Morgunblaðið - 03.04.1987, Síða 69

Morgunblaðið - 03.04.1987, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987 69 Þessir hringdu . . Sá ég standa segg Karl Jónsson hringdi: Getur einhver hjálpað mér að finna framhaldið á vísu þeirri er hefst á þessa leið: Sá ég standa segg sunnan undir vegg. Ef einhver getur sagt nánari deili á vísunni er hann beðinn um að hafa samband við Velvakanda. Þakkir til strætis- vagnsstjóra Filippía Kristjándóttir hringdi: Það var fyrir hádegi mánudag- inn 31. mars sl. að ég stóð í snjó upp á miðja leggi bíðandi eftir strætisvagni, leið 11, eftir að hafa lokið áríðandi erindi í Mjóddinni, sem kölluð er og tilheyrir Breið- holtinu. Vegna ókunnugleika í þessu borgarhverfi fannst mér mjög erfitt að vita hvert ég ætti að snúa mér til þess að ná í vagn- inn, þar sem mér virtust vegir liggja til allra átta. Eftir hressi- lega göngu í leiðinlegu veðri varð ég feginn að komast í skýlið. Þar stóð ég um stund og horfði vonar- augum í þá átt sem ég bjóst við vagninum. Eg var sannarlega feg- inn þegar ég kom auga á einn gulan stefna í áttina til mín. Von- brigðin urðu mikil þegar hann nálgaðist og ég sá að þetta var ekki leið 11 heldur 14, en sá vagn hafði ekki biðskyldu þarna. Vagn- stjórinn hefur séð að ég var fremur illa stödd þar sem ég stóð í snjónum úti á víðavangi. Vagn- inn kom frá Hlemmi og þurfti ég því að standa ávegra þeim megin sem skýlið var ekki. Þessi góður maður lét sér ekki muna um að bjóða mér far, sem var þegið með miklu þakklæti. Því hringi ég í Velvakanda að hann er manna vísastur til þess að leggja manni lið og koma þakklætinu rétta boð- leið. Við gleymum víst of oft að þakka veittar velgjörðir. Semjið við starfs- fólk sjúkra- húsa M. S. hringdi: Eg er aðstandandi ósjálfbjarga sjúklings sem á að senda heim við mjög erfiðar heimilisaðstæður. Eg heiti á stjórnvöld að semja við starfsfólk sjúkrahúsa nú þegar og höfða til siðferðisvitundar fjár- mála- og heilbrigðisráðherra. Ég hvet líka þetta góða fólk til þess að lesa grein sem birtist í Morgun- blaðinu sl. þriðjudag, á blaðsíðu 19, og heitir Hugleiðing frá vinnu- stað, en höfundar eru hjúkruna- rfræðingar. í þessari grein kemur nákvæmlega fram þetta vanmat á kvennastörfunum. Þjóðkirkja höfuðborg arsvæðisins Jenný hringdi: Ég vil koma með fyrirspurn til forráðamanna Þjóðkirkjunnar út af umræðum um að Stöð 2 vilji koma á samvinnu við kirkjuna um efni fyrir börn í sjónvarpið. Ef kirkjunnar menn hafa efni á þessu því þá ekki fara í ríkissjónvarpið sem sendir um land allt? Það eru börn víðar en á Reykjavíkursvæð- inu sem hefðu gaman af að fylgjast með. Kannski er það stefna kirkjunnar að hugsa bara um börnin á höfuðborgarsvæðinu en láta hin afskiptalaus. Þá má nú fara að kaila þetta Þjóðkirkju höfuðborgarbúa og okkur úti á landi finnst nóg um valdið á áður- nefndu svæði. Takk fyrir sæluvikuna Hulda og Einar hringdu: Við hjónin fórum á „sæluviku“ í Hótel Örk í síðustu viku. Við viljum þakka fyrir og vekja at- hygli á þessu. Þessi vika leið mjög fljótt við líkamsrækt og alúð starfsfólksins. Þetta framtak hót- elsins er stórkostlegt og gerir fólki kleyft að njóta hvíldar og hress- ingar. Við þökkum öllu starfsfólki samveruna. Sérstakar þakkir fær- um við íþrótta- og sjúkraþjálfara staðarins, Halldóri Matthíassyni og nudd og snyrtifræðingnum Lilju Guðnadóttur. Heilnudd, partanudd, bjúg- nudd, heitir leirbakstrar, hitalampi. Sjúkranuddstofa Hilke Hubert, Hverfisgötu 46, sími 13680. FERMINGARBOÐ Kaupfe/aganna Hnakkur, istaösólar,reiöar, ístöð og gjörð: kr. 11.700 Beisli: kr. 2.240 yyx /V1IK11G3RÐUR KAUPFÉLÖGIN í LANDINU Óskiljanlegt framboð Reykvíkingur skrifar: Ég get svo sem skilið að nánustu vinir Alberts Guðmundssonar og Heiðraði Velvakandi Undanfarin ár hefur umræða um skattsvik aukist allverulega í þjóð- félagi okkar. Allir, sem hafa tjáð sig um málið, eru sammála um að skattsvik séu stunduð í allveruleg- um mæli og hér sé um mjög neikvætt og varhugavert athæfi að ræða. í fyrsta lagi sé þetta lögbrot. í annan stað eigi skattsvikin sér fremur stað meðal þeirra, sem meira hafi, heldur en hinna, sem minna beri úr býtum. Það sé í raun lág- og meðallaunafólkið sem greiði skatta fyrir hátekjumenn, sem svíkjast undan eðlilegum skatt- greiðslum. Nú, þegar einn hæstlaunaði emb- ættismaður þjóðarinnar, með miklar tekjur af einkarekstri einnig, viðurkennir skattsvik sín með því að víkja úr embætti minnist ég þess vart að hafa orðið vitni að meiri skrípaleik á íslensku leiksviði. Samúð flölda fólks á sér engin takmörk í garð þessa manns, sem sjálfur hafði, er hann gegndi starfi sem æðsti maður skattamála í landinu, lýst yfir nauðsyn þess að stemma stigu við skattsvikum. í „réttlátri“!!! reiði sinni yfir að geta ekki haldið embætti sínu stofnar ráðherrann fyrrverandi nú nýjan flokk og fær til liðs við sig meðal annars fólk sem þekkt er fyrir að berjast fyrir bættum kjörum lág- launafólks. Vonandi stendur því fjölskylda hans taki sæti á fram- boðslistum þeim sem hann hefur lagt fram. En mér er með öliu ekki á sama um, hvort „litli maður- inn“ eigi að halda áfram að borga skattana fyrir „vini“ sína eður ei. Ég hugsa þarna að sjálfsögðu til félagsformanns míns, Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur. Einhvern heyrði ég á dögunum tala um tvöfalt siðgæði. Skyldi það geta verið rétt? Einhvern tíma og einhvers staðar hlýt ég að hafa misskilið eitthvað. Sóknarkona óskiljanlegt hvers vegna Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir er í þessu fram- boði. Hún hefur hingað til verið fylgjandi félagslegri þjónustu og því að hlynna að láglaunafólki. En forsendan fyrir því er að menn vík- ist ekki undan að taka á sig skattbyrðar. Þetta svonefnda Al- bertsmál snýst einmitt um það að Albert Guðmundsson taldi ekki allar sinar tekjur fram til skatts, að því er mér skilst. Hann getur ekki bor- ið því við að hann beri ekki ábyrgð á eigin fyrirtæki. Hann er prókúru- hafi fyrir það einn, sem merkir að hann tekur einn allar meiriháttar ákvarðanir um það, og hann lætur það borga skattana sína eins og frægt varð í ágúst 1983 þegar hann var fjármálaráðherra. Mér finnst Aðalheiður hafa brugðist hér þeim málstað sem hún hefur talið sig vera að verja hingað til. HEILRÆÐI Foreldrar: Látið börnin bera endurskinsmerki. Notkun þeirra trygg- ir öryggi barnanna í umferðinni. Kennarar: Brýnið fyrir börnunum að fara varlega í umferðinni og gefið þeim góð ráð í þeim efnum. Vegfarendur: Hvert fótmál í umferðinni krefst umhugsunar og aðgæslu. Okumenn: Ljósker bifreiðanna verða að vera hrein og ljósin rétt stillt til þess að ljósmagnið nýtist sem best við aksturinn. Rétt notkun stefnuljósa auðveldar alla umferð. Tvöfalt siðgæði? AM Ný vor- sending frá tískuversiun, Barónsstíg 18, sími 23566.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.