Morgunblaðið - 04.04.1987, Blaðsíða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1987
fclk í
fréttum
Ljósmynd:Gunnlaugur Rögnvaldsson.
Minning Andy
Warhol heiðruð
Reuter
Kór Langholtskírkju
flytur Jóhannesarpassíu
J.S. Bach
Frá áramótum hefur kór Langholtskirkju verið við æfingar á Jóhannes-
arpassíu J.S. Bach og verður verkið flutt á skírdag og föstudaginn
langa. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem kórinn flytur Jóhannesarpassíuna,
en engu að síður hefur hvergi verið slegið af við æfíngar og dvelur kórinn
að auki í Munaðarnesi við æfíngar í þrjá daga nú í aprílbytjun.
Kórinn flytur verkið með kammersveit. Stjórnandí er Jón Stefánsson
og konsertmeistari er Júlíana Elín Kjartansdóttir. Flytjendur ásamt kórn-
um verða Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Sólveig M. Björling, Michael
Goldthorpe, Kristinn Sigmundsson og Viðar Gunnarsson.
Rúmlega 3.000 manns voru viðstödd minningarathöfn um listamann-
inn, Andy Warhol, í kirkju heilags Patricks í New York þann 1.
apríl. Meðal þeirra var margt frægra manna s.s. hjónin Raquel Welch
og Andre Weinfeld og Liza Minelli og eiginmaður hennar Marc Gero.
Spurningakeppni framhaldsskóla:
Úrslitin ráðast
í kvöld
Íkvöld fer fram í ríkissjónvarpinu
úrslitakeppni í spumingakeppni
framhaldsskóla og eigast þar við lið
Fjölbrautaskólans í Breiðholti og
Menntaskólans við Sund. Keppni
þessi hefur vakið verulega athygli
landsmanna og munu margir án efa
fylgjast spenntir með í kvöld þegar
úr því fæst skorið hveijir fara með
sigur af hólmi.
Steinar J. Lúðvíksson, ritstjóri,
hefur haft allan veg og vanda af
keppninni í ár og í fyrra er hún var
haldin í fyrsta skipti, samið spum-
ingamar og verið dómari. Hann
sagði að Ríkisútvarpið hefði í haust
auglýst eftir skólum er vildu taka
þátt í keppninni og hefðu 18
framhaldsskólar víðs vegar að
af landinu tilkynnt sig. Þetta
væri útsláttarkeppni og hefðu
fyrstu 9 umferðirnar farið fram í
útvarpi, en síðan væru þættirnir í
sjónvarpinu samtals 7. Fyrirmyndir
að þáttunum hefði hann sótt í vin-
sæla spumingaþætti er hann hefði
séð erlendis og væri mikið byggt á
því að svarað væri hratt og að
spennan héldist út keppnina. Þess
vegna væm í síðustu lotu af fímm,
það sem kalla mætti áhættuspurn-
ingar, þ.e. það Iið sem hefði lægri
stigatölu á því stigi keppninnar
ætti þó enn möguleika á því að
vinna. Verðlaunin vsém dágóð, sig-
urvegaramir hlytu utanlandsferðir
frá ferðaskrifstofunni Úrval og
skólar þeirra fengju 2 PC tölvur frá
IBM. Bókaútgáfan Iðunn hefði
síðan gefíð öllum liðunum er tapað
hefðu Eddukvæði, sem nokkurs
konar sárabót. Rétt væri þó að
hafa í huga að þetta ætti fyrst og
fremst að vera leikur, bæði fyrir
þá er sætu í sjónvarpssal og einnig
hina er á horfðu.
Fjölbrautaskólinn
Breiðholti
Lið Fjölhrautaskólans í Breiðholti
skipa þeir: Ármann Þorvaldsson,
18 ára, sem er á íþróttabraut, upp-
eldissviði; Bjarki Hjálmarsson, 19
ára, sem er á félags- og náttúru-
fræðibrautum og Kjartan Ólafsson,
18 ára, sem í vor lýkur stúdents-
prófí af eðlisfræðibraut. Þeir sögðu
að er valið var í liðið hefði verið
forkeppni í skólanum. Nokkrir
kennarar hefðu samið spurningar
úr sínum námsgreinum, um 40
manns hefðu síðan svarað þessum
spumingum skriflega og haft til
þess rúman tíma. Þeir hefðu síðan
verið valdir úr hópi þeirra er best
hefðu komið út og m.a. annars ve-
rið haft í huga að saman gætú
þeir svarað spurningum um ólík
efni. Velgengni þeirra hefði síðan
komið þeim skemmtilega á óvart,
þeir hefðu alls ekki átt von á því í
byrjun að eiga eftir að taka þátt í
úrslitakeppninni.
Þeir hefðu á þessum tíma reynt
Morgunblaðið/Bjami Eirfksson.
Liðs M.S. (frá hægri) Sverrir Jakobsson, Ingvar Ólafsson og Ármann Jakobsson.
að fylgjast vel með almennum frétt-
um og einnig lesið allt mögulegt
er þeir hefðu álitið að gagni myndi
koma. Þrir félagar þeirra hefðu
samið spumingar fyrir þá að
spreyta sig á og einnig æft þá varð-
andi hraða. Fram á laugardag
ætluðu þeir að reyna að hugsa ekki
of mikið um keppnina, en lesa sem
mest. Ármann ætti þann dag að
keppa á íslandsmeistaramóti í bad-
minton og vonandi yrði hann fyrr
búin en síðast er þeir kepptu í
spuningakeppninni, en þá hafði
hann einnig verið að keppa í bad-
minton og komið frá Akranesi
klukkutíma áður en þeir mættu í
sjónvarpssal. Ármann sagði að
Ákranesferðin hefði komið þeim vel
því hann hefði haft með sér íslenska
málsháttabók til að glugga í og
hefði hann beðið félaga sína um
að leika fyrir sig málshætti. Einn
þeirra hefði valið málsháttinn „Eng-
inn verður óbarinn biskup“ og um
kvöldið hefðu þeir fengið þann sama
málshátt leikinn á alveg sama hátt
og félagi hans hefði gert!
Menntaskólinn við
Sund
í liði Menntaskólans við Sund eru
þeir Ingvar Ólafsson, 17 ára, sem
er í 2. bekk S, stærðfræðideild og
tvíburamir Ármann og Sverrir Jak-
obssynir, 16 ára, í 1. bekk E. Þeir
sögðu að um 100 nemendur hefðu
tekið þátt í undankeppni í skólanum
í haust þegar valið var í lið skólans
og hefði skriflegt próf verið lagt
fyrir þá. Þeir félagar hefðu síðan
verið valdir í endanlegt lið skólans
I