Morgunblaðið - 03.04.1987, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987
íslandsmet í Austin
Formenn Fram og Stjörnunnar hóflega bjartsýnir
Kristinn Kristinsson mundar haglabyssuna tilbúinn að skjóta.
FIMM ára sigurgöngu Vikings í
bikarkeppni HSÍ í karlaflokki lauk
í fyrrakvöld. Stjarnan, Garðabæ,
sigraði meistarana í framlengd-
um leik í undanúrslitum og leikur
til úrslita við Fram, sem sló Val
út úr keppninni. Hvorugt liðið
hefur orðið bikarmeistari, en
Stjarnan hefur tvisvar tapað í
úrslitum fyrir Vfkingi.
í upphafi íslandsmóts var
Stjörnunni spáð góðu gengi í vet-
ur. Liðið tók í fyrsta skipti þátt í
Skotmenn í æfinga-
ferð til Danmerkur
SKOTSAMBAND íslands er eitt
af smærri sérsamböndum innan
Iþróttasasambandsins og þó
starfsemi þess sé ekki mikil mið-
að við það sem gerist hjá stærri
samböndunum þá verður starf-
semi þess viðameiri með hverju
árinu sem líður og hefur trúlega
aldrei verið blómlegri en einmitt
núna.
Efst á baugi hjá Skotsamband-
inu á næstu mánuðum er keppnis-
og æfingaferð til Danmerkur í
maí, Ólympíuleikar smáþjóða,
einnig í maí, Norðurlandamótið í
júni, Eyjaleikarnir i september og
siðast en ekki síst íslandsmeist-
aramótin í maí og júní.
íslandsmótið í skammbyssu-
skotfimi verður haldið á Höfn
síðustu helgina i maí og er þetta
í fyrsta sinn sem (slandsmót í skot-
fimi er haldiö utan Reykjavíkur.
Mikil gróska hefur verið í íþróttinni
á nokkrum stöðum úti á landi und-
anfarin misseri og ber þar hæst
Höfn, Akureyri, Keflavík og Vest-
mannaeyjar.
, Fyrstu helgina í júní verður síðan
Islandsmótið í riffilskotfimi í Bald-
urshaga í Laugardalnum og í lok
júlí verður íslandsmótið í leirdúfu-
skotfimi en þar eru haglabyssur
notaðar. Áður en að þessum mót-
um kemur munu skotmenn fara
erlendis og æfa sig vel þannig að
vænta má mikills á mótum sum-
arsins.
Til Danmerkur munu fara 15
skyttur og æfa þeir þar undir leið-
sögn færustu þjálfara heims. Með
í förinni verður meðal annars einn
frá Höfn og er þetta í fyrsta sinn
sem menn utan Reykjavikur fara í
slíkar ferðir á vegum Skotsam-
bandsins.
„Ein af ástæðunum fyrir þvi
hversu margir vilja fara út og æfa
er hversu dýrt þetta er hér á landl,“
sagði Þorsteinn Ásgeirsson for-
maður Skotsambandsins í samtali
við Morgunblaðið. Hann bætti
síðan við: „Það er ansi hart að
fara til Danmerkur til þess að hafa
efni á að skjóta. Við skjótum upp
í fargjaldið á nokkrum dögum."
Skotíþróttir eru dýrar. Ef við
tökum leidúfuskotfimi sem dæmi
þá kostar þokkalegasta hagla-
byssa um 100.000 krónur og er
það varanleg eign. Á svæði Skot-
félags Reykjavíkur í Leirdal kostar
hringurinn 600 krónur og eru skot
og 25 dúfur inni í því verði. Menn
reyna að fara um fimm hringi í
hvert sinn sem þeir æfa og ef
menn æfa fjórum sinnum í viku
þá kostarvikan 12.000 krónursem
mörgum þykir eflaust nokkuð mik-
ið.
Dýr íþrótt
„Þetta er dýrt það er ekki hægt
að neita því,“ segir Þorsteinn.
„Þeir sem æfa mest reyna að tak-
marka sig við 20.000 krónur á
mánuði en það er of lítiö ef menn
ætla að ná langt í íþróttinni. Skot-
sambandið hefur verið að vinna í
þvi að fá niðurfellda tolla af skot-
vörum til íþróttaiökunar og ef það
fæst þá munar það mjög miklu.
Ef við kaupum vörur erlendis fyrir
1000 krónur veröur það 3000 krón-
ur þegar búið er að greiða tolla.“
Skotfimi er Ólympíugrein og
hefur verið það legni. Enginn ís-
lendingur hefur þó enn keppt í
þessari grein á Ólympíuleikum en
Gissur Skarphéðinsson hefur nú
sett markið á næstu Ólympíuleika
í enskri keppni, sem er riffil-
keppni, en þar er lágmarkið 592
stig. í fyrra náði Gissur 596 stigum
og ætlar að endurtaka það í sumar
á viðurkenndum mótum erlendis
og komast þar með á Ólympiuleik-
ana.
Á Ólympíuleika smáþjóða fara
tveir íslendingar sem búsettir eru
í Noregi. Tryggvi Sigmanson kepp-
ir í keppni með loftskammbyssu
og Kristinn Kristinsson í flugdúfu-
skotfimi. Á NM fara þeir félagar
auk Gissurs og á Eyjaleikana fara
10 skotmenn þannig að starfið er
blómlegt þessa dagana hjá skot-
sambandinu.
Nýr völlur
Nýverið opnuðu skotmenn nýj-
an leirdúfuvöll í Leirdal og var það
unnið að mestu í sjálfboðavinnu.
Kostnaðurinn var samt um 4 millj-
ónir og er það mikið fyrir ekki
fjölmennari hóp. Aðstaðan þarna
breytir miklu fyrir skotmenn og
má vænta mikils af leirdúfuskot-
mönnum á næstunni.
Evrópukeppni og þurfti þess vegna
að leika marga leiki í 1. deild á
fáum dögum. Stjörnuliðið stóð ekki
undir eftirvæntingum, tapaði
hverjum leiknum á eftir öðrum, en
hefur rifið sig upp úr öldudalnum
eftir áramót og aðeins tapað ein-
um leik. Framarar hafa verið í neðri
hluta deildarinnar lengst af, en
sigrarnir í bikarkeppninni sýna, að
liðið er í framför.
Áfangasigur
Stjarnan byrjaði 'a því að slá
Ármann út úr bikarkeppninni,
síðan Reyni, Sandgerði, þá Fylki
og loks bikar- og íslandsmeistara
Víkings. „Sigurinn gegn Víkingi er
einn sá sætasti í sögu Stjörnunn-
ar, en hann er aðeins áfangasig-
ur,“ sagði Jón Ásgeir Eyjólfsson,
formaður handknattleiksdeildar
Stjörnunnar. „Við leikum nú til úr-
slita í bikarnum í þriðja skipti á
fjórum árum og erum geysilega
ánægðir með að vera i úrslitum,
en baráttunni er ekki lokið. Fram-
liðið er á mikilli uppleið og þó stutt
sé síðan við sigruðum það í deild-
inni, er ég hóflega bjartsýnn. Þetta
verður uppgjör tveggja ágætra
liða,“ sagði Jón Ásgeir.
Jafnir möguleikar
Framarar hafa komið mörgum á
óvart í tveimur síðustu umferðum
bikarkeppninnar með þvi að leggja
Val og FH að velli. Áður hafði liðið
sigrað Hauka og FH-b. „Þetta er
besti árangur okkar i tólf ár og er
vonandi byrjunin á aukinni vel-
gengni,“ sagði Sigurður I. Tómas-
son, formaður handknattleiks-
deildar Fram. „Ýmsar spár voru á
lofti í byrjun keppnistímabilsins,
en fæstar hafa ræst. Okkur var
ekki spáð alltof góðu gengi, en lið-
ið hefur vaxið með hverjum leik
og ég tel möguleika okkar og
Stjörnunnar jafna í úrslitaleiknum."
Formennirnir voru sammála um
að mikið meira álag hefði verið á
leikmönnum liðanna í undanúrslit-^
unum en verði í sjálfum úrslita-
leiknum, sem fer fram í
Laugardalshöll sunnudaginn 12.
apríl.
^ssíma
1 HÓNUSIA
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
ÍSLENSKRA GETRAUNA
Hér eru leikirnir!
Leiklr 4. april 1987 K
1 X 2
1 Arsenal - Liverp. (sd. sjönv.) 2 Aston Villa - Man. Glty2 3 Charlton - Watford2
4 Chelsea - Everton2 5 Luton - Wimbledon* 6 Newcastle - Leicester2
7 Nott’m Forest - Coventry"-1 8 South’pton - Sheff. Wed.a 9 Tottenham - Norwlch-
10 Bradford - Port3mouths 11 Ipswlch - Derby3 12 W.B.A. - Sunderland3 .
n
Hringdu strax!
688-322
föstudaga kl. 9.00-17.00 laugardaga kl. 9.00-13.30
Nýtt nafn verður
skráð á bikarinn
Fram vann ÍR
FRAM vann ÍR 3:0 í meistara-
flokki karla í Reykjavíkurmótinu
í knattspyrnu í gærkvöldi. Leik-
urinn fór fram í miktum kulda i
Laugardalnum og skoraði Am-
Ijótur Daviðsson tvö markanna
en Viðar Þorkelsson eitt.
Frá Vésteini Hafstelnssyni f Bsndarfkjunum.
Ragnheiður Ólafsdóttir FH, setti
íslandsmet í 10.000 metra hlaupi,
þegar hún keppti á Texas Relayes
mótinu í Austin í Texas 1. apríl
og hafnaði í 3. sæti. Ragnheiður
hljóp á 34 mínútum og 10 sekúnd-
um, sem er undir íslenska
ólympíulágmarkinu og er hún því
ÍBK í úrslit
ÍBK vann Hauka 65:63 í öðrum
leik liðanna í undanúrsiitum bik-
arkeppni kvenna í körfuboKa í
gærkvöldi. Keflavík sigraði 60:41
í fyrri leiknum og leikur því til
úrslita við KR föstudaginn 10.
apríl.
í kvöld
SETNINGU unglingameistara-
móts íslands á skfðum var
frestað í gær vegna veðurs, en
mótið verður sett í Akureyrar-
kirkju í kvöld og keppni hefst
siðan í fyrramálið. Keppnin færist
því aftur um einn dag og lýkur á
mánudaginn.
fyrsti íslenski frjálsíþróttamaður-
inn sem nær því í ár.
Þá má geta þess að lágmarkið
á heimsmeistaramótið sem haldiö
verður í Róm í sumar, er 34 mínút-
ur í bessarri grein, þannig að
Ragnheiður er mjög nærri því.
Þetta var í fyrsta skipti sem íslensk
kona keppir í 10.000 metra hlaupi,
en sterkasta grein Ragnheiðar er
3000 metra hlaup og er hennar
tími þar 9,09 mínútur frá því í fyrra,
en ólympíulágmarkið í greininni
eru 9 mínútur.
10.000 metra hlaupið var fyrsta
keppnisgreinin á Texas Relayes,
sem er mjög stórt frjálsíþróttamót
og um helgina keppa m.a. þeir
Sigurður Matthíasson og Eggert
Bogason.
Brei rekinn
DIETER Brei, þjálfari knatt-
spyrnuliðsins Dusseldorf í vest-
ur-þýsku bundesligunni, var
rekinn i gær.
Dusseldorf tapaði 3:0 í undanúr-
slitum bikarkeppninnar í fyrrakvöld
fyrir Stuttgarter Kicker, sem leikur
i 2. bundesligunni, og það varð
Brei að falli ásamt slæmri stööu
liðsins í deildinni.