Morgunblaðið - 03.04.1987, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987
Tölvutækni:
Þekkingarkerfí valda bylt-
ingri í rekstri fyrirtækja
• •
- rætt við Orn
Aðalsteinsson
sem er í syórn
alþjóðafyrirtæk-
isins Dupont
ÖRN Aðalsteinsson hefur und-
anfarín ár verið í stjóm al-
þjóðafyrirtækisins Dupont og
hefur starfssvið hans þar m.a.
verið að koma upp þekkingar-
kerfum innan fyrirtækisins.
Öm er búsettur I Wilmington í
Delvaware í Bandaríkjunum og
er forseti íslendingafélagsins í
Pennsylvaníu, New Jersey og á
Delwaresvæðinu í kring um
Philadelphiu. Hann er kvæntur
Evu Aðalsteinsson, sem lauk
mastersgráðu í fjölmiðlafræð-
um árið 1978 og starfar við
ráðgjafarþjónustu sem sér-
fræðingur um menningarsam-
skipti milli þjóða. Öra lauk
stúdentsprófi við Verslunar-
skóla íslands og tók síðan
stúdentspróf í stærðfræði-
greinum við Menntaskólann í
Reykjavík árið 1969. Hann lauk
BS-prófi við háskólann í Col-
orado i Bandaríkjunum og
masters- og doktorsprófi í
efnaverkfræði í Massachussetts
Institute of Technology í Bos-
ton árið 1977. Blaðamaður
Morgunblaðsins ræddi við Öm
um störf hans þjá Dupont og
spurði ég hann fyrst hvað hefði
orðið til þess að hann hóf störf
þar.
Dupont
Að loknu námi fékk ég starf hjá
Procter & Gamble í Bandaríkjun-
um, sagði Örn. Hjá þessu fyrirtæki
öðlaðist ég mikla reynslu af að
fást við hagnýt rannsóknarverk-
efni í efnaverkfræði.
Eftir að ég hafði starfað hjá
Procter & Gamble um tíma bauðst
mér starf hjá stórfyrirtækinu
Dupont árið 1979 ogtók égþví.
Dupont er stórfyrirtæki í hinni
eiginlegu merkingu þess orðs. Það
veltir sem svarar 1500 milljörðum
íslenskra króna á ári, sem eru rúm-
lega þijátíufaldar útflutningstekj-
ur íslensku þjóðarinnar. Dupont
hefur verksmiðjur í öllum heimsálf-
um, eða um 200 verksmiðjur í 40
þjóðlöndum. Starfsemi fyrirtækis-
ins er mest í efnaiðnaði og hefur
það sérhæft sig í framleiðlsu gervi-
efna, lífræna efna, efna til land-
búnaðar, litarefna og framleiðlu á
vefnaðarvörum. Sem dæmi um efni
frá Dupont sem notuð eru hér á
landi má nefna bíialökk og gervi-
efnadúka sem notaðir eru við
vegagerð o. fi.
Á síðustu árum hefur Dupont
fyrirtækið fært út kvíamar. Fyrir
nokkru var hafín lyfjaframleiðsla
og framleiðsla á lækningatækjum
á vegum fyrirtækisins. Til að kom-
ast inn á Iyfjamarkaðinn keypti
Dupont upp þekkt lyfjaframleiðslu-
fyrirtæki sem kostaði geysimikið
fé — menn láta sér ekki muna um
miklar fjárfestingar á þessum bæ
ef þær skapa möguleika á að kom-
ast inn á stóra markaði. Fyrir
nokkrum árum gerði Dupont ein-
hver stæstu fyrirtækjakaup sem
gerð hafa verið þegar það keypti
olíufyrirtækið CONOCO. Þetta var
gert til að komast inn á markaðinn
með olíuvörur sem fyrirtækið
framieiðir nú í stórum stíl.
Starfssvið mitt hjá Dupont hefur
færst út á síðusta ári og gerðist
það þegar fyrirtækið fór að hag-
nýta tölvutæknina með nýjum
hætti en Dupont er nú orðið braut-
ryðjandi á því sviði. Flestir hafa
sjálfsagt heyrt talað um gervigre-
ind eða tölvuvit en mikil framþróun
hefur orðið á þessu sviði undanfar-
in ár.
Þekkingarkerfi
Gervigreind má skipta í fjóra
meginflokka:
1) tölvustýringar fyrir vélmenni.
2) hugbúnaður sem gerir fólki
kleift að nota tölvur án þess að
hafa sérþekkingu á þeim. Þetta
er t.d. hugbúnaður sem skilur
mælt mál, hugbúnaður sem breytir
texta í mælt mál og hugbúnaður
sem gerir almenningi fært að nota
gagnabanka án sérþekkingar.
3) þekkingarkerfi (exspert sy-
stems), sem við komum nánar að
á eftir.
4) stjómtækni (process control)
sem notuð er til að gera margs
konar iðnferla sjálfvirka. Hér er
m.a. um að ræða hugbúnað sem
tekur ákvarðanir í samræmi við
aðstæður.
kerfí á sínu sérsviði án þess að
þekkja hugbúnaðinn í smáatriðum
eða kunna skil á forritunarmálum.
Unnið hefur verið að því að
koma upp þekkingarkerfum í öllum
deildum Dupont fyrirtækisins.
Áætlað er að eftir fimm ár munum
við hafa komið á laggirnar tvöþús-
und þekkingarkerfum innan fyrir-
tækisins. Ætla má að hagnaðurinn
af þessari hagræðingu verði ekki
minni en sem nemur fjórum millj-
örðum íslenskra króna á ársgrund-
velli. Þessi hagnaður mun m.a.
verða af spamaði í endurhæfingu
og samræmdu gæðamati á fram-
leiðsluvörum fyrirtækisins. Óbeinn
hagnaður gæti orðið mun meiri.
Með þessum þekkingarkerfum ætl-
ar fyrirtækið einnig að skapa sér
betri samkeppnisaðstæður. Þekk-
ingarkerfin munu koma að miklu
haldi varðandi upplýsingar um
samkeppnisaðila, vöruþróun,
markaðsrannsóknir o. fl.
- Em notkun þekkingarkerfa
Tökum lækni sem dæmi. Hann er
að sjálfsögðu misjafnlega upp
lagður þegar hann framkvæmir
sjúkdómsgreiningu, jafnvel svo að
hann gleymir að kanna alla hugs-
anlega möguleika í einhveiju
tilfelli. í því tilfelli mundi tölvan
passa uppá sjúkdómsgreiningarað-
ferðina - að farið væri í gegn um
allar nauðsynlegar spumingar
varðandi tilfellið. Auðvitað er
ákveðin tregða til staðar varðandi
það að taka upp þessa upplýsinga-
tækni en hún hlýtur að ryðja sér
til rúms hagkvæmninar vegna og
þess vegna borgar sig fyrir hvern
og einn að tileinka sér hana sem
fyrst.
- Skapa rangar upplýsingar,
sem hugsanlega slæðast inní þekk-
ingarkerfi, ekki nokkra hættu?
Að sjálsögðu er sá möguleiki til
staðar. Til að fyrirbyggja þetta eru
sérfræðingar fengnir til að nota
þekkingarkerfin eins lengi og hægt
er. Aldrei er þó hægt að útiloka
Öm Aðalsteinsson ásamt fjölskyldu sinni. F.v. Eva Aðalsteinsson, Solný eins árs, Bryndís fjögurra
ára og Öra.
Þekkingarkerfin hafa undanfar-
ið orðið eitt af mínum aðalverkefn-
um, á þeim tíma sem þessi nýja
tækni er að gerbreyta öllum rekstri
hjá Dupont. Það hefur sjálfsagt
flýtt fyrir þessari þróun að þekk-
ingarkerfin eru tiltölulega ódýr
miðað við aðra tölvutækni.
- Hvemig virka þessi þekking-
arkerfi?
í stuttu máli er þekking á ein-
hveiju sérsviði sett í kerfi þannig
að hægt er að nálgast hana á að-
gengilegna hátt. Með þessum
hætti er hægt að safna upp þekk-
ingu innan fyrirtækisins og er hún
þá aðgengileg hveijum sem er.
Þannig er t.d. mögulegt að taka
reynslu manns sem er búinn að
vinna í 40 ár hjá fyrirtækinu og
gera hana aðgengilega hveijum
sem er. Með þessum hætti er hægt
að bæta upp það tap sem fyrirtæk-
ið verður fyrir við að missa fólk
ásamt reynslu þess úr vinnu. Þessi
kerfi koma einnig að ómetanlegu
gagni við að þjálfa upp nýja starfs-
menn.
Með þessari tækni er hægt að
hafa þekkinguna til staðar og nálg-
ast hana hvenær sem er með
auðveldum hætti fyrir hvem þann
sem hefur aðgang að kerfinu.
Þekkingarkerfi skapa þannig
möguieika á að vemda þekkinguna
og koma henni áfram milliliða
laust. Áður hefur þetta ekki verið
framkvæmanlegt nema á miklu
þunglamalegri hátt.
- Þarf ekki töluverða sérhæf-
ingu til að koma þessum þekking-
arkerfum upp?
Nei, það getur hver sem er lært
á tiltölulega stuttum tíma en því
er ekki að neita að menn eru
misjafnlega til þess fallnir. Hægt
er að koma sér upp þekkingar-
víða að ryðja sér til rúms um þess-
ar mundir?
Dupont hefur tekið afgerandi
forystu í Bandaríkjunum með því
að koma þessari tækni á í fyrir-
tækjum sínum. Þaðan hefur þessi
nýja upplýsingatækni verðið færð
út um allan heim gegn um fyrir-
tækið.
Nú er greinilegt að fleiri fyrir-
tæki hugsa sér til hreyfings. Ég
fæ mikið af fyrirspumum og beiðn-
um um að halda fyrirlestra um
þessi efni og hef ekki getað sinnt
þeim nema að takmörkuðu leyti.
- Hefur þú fengist mikið við
þróun þessara kerfa?
Við höfum þjálfað fleiri hundmð
manns í Dupont fyrirtækjum og
kennt þeim að gera svona kerfi
sjálfum. Að undanfömu hef ég
verið að senda fólk út um allan
heim til að kenna þessa tækni.
Eftir nokkrar vikur fer ég til Genf
og mun standa þar fyrir ráðstefnu
um þessi efni. Seinna á árinu
munum við fara til Japans og Suð-
ur-Ameríku í sömu erindagerðum.
Að undanfömu hef ég verið að
vinna með lækni að gerð þekking-
arkerfis á hans sérsviði, þ.e.
sjúkdómsgreinginarkerfi. Þessi
læknir rekur heilsuvemdarstöð og
mun þekkingarkefíð, auk þess að
vera honum sjálfum til aðstoðar,
gefa starfsfólki á heilsugæslustöð-
inni aðgang að upplýsingum sem
annars væri einungis væri á færi
sérfræðinga að veita.
- Er það ekki andstætt hags-
munum sérfræðinga að miðla
þekkingu sinni til fjölda annara
manna á þennan hátt?
Um það má deila en þekkingar-
kerfið er sérfræðingnum einnig til
hjálpar. Þekkingarkerfið eykur ör-
yggi og nákvæmni í starfi hans.
einhveijar villur með öllu.
- Er ekki dýrt að koma upp
tölvubúnaði fyrir þekkingarkerfi
af þessu tagi?
Nei, það er hægt að vera með
þekkingarkerfi á venjulegum ein-
ménningstölvum. Stærri þekking-
arkerfum má koma fyrir á stómm
tölvum eins og VAX 11/780 og
samtengja þau gagnabönkum.
Þannig geta þau nýst fjölmörgum
einstaklingum í gegn um útstöðv-
ar. Almennt gildir að sá vélbúnaður
sem notaður er miklu ódýrari en
en hugbúnaðurinn. Þekkingarkerfi
eru tiltölulega ódýr miðað við
tölvutækni almennt og fjárfesting
vegna þeirra ekki mikil.
Mögnleikar á íslandi
íslendingar eiga að mínu áliti
mikla möguleika varðandi gerð
þekkingarkerfa og gæti jafnvel
orðið um útflutning á þeim að
ræða héðan.
- Hvað höfum við fram yfir
aðrar þjóðir að þessu leyti?
íslendingar eru vel menntuð
þjóð og hér er fyrir hendi kunn-
átta á mörgum sviðum. Ég held
að starfsemi sem þessi passi mjög
vel inn í menningu þjóðarinnar.
Hér á landi hafa menn lengi langt
stund á að þjálfa hugann - hér
hafa margir fengist við að yrkja,
tefla skák, rekja ættir o. s. frv.
íslendingar gætu náð langt í gerð
þekkingarkerfa ef þeir grípa tæki-
færið núna þegar eftirspurnin eftir
þeim er að heíjast. Fjármagns-
kostnaður er lítill við hugbúnaðar-
gerð og má segja að það sé fyrst
og fremst „heilaaflið" sem leggja
þarf fram. Einangrun landsins
kemur ekki að sök í þessu efni.
Hvað samkeppni varðar á ég ekki
von á að hún verði mikil á næstu
árum. Stóru fyrirtækin eins og
Dupont kæra sig ekki um að fram-
leiða þekkingarkefín sjálf heldur
vilja þau gjaman kaupa þau af
smærri aðilum. Þannig fá þau nýja
þekkingu inn í reksturinn hjá sér
sem getur orðið þeim miklu dýr-
mætari en seljandanum. Nú er
eftirspumin eftir þekkingarkerfum
mikil og á eftir að verða meiri
næstu ár því æ fleiri stórfyrirtæki
hugsa sér til hreyfings í þessum
efnum.
Eins gætu íslendingar haft mik-
ið hagræði af að koma upp
þekkingarkerfum varðandi helstu
atvinnugreinar sem hér eru stund-
aðar. Þar eru mikil tækifæri
ónotuð. Með einföldum þekkinga-
kerfum mætti t.d. koma á
samræmdu gæðaeftirliti í sjávarút-
vegi og gera einstaka framleiðslu-
þætti einfaldari og öruggari. Hægt
væri að nota þessa tækni við fram-
leiðsluþætti stórverksmiðja eins og
álversins í Straumsvík, við sjúk-
dómsgreiningu sjúklinga, sem
aðstoðarkerfi fyrir fatlaða, við-
gerðarþjónustu bifreiðaverkstæða
og á ijölmörgum sviðum þjóðlífs-
ins. Þekkingarkerfin má einnig
nota á mun víðtækari hátt - þau
gætu t.d. brúað bilið milli Háskóla
Islands og atvinnulífsins, eins og
greinilega er mikil þörf á hér. I
samtali sem ég átti við prófessor
Odd Benediktsson kom fram að
einn þriðji nemenda í Raunvís-
indadeild Háskólans eru í tölvu-
fræði. Ég tel raunhæft að hvetja
þennan stóra hóp til að takast á
við verkefni á þessu sviði.
- Mun notkun þessara þekk-
ingarkerfa leiða til aukins atvinnu-
leysis?
Öll stærstu fyrirtæki heims eru
að fækka starfsfólki, það er stað-
reynd sem ekki verður litið
framhjá. Þessi nýja upplýsinga-
tækni mun ef til vill valda því að
færra starfsfólk verður ráðið en
ella og stuðla þannig að auknu
atvinnuleysi. Þekkingarkerfin
munu hins vegar auka hagkvæmni
iðnaðarins og þá er spumingin
hvort þau muni ekki stuðla að
aukinni atvinnu á öðrum sviðum.
Ég held að engin ástæða sé til að
óttast þessa tækni því hún eykur
fyrst og fremst möguleika okkar.
Kunnátta er grundvöllur atvinnu-
starfsemi og það hlýtur að vera
af hinu góða að grundvöllurinn
styrkist.
Eins og ég hef komið að hefur
Dupont gerst brautryðjandi við
hagnýtingu þessarar tækni í heim-
inum og er komið lengst allra
stórfyrirtækja í hagnýtingu henn-
ar. Onnur stórfyrirtæki eru rétt
að fara af stað og það er fyrst
núna sem menn eru að gera sér
ljóst hversu geysimiklir möguleik-
amir em.
- Hver er staða þín hjá Dupont
fyrirtækinu?
Ég hef verið við stjórnun á þessu
sviði frá því að ákveðið var að
ráðast í þessar breytingar. Ég hef
unnið fyrir dr. Ed Mahler sem er
orðinn héimsfrægur á þessu sviði.
Á þessum tíma hef ég haft aðstöðu
til að fylgjast með starfsemi allra
deilda fyrirtækisins gegn um þessa
tækni og þekki því reksturinn ná-
ið. Það hefur komið mér mjög á
óvart hversu mikilli byltingu þekk-
ingarkerfín hafa valdið á hinum
fjöimörgu rekstrarsviðum fyrir-
tækisins og stundum hefur maður
á tilfinningunni að maður sjái inní
einhvem framtíðarheim, að það sé
ekki nútíminn sem maður hefur
fyrir augunum. Það hefur líka ver-
ið stórkostlegt að fylgjast með
starfsemi risa eins og Dupont. Þar
er ráðist í stórverkefni uppá tugi
milljarða og allt þrautskipulagt af
fæmstu mönnum áður en lagt er
í framkvæmdir.
Svo virðist að ný iðnbylting hafi
hafist er tölvutæknin kom til sög-
unnar, sérstaklega þegar komið
er inn á svið gervigreindar eða
tölvuvits. Við erum rétt að byrja
að hagnýta þá möguleika sem
skapast hafa. Ekki er annað sýnt
en sagan muni endurtaka sig, að
þeir sem ekki tileinka sér þessa
nýju tækni verði undir í markaðs-
samkeppninni.
- bó.