Morgunblaðið - 03.04.1987, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 03.04.1987, Qupperneq 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987 Könnun Samvinnutrygginga á umferðarslysum: Gálausir góðborgarar hættulegastir í umferðinni ÞAÐ eru godborgaranur sem 1 gáleysi valda alvarlegustu umferðar- slysunum, samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Samvinnutrygging- ar hafa gert. Ungir eða drukknir ökumenn, eða þeir sem aka of hratt og á illa búnum bifreiðum, valda því ekki verstu slysunum í umferðinni, eins og fólki er þó gjarnt að halda fram. Samvinnutryggingar gerðu könnun þessa í tilefni af Átaki ’87, sem er áróðurherferð bifreiðatrygg- ingafélaganna og veija þau til þess 1% iðgjalda í ár. Að sögn Hallgríms Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Samvinnutrygginga, fannst honum og samstarfsmönnum hans allt of algengt að menn hefðu fyrirfram mótaðar hugmyndir um orsakir slysa. „Samkvæmt þessum hug- myndum eru yfírleitt á ferðinni ungir ökumenn, drukknir ökumenn, þeir sem aka allt of hratt eða þeir sem eru á léiegum bifreiðum," sagði Hailgrímur. „I könnun Samvinnu- trygginga var hins vegar litið á 149 alvarlegustu slysin sem urðu 1978-1984, að báðum árum með- töldum. Af þessum 149 slysum voru 36 banaslys. Þess ber að geta að hér er aðeins um að ræða þau slys sem Samvinnutryggingar hafa haft afskipti af og fengust flestar upp- lýsingar úr lögregluskýrslum.“ Ef fyrst er litið á aldur þeirra ökumanna sem hlut áttu að máli þá voru 42 undir 20 ára aldri og eru með taldir þeir unglingar sem t.d. óku dráttarvélum. Hins vegar voru 91 ökumaður af 149 á aldrin- um 21-60 ára, þar af 73 á aldrinum 21-45 ára. Drukknir ökumenn voru í miklum minnihluta, eða aðeins 12 af 149, en engar athugasemdir voru gerðar yið ástand 133 ökumanna. Varðandi hraða þeirra bifreiða sem tjóninu ollu voru aðeins 15 sem óku á 61-70 kílómetra hraða og 12 voru þar yfír. Ekki var vitað um hraða 55 bifreiða sem féllu undir könnun- ina, en starfsmönnum Samvinnu- trygginga þykir líklegt að tekið hefði verið fram í skýrslum ef um ofsahraða hefði verið að ræða. Útbúnaður í lagi Þegar útbúnaður bifreiða var kannaður voru engar athugasemdir gerðar í 129 tilfellum, svo ekki virð- ist sem vanbúnum bifreiðum sé um að kenna þegar slys verða. í þeim 20 tilfellum sem athugasemdir voru gerðar, þá var 10 sinnum fundið að hjólbörðum, tvisvar að hemlum, tvisvar að stýrisbúnaði og í þremur tilvikum var um skyndilega bilun að ræða. Loks var þrisvar sinnum fundið að búnaði dráttarvéla (velti- grind vantaði o.fl.). Þá er tæpast ÁSTAND OG BUNAÐUR BIFREIDAR BÍLARNIR SJALDNAST SÖKUDÓLGARNIR Slæmum bílum veröur ekki kennt um stærstu slysin. 186% tilvika voru engar athugasemdir gerðar vift búnað þeirra bitreiða sem tjónunum oihj. Ástandi og búnaði ökutækis er ekki um að kenna þegar slys verða, enda voru engar athugasemdir gerðar við slíkt i 129 tilfellum af 149. hægt að kenna ástandi vegar um, því tæp 40% slysa urðu á malbiki og flest, eða 43, urðu þau í björtu, enda að sjálfsögðu mest umferðin þá. Þegar skýjað var urðu 34 sly- sanna og 37 slys urðu í dimmu. Þess ber að geta að þegar birtu- og veðurskilyrði eru nefnd þá skar- ast þættir gjaman, t.d. getur verið snjókoma, hvasst og dimmt. En hveijar skyldu vera ástæður þess að fólk á vel búnum bifreiðum, á góðum aldri, ódrukkið og á lögleg- um hraða lendir í slysúm? Þar verður fátt um afsakanir fyrir öku- menn, því gáleysi er oftast um að kenna. Almennt gáleysi sýndu um 32% ökumanna af sér, auk þess sem 17% virtu ekki almennan umferðar- rétt, biðskyldu, stöðvunarskyldu eða umferðarljós. Ef síðamefndu atriðin eru einnig flokkuð sem gá- leysi hefur næstum helmingur ökumanna gerst sekur um það, eða um 49%. Af banaslysunum 36 má rekja 13 til slíks gáleysis. I könnun þessari var einnig at- hugað hvort konur eða karlar valdi oftar tjóni undir stýri. Þar var litið á 1.846 slys á þessum sjö ámm. Karlamir, 16 ára og eldri, reyndust valdir að 82% þessarra slysa og 82,6% alvarlegustu slysanna 149. Konur áttu sök á 16,7% allra slysa og 15,4% alvarlegustu slysanna. Búist er við að hlutfall kvenna hækki á næstu ámm, enda gerist algengara með hveiju árinu að þær séu á ferð undir stýri. Greinilegt er að konur em jafn mikið á ferð og karlar í unferðinni, þótt þær aki ekki, því skipting slasaðra var jöfn eftir kynjum. Hvað kosta slysin? Margir eiga um sárt að binda vegna umferðarslysa og verður líkamstjón seint bætt, hvað þá dauðsföll. Greiðslur Samvinnu- trygginga vegna slysatjóna árin 1978-1984 að báðum áram með- töldum nema tæpum 305 milljónum króna á núgildandi verðlagi. Frá árinu 1978 og fram til síðustu ára- móta hefur 1 milljarður og tæpar 67 milljónir króna verið greiddar vegna munatjóns og er sú upphæð einnig framreiknuð. Iðgjöld hafa FLUGLEIDIR ---fyrir þíg-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.