Morgunblaðið - 14.04.1987, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987
Prestsembættið og
prestkosmngamar
eftir Torfa K. Stef-
ánsson Hjaltalín
í viðtali í Morgunblaðinu þann
24.3. sl. gerði séra Geir Waage,
formaður Prestafélags íslands,
grein fyrir sínum persónulegu skoð-
unum varðandi hin nýju prestkosn-
ingalög. Gleði hans yfir nýju
lögunum virtist eitthvað takmörk-
uð, þótt hann viðurkenndi að
breytingin frá gömlu lögunum væri
að nokkru leyti til bóta. Það virðist
sem séra Geir vilji ganga veginn
allt til enda, þ.e. að taka af réttindi
safnaðanna til að velja sinn prest
og færa það vald til biskups, eða
með orðum Geirs, að tryggja bein
áhrif biskups á „val prests í hveiju
tilviki".
Séra Geir heldur þvi fram að
prestkosningar séu fráleit aðferð til
að „kalla“ prest, hvortheldur litið
sé á gamla fyrirkomulag prestkosn-
inga eða nýju lögin. Hann styður
þessa staðhæfingu sína með því að
fullyrða, að því sem maður fær
best skilið, að sú aðferð að söfnuð-
urinn kalli prest sé „ósamrýman-
leg allri kirkjulegri hefð, enda
ósamrýmanleg eðli þess postul-
Iega embættis sem presturinn
gegnir“.
Hér er ástæða til að staldra
við ekki síst vegna þess að hér
talar maður með kennimannleg-
um myndugleika um málefni sem
almenningur á ekki auðvelt að
setja sig inní. Það hefur komið
fram í fjölmiðlum, að fólk er
ekki á eitt sátt um afnám prest-
kosninga, hvað þá sammála um
að taka köllunarvaldið alfarið
frá söfnuðunum. Réttur til að
kjósa prest er af mörgum talinn
vera hluti af lýðræðislegum rétt-
indum þjóðarinnar og nauðsyn-
legur til þess að sporna gegn því
að klíkuskapur ráði ferðinni við
val prests á hveijum stað. Þeir
hinir sömu benda á að ennþá er
evangelísk-lútherska kirkjan á
íslandi þjóðkirkja en ekki emb-
ættiskirkja og því séu það sjálf-
sögð réttindi safnaðanna að fá
að kjósa sinn prest. Inná þessi
mál verður ekki farið hér, heldur
einungis reynt að kasta ljósi á
það, hvort fullyrðing séra Geirs
sé rétt túlkun á kenningunni og
hinni kirkjulegu hefð. Með orð-
unum kirkjuleg hefð er gert ráð
fyrir að átt sé við hefð vorrar
lúthersku kirkju, eins og hún
birtist í játningum hennar og
túlkun á játningunum.
Það eru einkum tvö hugtök
hjá séra Geir sem vekja spurn-
inguna um hina réttu túlkun, þ.e.
köllunarhugtakið og hugtakið
postullegt embætti. Við skulum
byrja á því fyrmefnda.
í Ágsborgaijátningunni, sem
er höfuðviðmiðun kenningar
kirkju vorrar, er að finna ör-
stutta setningu um að enginn án
tilhlýðilegrar köllunar fái að
sinna hinu kirkjulega embætti,
prestsembættinu (14. grein). Með
orðunum „tilhlýðileg köllun“ er
átt við, að aðeins köllun frá söfn-
uði sé nauðsynleg prestsembætt-
inu. Þetta var mikilvægt fyrir
siðbótina vegna uppreisnar hennar
gegn hinu andlega valdi þess tíma,
Stefna Borgaraflokks-
ins í varnarmálum
eftirJúIíus Sólnes
Tilraunir Morgunblaðsins til þess
að gera stefnu Borgaraflokksins í
vamarmálum tortryggilega virka
hjákátlegar. Reynt er að telja fólki
trú um, að Borgaraflokkurinn vilji
kljúfa samstöðu lýðræðisflokkanna
í vamarmálum og koma vamarlið-
inu á Keflavíkurflugvelli burt, nema
það greiði hátt lausnargjald. Enn
fremur er hamrað á því, að öryggis-
hagsmunir íslendinga séu bomir
fyrir borð af fulltrúum Borgara-
flokksins.
Það þýðir líklega ekki að benda
Morgunblaðsmönnum á að lesa
stefnuskrá Borgaraflokksins betur.
Þeir munu aðeins vilja lesa það út
úr henni, er leitt gæti til þeirrar
túlkunar blaðsins, sem talað er um
að ofan. Stefnuskráin er hins vegar
afar skýr og einföld hvað vamar-
og öryggismál íslendinga áhrærir.
Skal ég reyna að skýra hana út
fyrir Morgunblaðsmönnum.
1. grein. ísland er aðili að vamar-
bandalagi vestrænna þjóða
(NATO).
Ekkert okkar í Borgaraflokknum
hefur í hyggju að breyta þessari
staðreynd meðan núverandi ástand
ríkir í alþjóðamálum.
2. grein. Eðlilegt er, að vamar-
samningurinn við Bandaríkin verði
endurskoðaður reglulega.
Þegar vamarsamningurinn var
gerður fyrir tæplega 40 árum voru
þjóðfélagsaðstaeður allt aðrar á ís-
landi en þær eru í dag. Þekking
íslendinga á öiyggismálum og
geysilegar framfarir á sviði tækni,
verzlunar og viðskipta á þessum
tíma eru með óiíkindum. Ég held,
að það geri ekkert til, þótt Banda-
ríkjunum sé gerð betri grein fyrir
þessu. Eins er fullkomlega eðlilegt
og sjálfsagt að leita eftir endurskoð-
un á vamarsamningnum með tilliti
til þessa. Til dæmis væri ekki óeðli-
legt, að íslendingar tækju að sér
ýmis sérhæfð störf, tæknilegs eðlis,
í sambandi við eftirlits- og öryggis-
gæzlukerfi vamarliðsins, í ríkara
mæli en nú gerist.
3. grein. Lögð verði ríkari áherzla
á almannavamir og öryggismál ís-
lendinga sjálfra í þessu samstarfi.
Stundum þykir mér, að of mikil
áherzla sé lögð á að veija landsvæð-
ið ísland, en minni áherzla lögð á
Júlíus Sólnes
„Stundum þykir mér,
að of mikil áherzla sé
lögð á að verja land-
svæðið Island, en minni
áherzla lögð á að veija
fólkið, sem hér býr.“
að veija fólkið, sem hér býr. Borg-
araflokkurinn vill auka almanna-
vamir og fá stjóm NATO til að
sinna þeim málum með okkur betur
en hingað til hefur verið gert. Huga
þarf að því hvemig hægt sé að
tryggja betur öryggi fólksins ef til
hemaðarátaka kæmi við eða á ís-
landi.
4. grein. Allt verði gert til að
létta á íslandi sem átakasvæði á
stríðs- og hættutímum, svo sem
með því að koma upp öflugri eftir-
litsstöð á Jan Mayen.
Hafsvæðið milli Noregs og Græn-
lands, með ísland í miðjunni, verður
eitt mikilvægasta hemaðar- og
átakasvæði heimsins ef til styijald-
ar kæmi milli Vesturveldanna og
Sovétmanna. Þessu er lýst á mjög
áhrifamikinn hátt í bók Tom Clanc-
y’s „Rauður stormur í aðsigi". Til
þess að treysta betur vamir ís-
lands, ef til slíkra átaka skyldi
koma, er nauðsynlegt að koma upp
forvamar- og eftirlitsstöð fyrir
norðan ísland. Borgaraflokkurinn
vill, að þetta mál verði kannað í
samráði við Norðmenn, og tekið til
umræðu í æðstu yfirstjóm NATO.
5. grein. Stuðlað verði að eðlileg-
um viðskiptum vamarliðsins við
íslendinga, til dæmis með því, að
það kaupi framleiðsluvörur af ís-
Iendingum.
Undirlægjuháttur gagnvart
Bandaríkjamönnum og sú afstaða,
að við séum einhveijir annars flokks
menn í samanburði við þá, hefur
því miður verið alltof ríkjandi með-
al margra ráðamanna. Bandaríkja-
menn eru yfirleitt mjög heiðvirðir
og traustir í öllum viðskiptum. Þeir
skilja manna bezt, þegar jafningjar
hittast og gera með sér viðskipti,
þar sem hallar á hvorugan. Við telj-
um fullkomlega eðlilegt að ræða
við Bandaríkjamenn um ýmis mál,
er snerta viðskipti vamarliðsins og
íslendinga. Til dæmis, að það kaupi
allar helztu rekstrarvörur sínar af
íslendingum. Þar á ég m.a. við
hreinlætisvörur, matvörur, bygg-
ingarvörur og margt fleira. Slíkt
gæti farið fram með útboðum til
innlendra fyrirtækja. Það má benda
á, að nú er farið að selja íslenzkt
kjöt til vamarliðsins og sjóflutning-
ar á vegum þess em aftur komnir
að mestu leyti í hendur íslendinga.
Þessa jákvæðu þróun má rekja til
afskipta Alberts Guðmundssonar
sem fjármálaráðherra af viðskiptum
okkar við vamarliðið.
Enn fremur virðist eðlilegt, að
betur sé hugað að því, að öll mann-
virkjagerð fylgi íslenzkum kröfum
og stöðlum í samræmi við íslenzkar
aðstæður. íslenzkir tæknimenn taki
virkari þátt í hönnun og undirbún-
ingi allra mannvirkja á vegum
vamarliðsins og NATO. Sú stað-
hæfíng, að bandarísk tækniþekk-
ing, staðlar og kröfur séu svo miklu
meiri en hjá íslendingum á ekki
lengur við.
6. grein. Sjálfsagt er að taka
þátt í öllum umræðum um afvopn-
unarmál, er leitt geta til varanlegs
friðar og eyðingar kjamorkuvopna.
Ef einhver er á móti þessu, þá
geri hann svo vel og rétti upp hönd.
Höfundur er efsti maðurá lista
Borgaraflokksins í Reykjanes-
kiördæmi.
Torfi K. Stefánsson Hjaltalín
„Prestsstarfið er fyrst
og fremst þjónustu-
starf, en þó í víðari
merkingu en aðeins
þeirri að þjóna söfnuð-
inum. Prestsins skylda
er fyrst og fremst að
þjóna f aguaðarerind-
inu. Þó er mikilvægt að
leggja áherslu á að boð-
un orðsins og þjónusta
við söfnuð myndar
órjúfanlega heild í hinu
kirkjuiega embætti
prestsins.“
sem neitaði að vígja mótmælendur.
Foringi siðbótarinnar, Martin Lut-
her, bendir á í riti sínu Til hins
kristna aðals, að biskup sé einungis
fulltrúi safnaðanna er hann velur
einn af söfnuðinum til að fara með
það vald sem allur söfnuðurinn hef-
ur. Luther útskýrir þetta svo (í
lauslegri þýðingu): „Segjum svo að
fámennur hópur frómra kristinna
leikmanna verði handtekinn og ein-
angraður fjarri mannabyggðum án
þess að hafa nokkum prestvígðan
mann í hópnum. Segjum svo að þau
komi sér saman um að velja einn
úr hópnum til að sjá um prests-
verk. í slíku tilviki væri sá hinn
sami sannarlega jafnmikill prestur
og í því tilviki að allir biskupar og
páfar veraldar hefðu vígt hann.“
Þetta vald, sem Luther talar um,
er öllum skírðum gefíð, vald hins
almenna prestdóms allra skírðra.
Köllunarhugtak siðbótarinnar er
þannig fyrst og fremst túlkað
sem köllun safnaðarins eftir
presti til þjónustu. Þetta er sú
kirkjulega hefð sem er sterkust í
vorri kirkju og því em hvorki gamla
prestkosningafyrirkomulagið né
nýju lögin „fráleit aðferð til að kalla
prest“, né „ósamrýmanleg allri
kirkjulegri hefð“. Nýju lögin halda
ennþá við siðbótarhefðinni vegna
þess að það er ennþá söfnuður leik-
manna sem velur prest en ekki hið
andlega yfirvald. Þetta er einmitt
styrkur nýju laganna en ekki galli,
eins og séra Geir virðist halda.
Séra Geir notar einnig síðar-
nefnda hugtakið, postullegt prests-
embætti, í þrengri merkingu en
Morgunblaðið/ÓI.K.M.
Flemming Bach Rasmussen, sölumaður hjá Shipmate og Ogmundur
Friðriksson stjórnandi Friðriks. A. Jónssonar hf.
Shipmate:
Rúmlega hundr-
að ferilskjáir
seldir á Islandi
„VIÐ höfum þegar selt rúmlega 100 ferilslgái (plottera) á íslandi
eftir að Friðrik A. Jónsson hóf umboðssölu fyrir okkur fyrir um
tveimur árum. Alls höfum við selt um 2.000 ferilskjái i Evrópu, en
seljum einnig ýmis önnur fiskileitar-, fjarskipta- og siglingatæki.
ísland er okkur mikilvægur markaður og við leggjum því mikla
áherzlu á sölu tækja okkar hingað og kynningu þeirra," sagði Flemm-
ing Bach Rasmussen, sölustjóri hjá danska fyrirtækinu Shipmate, í
samtali við Morgunblaðið.
„Við bjóðum núna upp á ferilskjá
sem nothæfur er í öllum skipa
stærðum. í þessum tækjum er 8.000
punkta minni og viðbótarbúnaður,
sem flýtir verulega fyrir afspilum á
myndböndunum er einnig fáanleg-
ur. Með honum er hægt að kalla
fram umbeðnar upplýsingar á að-
eins rúmlega tveimur mínútum.
Þessi búnaður verður fyrst reyndur
í_ íslenzkum skipum í togaranum
Ólafi Jónssyni frá Sandgerði. Inn í
þennan búnað geta menn svo sett
allar staðsetningar sínar og sigl-
ingaleiðir, tekið það upp á kassett-
ur, sem sett eru í tækið, þegar á
þarf að halda. Þá getum við boðið
upp á sérstök bönd með höfnum
og veiðisvæðum. Búnaðurinn teng-
ist stjómtækjum skipsins, þannig
að fyrst setja menn stefnuna og
aðra punkta inn og tengja síðan
sjálfstýringuna við hann. Skipið
siglir þá eftir leiðinni, sem merkt
er inn.
Ferilskjárinn tengist núna ýms-
um staðarákvörðunarkerfum, sem
alls eru fjögur, meðal annarra Lor-
an-C og Decca. í uppbyggingu er
nýtt kerfi, GPS (Global Positioning
System), sem mun leysa eldri kerf-
in af hólmi. Þetta kerfí er að hluta
til þegar komið i notkun, en einfald-
ur búnaður frá okkur gerir mönnum
kleift að tengja við GPS-kerfíð,
þegar þar að kemur. Þeir þurfa því
ekki að skipta um grunnbúnað.
Shipmate selur einnig ýmsan
annan búnað fyrir stjóm fískiskipa
og fjarskipti. Þar má nefna móttak-
ara fyrir veðurkort, sem einnig má
tengja við siglingatæki og staðsetn-
ingarkerfi og flytur þá tækið
móttökuna sjálfkrafa milli svæða,"
sagði Flemming Bach Rasmussen.