Morgunblaðið - 14.04.1987, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987
19
Um hvað er valið?
eftir Sigurð
Ragnarsson
Kosningar til alþingis marka
jafnan tímamót. Ástæðan er ein-
föld, því þá tína allir stjómmála-
flokkamir það til sem þeir hafa af
að státa og til þess að fólkið í land-
inu fái metið þau verk sem gjörð
hafa verið. Kosningaárið nú er eng-
in undantekning nema ef vera
skyldi vegna þess hversu mikil festa
og jafnvægi ríkir nú í efnahags-
og þjóðarmálum. Við getum ekki
neitað því að það var ófagurt ástand
sem ríkti fyrir kosningarnar vorið
1983. Verðbólgan var 130%, algert
ábyrgðarleysi virtist einkenna
stjómarmynstrið sem þá var, enda
varð hún ekki langlíf. Reyndar hef-
ur það einkennt vinstra stjómar-
mynstur, að það reynist sjaldan
langlíft, enda em sí og æ ýmis inn-
byrðisátök sem þessir flokkar
virðast eiga við að glíma og taka
fram yfir það að stjóma landinu.
Afleiðingamar hafa ávallt verið þær
að algert glundroða- og stjómleys-
isástand hefur ríkt með þeim afleið-
ingum sem við öll vitum. Þetta
getur varla verið það sem við þjóð-
félagsþegnar þurfum á að halda nú,
enda gerðu kjósendur sér það ljóst
’83 og veittu Sjálfstæðisflokknum
það kjörfylgi sem þurfti, til að
mynda ríkisstjóm. Enda lét árang-
urinn ekki á sér standa, og var
reyndar ótrúlegt hversu fljótt hann
komst til skila miðað við_ það reyði-
leysisástand sem ríkti. Ég ætla að
nefna nokkur dæmi:
☆ í efnahagsmálum: Verðbólg-
unni náði hann niður úr 130% niður
í 10—12%. Erlend skuldasöfnun
hefur hjaðnað en þó er megin mun-
ur á frá vinstristjórn, að erlendu
lánin hafa verið notuð í arðbærar
fjárfestingar en ekki í beinan rekst-
ur þjóðarbúsins.
☆ I húsnæðismálum: Ungt fólk í
dag á mun betri og meiri möguleika
á að eignast sitt eigið húsnæði með
endurskoðun og bótum sem Sjálf-
stæðisflokkurinn lét gera á hús-
næðislánakerfinu.
☆ í útvarpsmálum: Margir líta á
aukið ftjáisræði í útvarps- og sjón-
varpsmálum sem sjálfsagðan hlut,
en það þurfti Sjálfstæðisflokkinn
til. Framsókn var að sjálfsögðu á
móti þessu.
☆ í bílamálum: Tollar í bílum
voru lækkaðir til þess að sem flest-
ir geti eignast nýlegan bíl. Enda
hefur raunin orðið sú.
☆ í skattamálum: Staðgreiðslu-
kerfi skatta sem flestir stjómarand-
stæðingar töldu ómögulegt, er að
verða að veruleika.
Margt er ótalið s.s. greiðslukortin
sem öllum finnst sjálfsagður hlutur
í dag en það þurfti Sjálfstæðis-
flokkinn til, fæðingarorlof, flugstöð
og fleira og fleira.
Á þessu sést að margt hefur
áunnist og margt er eflaust eftir.
En við höfum verið á réttri leið og
af henni megum við ekki villast,
nema við viljum tapa því sem áunn-
ist hefur með ringulreið og óstjórn
vinstri „aflanna". Við megum því
Wterkurog
k.7 hagkvæmur
auglýsingamióill!
alls ekki líta á það sem sjálfsagðan
hlut að Sjálfstæðisflokkurinn verði
áfram við völd, valið er okkar kjós-
enda, en viljum við halda áfram á
réttri leið, verðum við að sameinast
um hið eina sanna afl og veita því
gott kjörfylgi.
Sennilega hefur aldrei ríkt eins
mikill flokksglundroði og nú er, og
er nýjasta dæmið Borgaraflokkur-
inn sem sprottinn er upp úr
óánægðum sjálfstæðismönnum sem
annað hvort eru grunaðir skattsvik-
arar eða hafa ekki komist á
framboðslista með lýðræðislegu
prófkjöri. Margt af þessu fólki hef-
ur aldrei nálægt stjómmálum komið
og þar af leiðandi óreynt á því
sviði. Nú reynir einmitt á krafta
reyndra og duglegra stjómmála-
manna til að viðhalda þeim árangri
sem náðst hefur, honum megum
við ekki glata með tímabundinni
tilfinningaumhyggju fyrir Albert
Guðmundssyni. Enn ein ringulreið
vinstristjómar er varla það sem
okkur vantar. Því er lítið annað
hægt, en að sameinast um sterkt
afl, Sjálfstæðisflokkinn sem sýnt
hefur það og sannað, að þar ríkir
ákveðni og festa við þau mál sem
hann tekur sér fyrir hendur.
Á þessu sést að margt hefur
áunnist og margt er eflaust eftir.
En við höfum verið á réttri leið og
af henni megum við ekki villast,
Sigurður Ragnarsson
nema við viljum tapa því sem áunn-
ist hefur með ringulreið og óstjóm
vinstri „aflanna".
„Sennilega hefur aldrei
ríkt eins mikill flokks-
glundroði og nú er, og
er nýjasta dæmið Borg-
araf lokkurinn sem
sprottinn er upp úr
óánægðum sjálfstæðis-
mönnum sem annað
hvort eru grunaðir
skattsvikarar eða hafa
ekki komist á fram-
boðslista með lýðræðis-
legu prófkjöri.“
Höfundur er nemi við Flensborg-
arskólann í Hafnarfirði.
Persónuleg umöiinun með Lactacyd..!
Lactacyd léttsápan eflir náttúrulegar varnir húðarinnar og
kemur í veg fyrir kláða og óþægindi sem myndast oft
við kynfæri, endaþarm og undir brjóstum.
Lágt pH-gildi
Lactacyd léttsápan inniheldur m.a. mjólkursýru sem á þátt í
lágu pH-gildi sápunnar, sem er 3,5. Lágt pH-gildið við-
heldur súrum eiginleikum húðarinnar sem eru náttúruleg
vörn hennar gegn sýklum og sveppum. „Venjuleg sápa“ er
lútarkennd (basísk) og brýtur þessar náttúrulegu varnir niður.
Lactacyd er fljótandi sápa með eða án ilmefna í 350 ml plast-
flöskum með spraututappa. Allar upplýsingar á íslensku.
Lactacyd léttsápan fæst í Fjarðarkaupum, Glæsibæ, Hag-
kaupum og Miklagarði. Og að sjálfsögðu í næsta apóteki.
Lágt pH-gildi 3,5
Sýrueiginleikar
Hlutlaust
---------------14
Hátt pH-gildi
Lútareiginleikar
Lútarleifar — Kláði
Það er mikilvægt að viðkvæmum stöðum líkamans sé haldið
hreinum. „Venjulegur sápuþvottur“ er varasamur því að leif-
ar af lút verða gjarnan eftir og valda kláða á viðkvæmum
stöðum s.s. við kynfæri og endaþarm. Lágt pH-gildi
Lactacyd léttsápunnat kemur í veg fyrir slíkan kláða.
MUNDU! Húðin heldur uþpi sínum eigin vörnum
gegn sýklum og sveþþum. Ef við notum ranga sápu
eyðum við þessum vörnuni.
360 m*
,,, | Anitmefna
11" sS ^ctacyo
F|k>Iandl sáp8
Hristisi