Morgunblaðið - 14.04.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987
47
Yfirvöld refsa
andófsmönnum
Sovétríkin:
- sem neita að biðjast vægðar
Vínarborg, Reuter.
YFIRVÖLD í Sovétríkjunum
refsa þeim andófsmönnum, sem
neita að biðjast vægðar, með
því að flytja þá úr fangelsum í
Vildu
Iranir
stuðla að
sigri
Reagans
Miami, Reuter.
MÁNUÐI áður en forseta-
kosningarnar I Bandarikjun-
um fóru fram árið 1980, áttu
tveir aðstoðarmenn Ronalds
Reagan leynifund með manni
nokkrum, sem sagðist vera
fulltrúi irönsku stjórnarinn-
ar. Bauð maðurinn að frestað
yrði að láta gíslana í banda-
ríska sendiráðinu i Teheran
lausa, fram yfir kosningarn-
ar, svo að öruggt yrði, að
Carter biði ósigur.
Frá þessu segir í bandaríska
blaðinu Miami Herald og er vitn-
að í Richard Allen og Laurence
Silberman, sem höfðu þá verið
ráðgjafar Reagans um utanrík-
ismál í alllangan tíma. Þeir
sögðu í viðtölum við blaðið, að
þeir hefðu álitið „tilboðið" öld-
ungis fáránlegt og hafnað því.
í blaðinu segir að Robert
McFarlane, sem varð síðar um
hríð öryggismálaráðgjafi Reag-
ans og einn málsaðila Irangate,
hafi komið fundinum í kring á
hóteli í Washington og verið við-
staddur. Aðspurður um málið
sagði McFarlane að hann hefði
fljótlega sannfærzt um, að mað-
urinn hefði í fyrsta lagi ekkert
umboð til þess að koma með
þetta tilboð og þar að auki hefði
það verið út í hött.
Bani Sadr, fyrverandi forseti
írans, sem er í útlegð í Frakkl-
andi, sagði í símaviðtali við
Miami Herald, að hann hefði
fregnað það, eftir að gíslarnir
voru látnir lausir, að Khomeini
hefði ákveðið að sleppa þeim
ekki fyrr en eftir forsetakosn-
ingarnar, til að niðurlægja
Jimmy Carter, þáv. forseta.
vinnubúðir þar sem aðbúnaður
allur er mun verri. Síðustu tvo
mánuði hefur a.m.k. tíu mönn-
um verið refsað með þessum
hætti, að sögn andófsmannsins
Ivans Kovalyov, sem hefur sest
að í Vín eftir að hafa fengið
leyfi til að flytjast frá Sovétríkj-
unum.
Kovalyov sagði á fréttamanna-
fundi í Vínarborg að stjómvöld
eystra krefðust þess að andófs-
menn rituðu bréf til æðstaráðs
Sovétríkjanna og bæðust vægðar
áður en mál þeirra væru tekin
fyrir. Sagði hann að þeim rúmlega
100 andófsmönnum, sem sleppt
hefði verið úr haldi að undafömu,
hefði verið gert að undirrita slíkt
bænarslq'al. Kvað hann stjórnvöld
í vissum tilfellum hafa sætt sig
við skriflega yfírlýsingu andófs-
manna um að þeir myndu ekki
bijóta gildandi lög að nýju. Sagði
hann flesta andófsmenn ekki geta
samþykkt þetta þar eð þeir viður-
kenndu ekki brot sín. „Nokkrir
hafa þvertekið fyrir að undirrita
slíka yfírlýsingu og ráðamenn hafa
sagt að þessu fólki verði ekki
sleppt,“ sagði Kovalyov. „Sumir
þeirra hafa verið sendir í sérstakar
þrælkunarbúðir og við vitum ekk-
ert um örlög þeirra," bætti hannx
við.
Kovalyov er þekktur fyrir
mannréttindabaráttu sína. Hann
tók virkan þátt í starfsemi „Hels-
inki-samtakanna“ og var dæmdur
til fimm ára vistar í vinnubúðum
fyrir þær sakir. í september á
síðasta ári fékk hann leyfí til að
flytjast úr landi og kom hann til
Vínarborgar á þriðjudag ásamt
eiginkonu sinni.
Reuter
Kúabóndinn Martin Ott, sem náði kjöri fyrir flokk Græningja til borgarstjórnar ZUrich, að störfum á
búgarði sínum. Græningjar náðu óvenju góðum árangri í bæjar- og sveitarstjómarkosningum í Sviss
um helgina.
Græningjum eykst
stöðugt fylgi í Sviss
ZUrich, frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgiinblaðsins.
SVISSNESKIR Græningjar unnu kosningasigur í bæjar- og sveita-
stjórnarkosningum aðra helgina í röð á sunnudag. Græningjaflokkur-
inn hlaut þá 13,8% atkvæða í borgarstjórnarkosningum í Genf og
fékk 11 menn kjörna. Flokkurinn hlaut 6,3% atkvæða í síðustu kosn-
ingum en engan mann kjörinn. Stjómmálaflokkar verða að fá 7%
atkvæða til að fá fulltrúa kjörinn í borgarstjórn Genfar en 80 manns
eiga sæti i henni.
Græningjar í Zurich hlutu 10,4%
atkvæða í kosningum sem voru
haldnar fyrir rúmri viku og fengu
22 menn kjöma í stjóm kantónunn-
ar. Þeir áttu 4 fulltrúa í stjóminni
áður. Þeir em nú fjórði stærsti
flokkurinn í Zurich.
Græningjar unnu einnig vemlega
á í sveitastjómarkosningum sem
vom haldnar í Basel fyrr í vetur.
Þeir em sagðir njóta stuðnings óán-
ægðra kjósenda og taka fylgi frá
öllum flokkum en þó mest frá flokk-
unum fjómm sem sitja í ríkisstjóm
landsins; fijálslyndum, kristilegum,
sósíalistum og gamla bændaflokkn-
um. Fréttaskýrendur rekja vinsæld-
ir Græningja aðallega til háværrar
umhverfísumræðu um Chemobyl-
kjamorkuslysið, bmnann í vöm-
geymslu efnaverksmiðjunnar
Sandoz við Rínarfljót og áberandi
loftmengun yfir vetrarmánuðina.
Svisslendingar munu kjósa nýtt
þjóðþing í haust. Kosningaúrslit í
hinum ýmsu kantónum að undanf-
ömu vekja því sérstaka athygli.
Borgarlegu flokkamir í Genf töp-
uðu meirihluta í stjóm borgarinnar
en sósíalistar og öfgaflokkurinn
Vigilants til hægri töpuðu þó mestu
fylgi eða þremur sætum hvor.
Varnarmálaráðherra Indlands segir af sér:
Afsöguin alvarlegiir álits-
hnekkir fyrir Raiiv Gandhi
Ntáu Delhi. Reuter
Nýju Delhi, Reuter
FUNDUM í efri deild indverska
þingsins var frestað fyrirvara-
laust í dag, mánudag, þegar
stjórnarandstöðuleiðtogar
kröfðust þess að Rajiv Gandhi,
forsætisráðherra gæfi skýringu
á afsögn varnarmálaráðherra
landsins, Vishwanath Pratap
Hörð átök í
Afgansitan
Islamabad, Reuter.
SOVÉSKIR og afganskir hcr-
menn, studdir skriðdrekum og
orrustuflugvélum, börðust ný-
lega í sex daga samfleytt við
skæruliða í Baghlan-héraði fyrir
norðan Kabúl. Talsmaður skæru-
liða í Pakistan skýrði frá þessu
í gær og sagði, að 200 hermenn
kommúnista hefðu fallið í átök-
unum.
Að sögn skæmliða réðust Sovét-
mennirnir og afgönsku stjórnar-
hermennirnir á stöðvar þeirra í
bænum Baghlan 28. mars sl. og
hefði verið barist stansláust til 2.
apríls þegar skæruliðum tókst loks
að tjúfa umsátrið. Hefðu þá 200
hermenn kommúnista legið í valn-
um og 25 skriðdrekar og bryn-
varðar bifreiðar ónýtar. Talsmaður
Kabúlstjórnarinnar segir, að 35
skæmliðar hafi fallið og 29 verið
handteknir.
Baghlan-bær er í þjóðbraut milli
Kabúl og Sovétríkjanna, suður af
Kunduz-héraði, sem Sovétmenn
fóm um með eldi og brennisteini
fyrir nokkru til að hefna eldflauga-
árásar inn fyrir landamæri Sov-
étríkjanna.
Singh, en hann hefur verið mjög
eindreginn baráttumaður gegn
hvers konar spillingu i opinberu
lífi.
Vamarmálaráðherrann lagði
fram afsögn sína á sunnudag,
vegna ágreinings um rannsókn sem
hann var að gera á vopnasölumút-
um. Sérfræðingar segja, að afsögn
Singh geti orðið stjórn Gandhi álits-
hnekkir, meðal annars vegna þess
að Gandhi hafi lagt sig fram um
að telja löndum sínum trú um, að
hann væri andsnúinn hvers kyns
spillingu.
í yfirlýsingu Singh var lýst yfir
trausti með forystu Gandhis. Singh
sagði einnig, að hann myndi ekki
taka að sér að gegna neinu starfí
á vegum stjórnarinnar í nánustu
framtíð. Aleitinn orðrómur hafði
áður verið á kreiki þess efnis, að
Pratap Singh keppti að því að koma
Gandhi frá og ná forsætisráðherra-
embættinu til sín.
Singh sat þegjandi í þingsalnum
þegar stjórnarandstöðuþingmenn
gagnrýndu Gandhi og heimtuðu við-
hlítandi skýringar. „Við viljum að
Gandhi geri grein fyrir málinu.
Hvar er nú hinn hreini og óspillti?
Er hann kannski ekki jafn óspilltur
og hreinn og hann hefur viljað vera
láta?“ sagði Dipen Ghosh þingmað-
ur kommúnista. Hróp og köll
upphófust síðan í deildinni og
steyttu þingmenn hnefana og létu
Rajiv Gandhi og Vishwanath Pratap. Myndin var tekin s.l. laugar-
dag, um sólarhring áður en sá síðarnefndi baðst Iausnar.
ófriðlega.
Indverskir fjölmiðlar skrifuðu
mikið um afsögn ráðherrans í morg-
un, mánudag. Einn þingmaður
stjórnarandstöðunnar komst svo að
orði í viðtali að„ í stjóminni væri
greinilega ekkert pláss fyrir ærlega
menn.“ Blaðið Times of India, sem
er mjög áhrifamikið, sagði að hefði
Pratap Singh setið áfram í stjóm-
inni, hefði það haft alvarleg áhrif
á völd Gandhis. Vinir og stuðnings-
menn Gandhis hafa mjög lágt að
honum upp á síðkastið að láta vam-
armálaráðherrahn víkja, þar sem
hann væri að grafa undan völdum
forsætisráðherrans.
Stjórnmálafréttaritarar segja,
að hvað sem öllu líði muni þetta
geta orðið hið versta mál fyrir Rajiv
Gandhi, en hann lent í hveijum
vandanum af öðrum upp á síðkas-
tið. Má þar nefna ósigur Congress
I í tveimur fylkjum, þar sem Gand-
hi beitti sér óspart. Þá hafa komið
til deilur hans og forseta landsins
og vaxandi vantrú manna á stjórn-
unarhæfileika forsætisráðherrans.