Morgunblaðið - 14.04.1987, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.04.1987, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAG.UR 14. APRÍL 1987 Frá föstudegi Að venju verð ég að gera upp á milli fjölmargra athyglis- verðra helgardagskráratriða og nem þá fyrst staðar við Unglingana í ríkissjónvarpsfrumskóginum er voru að þessu sinni í samfylgd þús- unda félaga er senn streyma í kjörklefann í skjóli nýrra reglna um lækkandi kosningaaldur. Stjóm- andinn Ámi Sigurðsson ræddi við Qóra unga kjósendur í kringlu Al- þingis og spurði svo krakka á götum úti um verðandi kosningar. Virtust mér hinir ungu kjósendur býsna óákveðnir er aftur kennir okkur þá lexíu að ef til vill þurfi ljósvakamiðl- amir að upplýsa þennan öfluga hóp nýrra kjósenda rækijegar um stefnumið flokkanna. Áma tókst ágætlega að vekja hina ungu kjós- endur í ljósvakafrumskóginum og afsannaði þá kenningu að unglinga- þættir þurfí endilega að byggjast á hoppi og híi en gætum að því að atkvæði ungu kjósendanna gætu ráðið næstu ríkisstjóm. GuÖjón Samúelsson Stjómendur Geisla komu víða við að þessu sinni — batnandi mönnum er best að lifa — og fóru meðal annars uppí Landsbanka að ræða við Hörð Ágústsson byggingar- sagnfræðing um Guðjón Samúels- son, þennan stórkostlega byggingateikni (arkitekt). Hvílíkur snillingur, Guðjón, og fyndist mér vel við hæfí að sjónvarpið fílmaði byggingarteiknisögu Guðjóns Samúelssonar. Hvernig stendur annars á því að ekki er fjallað ítar- legar um okkar nánasta umhverfi í sjónvarpinu? Ég minnist þess til dæmis ekki að ítarlega hafi verið fjallað um nýsamda skipulagstillögu er beinist að endurhönnun gamla miðbæjarins en vísir menn hafa tjáð mér að þessi tillaga muni svipta gamla miðbæinn „sálinni“. Hin smágervu „dúkkuhús" í gamla mið- bænum okkar eru nú einu sinni fjöregg þessarar borgar og yrkis- efni borgarskáldanna. MR Síðastliðinn laugardag var sýnd- ur í ríkissjónvarpinu fyrri hluti leikrits er MR-ingar færðu upp á Herranótt í fyrra. Leikritið: Húsið á hæðinni eða Hring eftir hring skrifaði Sigurður Pálsson og var þar brugðið upp svipmyndum af lífi skólapilta á árunum milli 1930 og ’40. í kvöld verður síðari hluti verksins á dagskrá og verður þá vikið að bítlaárunum í MR. Leiklist- argagnrýnandi Morgunblaðsins hefír þegar dæmt þessa uppfærslu og verkið sjálft en persónulega fannst mér takast bara vel til með sjónvarpsuppfærsluna og á þar hinn reyndi leikstjóri Þórhildur Þorleifs- dóttir heiður skilið en Þórhildur er einkar lagin við að skipa fjölda leik- enda saman á þröngt leiksvið, sviðsmynd Guðrúnar Sigríðar Har- aldsdóttur var líka býsna haganleg. Hitt er svo aftur annað mál hvort skólasýningar, jafnvel Herranætur, eigi erindi í ríkissjónvarpið en þegar atvinnuleikarar eru komnir útá gaddinn þá er náttúrulega ekki um annað að ræða en leita til áhuga- manna. Renata Scotto Að þessu sinni var hin heims- fræga sópransöngkona Renata Scotto í Sviðsljósi Jóns Óttars. Sú stund var mér dýrmæt því þessi yndislega heimssöngkona, er syng- ur ekki aðeins betur en aðrir dauðlegir menn, er líka flínkur bún- ingahönnuður, óperuleikstjóri og húsmóðir. Hvílík kona og í réttu umhverfi hjá Jóni Óttari, mjúkum leðursófa og skrautgler í baksýn. Þessi álfadrottning mun fylgja mér lengi fram á hinn gráa veg. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP/SJÓNVARP Stöð 2: Shamus ■■■■ Shamus, 0"J 15 bandarísk kvik- — mynd frá árinu 1975 er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld. Shamus er einka- spæjari og billiardleikari, en fyrst og fremst kvenna- gull. Hann á í vök að veijast þegar hann kemst samtímis í kast við lögregl- una og harðvítugan glæpahring. Leikstjóri er Marvin Chomsky. Kvennagullið Shamus leikur billiard. Bylgjan: Finnsk rokktónlist ■■■■ Finnsk rokktón- 01 00 list fær rækilega “ -1 umQöllun hjá Ásgeiri Tómassyni í kvöld. Finnskur tónlistarmaður, Mike Huldén, er staddur hér á landi um þessar mundir og hann tók með sér nokkrar rokkplötur sem verða leiknar auk þess sem Mike segir stuttlega frá hljómsveitunum og tónlist- arlífi í Finnalndi. Meðal hljómsveita sem kynntar verða eru Smack, Melrose, Miljoonasadle, Gringos Locos, Keba, Insideout o. fl. ÚTVARP © ÞRIÐJUDAGUR 14. apríl 6.45 Veðurtregnir. Bæn. 7.00 Fréttir 7.03 Morgunvaktin — Jón Baldvin Halldórsson og Jón Guðni Kristjánsson. Fréttir eru sagðar kl. 7.30 og 8.00 og veöurfregnir kl. 8.15. Til- kynningar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. Guð- mundur Sæmundsson talar um daglegt mál kl. 7.20. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. 9.05 Morgunstund barn- anna: „Enn af Jóni Oddi og Jóni Bjarna'' eftir Guðrúnu Helgadóttur. Steinugn Jó- hannesdóttir les (11). 9.20 Morguntrimm. Lesið úr forystugreinum dagblað- anna. Tónleikar. 10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir 10.30 Ég man þá tíð Hermann Ragnar Stefáns- son kynnir lög frá liðnum árum. 11.05 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stefánsson. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 Stríð og þjáning Umsjón: Berglind Gunnars- dóttir og Lilja Guðmunds- dóttir. 14.00 Miðdegissagan: „Niðja- málaráðuneytið" eftir Njörð P. Njarðvík Höfundur les (5). 14.30 Tónlistarmaður vikunn- ar. Loertta Lynn. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Landpósturinn. Lesið úr forystugreinum landsmála- blaða. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.05 Dagbókin Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir 16.20 Barnaútvarpiö 17.00 Fréttir. Tilkynningar. 17.05 Síödegistónleikar a. Amerísk svíta op. 98b eftir Antonín Dvorák. Kon- unglega fílharmóníusveitin í Lundúnum léikur; Antal Dorati stjórnar. b. Svíta nr. 2 eftir Igor Strav- insky. Sinfóníuhljómsveitin í Dallas leikur; Eduardo Mata stjórnar. c. „Scaramouche" eftir Dar- ius Milhaud. Pekka Savijoki og Margit Rahkonen leika á saxófón og píanó. 17.40 Torgiö — Neytenda- og umhverfismál. Umsjón: Steinunn Helga Lárusdóttir. 18.00 Fréttir. Tilkynningar. 18.05 Torgið, framhald. Til- kynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni sem Guðmundur Sæmundsson flytur. 20.00 Á framboðsfundi Útvarpað beint frá fundi frambjóðenda í Norður- landskjördæmi eystra sem haldinn er á Dalvík. I upp- hafi flytja frambjóðendur stutt ávörp en síðan leggja fundargestir spurningar fyrir frambjóðendur flokkanna. 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Lestur Passíusálma. Andrés Björnsson les 48. sálm. 22.30 Leikrit: „Sandbylur" eftir Þorstein Marelsson Leikstjóri: Karl Ágúst Úlfs- son. Leikendur: Arnar Jónsson, Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Sigríður Hag- alín, María Árnadóttir, Erla B. Skúladóttir, Árni Tryggva- son, Guðrún Gísladóttir, Gunnar Rafn Guðmundsson og Erlingur Gislason. (End- urtekið frá fimmtudags- kvöldi). 23.15 íslensk tónlist a. „Þjóðlífsþættir" eftir Jór- unni Viðar. Laufey Sigurðar- dóttir og höfundurinn leika saman á fiðlu og píanó. b. Blásarakvintett eftir Jón Ásgeirsson. Einar Jóhann- esson, Bernhard Wilkinson, Daði Kolbeinsson, Joseph Ognibene og Hafsteinn Guðmundsson leika á klar- inettu, flautu, óbó, horn og fagott. c. Norræn svíta um íslensk þjóðlög eftir Hallgrím Helga- SJÓNVARP ÞRIÐJUDAGUR 14. apríl 18.00 Villi spæta og vinir hans. Þrettándi þáttur. Bandarískur teiknimynda- flokkur. Þýðandi Ragnar Ólafsson. 18.25 Nýja flugstööin i Keflavík vigð — Bein útsend- ing. Umsjónarmaður Edda Andrésdóttir. Útsendingu stjórnar Rúnar Gunnarsson. 19.30 Poppkorn. Umsjón: Guömundur Bjarni Harðar- son, Ragnar Halldórsson og Guðrún Gunnarsdóttir. 19.55 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Auglýsingar og dag- skrá. 20.40 Fjórða hæðin. (The Fourth Floor). Nýr flokkur — Fyrsti þáttur. Breskur saka- málamyndaflokkur í þremur þáttum. Aðalhlutverk: Christopher Fulford og Ric- hard Graham. Á fjórðu hæð Scotland Yard hefur aðsetur sú deild lögreglunnar sem fæst við rannsóknir rána. Þangaö berast ábendingra um heróísmygl um Heat- hrow-flugvöll en morð og rán fylgja í kjölfarið þegar tveir ungir lögreglumenn hefja rannsókn. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 21.35 Vestræn veröld. (Triumph of the West.) 5. I Áusturvegi. Heimilda- myndaflokkur í þrettán þáttum frá breska sjónvarp- inu (BBC). Umsjónarmaður er John Roberts sagnfræð- ingur. Þýðandi og þulur Óskar Ingimarsson. 22.25 Suðurlandskjördæmi. Sjónvarpsumræður fulltrúa allraframboöslista. Umræð- um stýrir Ólína Þorvarðar- dóttir. 23.55 Fréttir i dagskrárlok. ÞRIÐJUDAGUR 14. apríl § 17.00 Striðsleikir (War Games). Bandarisk kvik- mynd með Matthew Brod- erick, Dabney Coleman (Buffalo Bill) og John Wood i aðalhlutverkum. Unglingur með tölvudellu kemst inn á ónafngreint tölvukerfi með spennandi striösleikjum, en þeir leikir eru ekki ætlaöir unglingum. § 18.50 Fréttahornið. Frétta- tími barna og unglinga. Umsjónarmaður er Sverrir Guðjónsson. 19.05 Teiknimynd. 19.30 Fréttir 20.00 Návígi. Yfirheyrslu- og umræðuþáttur í umsjón fréttamanna Stöðvar 2. § 20.40 Húsið okkar. (Our House.) Bandariskur gam- anþáttur með Wilford Brim- ley i aðalhlutverki. §21.30 Púsluspil (Tatort). Nýr vandaður þýskur sakamála- þáttur. Aðalsöguhetjurnar eru tveir lögreglumenn, Schimanski og Thanner. I þessum þætti fer Schi- manski að grennslast fyrir um hvarf virts blaðamanns. §23.00 NBA-körfuboltinn. Umsjónarmaður er Heimir Karlsson. 00.30 Dagskrárlok. son. Sintóníuhljómsveit fslands leikur; Olav Kielland stjórnar. ÞRIÐJUDAGUR 14. april 00.10 Næturútvarp. Hallgrím- urGröndalstendurvaktina. 6.00 i bitið. Erla B. Skúladótt- ir léttir mönnum morgun- verkin, segir m.a. frá veöri, færð og samgöngum og kynnir notalega tónlist i morgunsáriö. 9.05 Morgunþáttur i umsjá Kolbrúnar Halldórsdóttur og Sigurðar Þórs Salvarssonar. Meðal efnis: Tónlistarget- raun, óskalög yngstu hlust- endanna og fjallað um breiðskifu vikunnar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Á milli mála. Leifur Hauksson kynnir létt lög við vinnuna og spjallar við hlustendur. 16.05 Hringiðan. Umsjón: Broddi Broddason og Margrét Blöndal. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Nú er lag. Gunnar Sal- varsson kynnir gömul og ný úrvalslög. (Þátturinn veröur endurtekinn aðfaranótt ÞRIÐJUDAGUR 14. apríl 07.00—09.00 Á fætur með Sigurði G. Tómassyni. Létt tónlist með morgunkaffinu. Sigurður lítur yfir blööin, og spjallar við hlustendur og gesti. Fréttir kl. 07.00, 08.00 og 09.00. 09.00—12.00 Páll Þorsteins- son á léttum nótum. Palli leikur uppáhaldslögin ykkar. Afmæliskveðjur, matarupp- skriftir og spjall til hádegis. Siminner61 11 11.Fréttir kl. 10.00 og 11.00. 12.00-12.10 Fréttir 12.10—14.00 Þorsteinn J. Vil- hjálmsson á hádegi. Frétta- pakkinn. Þorsteinn og fréttamenn Bylgjunnar fylgj- ast með þvi sem helst er ( fréttum, spjalla við fólk og segja frá í bland við létta tónlist. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00—17.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd. Pétur spil-' ar siðdegispoppið og spjall- ar við hlustendur og tónlistarmenn. Forstjóra- popp eftir kl. 15.00. Fréttir kl. 15.00, 16.00 og 17.00. 17.00—19.00 Ásta R. Jóhann- 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp á samtengd- um rásum til morguns. fimmtudags kl. 02.00.) 21.00 Poppgátan. Gunnlaug- ur Sigfússon og Jónatan Garðarsson stýra spurn- ingaþætti um dægurtónlist. (Endurtekinn þátturfrá laug- ardegi.) 22.05 Steingeröur. Þáttur um Ijóðræna tónlist í umsjá Herdisar Hallvarðsdóttur. 23.00 Við rúmstokkinn. Guðrún Gunnarsdóttir býr fólk undir svefninn með tali og tónum. 00.10 Næturútvarp. Gunnar Svanbergsson stendur vakt- ina til morguns. 02.00 Tilbrigði. Þáttur i umsjá Hönnu G. Siguröardóttur. (Endurtekinn frá laugar- degi.) Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00, 10.00, 11.00, 12.20, 15.00, 16.00, 17.00, 18.00, 19.00, 22.00 og 24.00. SVÆÐISÚTVARP AKUREYRI 18.03-19.00 Svæöisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 Umsjón: Finnur Magnús Gunnlaugsson. Fjallað um menningarlif og mannlíf al- mennt á Akureyri og í nærsveitum! esdóttir í Reykjavik siödeg- is. Ásta leikur tónlist, lítur yfir fréttirnar og spjallar við fólkið sem kemur við sögu. Fréttir kl. 18.00. 19.00—20.00 Anna Björk Birgisdóttir á flóamarkaöi Bylgjunnar. Flóamarkaður og tónlist. Fréttir kl. 19.00. 20.00—21.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Helgi Rúnar Óskarsson kynnir 10 vin- sælustu lög vikunnar. 21.00—23.00 Ásgeir Tómas- son á þriðjudagskvöldi. Ásgeir leikur rokktónlist úr ýmsum áttum. 23.00—24.00 Vökulok. Þægi- leg tónlist og fréttatengt efni í umsjá Elínar Hirst frétta- manns. Fréttir kl. 23.00. 24.00—07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Tónlist og upp- lýsingar um veöur og flug- samgöngur. Fréttir kl. 03.00. ALFA KrUtUeg étni^HlU. FM 102,9 ÞRIÐJUDAGUR 14. apríl 8.00 Morgunstund. Guðs orð og bæn. 8.15 Tónlist. 12.00 Hlé. 13.00 Tónlistarþáttur meÓ lestri úr Ritningunni. 16.00 Dagskrárlok.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.