Morgunblaðið - 04.04.1987, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
79. tbl. 75. árg.
LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1987
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Brasilía:
Washington. Reuter.
EKKI er ólíklegt, að George
Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, verði að ráða öll-
um sínuih ráðum í húsbíl á götu
úti þegar hann kemur til Moskvu
um miðjan mánuðinn. Svo er fyr-
ir að þakka njósnahneykslunum
að undanförnu.
Eins og kunnugt er af fréttum
hafa tveir bandarískir landgöngu-
liðar, öryggisverðir í bandaríska
sendiráðinu í Moskvu, verið hand-
teknir og sakaðir um að hafa hleypt
sovéskum njósnurum inn í húsið að
næturlagi og í gær bárust fréttir
um, að tveir aðrir lægju einnig
undir grun. Af þessum sökum eru
Bandaríkjamenn nú vissir um, að
allt, sem menn láta sér um munn
fara í sendiráðinu, sé óðara komið
inn á upptökutæki sovéskra leyni-
þjónustumanna.
Bandarískir embættismenn
skýrðu frá því í gær, að verið væri
að senda húsbíl til Moskvu til að
Shultz gæti talað í trúnaði við sína
menn en viðræðurnar við ráða-
mennina í Kreml munu snúast un
afvopnunarmál og hugsanlegan
leiðtogafund.
Reuter
Hnattgöngu
lokið
Steve Newman, sem býr í bæn-
um Bethel í Ohio-ríki í Banda-
ríkjunum, kom í fyrradag heim
eftir fjögurra ára fjarveru og
var fagnað eins og týnda synin-
um. Hafði hann þá lokið því
frægðarverki að ganga hringinn
í kringum hnöttinn, samtals
21.000 mílur, og að sjálfsögðu
búinn að fá sitt pláss í metabók
Guinness.
Dollaraláni
breyttí
innlent lán
New York. Reuter.
Montreal-banki hyggst
breyta 100 milljón dollara van-
skilaláni í Brasilíu i nýtt
skuldabréfalán þar í landi.
Verður hann fyrsti bankinn á
Vesturlöndum, sem grípur til
þessa úrræðis.
Gamla skuldin, sem er í doll-
urum, verður seld á fullu verði
fyrir brasilíska mynt og féð síðan
notað til verðbréfakaupa í Bras-
ilíu. Alls á Montreal-banki 1,1
milljarð dollara útistandandi í
lánum í Brasilíu.
Mikil spenna hefur ríkt milli
Brasilíu og lánardrottna landsins
síðan Jose Samey forseti ákvað
hinn 20. febrúar sl. að fresta
greiðslu vaxta af um 68 milljarða
skuld við erlenda viðskiptabanka.
William Mulholland, stjórnar-
formaður Montreal-bankans,
sagðist í gær vera bjartsýnn á,
að á endanum myndi takast að
ná samkomulagi milli Brasilíu og
viðskiptabanka landsins. Hann
viðurkenndi, að Brasilíustjórn
ætti eftir að samþykkja áætlun-
ina en sagði: „Ef áætlunin verður
samþykkt eigum við eftir að sjá
meira af þessu.“
Reuter
GULLÆÐIIGENF
Skartgripir úr eigu hertogaynjunnar af
Windsor og aðrir munir, sem tengdust „ástar-
ævintýri aldarinnar“, voru í gær og fyrradag
boðnir upp í Genf á vegum Sotheby’s-upp-
boðsfyrirtækisins breska. Hafði allt safnið
verið metið á sjö milljónir dollara en aðeins
eftir fyrri daginn höfðu verið seldir skartgrip-
ir fyrir 33,5 millj. dollara. Tölvutæknin og
fullkomin fjarskipti valda því, að nú geta
menn setið á sundlaugarbarmi vestur í Los
Angeles, eins og var með Elizabeth Taylor,
eða í Tehúsi ágústmánans austur í Tókýó og
boðið í gripina um leið og þeim er brugðið á
loft í Genf. Svo mikill var líka hamagangur-
inn, að algengt var, að munimir færu á tíföldu
matsverði. Myndin sýnir þegar fyrsti gripur-
inn var boðinn upp.
Sjá „Skartgripir ..á bls. 33
Portúgal:
Vantraust sam-
þykkt á stjómina
Lissabon. Reuter.
Minnihlutastjórn mið- og
hægriflokka í Portúgal beið í
gær lægri hlut í atkvæða-
greiðslu um vantrausttillögu,
sem þingmenn þriggja vinstri-
flokka studdu. Mario Soares
forseti er nú í opinberri heim-
sókn í Brazilíu en þegar hann
kemur heim á sunnudag verður
það hans fyrsta verk að leita
hófanna um myndun nýrrar
stjórnar eða boða til kosninga.
\
Ríkisstjóm Anibal Cavaco Silva
forsætisráðherra, sem setið hefur
i 17 mánuði, er 16. ríkisstjórnin
í Portúgal eftir byltinguna árið
1974 þegar bundinn var endi á
hálfrar aldar einræði í landinu.
Sósíalistaflokkurinn, Lýðræð-
Svíþjóð:
Nýr áfangí í glímunni við hjartasjúkdóma
GauUiborg. Reuter.
SÆNSKIR vísindamenn og sér-
fræðingar í erfðafræði og
erfðaverkfræði hafa gert
merka uppgötvun, sem kann
að leiða til framleiðslu mjög
áhrifaríkra lyfja við hjartasjúk-
dómum. í viðtali við sænska
útvarpið í gær kom það einnig
fram hjá þeim, að nú hillti e.t.
v. undir algjörlega náttúrulegt
megrunarmeðal.
Gunnar Bjursell, einn vísinda-
mannanna, sagði, að honum og
samstarfsmönnum hans hefði tek-
ist að einangra tvo mikilvæga
arfbera, sem ættu meginþátt í
arfgenginni æðakölkun og æða-
og hjartasjúkdómum en þeir eru
ástæðan fyrir helmingi allra
dauðsfalla í vestrænum ríkjum.
Sagði Bjursell, sem er prófessor
við Gautaborgarháskóla, að nú
væri unnt að skoða þessa sjúk-
dóma frá öðru sjónarhomi en áður
og framleiða ný lyf með tilliti til
þess.
Vísindamennirnir segja, að
vegna uppgötvunarinnar ætti að
vera unnt að hafa áhrif á melt-
ingu og niðurbrot fitu í fólki, sem
er þannig af guði gert, að það er
líklegt til að fá hjartasjúkdóma.
Yrði það gert með lyfí, sem stjóm-
aði fitusöfnun í líkamanum.
islegi endurreisnarflokkurinn og
Kommúnistaflokkurinn ljáðu allir
vantrauststillögunni lið sitt en
þeir eiga 140 menn af 250 á þingi.
Umræður um vantrauststillög-
una stóðu í tvo daga og sökuðu
vinstriflokkamir stjórnina um að
þvinga í gegn lög án samráðs við
þá og að hafa látið undir höfuð
leggjast að nýta hagstæð ytri skil-
yrði til að koma á nauðsynlegum
umbótum í efnahagslífinu.
Cavaco Silva bar af sér þessar
ásakanir og sagði, að valdatími
stjórnarinnar hefði einkennst af
meiri stöðugleika en nokkm sinni
fyrr og að flest stefndi í fram-
faraátt á þessu fyrsta ári Portú-
gala í Evrópubandalaginu.
Soares forseti hefur nú um þá
kosti að velja að nefna til nýjan
forsætisráðherra og fá honum í
hendur stjómarmyndun eða leysa
upp þingið og boða til kosninga.
Cavaco Silva vill kosningar til
að þjóðin geti dæmt um frammi-
stöðu hans og stjórnarinnar.
Shultz í hús-
bíl í Moskvu?