Morgunblaðið - 03.04.1987, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987
21
hönnuðir að læra að þekkja sín tak-
mörk. Hér eru starfandi á gráa
markaðnum fjöldi tæknimanna, aðal-
lega þó tæknifræðingar og bygg-
ingafræðingar, en innan um eru
einnig verkfræðingar og arkitektar,
sem taka að sér að hanna stærri hús
og flókin mannvirki, án þess að hafa
til brunns að bera þá lágmarks-
þekkingu eða reynslu sem nauðsyn-
leg er til slíkra verka. Þegar um er
að ræða húsateikningar, það sama
gildir yfirleitt einnig um lagnateikn-
ingar — verður niðurstaðan í versta
falli klúður, illa leystar heildarlausn-
ir, dýrar og óhagkvæmar deiliiausnir.
En þegar um er að ræða fúsk í hönn-
un burðarvirkja horfír máiið öðru
vísi við og ekki eingöngu verið að
misnota fjármuni verkkaupans, Hér
er e.t.v. verið að stofna mannslífum
í hættu með rangri notkun efna,
röngum álagsforsendum og óvirkum
burðarkerfum. Sérstök hætta er fólg-
in í vankunnáttu við hönnun gegn
láréttum kröftum, vindkröftum og
jarðskjálftakröftum. Þessir menn eru
hættulegir umhverfí sínu.
Virkasti hópurinn af slíkum fúsk-
urum er ekki stór, kannski innan við
20 manns. Flest nöfnin þekkja bygg-
ingarfulltrúamir á höfuðborgar-
svæðinu og væri því leikur einn að
stöðva þetta fúsk í gegnum skrifstof-
ur embættanna. En einnig hér er
ríkjandi landlæg druliusokkadýrkun
og linka.
3.2. Eftirlit verkkaupa
Til þess að bæta núverandi ástand
þarf aukinn áróður og fræðslu um
gildi góðrar hönnunar og jákvæð
áhrif virkrar hönnunarstjómar.
Eftirlit verkkaupa eða verkefnis-
stjóra hans ætti meðal annars að
beinast að þessum þáttum:
• Skýr forsögn sé samin í upphafi
verks og markmið hönnunarhópsins
séu ölium ljós. Sérstaklega þarf að
tiyggja, að verkaskipting og ábyrgð
sé vel skilgreind.
• Virk samvinna allra ráðgjafa sé
tryggð á öllu hönnunarskeiðinu.
Samræming hönnunarþátta sé virk
frá upphafí til enda.
• Fjárhagsleg hagkvæmni mann-
virkisins (hér oftast átt við hús-
byggingar), bæði hvað varðar
byggingarkostnað og rekstrarkostn-
að, sé tryggð.
• Lokahönnun sé í samræmi við
forsögn verkkaupa, hugsanlega með
endurbótum ráðgjafa á hönnunar-
skeiðinu vegna faglegrar sérþekk-
ingar.
Þetta má ef til vill skýra betur
með meðfylgjandi skematískri mynd.
Við mat á hagkvæmni þeirra bygg-
ingarforma, sem fyrir valinu hafa
orðið hjá ráðgjöfum á hönnunarstigi,
er gott að gaumgæfa 4 þætti, sem
allir verða að vera í lagi ef heildar-
lausnin á að vera í lagi.
Þessir þættir eru:
Þótt þarfír séu skilgreindar á
sannfærandi hátt og lausnir unnar
út frá því, getur síðar komið í ljós
að lausnin sprengir flárhagsramm-
ann sem settur var. Þá þarf annað
hvort að endurskoða lausnir og fínna
nýjar og ódýrari eða að skera af
kröfum og skilgreina þarfimar þann-
ig að þær rúmist innan fjárhagsram-
mans. En það er ekki nóg að þessir
3 þættir séu í lagi. Rekstrarþátturinn
verður einnig að vera í lagi. Sé hann
það ekki, verður að endurskoða ann-
að hvort lausnir eða þarfír. Þannig
verður að halda áfram uns allt fellur
að settum kröfum og þá fyrst er
ráðlegt að hefla framkvæmdir.
3.3. Opinbert eftirlit
Opinbert hönnunareftirlit byggir
annars vegar á reglugerð um raf-
orkuvirki nr. 244/1971, hvað varðar
raflagnir og rafbúnað. Hér beinist
opinbera eftirlitið að öryggishlið
málsins og er mjög virkt. Hins vegar
skortir oft á eftirlit með hönnun raf-
lagna, að því er snertir hagkvæmni
í rekstri, eftiisval og ýmis konar fyrir-
komulagsatriði.
Hins vegar byggist opinbera eftir-
litið á byggingarreglugerð nr.
278/1979, en sú reglugerð er um
margt orðin úrelt og þarfnast yfír-
ferðar og endurbóta.
Að því er varðar lagnaþáttinn
beinist eftirlitið að einangrunarfrá-
gangi, efnisvali og ýmsum deilifrá-
gangi. Með tilkomu lagnastaðla
hefur eftirlitið orðið jákvæðara og
virkara.
Byggingamefndir flalla um húsa-
teikningar arkitekta og koma þar inn
til viðbótar byggingarreglugerðinni
ýmis skipulagsákvæði, sem fullnægja
þarf. Ekki skal lagður dómur á ágæti
þessa eftirlits byggingamefndanna,
en vísast er það í nokkuð góðu lagi.
Helst dettur mér í hug að bæta
megi eftirlitið með kröfu um að burð-
arvirkishönnuður hafí kannað
burðarvirki hússins, að minnsta kosti
sérstaklega með tilliti til láréttra
krafta, áður en byggingarleyfí er
veitt.
Ástandið í opinbem eftirliti með
hönnun burðarvirkja er mjög alvar-
legt í dag. Brýn þörf er á að efla
það og bæta, en það verður ekki
gert nema aukin flárveiting komi til
og stutt verði þannig við bakið á
byggingarfulltrúaembættunum. f
byggingarreglugerð er heimildar-
ákvæði fyrir byggingarfulltrúa um,
að hann megi visa flóknari burðar-
virkjaútreikningum til yfírferðar
vaiinna ráðgjafa á því sviði. Ég legg
til, að nú þegar verði tekið á þessum
málum og það ekki með vettlingatök-
um.
• Endurskoðuð verði ákvæði um
veitingu og gildistíma hönnunar-
réttinda. Réttindi verði tekin af
þeim hulduher, sem fúskar við
þolhönnun húsa án þess að valda
verkefnunum.
• Burðarþolshönnuðir verði skyld-
aðir til að skila snyrtilegum
útreikningum, settum upp í stöð-
luðu formi, með öllum jámateikn-
ingum.
• Frumhönnun burðarvirkja fari
fram áður en byggingarleyfi er
veitt og verði skilyrði fyrir veit-
ingu.
• Kraftur verði settur í samningu
hönnunarreglna, gildistöku hönn-
unarstaðla og endurskoðun
j arðskj álftastaðals.
• Aukin áhersla verði lögð á
símenntun hönnuða.
• Lögskipaðir verði nokkrir valdir
ráðgjafar á sviði þolhönnunar
burðarvirkja, sem byggingarfull-
trúar af landinu öllu geti leitað
til með yfírferð flókinna burðar-
virkjaútreikninga.
• Við, sem rekum sjálfstæðar verk-
fræðistofur, sameinumst í átaki
við að leiðbeina ungum og
reynslulitlum hönnuðum, sem eru
að stíga sín fyrstu skref á hönn-
unarsviðinu.
Með þessum einföldu aðgerðum
mun opinbert eftirlit verða árang-
ursríkara, hönnun mun batna og
öryggi húsa okkar aukast. Þessar
aðgerðir kosta einhverja Qármuni,
en það er von mín að augu íslenskra
ráðamanna opnist sem fyrst fyrir
mikilvægi góðrar hönnunar og virks
eftirlits.
Það verður okkur öllum, sem vilj-
um vinna jákvætt að bættri hönnun,
til góðs. Ef við tökum höndum sam-
an, tekst okkur að auka líkur á
„betri hönnun steyptra mannvirkja".
Höfundur er ráðgjafarverkfrseð-
ingur og rekur eigin verkfræði-
stofu íReykjavík. Grein þessier
að stofni til erindi, sem flutt var
á námstefnu á vegum endur-
menntunamefndar Háskóla ís-
lands.
Skemmtiferð
um borgina
Laugardaginn 4. apríl
bjóða sjálfstæðisfélögin í Reykjavík uppá hina árlegu
skemmtiferð sína um borgina.
Ekið verður um borgina undir leiðsögn frambjóðenda
Sjálfstæðisflokksins til alþingiskosninga nú í vor, svo og
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Rútur munu leggja
af stað frá Valhöll kl. 13.00, 14.00 og 15.00. Að lokinni
ökuferð verður boðið í kaffi í Valhöll.
Við væntum þess að sem flestir
sjái sér fært að koma.
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík.
r a
Gullhringar
Gullhringar eru okkarsérgrein.
Við bjóðum aðeins fyrsta flokks handsmíðaða gullhringa með og
án steina. Mikið úrval, á verði við allra hæfi.
Gjöf sem geymist og ekki gleymist.
rtu
\______________________________________________________J
HRINGDU
þinn mánaðarlega
SÍMINN ER
691140 691141
llforigitistMa&ifr