Morgunblaðið - 03.04.1987, Side 65

Morgunblaðið - 03.04.1987, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987 65 Þingeyri: Ofankoman lokar mann- skapinn inni Þingeyri. SJALDAN er ein báran stök. Eftir slitrótt skólastarf sl. hálfan mánuð vegna kennaraverkfalls, veikindaforfalla og veðurtepptra kennara hefur nú ofankoman lokað mannskapinn inni eins og mús í gildru. Þegar þetta er ritað á miðvikudag hefur síðustu tvo sólarhringa vart sést út úr aug- um svo mikið hefur fennt. Dregið hefur i skafla allt upp í meters háa og i morgun, miðvikudags- morgun, áttu flestir í vandræð- um með að komast leiðar sinnar, nema á fjallabilum eða tveim jafnfljótum. Já, það kom að því að hann vildi mig, sagði kerlingin og svo sannar- lega kom að því að snjórinn kæmi. Frekar mætti -ætla að vetur væri að ganga í garð en að komið væri fram yfír jafndægri að vori. Illt er að spá í kosningaveiðar allra flokkanna þegar enginn kemst til háttvirtra kjósenda — því nú er varað við norðanstormi á Vest- íjarðamiðum og varla verður alls staðar kontorlogn hér um slóðir eða norðanlands í þeirri átt. Þrátt fyrir verkfóll má teíja veðurfregnir mun skárri nú en á stríðsárunum, að ekki sé nefnt það sem eldri menn muna, engar veðurfregnir — áður en útvarpið kom. Allir hér eru búnir að fá nóg af íjölmiðlaáhlaupinu, sem tröllreið þjóðinni um og fyrir síðustu helgi, þótt ekki bættist við enn fleiri áhlaup. Við stóran er að deila um veður og vinda enda ástæðulaust. Allir eru á sömu jámum þótt færri komist leiðar sinnar en kysu. - Hulda. VORTÍSKAN I EVROPU 1987 MÓDELSAMTÖKIN 20 ARA BANDARÍSKI SÖNGVARINN CHICO DEBARGE í tilefni 20 ára afmælis Módelsamtakanna á þessu ári verður stórglæsiieg tískusýning á vor- og sumartískunni 1987 í EVRÓPU í kvöld og annað kvöld. Margar helstu tískuverslanir á Stór- Reykjavíkursvæðinu taka þátt í sýningunum og yfir 40 módel koma fram. Hártískan vorið 1987 verður kynnt með glæsibrag og um það sér Saloon Ritz, Laugavegi 66. Bandaríski söngvarinn Chico DeBarge fékk framúrskarandi góðar viðtökur í EVRÓPU í gærkveldi. í kvöld skemmtir hann í annað og næstsíðasta sinn og er ekki að efa að margir sem sáu hann í gærkveldi koma aftur í kvöld. EVRÓPA - staður nýrrar kynslóðar. Njóttu lífsins og skemmtu þér á Hótel Borg ÞÓRSKABARETT Opnum id. 21.00 UFANDf TÓNLIST Kaskó skemmtir. í fullu fjöri Kabarettlandsliðið í miklu stuði og nú ásamt hinum geysivin- sæla söngdúett The Blue Diamonds. Hver man ekki eft- ir lögum eins og Ramona — Sukiyaki — og mörgum öðrum lögum sem The Blue Diam- onds hafa sungið og notið mikilla vinsælda gegnum árin og gera enn The Blue Diamonds loksins á íslandi Þórskabarett öll föstudags- og laugar- dagskvöld. Þríréttaður kvöldverður. Þuriöur Siguröard. Ómar Ragnarsson Ragnar Bjarnason Haukur Heiðar Hin stórgóða hljóm- sveit SANTOS ásamt söngkonunni Guðrúnu Gunnarsdóttur leika fyrir dansi til kl. 03. Athugiö! Munið að panta borð tímanlega vegna mikillar að- sóknar. Borðapantanir í síma 23333 og 23335 mánudaga— föstudaga kl. 10.00—18.00 og laugardaga og sunnudaga eftir kl. 14.00. Húsið opnar kl. 19.00. Dansað tii kl. 03.00. Snyrtilegur klæðnaður — Aldurstakmark 20 ár. ☆ ☆ IslflAlDlulSnvlftPHiMllS ☆ ☆

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.