Morgunblaðið - 03.04.1987, Síða 54

Morgunblaðið - 03.04.1987, Síða 54
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987 Bræðraminning: Stefán Gunnarsson Sigurður Gunnarsson Stefán: Fæddur 20. júní 1910 Dáinn 3. maí 1986 Jarðsettur á Valþjófsstað 10. maí. Sigurður: Fæddur 2. nóvember 1911 Dáinn 24. júlí 1986 Jarðsettur á Valþjófsstað 31. júlí. Það er einkenni um norðanvert ísland hve mikill fjöldi dala skerst inn í hálendið allt frá Vesturlandi til Austurlands. Einn þessara dala er Fljótsdalur, er gengur inn af samnefndu héraði og skiptist að lokum í Suðurdal og Norðurdal. Nokkrir bæir eru í báðum dölum. Egilsstaðir eru í Norðurdalnum norðvestanverðum, næst innsti bær. Undirlendi er lítið, hlíðar allbrattar og heiðin, Fljótsdalsheiðin að baki og skammt í brún. Veðursæld er yfirleitt mikil, sérstaklega er snjó- létt að jafnaði, og heitir dagar að sumri, þegar landáttin ríkir. Vatna- jökull þurrkar úrkomuna úr suð- vestanáttinni og hitinn hækkar á leið norðaustur yfir landið, oftast baðað í sólskini í þeirri átt. Þannig verða til hinir guðdómlegu dagar dalanna, og einkenna allt Norðaust- urlandið öðru fremur. í þessum dal voru þessir bræður bornir og úr hópi 14 alsystkina, sem llest ólust upp heima, og þeir ólu illan sinn aldur á Egilsstöðum, iiema Sigurður var einhvem tíma um skamma hríð hjá móðurbróður sínum á Þorgerðarstöðum. Ég vissi engin deili á þessu heim- ili þar til ég kom í Skriðuklaustur. Stefáni kynntist ég mjög lítið, hann var heima ár og síð að segja má. Ég sá hann á Fljótsdalsrétt á haust- in og átt hefir hann þátt í að koma fé til slátrunar. En bílflutningar vom hafnir er ég kom austur, en sláturfé úr Fljótsdal áður rekið um Þórdalsheiði til Reyðarfjarðar. En margs þarf búið við. Að mörgu er að hyggja og mörg eru viðvikin, sem kalla á vökul augu heimilisfólks á slíku heimili, sem verið hefur á Egilsstöðum í Fljótsdal mikinn hluta þessarar aldar. Annarsvegar allt er beint snerti öflun daglegs bjargræðis, hins vegargæsla varan- legri verðmæta. Hirðusemi og snyrtimennska samofin öllu því er horfir við á hveijum morgni. Hver sem að Egilsstöðum kemur veitir athygli fjárhúsunum, t.d. hin- um frábærlega snyrtilegu, traustu og hlýju veggjum af torfi og gijóti og umgengni öll ber vitni fegurðar- smekk, sem líka er eitt af fram- leiðslugildum sveitafólks. Ég fór nokkrum sinnum að hausti til að inna af hendi fjallski! fyrir Skriðu- klaustur, sem hétu á gangnaseðli: „Að fara á móti í Rana!“ í því fólst að sækja safnið er smalað var sam- an fyrsta dag í Ranagöngum. Þá lá leiðin upp á heiði frá Égilsstöðum og í Fjallaskarð. Það vakti athygli er ég teymdi hest minn upp tals- vert bratta götuna er hlykkjaðist upp hlíðina, að úr götunni höfðu verið týndir allir smásteinar, sem ár og síð eru að losna við margvís- lega umferð kúa, hesta og kinda og jafnvel veðurs! Einn vitnisburð- urinn um árvekni, vilja, skilning, samúð með öllu lífí, þar með fótum búfjárins og ánægju starfsins. Anægju, fullnægju í því sem smáat- riðin í ýmsra hug eru. Það er þungur niður í spakmælinu um þúsund þjal- irnar, snertir miklu fleira en smíðar, enda þannig meint. Ég hefi vakið athygli hér á ýms- um atriðum, sem án efa eru samofin lífsstarfi þeirra bræðra, ekki síst sem hér er minnst, þar sem ævi- skeið þeirra allt rann. En allt vitnar hér um samhenta heimilishætti ein- stakrar virðingar fyrir náttúrlegum búháttum. Síðari ár mín á Skriðuklaustri rak ég féð vestur í Rana svo snemma vors er færð leyfði yfír Fljótsdals- heiði og smalaði þar svo saman til rúnings, fyrri hluta júlí. Ég varð strax var við að misjafnlega litu sveitungar á þessar athafnir. Búin voru út á Brattagerði, sem er gam- alt eyðibýli að austanverðu á Jökuldal, skilyrði til að unnt væri að framkvæma þetta. Stórt girðing- arhólf meðfram Jöklu, og annað, fremur lítið, á gamla túni býlisins og svo rétt og lítið aðhald þar við til öryggis og léttis við innrekstur. Eitt af fyrri árum þessara rúnings- leiðangra, er ég var að ganga kringum réttina og sannfæra mig um að allur útbúnaður og öryggis- þættir væru í lagi, svo bytja mætti starfíð, reið þar ofan úr brekkunni maður með tvo dökka hesta, annar „trússa“-hestur, sem svo nefndist, með reiðing eða töskur. Þar heilsuð- umst við og var þar kominn Sigurður á Égilsstöðum. Þá var búið að smala og allt féð í girðing- unni og var það fírna mikil breiða yfir að sjá. Sigurður fer strax að spretta af hestunum og ég sé að hann horfir mjög yfír fjárbreiðuna, alvarlegur á svip. Lítur svo á mig og segir með nokkrum þunga í röddinni: „Það er ábyrgðarhluti að smala svona mörgu fé saman.“ Ég segi ekki að mér brigði við, en átt- aði mig fljótt á að þarna sagði Sigurður það, sem ýmsir töldu at- hugavert við þessa vorsmölun á svona mörgu lambfé, að með því kynni að verða stíað í sundur í veru- legum mæli. Ég hét því strax í huga mér að við skildum sanna Sigurði að gætt væri hér fullrar ábyrgðarkenndar. Hann var svo með okkur þar til öllu var lokið og nutum við þá hinnar frábænt glögg- skyggni hans á allt er sauðfé snerti. Að lokum greiddist úr þessu svo að fráfærur áttu sér ekki stað og Sigurður var mjög ánægður er lok- ið var, og viðurkenndi að betur hefði tekist en hann hefði búist við. Við vorum ætíð í þessum Rana- ævintýrum öll samhent um að hindra öll mistök, jafnstrangt með lambfé nágranna, sem ær búsins. En þessi orð Sigurðar í upphafi gáfu mér gleggri mynd af mannin- um en fyrir var. Gjörhugull maður, með lífsskoðun hins náttúrlega bónda, sern leggur inn í lífsbók sína allt sem hann frá barnæsku hefir numið af skriftunum við náttúruna, við búféð og sérstaklega sauðféð, þar sem saman tvinnast virðing samúð og ábyrgð. Eðlislægir þætt- ir, styrktir af þúsund ára arfleifð sambúðar við landið, sem gera auð- velt námið í skóla reynslunnar, og jafnframt kærkomið nám. í þætti, sem birtist eftir mig í bókinni „Aldnir hafa orðið“ árið ■1985, minnist ég á Egilsstaðasystk- inin, þar segi ég: Einn bræðranna heitir Sigurður. Dalurinn og heiðin, Fljótsdalsheiði, hafa verið heimili hans alla ævi. Að vísu mætti segja þetta um systkinin flest eða öll. En að líkind- um hefír þó Sigurður átt þar flest sporin. Má með miklum sanni segja að þar þekkti hann hvern blett á því víðáttumikla svæði. Fjárglöggur er Sigurður með fágætum. Ég vissi af þessum verkhögu og vinnufúsu Egilsstaðasystkinum, þessum t Ástkær sonur okkar og bróðir, GUNNARÞÓR ARNARSON, Mávahlið 23, Reykjavík, sem lést 28. mars verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 3. apríl kl. 1 5.00. Örn Sigurðsson, Sigurbjört J. Gunnarsdóttir, Sigrún Margrét Arnardóttir, Bjarndís Arnardóttir, Örn Arnarson. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs sonar okkar og fóstursonar, ELVARS ÞÓRS HAFSTEINSSONAR, Ægisíðu 92, og þeim sem vottuðu minningu hans virðingu. Sóiveig Hákonardóttir, Hafsteinn Sigurðsson, Ólafur Thoroddsen og aðrir aðstandendur. t Þökkum auösýnda samúö við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, GUNNARS JÓNSSONAR, Mávahlið 43. Guðrún Valdimarsdóttir, Björn Gunnarsson, Arndís Ármann, Ásta Gunnarsdóttir og barnabörn. t Þökkum vináttu og samúð við fráfall HALLDÓRS BACHMANN HAFLIÐASONAR, Álfheimum 68. Auður Einarsdóttir, Hulda Halldórsdóttlr, Eiríkur Þorsteinsson, Lilja Halldórsdóttir Veigele, Hartmut Veigele, Hafliði Halldórsson, Guðfinna Hauksdóttir, Halldór Eiríksson, Elsa Eiríksdóttir og Peter Veigele. Kveðjuorð: Hörður Bergþórs- son stýrimaður Fæddur 30. nóvember 1922 Dáinn 10. nóvember 1986 „Þar sem góðir menn fara, þar eru Guðs vegir." Þessi orð koma mér þrátt í hug er ég minnist vinar míns, Harðar Bergþórssonar, fytrum stýrimanns, sem andaðist 10. nóvember sl. Hörður var fæddur á Akureyri 30. nóvember 1922 og því aðeins tæpra 64 ára er hann lézt. Foreldr- ar hans voru bæði af þingeyskum ættum, en þau voru hjónin Bergþór Baldvinsson frá Sörlastöðum í Fnjóskadal, Magnússonar og Olga Olgeirsdóttir frá Gautsstöðum á Svalbarðsströnd. Foreldrar hennar voru Olgeir Friðbjarnarson og Steinunn Bendiktsdóttir, sem þar bjuggu um skeið, og síðan bjó Frið- björn, bróðir Olgu, þar lengi og afkomendur hans enn. Á Hörður margt skyldfólk í Þingeyjarsýslu, við Eyjafjörð og víðar. (Sjá Ættir Þingeyinga I. bindi, ætt Snorra Ólafssonar.) Hörður ólst upp hjá foreldrum sínum á Akureyri, ásamt tveim systrum, Önnu og Valgerði, sem lifa bróður sinn. Ungur hóf hann sjómennsku og gerði hana að ævi- starfí. Sú starfssaga er mér að litlu leyti kunn, en veit að rúm hans hefur ætíð verið vel skipað — um það ber öllum saman. Hörður lauk prófí frá Stýrimannaskólanum og vann síðan á ýmsum skipum, en síðustu árin á sjónum, 1975—1981, var hann stýrimaður á nótaveiði- skipunum Isafold og Geysi, sem gerð voru út frá Hirtshals í Dan- mörku. Þeirri sjómennsku fylgdu langar fjarvistir frá ástvinum, en líka góðir frítímar, sem hann gat notið heima hjá þeim. Sökum heilsu- brests varð hann að hverfa í land 1981 og vann eftir það hjá Reykjavíkurhöfn fram á síðasta sumar að veikindi bundu þar enda á. 5. júní 1954 giftist Hörður Sig- rúnu Sigurðardóttur frá ísafirði. Er hún mannkostakona og voru þau mjög samvalin og samhent. Heimili þeirra var ætíð í Reykjavík, síðustu árin á Kleppsvegi 134. Þau eignuð- ust eina dóttur, Olgu, sem fæddist 3. júní 1960 og varð þeim mikill gleðigjafi og augasteinn. Undanfar- in ár hefur hún verið við nám erlendis, síðast í Finnlandi og er þar nú. t Hugheilar þakkir sendum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vinarhug við andlát og útför móöur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HEIÐAR StGURÐARDÓTTUR, Ásgarðsvegi 22, Húsavík. Jónína M. Sigtryggsdóttir, Georg Karlsson, Dagbjartur Sigtryggsson, Lilja Sigurðardóttir, Arngerður Sigtryggsdóttir, Trausti Bjarnason, Hjalti Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. hreinu náttúrubörnum, fjölmennt- uðum af skiptum sínum við heiðina, fugla- og dýralíf, búfé og erfðirnár um verkhyggni, útsjón, virðingu fyrir verðmætum, veðurskyn og ratvísi í hveijum blóðdropa." Þetta vil ég að komi fram í þessari bræðraminningu. Margt hefír leitað á huga minn við ritun þessa minningarorðs. Sér- staklega hvað í framtíð býr í byggðum þessara dala. Ég heyri raulað eða sungið: „í heiðardalnum er heimabyggð mín, þar hef ég lifað glaðar stundir. Og hvergi vorsólin heitar skín, en hamrabeltunum undir.“ Já, það verður heitt undir Hólsbjarginu um miðdegið í suðvestanátt, sem heiðríkja oftast fylgir. í kvæði Guð- mundar á Sandi um ekkjuna við ána segir: „Hún elskaði ekki landið, en aðeins þennan blett.“ Hvað felst í þessu? Átthagatryggðin! Náttúrleg kennd guðlegrar forsjónar, sem í eðli sínu skapar verndarhring um byggðir íslands. Sú fjölþætta þekk- ing sem sambúðin við landið veitir fyrirhafnarlaust í vitund þeirra er lífsstarf sitt eiga á heimaslóðum. I fóstutjarðarkvæði Jóns Thor- oddsen eru þessar perlur: „Og lífið unga fijóvi fær hjá fomum bautasteinum." Ég skil þetta sem áminningu til hverrar kynslóðar að virða og meta þá sögu, sem skráð liggur við bauta- steina genginna kynslóða. Bauta- steinar þessara tveggja Egilsstaða- bræðra eru í Valþjófsstaðakirkju- garði. Margir hafa til moldar hnigið, sem þekktari hafa verið, eða réttar sagt: Þeir voru ekki víða þekktir. En einmitt þeir eiga í lífí sínu og starfi þá ftjóvi, sem hinu unga lífí er holit að komast í kynni við. Megi gæfa íslands búa yfír þeirri framtíð. Blessuð sé minning bræðranna Stefáns og Sigurðar á Egilsstöðum á Fljótsdal. Jónas Pétursson Kynni okkar Harðar hófust með þeim hætti að vorið 1973 réðst syst- urdóttir Sigrúnar, Henný Tryggva- dóttir, kaupakona á heimili mitt, en hún varð síðar eiginkona mín. Hörður mun á hveiju sumri hafa vitjað æskustöðvanna við Eyjafjiirð og ættingja sinna, því hann var vinfastur og trygglyndur. Og er frænka konu hans var komin hing- að með börn var sjálfsagt mál að vitja þeirra og fylgjast með hvernig þeim vegnaði. Þetta gerðu þau hjón svo á hvetju sumri meðan heilsa hans leyfði og voru meðal hinna kærkomnustu gesta, því í návist þeirra var svo gott að vera. Börn drógust að þeim og nutu vináttu þeirra og vil ég sérstaklega þakka fyrir unga dóttur mína. Mér er líka í minni vinargreiði Harðar, veturinn 1976. Kona mín veiktist alvarlega eftir barnsburð á sjúkrahúsi í Reykjavík og óskaði að sjá mig og elztu dóttur sína, sem

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.