripnum viðtöku og sagði að hann
myndi beita sér fyrir því að keppt
yrði um bikarinn strax á þessu
ári. Þá færði fulltrúi íþróttasam-
bands íslands, Hannes Þ. Sigurðs-
son Sundhöllinni áletraðan skjöld.
I ávarpi sínu sagði borgarstjori
að Sundhöllin starfi eftir lögum
Morgunblaðid/Bjami
Magnús Guðmundsson hefur
sótt Sundhöll Reykjavíkur á
hveijum morgni í tæp fjörutíu
ár.
sem sett voru árið 1928. Þá hafi
verið stefnt að því að reisa húsið
á tveimur árum, en margt hafi
orðið til að tefja þá áætlun. Hann
sagði að Sundhöllin hafi þótt hið
veglegasta hús á sínum tíma. Hún
sé enn í dag sérstök meðal húsa
í borginni og beri með rentu naf-
nið „höll.“ Davíð áætlaði að um
tíu milljónir manna hafi sótt Sund-
höllina fyrstu 50 árin.
Magnús Guðmundsson, sem
sótt hefur laugina á hverjum
morgni síðan árið 1948, sagði
blaðamanni aðspurður að breyt-
ingar hefðu verið litlar á þessu
tímabili utan þegar heitir pottar
voru settir upp í sólbaðssýli laug-
arinnar. Hann sagði að margir
héldu tryggð við laugina og þann
óformlega kunningjahóp sem
hefði myndast. „Ef nokkuð er þá
hefur fastagestunum fjölgað á
undanfömum árum og heitu pott-
arnir urðu tvímælalaust til þess
að auka aðsóknina," sagði Magn-
ús.
Hann sagði að sér væri nokkur
söknuður að persónum sem glatt
hefðu morgunstundirnar á árum
áður. „í þeirra hópi voru menn
eins og Lárus Blöndal, Konráð
Gíslason í Hellas, Kjartan Ás-
mundsson og Kristján L. Gests-
son. Eg er ekki frá því að það
hafi verið örlítið léttara yfir Sund-
höllinni þegar þeir voru upp á sitt
besta," sagði Magnús.
Samkvæmt skýrslum íþrótta og
tómstundaráðs voru gestir rúm-
lega 217.000 talsins á síðasta
ári, en alls sóttu 1.349.020 menn
laugarnar í Reykjavík árið 1986.
> j 1
71
precision
hjörulids-
krossar
þjóNuStA
Pei<i<|NG
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
SÍMI 84670