Morgunblaðið - 04.04.1987, Side 72

Morgunblaðið - 04.04.1987, Side 72
Fróóleikur og skemmtun fyrirháa semlága! tfgmiÞfftfetfe Viðlaga þjónusta LAUGARDAGUR 4. APRÍL 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Rflrið og Starfsmannafélag ríkisstofnana: Allt útlit var fyrir að samn- ingar næðust ALLT útlit var fyrir að samning- ar tækjust milli samninganefnda ríkisins og Starfsmannafélags ríkisstofnana í nótt, en í því fé- legi eru sjúkraliðar. Viðræður milli deiluaðila drógust á langinn þar sem um marga starfs- hópa er að ræða innan Starfs- mannafélagsins en samningamenn voru bjartsýnir um að samningar yrðu undirritaðir í nótt. Á íjölmenn- um fundi sjúkraliða í gær var samþykkt að fresta, ótímabundið, að ganga út af vinnustöðum á mið- nætti s.l. í framhaldi af samningum milli ríkisins og Starfsmannafélagsins var búist við að undirritaðir yrðu samningar milli Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags borgarinnar, en í því félagi eru m.a. sjúkraliðar, sem starfa á Borgarspítalanum. í gær voru undirritaðir samn- ingar við félagsfræðinga en félag náttúrufræðinga, bókasafnsfræð- inga og háskólakennara funduðu hjá sáttasemjara fram eftir kvöldi. Þá voru haldnir fundir með starfsmönnum Pósts og síma, fé- lagsráðgjöfum og sjúkraþjálfurum í gær, án árangurs. Slökkviliðið í þrjú útköll í gærkvöld SLÖKKVILIÐIÐ I Reykjavík var kallað út þrisvar í gærkvöld með stuttu millibili. var vitað um orsök eldsins þegar síðast fréttist. Skemmdir urðu nokkrar. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Baldvin Jónsson, forstjóri Happdrættis Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, afhendir Eiriki Einars- syni ávísun með vinningsupphæðinni og Kristbjörgu Sigurfinnsdóttur, eiginkonu hans, blómvönd. Með þeim á myndinni er Jónas Eggertsson, umboðsmaður happdrættisins. Ég ætla að klára húsið mitt - sagði Eiríkur Einarsson, sem hlaut 3,5 milljónir í happdrætti DAS „MADUR getur ekki sest niður. Ég stend hér alveg stjarfur,“ sagði Eiríkur Einarsson, vél- tæknir, sem hlaut hæsta vinn- ing á árinu, 3,5 milljónir króna, í happdrætti DAS I gær. „Eg ætla að nota peningana til að klára húsið mitt sem er vel á veg komið og borga upp lán. Lengra hef ég ekki hugsað enda er allt svolítið ruglingslegt, það er ekki nema hálftími síðan ég frétti af þessu," sagði Eiríkur sem býr ásamt fjölskyldu sinni í Graf- arvogi. Hann sagðist hafa átt sama miðann síðan 1972. „Ég hef unnið þrisvar eða fjórum sinnum á miðann áður, en það voru allt vinningar af smærri gerðinni. Einu sinni fékk ég þó næstlægsta vinninginn, 15 þúsund krónur, en það er svo langt síðan að í dag samsvarar upphæðin 150 krón- um,“ sagði Eiríkur. Kl. 18 kom upp eldur í ösku- tunnugeymslu úr timbri við Sólheima 35 og tókst að slökkva hann fljótlega. Geymslan er ónýt. Sala SÍF fyrsta ársfjórðunginn: Slökkviliðið var kallað að Þórufelli 6 klukkan 19.50. Þar var eldur laus í íbúð á fyrstu hæð. Kviknað hafði í hlutum, sem voru í pappa- kassa á miðju gólfi. íbúamir voru ekki heima þegar eldurinn kom upp, en aðrir íbúar hússins höfðu ráðið niðurlögum eldsins þegar slökkviliðið kom á vettvang og var einn þeirra fluttur á slysadeild með snert af reykeitrun. Verðmæti útflutts salt- físks 90% meira en í fyrra Þá kom upp eldur í vél nýlegrar jeppabifreiðar, sem stóð fyrir utan Tjamargötu 3 um kl. 20.30 í gær- kvöld. Eigandinn var fjarri og ekki Bíræfnir þjófar: Loðna, bútungur, gellur, þorskf és o g hryggir meðal nýrra afurða FYRSTA ársfjórðung þessa árs I fiskframleiðenda utan 12.000 um 1,8 milljarðar króna. Á sama flutti Sölusamband íslenzkra | lestir af saltfiski að verðmæti tíma í fyrra nam útflutningurinn ________________________________________________________ 9.000 lestum að verðmæti 960 milljónir króna. Aukning í magni er því um 30% og í verðmætum 90%. Auk hefðbundins útflutn- Stálu 30 þúsundum af stúlku sem svaf í strætó ÞRJÁTÍU þúsund krónum var stolið af tvítugri stúlku á meðan hún svaf i strætisvagni. Pening- ana ætlaði stúlkan að nota til að festa kaup á bifreið. Stúlkan fékk útborguð laun á miðvikudag. Hún lagði hluta laun- anna inn á bankareikning, en þar sem hún ætlaði að ganga frá bif- reiðakaupunum um kvöldið tók hún þtjátíu þúsund krónur með sér í reiðufé. Hún býr í Hafnarfirði og tók vagninn þangað. Þegar vagninn var kominn nokkuð áleiðis syfjaði stúlkuna og sofnaði hún stutta stund. Hún varð ekki vör við að peningana vantaði fyrr en skömmu eftir kvöldmat, en þá var hringt í hana og henni sagt að peningavesk- ið hennar hefði fundist í vagninum. Peningaveski stúlkunnar var tómt, en hún endurheimti skilríki sín og greiðslukort. Stúlkan, sem ekki vill láta nafns síns getið, sagði að vagninn hefði verið fullur af fólki alla leiðina og því ótrúleg bíræfni að taka peningana. „Ég sat aftarlega í vagninum, út við glugga og veit ekki hvort einhver fór í tösk- una mína og tók veskið þaðan, eða hvort ég hef kannski misst peninga- veskið niður á gólf og einhver gripið það þar,“ sagði hún. „Ég er mest undrandi á að fólk skuli geta verið svona samviskulaust, því allir hljóta að sjá hvað það er slæmt að missa mánaðarlaunin sín. Ég varð af bíla- kaupunum, en sem betur fer átti ég meira sparifé og get því bjargað mér fram að næstu útborgun. Það væri sjálfsagt erfiðara ef aðstæður mínar væru verri, til dæmis ef ég væri einstæð móðir." ings er hafinn útflutningur á ýmsum öðrum afurðum svo sem saltaðri loðnu, þorskfésum, þorskhryggjum og bútungi. Sigurður Haraldsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri SÍF, sagði í samtali við Morgunblaðið, að fram- leiðslan hefði nú verið um 1.000 lestum minni en á sama tíma í fyrra vegna verkfalls sjómanna. Þrátt fyrir verkfall farmanna hefðu af- skipanir verið mjög hraðar og greiðslur borizt fljótt og vel. Birgð- ir um áramót hefðu verið í algjöru lágmarki og helmingur birgða nú væri framleiðsla síðustu tveggja vikna, sem enn sé ekki pökkunar- hæf. Mest hefði til þessa farið til Portúgal, 5.000 lestir og 3.000 til Spánar. Auk þessa færu svo fimm skip utan næstu daga með samtals 5.000 til 6.000 lestir. Einn farmur hefði þegar farið til Grikklands og annar til Ítalíu auk þess, sem tals- vert hefði verið flutt til þangað í gámum, en þar hefðu þegar verið seldar 600 lestir af söltuðum þorsk- flökum. Sigurður sagði, að talsverð hreyf- ing væri á sölu saltfisks í neytenda- umbúðum og mætti þar nefna saltaðar gellur og roðlaus flök, sem SÍF seldi meðal annars í Banda- ríkjunum og öðrum hefðbundnum mörkuðum auk smærri markaða, sem tækju takmarkað magn í einu. Þar mætti nefna Sviss og Kuwait. „SÍF hefur ekki getað annað eftir- spum eftir harðþurrkuðum saltfiski í ýmsum Afríkulöndum og vegna þess höfum við verið að vinna að þróun annarra afurða, sem gætu komið í staðinn. Fyrstu tilrauna- sendingarnar af þurrkaðri og saltaðri loðnu, þurrkuðum þorsk- fésum og hryggjum hafa þegar farið til nokkurra aðila í Afríku. Enn hefur ekki verið samið um sölu á miklu magni af þessum afurðum, en vonir standa til að nokkuð af þeim megi selja í Afríku. Þá má nefna að dálítið af bútungi hefur verið selt til eyríkisins La Reunion í Indlandshafí, en það er skammt austan við Madagaskar," sagði Sig- urður Haraldsson. i i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.