Morgunblaðið - 14.04.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987
25
gerðir sínar á fjármálaráðherraferli
sínum.
Vanmat á dómgreind
Ekki veit ég gjörla hve dóm-
greind Alberts Guðmundssonar er
traust og skýr. Hitt veit ég með
vissu að hann vanmetur stórlega
dómgreind almennings.
Það lýsir sér gleggst í því hvað
hann leyfir sér að bera á borð fyrir
háttvirta kjósendur. Þegar hann
segist helst ekkert vita um rekstur
síns eigin fyrirtækis og þykist þar
hvergi hafa nærri komið í 12—13
næstliðin ár, þó hefir hann látið sig
hafa það að stinga á sig margum-
ræddum Hafskipsávísunum og
e.t.v. fleiri „smá pinklum", og bítur
svo höfuðið af skömminni með því
að „gleyma" því að svona jakka-
vasatekjur eru framtalsskyldar sem
aðrar tekjur og engu síður en þær
sem bera að með eðlilegri hætti en
þessar undanskattsávísanir.
Samkvæmt niðurstöðum próf-
kjörs fyrr í vetur skipaði Albert
efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík, við þeirri niðurstöðu
var ekki hróflað. Mér sýnist að
ekki hafi verið unnt að taka vægi-
legar á yfirsjónum hans en gert var.
Vinir hans í hulduhernum knúðu
hann til að hverfa frá þessu fram-
boði og stöfna í þess stað nýjan
flokk.
Albert lét það í veðri vaka að
vera sín í Sjálfstæðisflokknum væri
útilokuð eftir að Þorsteinn Pálsson
gat þess í yfirheyrslu á Stöð 2 að
Albert yrði ekki útnefndur sem ráð-
herraefni af hálfu flokksins eftir
næstu kosningar.
Það má segja að Þorsteinn hefði
getað sparað sér þessa yfirlýsingu,
fyrst og fremst vegna þess að það
liggur í augum uppi að maður sem
verður að segja af sér ráðherradómi
getur ekki orðið hlutgengur í það
starf að nýju fyrir flokkinn að
nokkrum vikum liðnum.
Ekki vil ég gera svo lítið úr vits-
munum fráfarandi ráðherra að
hann hafi verið haldinn þeirri glám-
skyggni að hann gæti að loknum
komandi kosningum hlammað sér
ofan í ráðherrastól á vegum Sjálf-
stæðisflokksins, því vil ég ekki trúa.
Aðvaranir
Ég lít svo til að Albert Guð-
mundsson hafi löngum viljað halda
sig hetjumegin á taflborði tilver-
unnar.
Vissulega var hann ekki of sæll
af þeirri stöðu sem upp var kominn
þegar ljóst var að hann yrði að segja
af sér ráðherradómi. En það fannst
mér ekki nógu stórmannlegt af
honum þegar hann kom utanlands
frá og lét sem honum kæmi þetta
allt á óvart, því hið sanna er að
hann var búinn að fá aðvaranir
oftar en einu sinni. í raun var verið
að bíða og vona í lengstu lög að
hann færi leið skynseminnar og
segði af sér án frekari eftirgangs-
muna.
Þegar þessi hetja skrýddist
skikkju píslarvottsins, lést vera als-
aklaus og óvarinn, þá var ég fjærst
því að vorkenna honum. Hlýtt hefi
ég á stefnuskrá Borgaraflokksins
sem mér finnst í óþarflega miklum
óskalistastíl. Öllu á að kippa í lag
bæði til sjós og lands en fátt segir
af fjáröflunarleiðum.
Inná milli koma svo ábendingar
í einskonar minnispunktaformi svo
sem eins og það að við séum í Atl-
antshafsbandalaginu.
Ég vil benda öllum mínum flokks-
systkinum á það, sem kosningarétt
eiga utan þéttbýlisins við innan-
verðan Faxaflóa, að þau atkvæði
sem Borgaraflokkurinn kann að
hljóta á landsbyggðinni nýtist til
þess eins að fleyta inn á þing ein-
hveijum Albertistum í Reykjavík
eða á Reykjanesi.
Nú er Albert orðinn maður hinna
mjúku gilda. Þetta gerði hann
heyrinkunnugt bæði í útvarpi í
þættinum „Á beinni línu“ og í kynn-
ingarþætti í sjónvarpi mánudags-
kvöldið 6. þ.m.
Ekki fylgdi það sögunni hvort
þetta byrjaði með „tannaðgerðinni"
á dögunum.
Hlaut sá drengur hðgg á kinn
er hugðist fréttura sinna.
Ættir þú ekki, Albert minn
öp að láta minna?
Höfundur er bándi í Skollagróf.
Dómnefndin. Frá vinstri: Steinn G. Hermannsson JC Breiðholti,
Katrín Briem myndlistarmaður og Jón Reykdal myndlistarmaður
JC Breiðholti:
Þrjár myndir
verðlaunaðar
Tilvaldar í ferðalagið.
Kæligeymsla óþörf.
ORA grænmeti
er ómissandi með steikinni,
hentar vel í salatið og
á kalda borðið.
í ORA vörunum
eru engin rotvarnarefni,
aðeins valin hráefni.
Fást 1 næstu
matvöruverslun,
hagstætt verð.
- í samkeppni að gerð veggspjalds um vímuefni
HUGMYNDASAMKEPPNI að gerð veggspjalds um vímuefni er nú
lokið og hefur dómnefnd valið þrjár verðlaunateikningar úr þeim 56
tillögum sem bárust. JC í Breiðholti stóð fyrir samkeppninni með
samþykki skólastjóra Grunnskóla Reykjavíkur. Rétt til þátttöku áttu
allir nemendur 6. 7. 8. og 9. bekkja í grunnskólum Reykjavíkur.
Bestu tillöguna að mati dómnefnd-
ar áttu þeir Ivar Páll Jónsson og
Páll Eiríksson úr Fossvogsskóla og
fá þeir 5.000 krónu verðlaun. Björk
Ormarsdóttir úr Vogaskóla fær 3.000
króna verðlaun fyrir aðra bestu tiliög-
una og í þriðja sæti urðu þeir Óskar
Björn Óskarsson, Egill Sandholt og
Baldur Jónsson frá Olduskóla. Þriðju
verðlaun nema 2.000 krónum.
Verðlaunaafhending fer fram eftir
páska á sameiginlegum fundi JC
Breiðholts og samtaka um vímausa
æsku, að sögn Steins G. Hermanns-
sonar frá JC. Auk hans skipuðu
myndlistarmennirnir Katrín Briem og
Jón Reykdal dómnefndina.
Steinn sagði að Mjólkurdagsnefnd
og Hewlett Packard á íslandi hefðu
styrkt þetta framtak JC-manna.
Verðlaunatillögunum verður dreyft í
skóla og æskulýðsmiðstöðvar eftir að
fagfólk hefur útfært tillögur krakk-
anna og gefið út á veggspjöldum.
Steinn sagðist hafa samið ljóð um
sanna íslenska sögu. Hún fjallaði um
strákinn Ella, sem sniffaði með vinum
sínum og varð fyrir heilaskemmdum
og fatlaðist. „Elli er nú í hjólastól og
getur ekki talað. Þessar Ijóðlínur áttu
krakkarnir að styðjast við í teikning-
um sínum. Hugmyndin er sú að hægt
verði síðar að semja lag við ljóðið og
gefa út á hljómplötu. Aðrir aðilar
yrðu þá að koma þar inn í vegna
kostnaðarins," sagði Steinn.
Þú opnar ORA dós -
og gæðin koma í ljós!
Vesturvör 12, Kópavogi.
/
30 ARA VAXANDI
VINSÆLDIR SANNA GÆÐIN
AUK hf. 95.9