Morgunblaðið - 03.04.1987, Page 22

Morgunblaðið - 03.04.1987, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 3. APRIL 1987 V eldur „gáleysi“ Samvinnu- trygginga umferðarslysum? Athugasemdir við slysakönnun Samvinnutrygginga eftír Sigurð Tómas Björgvinsson Undanfarna daga og vikur hafa birst í dagblöðum tiilur og fullyrð- ingar byggðar á „slysakönnun" sem starfsmenn Samvinnutrygginga framkvæmdu. Staðhæfingar þessar birtust fyrst í Morgunblaðinu dag- ana 19.—28. febr. sl. í formi auglýsinga og síðan í formi frétta í Morgunblaðinu 14. mars sl. og Þjóðviljanum 17. mars sl. Þessar fullyrðingar fela það í sér að „ ... sofandaháttur við stýrið, al- mcnnt gáleysi og kæruleysi ökumanna eru langalgengustu or- sakir umferðarslysa", svo vitnað sé beint í umræddar auglýsingar. Þessi stóm orð vom hins vegar ekki rökstudd með neinum tölfræði- legum gögnum eins og vani er þegar um „kannanir" er að ræða. I frétt Morgunblaðsins af umræddri „könnun“ segir síðan: „Gáleysi er helsta orsök umferðarslysa... í niðurstöðunum kemur fram að of hraður akstur eða ölvunarakstur eiga minnstan þátt í slysunum.“ Engar röksemdir vom fram færðar, nema þær að niðurstöðurnar byggja á 149 „alvarlegum" slysum og dauðaslysum á ámnum 1978—84. Síðan er það fréttin í Þjóðviljanum þar sem vitnað er í ákveðinn starfs- mann Samvinnutrygginga. Hann tekur undir fyrri yfirlýsingar trygg- ingafélagsins, þ.e.a.s. athyglis- skortur og gáleysi era helstu orsakavaldar alvarlegra slysa og ungu ökumennirnir lenda ekki oftar í alvarlegum umferðarslysum en hinir eldri. Síðan segir: „ . .. þetta kom okkur dálítið á óvart.“ En það kemur undirrituðum hins vegar ekki á óvart að niðurstaðan komi starfsmönnum tryggingafélagsins á óvart, því hún er röng. Tilviljunarkenndar niðurstöður Nú kann einhver að spyija hver rökin séu fyrir þessum stóru orðum? Þau em eftirfarandi: í fyrsta lagi er úrtakið alltof lítið, eða 149 slys á 7 ámm. Samkvæmt tölfræðileg- um lögmálum em mjög miklar líkur á að niðurstöðurnar séu vegna til- viljunar. Hættan á tilviljunarkennd- um niðurstöðum verður mun meiri þegar úrtakið er brotið niður í smærri einingar eins og gert er með „aldur“ í umræddri „könnun". í hveijum aldurshópi eru á bilinu 16—73 einstaklingar. Auk þess eru einstaklingar sem em 45 ára taldir í tveimur aldurshópum. I öðm lagi koma hvergi fram neinar skilgrein- ingar á þeim stóm hugtökum sem notuð em í fullyrðingum Samvinnu- trygginga. Hvað eiga þeir við með „alvarleg" umferðarslys? Hvemig skilgreina þeir gáleysi og athyglis- skort? Er hraðakstur og ölvunar- akstur ekki gáleysi? Tölfræðileg-ar heim- ildir rangtúlkaðar I þriðja lagi, og þá er komið að kjarna málsins, þær fátæklegu töl- fræðilegu heimildir sem birtar em í Þjóðviljanum em rangtúlkaðar og því em allar þær alhæfingar sem af þcim eru dregnar rangar. Þessar tölfræðilegu heimildir em eftirfar- andi: „í 149 stærstu slysunum samkvæmt úttektinni áttu ökumenn að 20 ára aldri aðild að 42 slysum, ökumenn 21—45 ára áttu aðild að 73 slysum, ökumenn 45—60 ára áttu aðild að 18 slysum og öku- menn 61 árs og eldri áttu aðild að 16 slysum." Lesendum til frekari „En það kemur undir- rituðum hins vegar ekki á óvart að niður- staðan komi starfs- mönnum tryggingafé- lagsins á óvart, því hún er röng. glöggvunar eru þessar tölur birtar á mynd 1 þar sem sést að línan rís hæst hjá 21—45 ára aldurshópnum eða „góðborguranum" eins og þeir eru kallaðir hjá Samvinnutrygging- um. Þeir álykta því sem svo að þetta sé hættulegasti hópurinn. Það þarf hins vegar ekki að horfa lengi á þessar tölur til að sjá að mismun- andi fjöldi aldursára er í hveijum aldurshópi. Tölfræðin segir okkur því að réttara sé að reikna hlut- fallslegan fjölda umferðarslysa á aldursár í hveijum hópi, eins og sýnt er á mynd 2. Hana ber að túlka með þeim fyrirvara sem öllum og 4 eru skoðaðar kemur í ljós að sömu mistökin eru aftur á ferð. Þegar myndir 1 og 3 annars vegar og myndir 2 og 4 hins vegar em bornar saman sést að þetta em sömu línurnar og það treystir enn frekar það mál sem hér er verið að leiðrétta. Ungir vegf arendur eru í mestri hættu Til þess að átta sig enn frekar á þessum staðreyndum og gera sér grein fyrir mistökum starfsmanna Samvinnutrygginga er ágætt að skoða myndir 5 og 6 sem sýna hlut- fallslega aldursskiptingu slasaðra og látinna í umferðarslysum 1978—86, sem byggja á slysaskrán- ingu Umferðarráðs. Þessar myndir vom birtar í fjölmiðlum í janúar og febrúar sl. Til þess að fyrirbyggja strax allan misskilning skal það tekið fram að þetta em allir slasað- ir og látnir vegfarendur á umræddu tímabili, 700—800 ein- staklingar árlega. Einnig verður að Mynd 1 Fjöldi 80 —| 70 60 50 40 30 20 10 -I Aldursskipting ökumanna sem aðild áttu að alvarlegum umferðarslysum 1978-1984. (Samkvæmt könnun Samvinnutrygginga). IUMFERÐAR 'RÁÐ ----1-----------1------------1-----------1------------ 17-20 21-45 45-60 61 > Aldur er ljós, þ.e. að ungt fólk fær ekki ökuleyfi fyrr en það nær 17 ára aldri. Því nær yngsti aldurshópur- inn, 17—20 ára, aðeins yfir 4 ár. Tekið skal fram að hverfandi líkur em á að ökumenn séu undir 17 ára aldri, þar sem t.d. aðeins einn öku- maður tilheyrði þeim hópi af 319 ökumönnum sem slösuðust 1986, samkvæmt slysaskráningu Um- ferðarráðs. Einnig gefur undirritað- ur sér þá forsendu að enginn ökumaður í umræddri könnun hafi verið eldri en 100 ára og því nær sá aldurshópur yfir 40 ár. Eins og sjá má þegar myndir 1 og 2 em bornar saman þá verður niðurstað- an allt önnur. Greinilegt er að fólki í yngsta aldurshópnum, 17—20 ára, er mun hættara við að lenda í „al- varlegum" umferðarslysum en fólki í öðmm aldurshópum. Hlutfallsleg- ur fjöldi ökumanna á aldursár sem lenda í „alvarlegum" umferðarslys- um á aldrinum 17—20 ára er 10,5, á meðan fjöldinn er 3,0 á aldursár í hópnum 21—45 ára. Starfsmenn Samvinnutrygginga nota sömu að- ferðina þegar dauðaslysin em rannsökuð, en úrtakið er aðeins 36 dauðaslys á sama 7 ára tímabili. Þeir draga síðan þá ályktun af „könnun" sinni að ekki sé hægt að ....hengja einhvern einn aldurs- flokk sem sökudólg", svo notuð séu þeirra eigin orð. Þegar myndir 3 FJOLDI 300- 250 - 200 150 100- Mynd 6 1|r5dEROAR ALDURSSKIPTING SLASAÐRA í UMFERÐARSLYSUM 299 281 37 1978-1982 MEÐALTAL 1983-1986 215 n *.a7 “ -i 50—44 172 175 -j. I 300 - 250 -200 -150 -100 '83-'86 aldur;ár o-6 '83-'86 7-14 '83-'86 15-16 '83-'86 17-20 '83-'86 21-24 '83-'86 '83-'86 25-64 65 0GELDRI athuga að skiptingin í aldurshópa tekið fram að Umferðarráð hefur einstaklinga í hveijum aldurshópi, er nokkuð frábmgðin því sem var einnig athugað hlutfallslegan fjölda samkvæmt manníjölda í desember í „könnun" Samvinnutrygginga, slasaðra og látinna í hveijum ald- 1985 og var niðurstaðan í stómm nema 17—20 ára. Það skal Iíka urshópi, miðað við heildarfjölda dráttum sú sama og á mynd 5. Þar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.