Morgunblaðið - 03.04.1987, Síða 50

Morgunblaðið - 03.04.1987, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987 HINN MANNLEGI ÞÁTTUR/Ásgeir Hvítaskáld BLÓMAMORÐINGINN Kærastan æddi út og inn um ganghurðina og henti pottablómum í ruslalúguna þar sem við bjuggum í lítilli íbúð á 7. hæð í blokk. Hún var að streða við að koma sér upp stórum stofni af kaktusum, en það gekk ekki. Hún lagði sig alia fram, las blómabækur og gekk í alla mögulega bókaklúbba. Og þegar við fórum í heimsókn til kunningja var aðeins spjallað um blómarækt; hún eltist við allar upplýsingar. En ^amt komu upp alls konar blóma- veikindi svo þeim fækkaði stöðugt. Nú hafði hún séð lús og hent 5 kræklingum í histeríu. Samt voru eftir sjö kaktusar og þrjú ræfils- tuskuleg blóm. Því miður. En það var eins og að í íbúðinni okkar væri ósýnilegur blómamorðingi. Kærastan kom inn úr dyrunum og hélt moldugum höndunum iangt frá sér þó hún væri með gúmmí- hanska. Hún var hugsi. Svo lokaði hún hurðinni. Þá horfði hún rann- sakandi á mig: „Settir þú eitthvað á blómin? spurði hún og pírði augun. „Ég. Nei, ég er alsaklaus, hef ekkert gert,“ svaraði ég fljótt, þar » sem ég sat við skrifborðið, með einn ljótan kaktus við hlið mér. Hún fór inn á bað ti! að sótthreinsa hansk- ana. „Af hvetju var allt í einu komin lús á blómin mín? sagði hún og stóð fyrir framan mig með hendur á mjöðmum. „Ég veit það ekki. Ætli þú hafir ekki vökvað þau of mikið.'1 Hún horfði strangt á mig. „Svo eru þetta ekki blóm, þetta nefnist kaktusar," og ég sagði orð- kaktus með viðbjóði. Af öllu þessu var ég orðinn blómahatari. Ef fólk er að þvælast ineð blóm í heimahúsum þá eiga það að vera aldinblóm, skrúðug og græn og sem lyfta manni upp. En íbúðin okkar var eins og eyðimiirk. Að sjálfsögðu þorði ég ekki að Ijóstra upp um þessar skoðanir Eg kýs Sjálfstæðis- flokkinn Jóhann Guðbrandsson, útgerðarmaður, Sandgerði: „Ég kýs Sjálfstæðisflokkinn vegna þess að ég álít, að mínu atkvæði sé best varið til stuðnings flokki, sem berst fyrir framtaki einstakl- ingsins og frelsi honum til handa. Auk þess má benda á verk flokksins i núverandi ríkisstjórn. Ég tel þau vera honum til sóma og sýna glöggt að þar er á ferðinni traust forysta." REYKJANES Á RÉTWI LfíD mínar. Á heimilinu var mjög gott skoðanafrelsi, bara ef maður hélt Iqafti. Mig langaði til að eiga frosk, skjaldböku eða páfagauk. En í hvert sinn sem ég nefndi það á nafn var sagt að ég fengi alltaf svo bijálaðar hugmyndir. Einu sinni hafði ég keypt stóran og grænan gargpáfa- gauk. En ég varð að borga búðar- eigandanum fyrir að taka hann aftur. Kærastan staðfesti að hún væri með ofnæmi fyrir fuglafiðri. Ég sem hafði keypt 6 bækur um hvernig ætti að kenna páfagaukum að tala og hlakkað ofsa til. „Það ert þú sem ert að eitra fyr- ir blómunum mínum,“ sagði hún með grátsvein í kverkunum. „Ég, nei. Ástin mín, hvernig dett- ur þér svona nokkuð í hug. Mér sem þykir svo vænt um litlu blómin þín,“ sagði ég og gaut auga að helvítis kaktusnum sem var á skrifborðinu mínu. Mér fannst þetta algjört óréttlæti. Hún fékk að hafa heil- marga kaktusa en ég fékk ekki að hafa eina skjaldböku. Stundum þurfa karlmenn að heyja stranga en þögula baráttu. Frá þessum degi lá ég undir grun. í hvert skipti er ég var einn í íbúð- inni grandskoðaði hún blómin er hún kom heim, stakk putta í mold- ina til að athuga hvort ég hefði hellt eitri í pottana. En daglega sprautaði hún flugnaeitri yfir blóm- in svo erfitt var um andardrátt í íbúðinni. Eina almennilega blómið sem hún átti var hawaiirós. Það hafði græn lifandi blöð og stórar rauðar rósir sprungu út öðru hvetju. Mér fannst það næstum því fallegt. En ef rósirnar sprungu út að kvöldi voru þær fallnar að morgni. Stund- um duttu rósirnar af hálfútsprungn- ar. Skrítið, sorglegt. Eina fallega blómið sem hún átti gat ekki hegð- að sér rétt. Þetta blóm talaði hún mest við og það fékk þann heiður að standa á skrifborði hennar. Hún gat setið tímunum saman og skoðað blómið í staðinn fyrir að lesa skólabækur. Hún óttaðist mest af öllu að sjá lús líka á því blómi. „Hvað er nú þetta,“ sagði hún eitt sinn seint um kvöld og benti niður á skrifborðið sitt. Á rauðu tekkinu voru litlir svart- ir dílar, eins og blekdropar. Ég sá um leið samskonar díla á laufblöð- um hawaii-blómsins. Það var eins og þetta hefði lekið af jurtinni og niður á skrifborðið. „Hvað er það núna?“ andvarpaði hún. „Þetta virðast vera einhveijar nýjar pöddur," sagði ég og skoðaði blómið með mikilli ánægju. „Nei, þetta eru ekki pöddur, ég er búin að fylgjast með þessu í marga daga og þetta hreyfist ekki,“ sagði hún og var farin að gefa mér grunsamlegt auga. „Nú,“ sagði ég og var orðinn forvitinn. „Á hveijum degi þurrka ég þessa bletti af skrifborðinu, en það koma alltaf nýir,“ sagði hún. „Mjög athyglisvert. Þetta líkist tjörublettum,“ sagði ég og var á kafi í blóminu. „Ert þú að sprauta tjöru yfir blómið mitt,“ sagði hún. „Ég, nei.“ Þá sá ég göt á laufblöðunum líkt og þau væru étin. „Hey, sjáðu. Það er eitthvað dýr sem hefurétið laufblöðin," sagði ég. „Já, ætli þetta sé ekki þá skítur úr silfurskottum,“ sagði hún og var að verða histerísk. „En silfurskottumar eru bara inni í skápnum.“ „Nei, nú eru þær farnar að éta blómin mín.“ Hún lagðist fram á skrifborðið en tók ekki fram gúmmíhanskana. Þá sá ég eitthvað á blóminu, sem mér sýndist vera brum, kræklótt brúnt brum. Ég ákvað að hræða hana endanlega; var alltaf til í að losna við fleiri blóm. Ásgeir Hvítaskáld „Sérðu, hér er padda,“ sagði ég og benti. Hún leit upp og setti upp stóra grettu á andlitið áður en hún sá hvað ég benti á. En um leið sá ég að brumið var með afturfætur. „Ha, hér eru fætur sem hreyf- ast,“ sagði ég hugsi. Hún öskraði. Þetta var stór og falleg padda, líktist járnsmið, en brún að lit. Hún var í laginu eins og nashymingur, með langt nef sem minnti á rana. Ég féll um leið fyrir þessari pöddu; er svo mikill dýravin- ur. Ég náði í flísatöng og tók pödduna af blóminu og bar hana upp í ljósið. Konan öskraði og öskraði. „Hvað er að?“ sagði ég. „Padda, stór padda, inn á heimil- inu okkar . .. aarrrrrrr." „Já, en sjáðu hvað hún er fal- leg,“ sagði ég og nálgaðist með flísatöngina. „Nei, nei, nei. . .“ öskraði hún og hljóf) inn á bað. Ég gat ekkert að þessu gert en mér fannst þessi padda mjög falleg, veit ekkert af hveiju, mér bara fannst það. Síðan setti ég nýja heimilisdýrið í lítið plastbox og hringdi í dýrafræðing. Konan reitti hárið og kom ekki í nálægð við skrifborðið mitt. „Og ég sem hef svo oft talað við þetta blóm og strokið því,“ sagði hún og hristi sig af viðbjóði. Dýrafræðingurinn sagði að þetta væri ranabjalla sem lifði á græn- blöðungum, verpti hvítum ormum í möldina sem verða stórir og lifa síðan á rótunum. Konan kúgaðist. Svo sagði hann að blómið tnyndi tærast upp og deyja, o'g að þetta væri mjög sjaldgæft. Einnig sagði hann að ranabjallan færi á flakk á nóttunni, labbaði þannig á milli blóma og verpti. Eina leiðin væri að henda blóminu. Konan pírði aug- un og sýndi tennurnar. Hún hafði fundið blómamorðingjann. „En er engin leið að bjarga blóm- inu, þetta er mjög falleg hawaiirós," saðgi ég í símtólið. Kærastan lyfti brúnum yfir skyndilegum áhuga mínum fyrir blómum. „Það er möguleiki að setja blóm- ið á kaf í vatn yfir nótt og drekkja þannig lifrunum, ef blómið þolir það,“ sagði dýrafræðingurinn. Þá þakkaði ég dýrafræðingnum. „Það eru allra þjóða kvikindi hér inni. Ég hendi öllum blómunum," saðgi hún og setti upp gúmmí- hanskana. Nú loksins hafði ég tækifæri til að losna við alla kaktusana í eitt skipti fyrir öll. En ranabjallan lifði á laufblöðum hawaiirósarinnar. „Nei, nei, það er engin lausn að henda öllum blómunum." „Jú, ég vil ekki hafa þau lengur.“ Ég tók um mitti hennar. „Veistu það, íbúðin yrði svo tóm- leg án blómanna þinna. Mér finnst þau fallegri með hveijum deginum." „Já, en það eru pöddur á þeim öllum . . .arrrrrr.“ „En ranabjöllur lifa aðeins á hawaiirósum." „Já, í ruslið með hana,“ sagði hún og reyndi að slíta sig lausa. „Það er alveg synd ef þú ætlar að fara að kasta þessu fallega blómi. Ég skal setja blómið á kaf í vatn í stóran bala og drekkja öllum lifrunum.“ „Þú ert þó ekki að meina að þú ætlir að halda dýrinu lifandi í box- inu?“ sagði hún. „Hvað annað? Ekki köstum við svona áhugaverðu dýri.“ „Veistu, ég trúi þér ekki,“ sagði hún og hristi höfuðið til að skeq>a skilningarvitin. „,Nú loksins er ég búinn að fá heimilisdýrið sem mig hefur alltaf dreymt um. Ég meina, hvaða máli skiptir þó dýrið sé lítið?" Áugu hennar skutu gneistum í átt að litla boxinu. „Þú skalt nú ekki vera of viss um að þessi litla padda hafi verið að skaða blómin þín,“ sagði ég og horfði á sakleysislega bjölluna. „Arrrrrr...“ sagði konan og skellti hurð. Er kærastan var loks sofnuð sat ég lengi við skrifborðið og horfði á bjölluna í gegnsæja plastílátinu; hafði eitt ferskt laufblað inni hjá henni. Hún var áhugaverð, sérstak- lega þessi íbogni rani; falleg á sinn sérstaka hátt. Stundum opnaði ég krukkuna svo hún fengi ferkst loft. Ég lá frarn á skrifborðið og fylgd- ist með hreyfingunum. Hún var með sogskálar á fótum og gat skrið- ið upp veggi. Ef ég hristi boxið, þá fór hún að éta laufblaðið. Það var æðisleg sjón. Á rananum var þverrifa; lóðréttur munnur. Hún renndi rananum upp og niður eftir kanti laufblaðsins og hámaði í sig. Það alveg skóflaðist ofan í hana. Æði! Um leið losaði hún sig við svartan úrgang, líkastan tjöru. „Ertu alveg búinn að gleyma mér,“ sagði konan og stóð fáklædd fyrir framan skrifborðið. „Nei, nei, alls ekki,“ sagði ég og hrökk upp úr djúpum pælingum. Ranabjallan faldi sig undir lauf- blaðinu. Næsta dag er ég kom heim úr vinnunni brá mér í brún. Kærastan var æst. Ég leit á plastboxið, það var á sínum stað. En er ég leit yfir íbúðina sást að hawaii-rósin var farin. „Já, það var stór og feit padda að spássera á einu laufblaðinu. Já og alveg í makindum.“ Ég hnyklaði augabrúnirnar og grunaði annað. „Ég sem ætlaði að fara að skipta um mold,“ sagði hún. Ég vissi aldrei hvort hún hafði séð aðra bjöliu eða ekki, en nú fóru erfiðir tímar í hönd. Hvar átti ég að fá laufblöð handa ranabjöllunni. Ég komst áð því að það eru ekki margir sem eiga hawaiirós. Svo heimsóknir okkar jukust til vinkonu sem átti slíkt blóm. í hvert skipti bað ég á skemmtilegan hátt um eitt lítið laufblað. Það var alltaf hlegið að mér. Allir héldu að þetta bæri brandarí. „Þvílíkt og annað eins,“ sagði konan í hvert sinn á heimleiðinni. Stundum fannst mér eins og henni væri illa við bjölluna mína. en ranabjallan gerði lukku. Alltaf komu fleiri og fleiri í heimsókn sem vildu skoða hana. Þá gerðist það að við fórum í ferðalag og í stofuglugga á sveitabæ fann ég þessa risastóru hawaiirós. „Svakalega áttu fallega hawaii- rós,“ sagði ég með aðdáun við bóndakonuna. Mér var umsvifalaust gefið blóm- ið og það borið út í bíl. Nú hafði ég meira en nóg af ferskum lauf- blöðum. Eitt kvöldið gekk ég um gólf eirð- arlaus og hafði ekki anda til að skrifa. Ég klippti neglur og greiddi hár, gerði allt annað; nennti ekki þessu skáldaglamri. Mér fannst eins og ég sjálfur væri lokaður inni í plastboxi. En allt í einu fékk ég æðislega hugmynd. Ég klippti grein af hawaiirósinni. Setti klísturgúmmí í botninn á krukku. Stakk greinninni ofan í gúmmíið, setti svo vatn í krukkuna. Þannig að vatn umlukti greinina. Þijú laufblöð voru á grein- inni. Þá opnaði ég plastboxið þar sem blind paddan þreifaði sig áfram með fálmurunum sem voru á hausn- um á henni. Og á fótunum voru litlir krókar. Ef hún fann eitthvað með fálmurunum klifraði hún upp á það og nú veiddi ég hana upp á kúlupenna og flutti hana yfir á greinina. Þar krækti hún fótunum í fyrsta laufblaðið og byijaði að þramma fram og aftur um allt blómið, stanslaust og hratt. Hún klifraði milli laufblaðanna, og not- aði fálmarana, hún nuddaði aftu- rendanum eftir stönglinum líkt og hún væri að klóra sér. Nú var padd- an fijáls og ég var hugfanginn af henni. Ég skoðaði og athugaði. Mér finnst svo gaman að kynnast nýjum persónum. Undarlegur sproti var aftan úr henni. En brátt fékk ég leið á að horfa á hana hringsóla þarna á greininni. Þá kaffærði ég hana tvisvar. Loks nennti ég þessu ekki og setti hana aftur í boxið. Einn daginn hringdi blaðamaður í mig í vinnuna sem vildi fá að sjá ranabjölluna og taka myndir af henni. Fiskisagan flaug. Hann hafði frétt þetta hjá dýrafræðingnum. Við ákváðum dag. En daginn eftir var hún óróleg og völt á fótunum, stundum datt hún um koll. Ég gaf henni ferskt loft og nýtt laufblað en hún vildi ekkert. Ég hringdi í dýrafræðinginn en hann vissi ekkert um sjúkdóm- inn. Morguninn eftir lá hún afvega í búrinu, hafði ekkert borðað af nýja laufblaðinu, en lítil gul klessa var falin í einu hominu. Dýrafræðingur- inn sagði að þetta væru egg sem myndu klekjast út á viku, ef þau væru í réttum raka. Honum fannst þetta mjög athyglisvert og vildi koma í heimsókn. En ranabjallan lá á bakinu og hafði lagt fálmarana saman svo þeir sýndust dottnir af. Ég pikkaði í hana, hún lyfti öðmm fálmaranum, svo lá hún hreyfingar- laus. Ég lagði niður símtólið. „Þú vogar þér ekki að klekja þessum eggjum út,“ sagði kærastan og var æst. „Af hveiju ekki,“ sagði ég og skoðaði hrognin með stækkunar- gleri. „Þá verð ég ekki deginum lengur í þessari íbúð.“ En daginn eftir var ranabjallan dáin. Hún hafði lifað 34 daga í boxinu. Því miður fékk ég ekki að klekja hrognunum út. Af sérstökum ástæðum átti það eftir að hafa slæm áhrif á eftirlifandi blóm. Ég skrif- aði kveðjuljóð sem ég setti ofan í boxið til hennar og eggjanna. Síðan innsiglaði ég líkkistuna með glæru teipi. Seint um kvöld Iæddust ég og kærastan út með kúbein og vinnuvettlinga. Konan var í fýlu af því að hún fékk ekki að vita hvað stóð í boxinu. „Af hveiju má ég ekki lesa ljóð- ið,“ sagði hún hástöfum og ég var skíthræddur um að einhver myndi uppgötva okkar vapp í myrkrinu. Undir tréhríslu á óræktuðu svæði var ranabjallan jörðuð við hátíðlega athöfn af minni hálfu. En ljóðið í boxinu var svona: Frá moldu ertu komin að moldu skaltu aftur verða og megi viska þín aftur upp rísa. Blómamorðinginn gengur enn laus.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.