Morgunblaðið - 14.04.1987, Side 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987
Ferðaskrifstofa rík-
isins verður seld
eftir Guðmund
Jónsson
í þingbyrjun 1984 var lögð fram
á Alþingi tillaga til þingsályktunar
um að leggja niður starfsemi Ferða-
skrifstofu ríkisins. Flutningsmaður
var var Stefán Benediktsson, sem
þá var þingmaður Bandalags jafn-
aðarmanna. Tillagan var þannig:
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjóminni að annast framkvæmd
þeirra aðgerða, sem nauðsynlegar
eru, til að leggja megi niður starf-
semi Ferðaskrifstofu ríkisins."
Greinargerð
„Tillaga þessi byggist á þeirri
skoðun Bandalags jafnaðarmanna
að leggja beri niður þá starfsemi á
vegum ríkisins sem í ljósi breyttra
atvinnuhátta, tækni og annarra
aðstæðna er hægt að sinna með
hagkvæmari hætti.“
Flutningsmaður mælti fyrir til-
lög^inni 21. febrúar 1985 og sagði
þá meðal annars:
„Herra forseti. Ég mæli hér fyrir
þingsályktunartillögu' á þingskjali
18 þar sem lagt er til að ríkið hætti
starfsemi Ferðaskrifstofu ríkisins.
í ríkisreikningi sýnist Ferðaskrif-
stofa ríkisins koma út á sléttu, en,
vel að merkja, hún situr að ákveð-
inni þjónustu fyrir hið opinbera, sem
telur sér skylt að versla við þessa
stofnun þar sem hún sé í þess eign,
þannig að það er ekkert merkilegt
þó að þetta fyrirtæki sitji a.m.k.
ekki í taprekstri.
Sérdeild í rekstri þessa fyrirtæk-
is er hótelrekstur. Hann kemur líka
nokkum veginn út á sléttu. En þar
er á ferðinni atriði sem væri vel
þess virði að skoða dálítið nánar
því að það er að mínu mati mjög
gagnrýnisvert að standa að þeim
hótelrekstri eins og gert er. Það
væri barnaleikur fyrir hvem sem
er að reka hótel á þeim grundvelli
að þurfa ekki að greiða íjárfesting-
ar. Það gæti hver sem er gert. Eg
er alveg viss um að hótelstjórinn á
Sögu þægi það mjög gjarnan að
þurfa ekki að greiða þá fjárfestingu
sem þar liggur í byggingunum við
rekstur þess fyrirtækis."
Tillagan varð ekki útrædd en í
febrúar 1986 lagði Stefán Bene-
diktsson fram á Alþingi svohljóð-
andi fyrirspurn til samgönguráð-
herra um Ferðaskrifstofu ríkisins:
„1. Hveijar eru eignir Ferðaskrif-
stofu ríkisins:
a. I fasteignum.
b. í fyrirtækjum eða félögum?
2. Hvaða fasteignir tók Ferðaskrif-
stofa ríkisins á leigu árið 1985?
3. Hveijir eru eigendur þeirra fast-
eigna sem Ferðaskrifstofa
ríkisins hafði á leigu árið 1985?
4. Hver voru leigukjör í hveiju til-
2ÍBÚÐIR OG 22bíla
HAPPDRÆTTi
.A
viki (t.d. hlutfall af veltu eða
föst upphæð)?
5. Hvað var leigusamningur langur
í hveiju tilviki og um hvaða
tímabil var að ræða?
6. Hveijar voru heildarleigugreiðsl-
ur Ferðaskrifstofu ríkisins á
árinu 1985?
Svör ráðherrans birtust á þing-
skjali 592 og meginatriði þess voru:
Ferðaskrifstofa ríkisins á engar
fasteignir en hins vegar hluta í
þessum fyrirtækjum:
Kynnisferðir ferða-
skrifstofanna sf. kr. 956.260
Gestur hf. (Félag um rekstur
Hótels Flókalundar) “ 15.000
Arey hf. (Félag um rekstur
Hótels Hvolsvallar) “ 525.000
Árið 1985 hafði ferðaskrifstofan
húseignir 15 skóla á leigu í þijá
mánuði, húseignir Bæjar hf. á
Kirkjubæjarklaustri, Gamla-Garð
o.fl. Skólarnir eru í eigu ríkis og
sveitarfélaga. Húsaleiga til skól-
anna er á bilinu 7,5%—10% af
heildarsölu Edduhótelanna. Auk
þess er greidd ákveðin upphæð í
viðhaldskostnað. Leigusamningar
við skólana eru til tveggja ára en
uppsegjanlegir með árs fyrirvara.
Framlengjast óbreyttir sé þeim ekki
sagt upp. Heildarhúsaleigugreiðslur
Ferðaskrifstofu ríkisins á árinu
1985 voru 11.400.000 krónur, þar
af vegna hótelrekstrar 10.500.000
krónur.
Nú hafa verið stofnuð ferðamála-
samtök í öllum landshlutum, sem
reyna að efla samstöðu þeirra
manna og fyrirtækja, sem veita
þjónustu á þessu sviði, en þar er á
brattann að sækja, því að rekstrar-
grundvöllur er í flestum tilfellum
mjög ótraustur. Ferðamálasamtök-
in hafa nú stofnað Félag íslenskra
ferðamálasamtaka og þá hlýtur
fyrsta viðfangsefni þess einmitt að
vera að koma á fót ferðaskrifstofu,
sem þjónar öllum þeim fyrirtækjum,
sem eiga aðild að samtökunum.
Þess vegna liggur nú beinast við,
að Félag íslenskra ferðamálasam-
taka taki rekstur Ferðaskrifstofu
ríkisins í sínar hendur.
í upphafi Ferðamálaráðstefnunn-
ar á Hótel Sögu, 26. mars sl.,
greindu fulltrúar þingflokkanna frá
afstöðu viðkomandi stjórnmála-
flokks til ferðaþjónustu á íslandi
sem atvinnugreinar. Fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn mætti Friðrik
Sophusson, varaformaður flokks-
ins, og lagði hann til, að Ferðaskrif-
stofa ríkisins yrði seld enda væri
það stefna Sjálfstæðisflokksins.
Nú skipar Friðrik Sophusson 1.
sæti á framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins við alþingiskosningarnar
25. apríl og takist honum að ná
kosningu, sem 1. þingmaður
Reykjavíkur, þá ætti hann að láta
það verða sitt fyrsta verk að koma
þessu máli í örugga höfn.
Þjóðin, sem líta má á sem eina
stóra fjölskyldu, lifir því aðeins í
landinu, að hún nytji á skynsamleg-
an hátt auðlindir landsins og fiski-
miðanna.
Kópsvatni, 7. apríl 1987.
Höfundur býr i Kópsvatni og er
8. maðurá lista BJ í Reykjavík.
MALLORKA
Royal Playa
de Palma
Gististaður í sérflokki.
Ferftaskrilstofa, Hallveigarstíg 1 símar 28388 og 28580