Morgunblaðið - 04.04.1987, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1987
—
apríl
son. Er löngu vitað, að sú aðstaða,
senrhingað til hefur orðið að bjarg-
ast við í gömlu flugstöðinni, var
með öllu ófullnægjandi og að dómi
flestra ekki sæmandi fullvalda þjóð.
Með hinni nýju flugstöð verður skil-
ið milli starfsemi vamarliðsins og
venjulegs farþegaflugs, enda er hún
utan toll- og öryggisgirðingar.
í tilkynningu póststjómarinnar
um hið nýja frímerki segir þetta
m.a. um bygginguna. Hún greinist
í tvo meginhluta: aðalbyggingu,
sem er á tveimur hæðum og sam-
tals rúmir 12 þús. fermetrar, og svo
landgang til flugvéla, sem verður
rúmir 1800 fermetrar. Eins og er
má afgreiða sex flugvélar samtímis
við landganginn, en síðar má tvö-
falda þá afkastagetu. Þessi flugstöð
verður hin veglegasta og gerbreytir
allri aðstöðu frá því, sem nú er.
Aðkoma og brottför frá bygging-
unni er um neðri hæð, en auk
afgreiðslu fyrir farþega að og frá
landinu er þar einnig fyrirhuguð
ýmis almenn þjónusta og aðstaða
ÍSLAND ÍMi m úMlíl., ..... fj
1 \ k o 5 . yn-
o o <N
: ...........i
fyrir starfsfólk stöðvarinnar. Á efri
hæð er biðsvæði fyrir miðju, og
þaðan verður gengið beint um land-
ganginn út í flugvélamar. Pósthús
og símstöð verður bæði á efri og
neðri hæð. Úr biðsal á efri hæð
sést allt athafnasvæði flugvéla mjög
vel og eins aðkoma að byggingunni
og Faxaflóasvæðið. — Um alþjóða-
flugvöllinn í Keflavík fara um það
bil 600 þúsund flugfarþegar á ári.
Nýtt frímerki 14.
Frfmerki
Jón Aðalsteinn Jónsson
Póst- og símamálastofnunin gef-
ur út annað frímerki sitt á þessu
ári þriðjudaginn 14. apríl og að
verðgildi 100 krónur. Segja má, að
það sé nokkuð hátt, þegar haft er
í huga, að hér er um minningarfrí-
merki að ræða. Leiðir þetta vissu-
lega hugann að því, að í rauninni
er íslenzku póststjóminni nauðsyn
á að hleypa af stokkunum útgáfu
hversdagsfrímerkja („brugs“-
frímerkja), svo sem t.d. norska og
danska póststjómin hefur gert um
áratugi og hin norska jafnvel í 115
ár! Þessi frímerki, sem bera sama
myndefni, á einmitt að nota fyrir
miðlungsverðgildi og há verðgildi.
Ég veit, að póststjómin hefur íhug-
að þetta mál, og er vonandi, að
ákvörðun um þetta dragist ekki
lengi úr þessu. Minningarfrímerki
ættu helzt alltaf að vera með verð-
gildi, sem hentar undir almenn bréf,
því að á þann hátt berast þau í
hendur miklu fleiri safnara en ella
og á verði, sem þeim er viðráðan-
legt.
Tilefni hins nýja frímerkis er
vígsla nýrrar flugstöðvarbyggingar
á Keflavíkurflugvelli 14. þ.m. Hefur
flölda manns, sem tengjast flugi
með ýmsum hætti, verið boðið hing-
að til hátíðarinnar, enda er þetta
mikill og merkur áfangi í flugsögu
okkar. Forseti íslands vígir stöðina,
sem kennd verður við Leif Eiríks-
LZlGb.
Peugeot 205. „Besti bíll í heimi“
Peugeot 205 hefur verið valinn „besti bíll í heimi'
annað ðrið í röð af hinu virta þýska bílablaði
„Auto Motor und Sporf'.
Peugeot 205 sameinar aksturseiginleika, þœgindi,
öryggi og sparneytni betur en nokkur annar bíll í sínum
verðflokki að mati kröfuharðra Þjóðverja.
Peugeot205 erframdrifinn, fjöðrun í sérflokki, kraftmikill
og hljóðlötur.
Komið, reynsluakið og sannfœrist.
Verðfrá kr.:318.700-
Peugeot 309.
Nýr bíll frá Peugeot
Við bjóðum velkominn til Islands nýjan glœsilegan
fulltrúa frá Peugeot, Peugeot 309.
Miklar rannsóknir og reynsla af Peugeot 205,
hárnákvœm vinnubrögð, því hann er að mestu settur
saman af vélmennum, tryggja hátœknileg gœði.
Peugeot 309 er 5 dyra framhjóladrifinn og með
fjóðrun í Peugeot gœðaflokki. Það ásamt eyðslu-
grönnum vélum og lágri bilanatíðni gera 309 að bíl fyrir
fslenskar aðstœður.
Verðfrákr.: 376,100-
GúÓL'^ÚLlLLlU
Sýnum Peugeot árg, 1987
um helgina