Morgunblaðið - 04.04.1987, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1987
25
Albert féll á prófinu
Það mun þjóðin ekki gera
eftir Sigurbjörn
Sveinsson
Fyrrverandi ráðherra fjár- og
skattamála verður uppvís að meintu
skattamisferli. Hann staðfestir
sjálfur, að greiðslur hafi ekki skilað
sér til skatts og segir af sér ráð-
herradómi í kjölfar þess. Flokkur
hans sættir sig við orðinn hlut með
því að hrófla ekki við honum í efsta
sæti lista hans í Reykjavík. I um-
ræðum í kjölfarið staðfestir formað-
ur flokksins, að ekki verði um
frekari ráðherradóm að ræða í ljósi
þess, sem gerst hafi. Ráðherrann
fyrrverandi og stuðningsmenn hans
ærast. Flokkur er stofnaður. Reynt
er að bjóða fram í öllum kjördæm-
um. Spjótum er beint að gömlum
félögum. Allt vegna mistaka, sem
gengizt hefur verið við. Eini mál-
efnaágreiningurinn virðist um það,
hvort láta eigi meint skattamisferli
ráðherra í stjóm landsins átölulaus.
Sjálfstæðisflokkurinn hafnar því.
Þar við situr.
Á undanförnum ámm hafa kröf-
ur orðið æ háværari í þá átt, að
menn í opinberu lífi taki frekari
pólitíska ábyrgð á gjörðum sínum.
Almenningur hefur talið það meðal
ávirðinga stjórnmálamanna og eina
af ástæðum þess, að dregið hafi
úr virðingu þeirra og trausti, að
þeir hafi átt hægt um vik að nota
sér aðstöðu sína einkahagsmunum
sínum til framdráttar og gert það.
Raunar hafi þetta þótt svo sjálfsagt
í þeirra hópi, að gilt hafi svokölluð
samtrygging, þegar erfið mál af
þessu tagi hafi komið upp á yfir-
borðið.
En hvað um það. Rödd kemur
upp í hópnum, sem slær á nýja
strengi, gerir nýjar kröfur, kröfur,
sem minna á sjónarmið almennings
í þessum efnum. Formaður Sjálf-
stæðisflokksins gengur fram fyrir
skjöldu og segir einfaldlega: „Svona
gerir maður ekki án þess að standa
reikningsskil gjörða sinna. Eru
skyldur ráðherrans því meiri en hins
almenna borgara, að hann er sjálfur
ábyrgur um framkvæmd þessara
mála og fer með þau í umboði þjóð-
arinnar." Formaður Sjálfstæðis-
flokksins beitir sér persónulega
fyrir afsögn ráðherrans í samræmi
við þessi sjónarmið, en ráðherrann
þæfir málið, þar til það er komið í
eindaga.
Eftirleikinn og þá orrahríð, sem
honum fylgdi, þekkja allir.
Lögð hefur verið áherzla á sið-
ferðislegt gildismat í þessu efni og
kemur það auðvitað fyrst. En það
þarf líka siðferðisþrek til að taka á
máli sem þessu, og það vantaði svo
sannarlega ekki að þessu sinni. Það
er ljóst, að með því að taka á þessu
máli með þeim hætti, sem Þorsteinn
Pálsson gerði, var hann ekki að
þjóna skammtíma hagsmunum
sínum eða Sjálfstæðisflokksins í
pólitísku tilliti. Hvernig sem mál
velktust, hlutu þau að gera kom-
andi kosningabaráttu erfiðari á alla
lund fyrir flokkinn.
Nei. Það voru langtíma hags-
munir íslenzku þjóðarinnar, sem
réðu mestu um framvindu þessa.
Þjóðin fékk skýr skilaboð. Þau
skilaboð þurfti hún að fá og eftir
þeim skilaboðum hafði hún beðið
lengi. Það var auðvitað í þágu þjóð-
arinnar, að hún fengi að vita,
hverjar kröfur væru gerðar til for-
ystumanna hennar og að hún gæti
á þá treyst um leiðsögn.
Mikilvægi þess, að hnykkt skyldi
á þessu, kemur gleggst í ljós, þegar
viðbrögð minni hluta fólks eru skoð-
uð. Algengustu mótbárur við
atburðarásinni hafa verið eitthvað
á þá lund, að þetta gerðu allir eða
að upphæðin væri svo lítil, að hún
skipti engu máli. Þetta sýnir auðvit-
að, hversu nauðsynlegt það var að
hrinda þessari umræðu af stað.
Hvort sem við viljum kalla þessi
viðhorf „umburðarlyndi“ eða „spill-
ingu“, þá eru þau fjarri því að vera
rétt, þegar þau leiða til hirðuleysis
með skattframtöl og skaða þannig
á beinan hátt samborgara okkar.
Þjóðin mun átta sig á þessu.
Háskólinn XXI:
REIKNISTOFNUN
eftirÞórð
Kristinsson
Reiknistofnun háskólans var
sett á stofn árið 1976, en tólf
árum fyrr hafði tölvuöld hafið
innreið sína á íslandi er tölvunotk-
un hófst við háskólann með IBM
1620-tölvu, sem Raunvísinda-
stofnun háskólans notaði við
reikniþjónustu sína. Þannig eru
ekki liðin nema rétt rúm tuttugu
ár síðan tölva var fyrst tekin í
notkun hér á landi. Og svo ör var
þróunin, sem hún reyndar er enn,
að tölva þessi var orðin úrelt við
stofnun Reiknistofnunar og gefin
Þjóðminjasafninu 1976, einungis
tólf vetra gömul. Við tók ný véla-
samstæða, IBM 360/30-rafreikn-
ir, sem IBM á íslandi gaf
háskólanum endurgjaldslaus af-
not af um fjögurra ára skeið; tvær
aðrar gjafir fylgdu með, annars
vegar 35 þúsund dollarar til efl-
ingar menntun og vísindum á sviði
gagnavinnslu með rafreiknum og
hins vegar var stofnaður Rann-
sóknasjóður IBM vegna Reikni-
stofnunar háskólans og skyldu
viðhaldsgjöld nýju tölvusamstæð-
unnar renna í sjóðinn. Auk
þessara gjafa, sem renndu styrk-
um stoðum undir starfsemi
Reiknistofnunar strax í upphafi,
gáfu ríkisbankarnir stofnuninni
tölvuteiknara og var keypt sérstök
tölva til að stjórna honum suma-
rið 1977. Því má svo bæta við að
árið 1986 gaf IBM á íslandi há-
skólanum til fullrar eignar og
yffirráða tölvubúnað til tenginar
við tölvunet háskóla og vísinda-
stofnana í Evrópu, en net þetta
kallast á ensku European Aca-
demic and Research Network, eða
EARN í gælu — og er tilgangur
þess að hvetja til og auðvelda
miðlun á tæknilegum og vísinda-
legum upplýsingum milli mennta-
og vísindastofnana í Evrópu og
um heim allan. Hefur búnaðurinn
nú verið settur upp.
Þróun í tölvubúnaði hefur verið
mjög ör, svo sem öllum er kunn-
ugt, hvort sem þeim er um slíka
gripi gefíð eða ekki og notkun
sívaxandi ár frá ári. Reiknistofn-
un hefur í mörgu gegnt þar
forystuhlutverki og eru nú þrjár
öflugar tölvur í eigu stofnunarinn-
ar, VAX 11/780, VAX 11/750
og IBM 4341 og nemur saman-
lagt minni þeirra 25 Mb og
heildardiskrými er 3,2 Gb. Við
tölvumar eru tengdar 180 út-
stöðvar víðs vegar um svæði
háskólans og einnig eru ýmis fyr-
irtæki og stofnanir utan skólans
tengdar tölvunum.
Reiknistofnun er sjálfstætt fyr-
irtæki í eigu háskólans og er
hlutverk hennar þjónusta fyrst og
fremst; rekstur tölvu og þjónustu-
verkefni á sviði tölvuvinnslu og
reiknifræði. Hún annast rekstur
reiknimiðstöðvar við háskólann til
úrvinnslu verkefna fyrir nemend-
ur og starfsmenn skólans og
stofnana hans; annast reikniþjón-
ustu fyrir aðilja utan skólans og
gegnt fyrir námskeiðum og fyrir-
lestmm til kynningar á nýjungum
og gefur út leiðbeiningarrit, auk
þess sem hún fæst við hver þau
verkefni önnur sem stuðla að efl-
ingu þjónustustarfsemi stofnun-
arinnar.
En þótt hlutverkið sé einkum
þjónusta hefur stofnunin að eigin
fmmkvæði unnið að ýmsum hag-
nýtum rannsóknar- og þróunar-
verkefnum á fjölmörgum sviðum.
Viðfangsefni af þessu tagi em
m.a. verkefni tengd íslensku máli,
s.s. þróun ritvinnslubúnaðar og
athuganir, samanburður og aðlög-
un á erlendum búnaði og kerfum;
verkefni á sviði netkerfa og sam-
tenginga tölva, t.d. þróun og
hönnun almenns upplýsinganets
fyrir háskólann, í samvinnu við
Upplýsinga- og merkjafræðistofu
Verkfræðistofnunar; þróun upp-
lýsingabanka fyrir iðnfyrirtæki í
samvinnu við Upplýsingaþjónustu
Rannsóknaráðs; þróun ýmissa
teikniforrita og þátttaka í athug-
unum og kynningum á stöðlum
fyrir tölvuteikningar ásamt ýms-
um öðmm aðiljum; upplýsinga-
söfnun um ýmis kennsluforrit og
þróun stundatöflukerfis og náms-
ferilskerfis fyrir áfangaskóla;
þróun reiknilíkans af daglegu
pakkningavali í frystihúsi, í sam-
vinnu við Verkfræðistofnun; og
loks má nefna þátttöku í mörgum
rannsóknarverkefnum annarra
aðilja við tölfræðilega úrvinnslu,
úrtaksgerð og fleira, svo sem víða
hefur komið fram í þessum pistl-
um. Fram til þessa hafa tekjur
stofnunarinnar af þjónustu við
háskólann og aðilja utan hans
nægt til reksturs og ijárfestinga,
en verðskrá innan skólans er
helmingi lægri en utan hans, þar
sem fylgt er almennu verðlagi.
Helstu viðskiptavinir Reikni-
stofnunar innan háskólans vom
framan af einkum þrír, verk-
fræði- og raunvísindadeild, við-
skiptadeild, sem notuðu tölvur í
kennslu og rannsóknum, og svo
stjómsýsla skólans. Mikil breyting
er nú að verða á notkunarsviði
tölvunnar með sívaxandi notkun
örtölva hjá flestum deildum og
stofnunum háskólans við kennslu
og rannsóknir, en aukningin hefur
orðið mjög hröð hin síðustu ár og
tekið til æ fleiri fræðigreina. Mun
sú breyting, sem þegar er að
nokkm orðin, en þó enn varla
nema í miðjum klíðum, sennilega
draga nokkuð úr þeim verkum,
sem hingað til hafa réttlætt sam-
eiginlegan rekstur á tölvubúnaði
og þjónustu. Á þetta einkum við
um ritvinnslu, sem betur er fyrir
komið á smærri einkatölvum en
stærri sameiginlegri tölvu; á móti
koma hins vegar nýjar áherslur
og notkunarsvið, sem krefjast
tenginga á milli örtölva og mið-
stöðvar sem hefur á hendi teng-
ingar, tæknilega þjónustu, geymir
gagnasöfn og getur framkvæmt
mjög umfangsmikla útreikninga
og gagnavinnslu. Dæmi um slík
notkunarsvið eru grafík, gagna-
bankar, tölvupóstur og tölvuþing,
en á tölvuþingi geta menn sem
staðsettir eru víðs vegar í veröld-
inni skipst á skoðunum, hugmynd-
um og upplýsingum án þess að
hverfa frá vinnustöðvum sínum.
Því má reikna með að stofnunin
verði áfram um næstu framtíð
miðstöð og meginuppspretta
tölvuvæðingar við háskólann.
Höfundur er prófstjóri við Há-
skóla íslands.
Signrbjörn Sveinsson
„Rödd kemur upp í
hópnum, sem slær á
nýja strengi, gerir nýj-
ar kröfur, kröfur, sem
minna á sjónarmið al-
mennings í þessum
efnum. Formaður Sjálf-
stæðisf lokksins gengur
fram fyrir skjöldu og
segir einfaldlega:
„Svona gerir maður
ekki án þess að standa
reikningsskil gjörða
sinna. Eru skyldur ráð-
herrans því meiri en
hins almenna borgara,
að hann er sjálfur
ábyrgur um fram-
kvæmd þessara mála og
fer með þau í umboði
þjóðarinnar.“
Ráðherrann féll á prófinu. Það er
ástæðulaust fyrir stóran hóp sam-
borgaranna að fylgja honum í
fallinu. Alvaran er of mikil til þess.
Það eru margar aðrar leiðir betur
færar til að bæta þjóðfélag okkar,
en að greiða skattamisferli atkvæði
sitt á kjördegi.
Höfundur er læknir.
Hagþenkir
mótmælir mis
munun í úthlut-
un starfslauna
STJÓRN launasjóðs rithöfunda
hefur nýlega úthlutað starfs-
launum til 81 höfundar, alls 11,9
milljónum króna. Eins og undan-
farin ár fengu örfáir fræðirita-
höfundar starfslaun.
Almennur félagsfundur í „Hag-
þenki — félagi höfunda fræðirita
og kennslugagna", haldinn 12.
mars, mótmælir þeirri starfsreglu
sem enn virðist beitt af stjórn sjóðs-
ins og hefur verið orðuð þannig í
bréfi til félagsins að fylgt sé „ ...
þeirri meginreglu að veita ekki fé
til vísindarita eða fræðirita ...“
Slík starfsregla samræmist ekki 3.
grein laga um sjóðinn þar sem tek-
ið er fram að „Rétt til greiðslu úr
sjóðnum hafa íslenskir rithöfundar
og höfundar fræðirita." Hún sam-
ræmist heldur ekki sanngimiskröf-
um vegna þess að sé slíkri reglu
beitt hafa höfundar alþýðlegra
fræðirita svo til enga möguleika á
styrk til starfa úr neinum opin-
berum sjóði og þeim að því leyti
gert örðugra að helga starfínu
krafta sína en öðrum íslenskum
höfundum. Slík mismunun höfunda
samræmist heldur ekki ábyrgri
menningarstefnu þar sem þróun
íslenskrar tungu og menningar er
ekki síst háð því hversu góð verk
eru skrifuð um þau fræði sem þarf
að fjalla um á íslensku, s.s. sögu,
tungu, listir og bókmenntir þjóðar-
innar, menntun, atvinnulíf, stjórn-
mál og tækni eða náttúru landsins.
Fundurinn fagnar því að launa-
sjóður rithöfunda fékk til úthlutun-
ar nokkm meira fé en undanfarin
ár og væntir þess að sjóðurinn verði
efldur enn frekar með því að stofn-
uð verði ný deild innan hans ætluð
fræðirithöfundum og þar með verði
tryggt að sjóðurinn starfí í sam-
ræmi við þau lög sem um hann
gilda.
(Fréttatilkynning)
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíóum Moggans! '
Blaðburðarfólk
óskast!
AUSTURBÆR GRAFARVOGUR
Hverfisgata63-115o.fl. Gerðhamrar
Sóleyjargata Dverghamrar
Óðinsgata
Lindargata 1-38o.fl
Hverfisgata 4-62 o.fl.
Bergþórugata
Síðumúli
Skólavörðustígur