Morgunblaðið - 14.04.1987, Síða 16

Morgunblaðið - 14.04.1987, Síða 16
16 . MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987 Sjálfstæðisflokk- og listimar unnn eftír GeirH. Haarde Það hefur löngum verið svo, að vinstri menn á Islandi hafa talið sig eina hafa vit á listum og menning- armálum. Þeir hafa jafnframt reynt að láta líta svo út, að allir sannir listamenn væru vinstri menn og iðulega reynt að útskúfa eða niður- lægja þá úr röðum listamanna, sem hafa leyft sér að fylgja t.d. Sjálf- stæðisflokknum að málum. Eitthvert besta dæmið um til- raunir vinstra liðsins til þess að bæla þá niður andlega, sem þeim eru ekki að skapi, eru árásimar á þá listamenn, sem fyrir borgar- stjómarkosningamar í fyrra sýndu það sjálfstæði og hugrekki til að lýsa opinberlega yfir stuðningi við Davíð Oddsson borgarstjóra og borgarstjómarlista Sjálfstæðis- flokksins. Þetta framtak vakti aðdáun margra, en ekki stóð á ofsafengnum viðbrögðum Þjóðviljans og þess liðs, sem honum fylgir að málum, í garð viðkomandi listamanna. Þessi viðbrögð komu ekki á óvart. En það sem veldur undrun er það hversu kennisetning vinstri manna um velvilja þeirra í garð listamanna virðist lífseig, þótt vinstra liðið hörfí nú smám saman úr hveiju hræðsluvíginu í menning- armálum á fætur öðru. Auðvitað er það fjarstæða að upp renni sérstakt framfaraskeið fyrir listafólk í landinu, þegar Alþýðu- bandalagið og önnur vinstri öfl fara með völd. Reynslan er í þessu ólygn- ust og menn geta bæði kynnt sér tímabilið, þegar vinstri flokkamir fóru með völdin í borgarstjóm Reykjavíkur og þau ár, þegar Al- þýðubandalagið gegndi lykilhlut- verki í ríkisstjóm. Frá þessum tíma er fárra afreka að minnast á þessu sviði. Framkvæmdir við Borgarleik- húsið, sem nú er senn lokið, lágu t.d. að mestu niðri. Stórefling K vikmy ndasj óðs Mig langar til að minnast á nokk- ur atriði, sem horfa til hagsbóta fýrir listamenn og listunnendur, og náðst hafa fram á núverandi kjörtímabili, þegar Sjálfstæðis- flokkurinn hefur ráðið bæði ráðu- neytum menntamála og fjármála. Eitthvert stærsta málið á tímabil- inu er stórefling Kvikmyndasjóðs. Lögum um hann var breytt á árinu 1984 fyrir forgöngu Ragnhildar Helgadóttur, þáverandi mennta- málaráðherra, og við undirbúning fjárlaga þessa árs beittu þeir sér fyrir því, Þorsteinn Pálsson fjár- málaráðherra og Sverrir Her- mannsson menntamálaráðherra, að sjóðurinn fengi á árinu fullt framlag í samræmi við hin nýju lög, eða 55 milljónir króna. Þeir beittu sér einn- ig fyrir því að sjóðurinn og Kvikmyndasafn íslands hafa fengið viðunandi þak yfír höfuðið, en þess- ir aðilar fluttu fyrir skemmstu í húsnæði við Laugaveg í Reykjavík, sem hentar vel þessari merku starf- semi. Þar fékk Bandalag íslenzkra listamanna einnig aðstöðu sem og félög kvikmyndagerðarmanna og kvikmyndaframleiðenda. Á tímum þegar yfir landsmenn flæðir erlent myndmál í stórum stíl er besta vöm íslenzkrar tungu og menningar fólgin í því að sækja fram á þessum sama vettvangi og bjóða erlendri framleiðslu birginn með íslenzkri kvikmyndagerð. Ann- að er uppgjöf og ekki í samræmi við þá skyldu ráðamanna að standa vörð um tungu og sögu þjóðarinn- ar. Þetta hafa forystumenn Sjálf- stæðisflokksins skilið öðrum betur. Og verkin hafa verið látin tala í þessum efnum sem öðrum og með því sköpuð fjölmörg tækifæri fyrir innlenda kvikmyndagerðarmenn, leikara og aðra, sem þessari list- grein tengjast. Á kjörtímabilinu hefur einnig fengist lausn á húsnæðisvanda Leiklistarskóla íslands, sem nú er kominn í varanlegt húsnæði eftir að hafa verið á hrakhólum um ára- bil. íbúð fýrir íslenzka listamenn í París er sömuleiðis orðin að veru- leika. Bættir möguleikar myndlistar- og tónlistarmanna Annað nýlegt mál, sem sjálfstæð- ismenn hafa knúið fram, snertir hagsmuni listmálara. Þeir hafa árum saman barist fyrir því, að tollar á litum til listmálunar lækki verulega. Þessi barátta bar ekki árangur fyrr en nú í vor, þegar fjár- málaráðherra beitti sér fyrir lagabreytingu þar sem þessu var hrundið í framkvæmd. Tollar á list- málaralitum voru lækkaðir mjög verulega um leið og breytingar voru gerðar á tollum á ýmsum öðrum smávörum. Það fór ekki mikið fyrir Geir H. Haarde „ Auðvitað er það fjar- stæða að upp renni sérstakt framfaraskeið fyrir listafólk í landinu, þegar Alþýðubandalag- ið og önnur vinstri öfl fara með völd. Reynsl- an er í þessu ólygnust og menn geta bæði kynnt sér tímabilið, þegar vinstri flokkarn- ir f óru með völdin í borgarstjórn Reykja- víkur og þau ár, þegar Alþýðubandalagið gegndi lykilhlutverki í ríkisstjórn.“ þessari breytingu, en hún skiptir þeim mun meira máli fyrir íslenzka listmálara og gerbreytir raunar starfsaðstöðu þeirra. Og það þurfti Sjálfstæðisflokkinn til að koma þessu gamla baráttumáli í höfn. Breyting á lögum um uppboð, þar sem söluskattur á listaverkum er felldur niður en upp tekið 10% gjald til eigenda höfundarréttar er annað dæmi um hagsmunamál listamanna, sem nýlega náði fram að ganga. í tengslum við áðurnefndar tolla- breytingar var tollur á hljómplötum og hljómböndum einnig lækkaður nokkuð. Sú breyting kemur tónlist- arfólki óbeint til góða, því hún gerir fleirum kleift að njóta tónlistar. Veruleg breyting varð hins vegar á möguleikum innlendra hljómplötu- útgefenda og popptónlistarmanna snemma á kjörtímabilinu, þegar fjármálaráðuneytið felldi niður vörugjald af hljómplötum. Er ekki vafí á því að sú breyting hleypti nýju lífi í innlenda hljómplötuútgáfu og starfsemi þeirra listamanna sem að henni standa. Afram verði haldið á sömu braut Þannig mætti lengi halda áfram að telja upp ýmis hagsmunamál listamanna og listunnenda, sem tekist hefur að þoka fram á við á undanförnum árum undir forystu Sjálfstæðisflokksins. Öll eru þessi mál til þess fallin að skjóta sterk- ari stoðum undir það menningar- samfélag sem gerir íslendinga að sjálfstæðri þjóð. Margt er þó enn ógert. Til dæm- is þarf að treysta stöðu óperustarf- semi á íslandi og hlúa að því einkaframtaki, sem þar hefur hasl- að sér völl við erfiðar aðstæður. Því máli tengist einnig atvinnu- öryggi óperusöngvara, sem búa jafnan við mikla óvissu um verkefni og afkomu. Endurskoðun laga um lista- mannalaun mun langt komin á vegum menntamálaráðuneytisins. í því efni er nauðsynlegt að tryggt verði að launa- og styrkjakerfi lista- manna verði þannig úr garði gert, að það fé sem til þess er varið nýt- ist sem best og verði raunveruleg Hvað er að gerast á mynd- bandamarkaðinum? eftír Friðbert Pálsson Nýlega birtist í Morgunblaðinu grein undir yfirskriftinni „Ólög- mætir viðskiptahættir á íslenskum myndbandamarkaði". Eftir lestur þeirrar greinar kemur í ljós að höfundur getur ekki sett fram nema eina setningu sem ekki er annaðhvort útúrsnúningur, lygi eða beinn atvinnurógur. Það er setningin „Tímabili ævintýra- mennsku og uppgripa er lokið og nýtt tímabil gengið í garð“. Höfundurinn, Magnús Ólafsson, sem er nýráðinn til Samtaka íslenskra myndbandaleiga, ætlar greinilega að taka sjálfan sig alvar- lega, þeysast fram á ritvöllinn með þessum aðferðum, en á sama tíma sendir hann undirrituðum bréf í nafni samtak sinna og óskar eftir samvinnu, því svona geti þetta ekki gengið. Sannleikurinn er sagna bestur í grein hans er aðaláherslan lögð á að lýsa hversu siðlausar starfsað- ferðir undirritaðs, f.h. Háskólabíós ásamt forstjóra Laugarásbíós, eru. Eins og áður segir er grein þessi uppfull af lygum, útúrsnúningum og beinum atvinnurógi. Sé ég mig til þess knúinn að rita nokkur orð. Ég mun ekki svara þeim atríðum þar sem veist er að mér persónu- lega eða mínu fyrirtæki. Þau atriði eru einfaldlega ekki svaraverð. Hins vegar mun ég reyna að leiðrétta aðrar rangfærslur og í lokin ræða almennt um myndbandamarkaðinn. Háskólabíó er ekki ríkisfyrir- tæki. Háskólabíó er sjálfseignar- stofnun í eigu Sáttmálasjóðs, sem er í vörslu Háskóla íslands. Há- skólabíó greiðir alla skatta og skyldur af starfsemi sinni til jafns við önnur fyrirtæki í sömu atvinnu- grein. Sömu sögu er að segja af Laugarásbíói, sem er eign Sjó- mannadagsins í Reykjavík og Hafnarfirði. Myndbandaleiga kvikmyndahús- anna er hlutafélag, sem rekið er á sama hátt og hvert annað hlutafé- lag á íslandi. Fjórar leigur eru reknar í nafni MK í Reykjavík, þar af 2 í eigu hennar. Niðurstöður Magnúsar Ólafssonar, áðumefnds greinarhöfunds, eru þær að hér sé um að ræða fordæmi fyrir ólögmæt- um viðskiptaháttum, einokun og hringamyndun. Þetta er athyglis- verð fullyrðing þegar haft er í huga að í Reykjavík eru skráðar um 70—80 myndbandaleigur. (Heimild: Skattstofan í Reykjavík.) Rógsherferöir oghefnigirni Of oft hefur forysta Samtaka myndbandaleiga ekki haft áhuga á að upplýsa sína félagsmenn um staðreyndir og það sem raunveru- lega er að gerast — því miður. Stundum hafa ástæðumar verið vegna einkahagsmuna og stundum beinlínis af hefnigimi. Þeir sem hafa verið í forsvari fyrir Samtök rétthafa myndbanda hafa oft og tíðum fengið að fínna fyrir því. Mynduð hafa verið bandalög um að versla ekki myndbönd af tiltekn- um aðilum í þeirri von að viðkom- andi breyti afstöðu sinni í málum sem snerta Samtök myndbanda- leiga. Rógsherferðir hafa verið famar bæði í fjölmiðlum og víðar. Hver skyldi hinn eiginlegi til- gangur vera með slíkum vinnu- brögðum? Væri ekki eðlilegra að verja kröftum sínum í eitthvað upp- byggilegra og þá um leið eitthvað sem væri líklegra til að auka al- menningsálitið á þessari atvinnu- grein? Aukín samkeppni viö sjónvarp Með tilkomu nýrra starfsmanna hjá Samtökum myndbandaleiga hefði mátt búast við breyttum vinnubrögðum, en því miður virðast leiðbeinendur þessara nýju starfs- manna hafa sömu sjónarmið uppi og ég var að nefna. Tel ég því rétt að benda á þau atriði sem mestu máli skipta varð- andi þá erfíðleika sem myndbanda- markaðurinn er í. Stöð 2 tók til starfa seinni hluta ársins 1986. Þá strax varð vart við verulegan samdrátt í útleigu á myndböndum. Nokkrir aðilar líktu þessari þróun við það þegar sjón- varpið tók til starfa og aðsókn að kvikmyndahúsum dróst verulega saman. Helstu myndir Stöðvar 2 voru þær sömu og höfðu verið vin- sælastar á myndbandamarkaðinum fyrir einu og hálfu til tveimur árum. Eins og við mátti búast lagaðist þetta ástand nokkuð þegar Stöð 2 hóf að trufla útsendingar á kvik- myndum. Samfara tilkomu Stöðvar 2 batn- aði dagskrá ríkissjónvarpsins verulega. Það er ljóst að ef fólk hefur möguleika á að horfa á góðar *P Friðbert Pálsson „Til að mæta þessum breyttu markaðsástæð- um tel ég að aðilar myndbandamarkaðar- ins eigi að snúa bökum saman og veita þessum keppinautum sínum verðuga samkeppni. Að slá um sig með lygum og rógi er ekki vænlegt til árangurs.“ myndir í sjónvarpinu leigir það mun minna af myndbÖndum. Eftir áramót var svo gert sér- stakt átak í að auglýsa upp Stöð 2. Afruglarar sem takmarkað hafði verið til af og menn urðu að skrifa sig á biðlista fyrir eru nú til á lag- er og íjölbýlishúsakerfi taka upp áskrift við Stöð 2. Þannig eru nú um 15.000—16.000 áskrifendur að Stöð 2 og fer þeim ört fjölgandi. Það er ljóst að heimili, sem eru með myndbandstæki og gerast áskrifendur að Stöð 2, draga veru- lega úr notkun á myndböndum, a.m.k. fyrst í stað. Lögregluaðgerðir í desember 1986 í desember 1986 voru um 15.000 myndbönd tekin úr umferð af lög- reglunni á Stór-Reykjavíkursvæð- inu, vegna meints gruns um brot gegn höfundarrétti. Nemur end- urnýjunarverð þessara mynda um 58.000.000 kr. Vissulega koma slíkar aðgerðir til með að hafa veru- leg áhrif á fjármál þeirra sem þessar myndir voru teknar frá. Þessir þættir ásamt minna fram- boði mynda á myndbandaleigum eru meginástæður lítillar veltu myndbandaleiga undanfama 2—3 mánuði. Niðurlag Til að mæta þessum breyttu markaðsástæðum tel ég að aðilar myndbandamarkaðarins eigi að snúa bökum saman og veita þessum keppinautum sínum verðuga sam- keppni. Að slá um sig með lygum og rógi er ekki vænlegt til árangurs. Nauðsynlegt er að allir aðilar myndbandamarkaðins sameinist um að fylgja lögum um viðskipta- hætti og höfundarrétt. Því miður eru enn aðilar innan hóps mynd- bandaleigumanna sem telja sér hag í því að fara ekki að lögum. Þetta setur svartan blett á mikinn meiri- hluta þeirra sem starfa við mynd- bandaleigu. Það er brýnt að þessir menn láti af slíkum vinnubrögðum. „Tímabil ævintýramennsku og uppgripa er nú endanlega lokið og nýtt timabil gengið í garð.“ Höfundur er framkvæmdastjóri Háskólabíós og stjórnarformaður Samtaka rétthafa myndbanda & íslandi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.