Morgunblaðið - 03.04.1987, Page 24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987
Það er leikur að læra
í Bandaríkjunum
Sigrún Stefánsdóttir í nýju kastljósi
eftirHalldór
Þorsteinsson
í nýlegu Kastljósi dásamaði fjöl-
miðlarinn þjóðkunni, Sigrún Stef-
ánsdóttir, skólakerfi Banda-
ríkjanna, en fann hins vegar okkar
ófullkomna kerfi flest til foráttu.
Að hennar dómi eru kennslubækur
þeirra ekki aðeins vandaðri en okk-
ar, heidur eru þarlendir kennarar
líka betur menntaðir og launaðir
og meira virtir af almenningi en
hér nyrzt í okkar andlega skamm-
degi.
Satt bezt að segja rak mig í roga-
stanz, þegar ég heyrði þessi fögru
ummæli um fræðslu og menntun
bandarískra skólabarna og ungl-
inga, betur að satt væri, enda er
ég stórlega efins í, að Bandaríkja-
menn sjálfir séu yfirleitt sama
sinnis og Sigrún, og í beinu fram-
haldi af þessu er rétt að geta þess,
að aðeins fyrir nokkrum árum
heyrðust þar háværar raddir, sem
heimtuðu róttækar og tafarlausar
endurbætur á þessu meingallaða
skólakerfi, sem ól af sér vanhæfa
nemendur til háskólanáms. Astæð-
an fyrir þessum kröfum var einkum
sú, að mönnum þótti kunnáttu og
almennri þekkingu nemenda hafa
farið jafnt og þétt hrakandi eftir
að slegið hafði verið af námskröfum
og sían óvinsæla hreinlega numin
brott. Sú raunalega staðreynd blasti
nú við mönnum, að nýju skólamir
voru því miður ekki reistir á jafn-
traustum og farsælum grunni og
bjartsýnustu frumkvöðlar þeirra
höfðu vonazt til. Fljótt fór að síga
á ógæfuhlið. í stað framfara í námi
gætti nú verulegrar afturfarar,
enda liggur það í augum uppi, að
vanhugsuð tilslökun á námskröfum
leiðir alltaf til lakari árangurs nem-
enda.
Síðar var ákveðið að leggja
grunnskóiana bandarísku, ef svo
má kalla þá, niður í núverandi
mynd og stefna aftur að auknum
aga og kröfum í námi. Ýmsir ráða-
menn studdu heils hugar þetta
áform og framkvæmd þess, þ.á m.
forsetinn, Ronald Reagan (þessum
lánlausa vopnasala er þá ekki alls
vamað). Upphaflega sóttu Svíar á
sínum tíma fyrirmyndina um
grunnskóla til Svisslendings, Jean
Piaget, og til Bandaríkjamanna, en
við aftur á móti til þeirra beggja,
en þó fremur til þeirra fyrstnefndu.
Það má heita grátbroslegt að við
skulum ríghalda í þetta gelda og
glataða skólakerfí, eftir að Banda-
ríkjamenn hafa gefizt upp á því,
eftir margra ára skaðlega reynslu,
og sporgöngumenn þeirra, Svíamir,
hafa líka heykzt á því og tekið það
til rækilegrar endurskoðunar. Og
er það ekki glæsilegt hlutskipti að
vera sporgöngumenn sporgöngu-
mannanna?
Hér áður fyrr, þ.e.a.s. fyrir
grunnskólaævintýrið mikla, þóttu
stúdentar brautskráðir úr mennta-
skólum á Norðurlöndum bera af að
því er allan undirbúning undir há-
skólanám varðar, en nú er öldin
önnur og við megum svo sannarlega
muna okkar fífil fegri í þeim efnum,
enda hef ég það fyrir satt, að t.d.
sænskum stúdentum sé iðulega
neitað um skólavist í háskólum í
Þýzkalandi, en þó einkum í Frakk-
landi, fyrir slælegan undirbúning.
Þeir eru með öðrum orðum naum-
ast taldir gjaldgengir háskólaborg-
arar í erlendum háskólum — og
kveður ekki líka við sama tón í
Háskóla íslands? Nemendur faila
þar unnvörpum vegna vankunnáttu,
sem má rekja beint til undirbún-
ingsleysis eða með öðrum orðum
til þess hörmulega glapræðis að
nema síuna algjörlega brott.
Áður en lengra er haldið væri
ef til vill ekki úr vegi að fara ör-
fáum orðum um viðhorf grunn-
skólaspekinganna til kennslu.
Skólarannsóknarmennimir okkar
ötulu tala jafnan af digurbarkalegri
fyrirlitningu um ítroðslu og utanað-
bókarlærdóm og var landsprófið á
sínum tíma einkum ósækilegur
fylgifískur hans, að þeirra dómi.
Mér er spum, sem málakennara,
hvemig nemendur eigi að fara að
því að læra orð, orðasambönd eða
orðtök á erlendum tungumálum
öðruvísi en utanbókar, hvort heldur
það er gert af bók, vömm kennara,
samtölum, segul- eða myndbönd-
um, kvikmyndum, tölvu eða ein-
hveiju öðm kennslutæki. Við látum
ekki slá ryki i augun á okkur með
vanhugsuðum slagorðum villuráf-
andi „skólapostula". Það tekur líka
út yfir allan þjófabálk, að sumir
þessara manna, með ónóga starfs-
reynslu í kennslu, þykjast vera þess
umkomnir að kenna okkur kennur-
um að kenna.
Já, ráðherra, já, hr. Sverrir Her-
mannsson, menntamálaráðherra,
væri það ekki þjóðráð, að fram
fæm líka einhverjar hreinsanir hér
fyrir sunnan, eða er það ef til vill
Herkúlesar-þrautin þyngri að moka
út úr því stórgripahúsi?
Halldór Þorsteinsson
Hver getur án gamans borið virð-
ingu fyrir gáfum þeirra manna, sem
trúa eins og nýju neti eftirfarandi
greinum (þ.e. nr. 8 og 9) úr Litla
Piaget-kverinu, en þær hljóða svo:
8. „Hugsun sprettur af athöfnum,
ekki af orðum“ og 9. „Aðrir geta
ekki látið bömum þekkinguna í té,
þekkingin byggist á því, sem bömin
uppgötva sjálf, þegar þau fást við
viðfangsefni sín.“ Er ekki augljóst
mál, að hugsun sprettur ekki aðeins
af athöfnum heldur líka af orðum
og reyndar ýmsum fleiri fyrirbær-
um? „í upphafí var orðið“ og „orð
em til alls fyrst" stendur einhvers
staðar og út af 9. gr. er mér spum,
hvort t.d. höfundar heilagrar ritn-
ingar séu ekki færir um að láta
bömum þekkingu í té?
Rétt er nú að snúa sér aftur að
fullyrðingum Sigrúnar og lýsa með
nokkmm orðum starfsskilyrðum
kennara og þeim skólabrag, sem
hafa sett svipmót sitt á alltof marga
bamaskóla, en þó einkum miðskóla,
(high schools), þar í landi. Orðum
eins og stefnuleysi, agaleysi,
óstjóm, námsleiða og uppreisnar-
anda skýtur upp í huga manns,
þegar hugsað er til flestra þessara
menntastofnana. (Sjálfsagt em til
góðir skólar þar sem allt er í sóman-
um, en þeir em algerar undantekn-
ingar). Vegna þess að flestir
nemendur hafa helzt hugann við
það að gera kennumm sínum lífið
leitt, læra þeir lítið, en kennaramir
lifa aftur á móti í stöðugum ótta
við þessa ófriðarseggi. Mörg dæmi
em til um kennara, sem hefur ver-
ið misþyrmt af nemendum sínum,
svo og nokkur dæmi um kennslu-
konur, sem hefur verið nauðgað.
Fyrir allmörgum ámm var gerð
ágæt kvikmynd, sem fjallaði um
þetta ófremdarástand í þessum
framhaldsskólum landsins, og bar
hún heitið The Blackboard Jungle
Hulduher a kostnað
skattborgara
eftirHuldu
Gústafsdóttur
í umræðunni síðustu daga um
hið svokallaða Albertsmál hefur
ýmislegt gleymst og kafnað í tii-
finningastraumum og ófaglegri
fréttamennsku þar sem sneitt hefur
verið hjá efnisatriðum málsins.
„Mistök" Alberts Guðmundssonar,
pólitísk ábyrgð ráðherra og hlið-
stæð dæmi erlendis frá hafa
gleymst í umQöllun um andvöku-
nætur og hulduher. Kannski mætti
minna fólk á hvemig hulduherinn
svokallaði er til kominn, hvers
vegna þetta fólk veður eld og reyk
og lætur sér ekkert fyrir brjósti
brenna til að koma Albert Guð-
mundssyni í áhrifastöðu. Albert er,
verður og hefur alltaf verið fyrir-
greiðslupólitíkus og það viðurkennir
hann sjálfur. Hann segist vera kos-
inn til þjónustu en gleymir því að
þingmenn eru kjömir til löggjafar-
starfa en ekki til að hygla Pétri og
Páli á kostnað skattborgara.
Atkvæðakaupin eru á okkar
kostnað, það eru þeir sem greiða
skattana sína sem borga brúsann
fyrir hulduher Alberts, það er hinn
almenni skattborgari sem borgar
persónulegu greiðana sem Albert
hefur gert mönnum sínum í gegnum
árin, fyrst sem borgarfulltrúi, síðan
sem þingmaður og ráðherra. Svo
hulduherinn hefur ríka ástæðu ti!
að vilja halda sfnum manni á góðum
stað.
Ummæli Þorsteins Pálssonar for-
manns Sjálfstæðisflokksins í þætti
Stöðvar 2 um að Albert yrði ekki
ráðherra í komandi ríkisstjóm ef
Sjálfstæðisfiokkurinn ætti aðild að
henni var að öllu leyti eðlileg og
heiðarleg gagnvart lqósendum.
Maður sem hefur orðið að axla sið-
„ Atkvæðakaupin eru a
okkar kostnað, það eru
þeir sem greiða skatt-
ana sína sem borga
brúsann fyrir hulduher
Alberts, það er hinn al-
menni skattborgari sem
borgar persónulegu
greiðana sem Albert
hefur gert mönnum
sínum í gegnum árin.“
ferðislega ábyrgð og segja af sér
ráðherraembætti vegna meints
skattamisferlis er ekki gjaldgengur
sem ráðherra við það eitt að ný
ríkisstjóm taki við. Persónan og
ábyrgð hennar breytast ekki á svo
og fór Glenn Ford með aðalhlut-
verkið. Mynd þessi vakti feiknaat-
hygli á sínum tíma, enda talin vera
holl og tímabær hugvekja, þar sem
viðfangsefninu var gerð prýðileg
skil. Menn vom yfirleitt sannfærðir
um, að hér væri dregin upp sönn
mynd af ástandinu eins og það var
í raun og veru.
Fyrir um það bil átta ámm vom
böm skólabróður míns, sem hefur
verið búsettur í Bandaríkjunum í
áratugi, við nám í miðskóla (high
school). í bréfi til mín, sem skrifað
var á þeim tíma, átti hann ekki
nógu sterk orð til að lýsa óánægju
sinni með kennsluna í skólanum.
Að hans dómi vom kennaramir
engan veginn vandanum vaxnir,
enda einkunnir flestra eftir því.
Hann minntist um leið með þakk-
læti þeirrar frábæm tilsagnar, sem
við höfðum notið í flestum greinum
hjá þvi einvalaliði kennara, er störf-
uðu á skólaárum okkar í Mennta-
skólanum á Akureyri í gamla daga,
og hann endaði bréfið með þessari
spumingu: „Gerirðu þér grein fyrir
því, hvílík sérréttindi þetta vom,
Halldór?" Auðsætt er, að hann er
á annarri skoðun en Sigrún Stefáns-
dóttir.
Vel á minnzt, þetta rifjar upp
fyrir mér atvik, sem henti annan
skólabróður minn, hann Jónas Jak-
obsson sáluga, veðurfræðing. Á
námsámm okkar við Kalifomíu-
háskóla bjuggum við saman um
nokkurt skeið í háskólaþorpinu
Westwood Village. Hann nam veð-
urfræði, en ég lagði stund á
rómönsk mál og bókmenntir. Þetta
var á síðari heimsstyijaldaráranum,
og var þá mikill hörgull á veður-
fræðingum. Var því bmgðið á það
ráð að snöggsjóða fjölda veðurfræð-
inga og vora aðeins úrvalsnemend-
ur valdir til þess að stunda þetta
nám. Einhveiju sinni, þegar nem-
endur vom í óða önn að stinga út
veðurkort, sneri sessunautur Jónas-
ar sér að honum og beindi til hans
eftirfarandi spumingu og það alveg
kinnroðalaust: „Heyrðu, Jónas,
hvar er eiginlega Mexíkóflói?" Ég
man, að okkur Jónasi þótti hann
vera svolítið loppinn f landafræðinni
(eins og það er stundum orðað norð-
ur í Þingeyjarsýslu) og það í sinni
heimalandafræði, ef svo má að orði
komast.
Fyrir þremur eða fjóram ámm
vom bandarískir landgönguliðar í
íslenzkutímum í skóla mínum. Held-
ur þótti mér þeim sækjast námið
seint. Þeir vom satt að segja alveg
í sérflokki. Þótt ég hafi reynt ýmis-
legt misjafnt og miður gott á
löngum starfsferli, þá held ég að
ég hafi aldrei á minni lífstíð komið
að jafntómum kofum. Þar var ekk-
ert nema svartnætti og það ein-
kennilega var, að það virtist vera
með þeim algjört jafnræði í þessum
efnum.
Þrátt fyrir ítrekaðar og þráiátar
tilraunir tókst mér aldrei að kenna
Hulda Gústafsdóttir
skömmum tíma. Albert Guðmunds-
son tók sjálfur ákvörðun um að
segja af sér og var á engan hátt
útskúfað. Þingmenn em auk þess
kosnir til löggjafarstarfa og em
ekki „annars flokks" þótt þeir verði
ekki ráðherrar. Það á enginn meiri
rétt en annar á því að verða ráð-
herra og það verður enginn sjálf-
krafa ráðherraefni, sama í hvaða
sæti hann situr á framboðslista.
í Sjálfstæðisflokknum er ekki
tvöfalt siðgæði, í Sjálfstæðisflokkn-
um er umburðarlynt fólk og þótt
þeim að beygja sögnina að vera í
öllum persónum eintölu, fleirtölu
framsöguháttar nútíðar. Eftir því
sem leið á námskeiðið var mér
smám saman ljóst, að þeir virtust
ekki einu sinni hafa sitt eigið mál
fyllilega á valdi sínu. Tvöfaldar
neitanir, skakkar sagnbeygingar,
auk ótal fleiri fjóla einkenndu mál-
far þeirra. Með öðmm orðum þá
virtist þeirra eigið móðurmál vera
þeim hálflokuð bók, og ég fann til
með þessum vesalingum, sem aldrei
hafði verið kennt að læra.
Ef þessir ungu menn em skilget-
in afkvæmi bandarískra skóla, þá
er sú uppfræðsla, sem þar fer fram,
upp á færri fiska þar í landi en
Sigrún hyggur.
I gmnnskólum okkar er gert of
lítið, já alltof lítið, fyrir afburða
nemendur og það vegna ofdekurs
við meðalmenn og tossa. Þeim sem
gætu skarað fram úr er hreinlega
úthýst. Þótt margt megi finna að
Sovétmönnum og Bandaríkjamönn-
um, þá hafa þeir þó vit á því að
gera vel við sína beztu námsmenn,
enda greiða þeir götu þeirra á alla
lund, en hér mega þeir hýrast í
blönduðum bekkjum, þar sem er
jafnan hægagangur á öllu vegna
þarfa heilögu heildarinnar, sem má
aldrei fara hraðar en fetið. Hvers
eiga þessir afburðamenn að gjalda?
Og hvað gerist? Á þá sækir óyndi,
ef ekki beinlínis námsleiði. Þeir
njóta sín engan veginn í þessu
umhverfi. Mætti ekki einfaldlega
leysa þetta mál með því að skipa
nemendum í bekki eftir námsgetu
eins og tíðkaðist hér áður fyrr eða
gera þeim kleift að stunda nám og
ljúka því á þeim tíma, sem þeim
hentar?
Nú vil ég gera það að tillögu
minni, að námskröfur verði hertar
til muna, svo og að landspróf verði
aftur lögleitt, jafnvel í nýjum bún-
ingi og undir nýju heiti, ef mönnum
þykir það brýnt kappsmál að breyta
því.
Ef sían verður ekki aftur sett á
sinn stað, getur vel farið svo, að
fleiri en Sigrún Stefánsdóttir
myndu óska þess að senda böm sín
í bandaríska skóla og auðsætt er
að íslenzkir námsmenn munu daga
uppi í þessum kröfuharða heimi,
sem nátttröll og viðundur á sviði
mennta og lærdóms, ef ekkert verð-
ur gert til að kippa skólamálum
okkar í samt lag.
Að lokum langar mig til að
minnast örfáum orðum á banda-
ríska háskóla. Þeir em eins misjafn-
ir og þeir em margir. Þótt sumir
þeirra njóti lítils álits, þá eiga
Bandaríkjamenn engu að síður há-
skóla á borð við Harvard, Yale,
Princeton, MIT, CAL Teach., Col-
umbia, Kalifomíu-háskóla og
Stanford, svo nokkrir séu nefndir,
sem ótvírætt em í tölu allra beztu
háskóla í heimi.
Höfundur er forstöðumaður Mála-
skóla Halldórs.
Albert Guðmundsson segi af sér
sem fulltrúi framkvæmdavalds er
ekki þar með sagt að hann geti
ekki setið á þingi. Það hafa fleiri
þingmenn en Álbert fengið aðfinnsl-
ur vegna skattframtala en ekki
fleiri ráðherrar.
Við svo búið sagði Albert skilið
við Sjálfstæðisflokkinn þrátt fyrir
yfirlýsingar um að hann væri sjálf-
stæðismaður sem berðist fyrir
hagsmunum Reykvíkinga, og býður
fram undir nafni Borgaraflokksins
í öllum kjördæmum. Hann hlýtur
þá að beijast fyrir hagsmunum
Reykvíkinga í öllum kjördæmum
landsins. Og Albert „sjálfstæðis-
maður" hefur vinstri menn í öðm
og þriðja sæti á lista sínum í
Reykjavík. Hver sjálfstæðismaður
hlýtur að spyija sjálfan sig að því
hvemig þetta fari saman. Hvemig
er hægt að telja kjósendum trú um
að þetta fólk skipti um skoðun í
snarheitum við það eitt að skipa
sæti á lista Borgaraflokksins.
Sjálfstæðismenn, stöndum sam-
an, látum frá okkur heyra, þéttum
raðimir og látum verkin tala. Við
emm á réttri leið en fjölflokkastjóm
vinstri aflanna getur hæglega snúið
af leið og spor þeirra hræða ef litið
er flögur ár aftur í tímann.
Höfundurer viðskiptafræðinemi.