Morgunblaðið - 14.04.1987, Blaðsíða 82

Morgunblaðið - 14.04.1987, Blaðsíða 82
rv*»y' \ 82 MÖRGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987 t Bróðir minn,. BENJAMÍN VIGFÚS ÓLAFSSON, Holtl, Borgarhreppi, Mýrarsýslu, lést í Sjúkrahúsi Akraness 3. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þakka innilega auðsýnda samúð. Sólveig Ólafsdóttir. t Litla dóttir okkar, GUÐRÚN INGA GEORGSDÓTTIR, lést á heimili okkar 5. apríl. Jarðarförin hefur farið fram. Georg Magnússon, Matthildur Sveinsdóttir og systkini. t Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, ÖNUNDUR H. PÁLSSON, Eyrarvegi 1, Flateyri, verður jarðsunginn frá Flateyrarkirkju miðvikudaginn 15. apríl kl. 14.00. Kristín Guðmundsdóttir, Áslaug Álfsdóttir, Páll S. Önundarson, Magnea Guðmundsdóttir, Úlfar Önundarson, Steinunn Einarsdóttir, Barði Önundarson, Elva Jóhannsdóttir og barnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR, Eskihlfð 10a, Reykjavfk, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 15. apríl kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á „gervinýra" Landspítal- ans. Berglind Andrésdóttir, Össur Kristinsson, Andrés Andrésson, Halldóra Bergþórsdóttir, Stefán Andrésson, Guðlaug Valgeirsdóttir og barnabörn. t Útför GUÐMUNDAR SVEINSSONAR, netagerðarmeistara, frá Góustöðum, fer fram frá ísafjarðarkirkju miðvikudaginn 15. apríl kl. 14.00. Bjarney Ólafsdóttir, Magni Guðmundsson, Svanhildur Þórðardóttir, Anna Lóa Guðmundsdóttir, Gunnlaugur Einarsson, Þórdís Guðmundsdóttir, Halldór Guðmundsson, Sveinn Guðmundsson, Bergljót Ása Haraldsdóttir, Anna S. Bjarnadóttir. t Útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR HALLDÓRU GUÐJÓNSDÓTTUR, Hólmgarði 27, fer fram miðvikudaginn 15. þ.m. kl. 15.00 frá Fossvogskirkju. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Hjartavernd. Kristján R. Þorvarðarson, Þórhildur Kristjánsdóttir, Eggert Bogason, Sigríður Kristjánsdóttir, Viðar Vilhjálmsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför móður okkar, MARGRÉTAR GUÐMUNDSDÓTTUR, sem andaðist 7. apríl, verður í dag, þriðjudag 14. april, kl. 10.30 frá Fossvogskapellu. Þorbjörg, Hólmfrfður, Margrét, Sigurður og Gunnar Jensbörn. Benjamín V. Ólafs- son - Minning Fæddur 28. október 1901 virðingu fyrir tungu þjóðarinnar og Dáinn 3. apríl 1987 Kveðja frá Þroskahjálp á Vesturlandi Benjamín V. Ólafsson, fyrrum bóndi í Holti í Borgarhreppi, lést í Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 3. apríl sl. Útför hans var gerð frá Fossvogskapellu föstudaginn 10. apríl. Fór hún fram í kyrrþey að ósk hins látna. Benjamín Vigfús Ólafsson var fæddur á Hróbjargarstöðum í Hnappadal 28. október 1901. For- eldrar hans voru hjónin Guðbjörg Benjamínsdóttir og Ólafur Vigfús- son, er lengst af bjuggu í Lækjar- koti í Borgarhreppi. Benjamín var bóndi að Lækjarkoti 1925—1938, en reisti þá nýbýlið Holt úr landi Lækjarkots og bjó þar til 1979, að hann, farinn að heilsu, flutti á Dval- arheimili aldraðra í Borgamesi og dvaldi þar til æviloka. Benjamín var alla tíð einhleypur og átti ekki af- komendur. Hið ytra var lífssaga hans hvorki stórbrotin né átakamikil en Benja- mín var hugsjónamaður, sem unni öllu sem íslenskt var og bar einlæga menningararfi. Hann lagði sitt af mörkum til þess að bæta og fegra þann skika sem lífið hafði falið honum til umsjár og bar í brjósti einlæga samúð með þeim, sem minna mega sín, og gerði sitt til þess að bæta kjör þeirra og aðstöðu með mörgu móti. Á árinu 1979 tilkynnti hann stjórn Þroskahjálpar á Vesturlandi, að hann hefði ákveðið að ánafna félaginu eftir sinn dag eignaijörð sína, Holt, með öllum gögnum og gæðum. Ekki þótti honum með því nóg að gert, því að 1982 færði hann félaginu gjafabréf fyrir íbúð- arhúsi jarðarinnar. Var það gert í minningu foreldra hans með þeirri ósk, að félagið hagnýtti eignina í þágu fatlaðra og þroskaheftra á Vesturlandi til sumardvalar. Til þess að tryggja enn betur, að gjöf- in næði tilgangi sínum sem fýrst afhenti hann félaginu álitlega fjár- upphæð, til breyta og bæta húsið, svo það hentaði sem best fyrir þessa starfsemi. Þessi höfðinglega gjöf gerði fé- laginu kleift að hefja rekstur sumardvalarheimilis fyrir fötluð t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN S. GÍSLASON múrari, Kleppsvegi 56, verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 14. apríl kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á líknarstofnanir. Laufey Bergmundsdóttir, Gísli S. Guðjónsson, Auður F. Jóhannesdóttir, Reynir S. Gíslason. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN ÞÓRÐARDÓTTIR, Túngötu 30, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 15. apríl kl. 13.30. Gunnar Eggertsson, Valdís Halldórsdóttir, Kristjana G. Eggertsdóttir, Magnús Ingimundarson, Aðalsteinn Eggertsson, Jónina S. Snorradóttir, Edda Ingibjörg Eggertsdóttir, Gfsli V. Einarsson, Guðrún Edda Gunnarsdóttir, Einar Sigurbjörnsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, HJÁLMTÝR BJARG HALLMUNDSSON, Ljósvallagötu 28, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 15. apríl kl. 10.30. Unnur Guðmundsdóttir, Guðmundur Ingi Hjálmtýsson, Gíslfna Rannveig Hallgrfmsd., Stefanía Halla Hjálmtýsdóttir, Þorkell Guðnason. t Hjartkær móðir okkar og tengdamóðir, INGIBJÖRG J. HALL, Sólheimum 23, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 15. apríl kl. 13.30. Sólrún Kjartansdóttir, Kormákur Kjartansson, Hólmfriður Friðsteinsdóttir. t Eiginkona min, JÓHANNA GUÐJÓNSDÓTTIR, Vfðihvammi 18, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlið, Kópavogi, 7. apríl verð- ur jarðsungin frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 15. apríl kl. 15.00. Jóhann Kr. Jónsson og fjöiskylda. böm í Holti og hefur nú verið haf- ist handa um viðbótarbyggingu, sem mun gera það mögulegt að fullnægja þörf fatlaðra barna á fé- lagssvæðinu í þessu efni. Jafnframt býður þessi eign upp á margvíslega aðra möguleika fyrir félagið á ókomnum árum. Bénjamín fylgdist af áhuga með því hvemig miðaði og rétti oftar en einu sinni félaginu örvandi hönd með flárframlagi. Fyrir þennan rausnarlega stuðning við málefni þeirra, sem minnst mega sín, þakk- ar félagið Þorskahjálp á Vestur- landi og félagar þess að leiðarlok- um. Um ókomin ár munu fatlaðir á Vesturlandi og aðstandendur þeirra blessa minningu Benjamíns V. Ólafssonar þakklátum huga. Guð gefi honum nú raun lofi betri. Kennarafélag Reykjavíkur: Óeðlilegt að Reykjavík skuli ekki tal- in fræðslu- umdæmi SVERRIR Hermannsson mennta- málaráðherra skipaði nefnd fyrir ári til að endurskoða nú- gildandi lög um grunnskóla. Nefndin hefur nú lokið störfum og lagt fram til kynningar frum- varp til laga um grunnskóla. Allmargar breytingar eru í frumvarpinu frá því sem er í grunnskólalögunum. Morgunblaðinu hefur borist eftir- farandi ályktun frá aðalfundi Kennarafélags Reykjavíkur vegna þessa frumvarps: 1. Fundurinn telur mjög óeðli- legt að í frumvarpinu skuli Reykjavík hafa þá sérstöðu að vera ekki talin fræðsluumdæmi og á þar með ekki að njóta fræðsluskrifstofu og fræðslustjóra' eins og önnur fræðsluumdæmi. 2. Fundurinn mótmælir breytt- um ákvæðum um kennararáð. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að heimilt sé að kjósa kennararáð við þá skóla sem 15 kennarar starfa við. Nú er skylt að kjósa kennara- ráð starfi 8 kennarar við skóla. Einnig telur fundurinn vafasamt að auka völd skólastjóra á kostnað kennararáða. 3. Fundurinn mótmælir harðlega að ákvæði um minnkaða kennslu- skyldu við 55 ára og 60 ára aldur verði felld niður. 4. Þó að fagna megi því að frum- varpið geri ráð fyrir lægra meðaltali í bekk (24), hörmum við þau undan- þáguákvæði sem leyfa að nemendur verði allt að 34 í einni bekkjardeild. 5. Við teljum það fagnaðarefni að í frumvarpinu er í fyrsta skipti gert ráð fyrir einsetningu að hluta við hönnun skólahúsnæðis. Þetta er spor í rétta átt, en betur má ef duga skal.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.