Morgunblaðið - 14.04.1987, Side 74
74
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987
Afmæla mínnst á
í Hornafirði
Höfn
••
eftir Onnu
Þórhallsdóttur
Tilefni þessarar greinar er frá-
sögn af merkum atburðum sem
gerðust á Höfn í Homafirði í mars-
mánuði. Minnst er 90 ára afmælis
Hafnar og 40 ára Hafnarhrepps.
Héraðsskjalasafn Austur-
Skaftafellssýslu, var opnað föstu-
daginn 6. mars og Sögufélag
Austur-Skaftafellssýslu þ. 7.
Böm í kauptúninu héldu sýningu í
Heppuskóla (unglingaskóli) undir
yfirstjóm Guðmundar Inga Sig-
bjömssonar, skólastjóra. Þar voru
sýndar ljósmyndir og lesning um
þróunarsögu Hafnar frá byrjun.
Sýningin stóð yfir í tvo ofangreinda
daga.
Seint í apríl barst mér boðskort
frá forráðamönnum Héraðsskjala-
safnsins að vera viðstödd opnun
þess.
Gísli Sverrir Ámason, bókasafns-
fræðingur, hefir verið skipaður
forstjóri og safnvörður. Safnið er í
húsi útgerðarfélagsins _ Borgeyjar
hf. við Krosseyjarveg. Á tilsettum
degi kl. 5 e.h. var hópurinn mættur
og bauð formaður alla velkomna.
Hann hélt erindi um hina nýju
stofnun og um framtíðarsýn henn-
ar. Ólafur Ásgeirsson, þjóðskjala-
vörður, hafði áformað að sinna því
embættisverki að vígja safnið en
vegna forfalla setti hann dr. Aðal-
geir Kristjánsson, safnvörð í
Þjóðskjalasafni, í sinn stað. For-
maður gaf honum þvínæst orðið.
Hann hélt fróðlega ræðu og lýsti
að henni lokinni opnun safnsins.
Hann bar fram kveðju frá yfir-
manni sínum. Síðan gengu gestir
um salarkynnin undir leiðsögn safn-
varðar. Þama var margt merkilegt
að sjá og þökk sé þeim sem bera
gæfu til að forða skjölum og bókum
frá glötun. Söfnun verðmætra hluta
ætti að vera lífsgleði sem flestra
manna.
Næst var ferðinni heitið í
Byggðasafn Austur-Skaftafells-
sýslu. Safnhúsið er mér kunnugt
frá liðinni tíð. Þetta var verslunar-
hús föður míns, Þórhalls Daníels-
sonar, í 20 ár og síðar Kaupfélags
Austur-Skaftfellinga í um hálfa öld.
í 75 ár stóð þetta þarfa hús við
enda Hafnarbrautar en var flutt
innar í kauptúnið og endurbyggt á
opnu svæði, þar sem fjöllin fögru
sjást allt um kring. Þegar inn í
bygginguna var komið, mætti okk-
ur hinn velþekkti safnvörður, Gísli
Arason frá Borg á Mýrum (eystra).
Hann er auk safnvörslunnar heil-
brigðisfulltrúi og fyrrv. mjólkurbús-
stjóri. í hans umsjón, í um 10 árabil,
hefir honum ásamt öðmm auðnast
að safna miklum verðmætum í saf-
nið og hefur innlendum sem útlend-
um orðið starsýnt á margt sem þar
er að sjá. Hinn góðlátlegi, lipri safn-
vörður hefir augsýnilega ánægju
af því að þjóna starfi sínu dyggi-
lega, hverju nafni sem það nefnist.
Gestimir, sem em fræðimenn eða
SNYRTISTOFAN Jóna er flutt í
nýtt húsnæði að Laugavegi 163.
Snyrtistofan býður upp á alla
áhugamenn um söfn, létu í ljós
velþóknun sína á báðum þessum
söfnum sýslunnar og töldu að þeim
mikinn menningarauka.
Kl. sjö var haldið á „Hótel Höfn“
þar se_m veisluhöld áttu að fara
fram. í anddyri beið hótelstjórinn,
Ámi Stefánsson, fyrrv. skólastj.,
og bauð gesti velkomna. Boðið var
upp á glas af léttu víni og eftir
drykklanga stund var gengið í
veislusalinn og sest að skreyttu
matborði. Heimir Þór Gíslason,
kennari, hafði verið valinn veislu-
stjóri. Hann tilkynnti að heiðurs-
gestir samkomunnar væm Gísli
Bjömsson, f. rafveitustjóri, og kona
hans Regína Stefánsdóttir.
Eftir að menn höfðu snætt góm-
sæta rétti, steig veislustjóri í
pontuna en það kallaði hann ræðu-
stólinn. Þaðan lét hann gamminn
geisa og stjómaði veislunni af rögg-
semi og glaðværð. Nú er orðið laust
kallaði hann í góðum hátalara.
Margir góðir ræðumenn komu fram
og nefni ég þá sem ég kannaðist við.
Friðjón Guðröðarson, fyrrv.
sýslumaður Austur-Skaftfellinga,
hélt ræðu og kom víða við. Hann
og kona hans Ingunn Jensdóttir,
leikkona og leikstjóri, eiga mikil
ítök í hugum sýslubúa. Sýslumann-
inum er þakkað meðal annars að
vera mikill hvatamaður og þátttak-.
andi í að Byggðasafnið var stofnsett
og endurbyggt. Frú Ingunnar er
saknað af leiklistamnnendum. Hún
leikstýrði mörgum leikritum á Höfn.
Aðrir ræðumenn vom: Sigurður
Hjaltason, fyrrv. sveitarstj., Óskar
Helgason, símstöðvarstjóri og fyrrv.
oddviti, Gísli Bjömsson, rafveitu-
stjóri, Páll Bjömsson, sýslumaður,
Sturlaugur Þorsteinsson, oddviti,
Þórður Tómasson, safnvörður í
almenna snyrtingu, einnig fótaað-
gerðir og Suntronic-meðferð til að
laga hin ýmsu húðvandamál.
Skógum undir Eyjaijöllum, Sigurð-
ur Oskar Pálsson, safnvörður á
Egilsstöðum, Sigurður Bjömsson,
bóndi á Kvískeijum í Öræfiim, Þor-
steinn Þorsteinsson, hitaveitustjóri,
Hákon Valdimarsson, byggingar-
meistari, o.fl. Einnig tók ég,
undirrituð, til máls og greini ég frá
því í lokin. Allir þeir sem töluðu
vom þakklátir fyrir að Héraðs-
skjalasafnið var opnað og komið í
notkun. Þeir óskuðu Gísla Sverri,
safnverði, gæfu og góðs gengis í
þýðingarmiklu starfi. Því næst las
veislustjóri upp símskeyti frá aust-
firskum þingmönnum sem vom
boðnir í veisluhöldin en gátu ekki
þegið vegna anna. Að því loknu
sungu kórfélagar í karlakómum
Jökli, stjómandi Sigjón Bjamason,
bóndi í Brekkubæ. Undirleikari
Guðlaug Hestnes, fyrrv. orgelleikari
í Hafnarkirkju. Kómum var mjög
vel tekið og honum klappað lof í
lófa. Ámi hótelstjóri kvaddi sér
hljóðs, þakkaði mönnum komuna
og minntist ánægjulegs dags. Borð-
haldinu var slitið og dansinn dunaði
fram eftir nóttu.
Laugardaginn 7. mars var stofn-
fundur Sögufélags Austur-Skafta-
fellssýslu á Hótel Höfn. Gísli
Ámason setti fundinn og hélt ræðu.
Hann greindi frá fyrirhuguðum
áætlunum félagsins, eftir það gaf
hann dr. Aðalgeiri Kristjánssyni
orðið. í ræðu sinni talaði hann
meðal annars um lestrarfélög og
gildi þeirra. Þá tók Friðjón Guðröð-
arson, sýslumaður, til máls. Hann
taldi mikla þörf fyrir að gefin verði
fljótlega út bók um útgerð á Homa-
firði. I ræðu sinni fyrri daginn, þ.
6., benti hann á að byggja þyrfti
vandað safnhús fyrir Héraðsskjala-
safnið. Núverandi húsnæði væri
bráðabirgðalausn.
Samþykkt var að halda aðalfund
bráðlega. Stofnendur voru íjörutíu.
Höfn í Hornafirði
90ára
I ár eru liðin 90 ár frá því byggð
hófst fyrst á Höfn. Þá voru reist
þijú hús, tvö íbúðarhús og verslun-
arhús (nú Byggðasafnið). Þau voru
byggð á afskekktum stað langt frá
öðrum mannabyggðum. Hafnames
var næsti staðurinn. Árið 1906 kom
4. húsið, það var á Leiðarhöfða.
Uppbygging Hafnar var hæg þar
til 1918. Faðir minn, Þórhallur
Daníelsson, kaupmaður og útgerð-
armaður hóf þá byggingar fyrir
útveginn. Frá þeim tíma hefir hann
verið nefndur faðir kauptúnsins.
Atvinnumöguleikar fyrir þann tíma
voru litlir. Árið 1922 var hann bú-
inn að láta reisa eina fullkomnustu
Anna ÞórhaUsdóttir
verstöð landsins með rafmagni og
ýmsum þægindum. Um áframhald-
andi útgerð á Höfn ræði ég ekki
frekar, menn hafa fylgst með þeirri
þróun og glaðst yfir henni.
Á Höfn hefír risið upp blómlegur
bær með nytísku byggingum og
lífsþægindum. Atvinna er oftast
nægileg og margþætt. Aðalatvinnu-
vegir eru: útvegur, verslun, ferða-
þjónusta, iðnaður o.fl. í kauptúninu
eru bamaskóli, unglingaskóli og
samkomuhús. Þar má einnig líta
stórbyggingar Kaupfélags Austur-
Skaftafellssýslu, verslunarhús,
frystihús í Krossey og önnur hús
tilheyrandi útveginum. Byggingar
þær sem mestan svip setja á bæinn
eru kirkjan (prestur er séra Baldur
Kristjánsson) og „Hótel Höfn“. Þar
eru tveir hóteleigendur, Ámi Stef-
ánsson og Ólöf Sverrisdóttir, ekkja
Þórhalls Dan Kristjánssonar, syst-
ursonar míns, en þeir Árni byggðu
saman hótelið sem tekið var í notk-
un árið 1966. Svava Sverrisdóttir,
kona Áma, er systir Ólafar. Faðir
þeirra systra var hinn alþekkti
gæðamaður Sverrir Halldórsson úr
Meðallandi. Hann var einn af upp-
byggjendum Hafnar, byggði húsið
Bræðraborg v/Hafnarbraut árið
1921. Ekkja hans, Sigurbjörg Gísla-
dóttir, býr í hárri elli með Ólöfu
dóttur sinni. Hún er stálminnug og
hress eftir aldri. Hinn nýi embættis-
maður Hafnar, Gísli Sverrir, er
dóttursonur hennar, sonur hjón-
anna Svövu og Árna.
Sigurbjörg er komin af þekktum
ættum úr Suðursveit og Óræfum.
Til fróðleiks ætla ég að telja upp
elstu Hafnarbúana sem eiga merk
tímamót í tengslum við Höfn. Sigur-
björg Gíslasdóttir er eini núlifandi
uppbyggjandi Hafrtar, 92 ára. Gísli
Bjömsson, rafveitustj., er elstur
þeirra sem hafa haft búsetu þar,
91 árs og Anna Þórhallsdóttir er
ein eftirlifandi af þeim sem fædd-
ust þar, 83 ára á þessu ári. Þau
sem dáin eru: Guðrún Tulinius,
Geir Þórhallsson og Olga Þórhalls-
dóttir.
Hafnarhreppur var stofnaður
árið 1946. Ibúar hans minntust á
síðastliðnu ári 40 ára afmælis hans.
Við tugafmæli bæja er öldruðum
oft veittur heiður, hafi þeir unnið
Snyrtistofan Jóna er nú til húsa að Laugavegi 163.
Snyrtistofan Jóna flutt
Hafnarvíkin og „Plássið". Kaupmannshúsið til vinstri, búð og vörugeymsluhús fyrir botni víkurinnar.
Myndin er frá 1906.
eitthvað í þágu staðarins. Þessu
gleymdu Hafnarbúar ekki. Þeir sem
nú eru nefndir voru heiðraðir: Gísli
Bjömsson, rafveitustj. og hrepps-
nefndarmaður, Óskar Helgason,
símstöðvarstj. og fyrrv. oddviti,
Benedikt Þorsteinsson verkstj. og
hreppsnefndarm., og Anna Þór-
hallsdóttir, söngkona. Karlmennirn-
ir sem ég hefi greint frá hafa allir
gert stórátök fyrir staðinn. Við Gísli
Bjömsson eigum það sameiginlegt
að við höfum safnað heimildum um
Höfn, sem skráðar eru í bókum.
Hann ritar fróðlegan og fallegan
kafla í Byggðasögu Austur-Skaft-
fellinga, útgefin árið 1976. Ég
skrifaði og gaf út bókina „Braut-
ryðjendur á Höfn“ í Hornafírði árið
1972, á 75 ára afmæli kauptúns-
ins. Báðar bækumar fjalla um
upphaf útgerðar á Höfn. Óvíst er
að hægt væri að finna þessar heim-
ildir nú. Bátaskýrsla um hvern bát
sem reri frá Homafirði í upphafi er
í minni bók, heimildirnar em fengn-
ar frá mörgum austfirskum sjó-
mönnum sem reru á bátunum og
eru nú margir dánir.
Ég vil leyfa mér að nota tækifær-
ið og þakka Ásgrími Halldórssyni
fyrrv. kaupfélagsstj., fyrir góða
aðstoð við sölu bókarinnar í upphafi.
Kvenfélagið Tíbrá var stofnað
8. febr. 1924. Stofnandi var Ingi-
björg Friðgeirsdóttir, móðir mín.
Hún var fyrsti formaður, Anna
Þórhallsdóttir, ritari, og Guðríður
Jónsdóttir, gjaldkeri. Þetta félag
mun vera eitt elsta félag sem stofn-
að var á Höfn. Á 63 ára starfsferli
þess hefir það unnið að margskonar
málum fyrir byggðarlagið. Félags-
konur hafa lagt sinn skerf til
menningar- og menntamála og
starfað að líknarmálum. Þær hafa
lagt fram fé og tíma og staðið fyr-
ir samkomum til eflingar.
Ég nefni fjórar félagskonur sem
mér er kunnugt um að störfuðu vel
og lengi. Þær eru Guðríður Jóns-
dóttir, lengi formaður, kona Jóns
ívarssonar, kaupf.stj.; Ólöf Þórðar-
dóttir, féhirðir í 17 ár, kona hins
þekkta athafnamanns og upbyggj-
anda Hafnar, Guðna Jónssonar,
gestgjafa. Þau byggðu húsið Heklu
v/Hafnarbraut árið 1907; Regína
Stefánsdóttir, formaður í 20 ár,
kona Gísla Bjömssonar heiðursfél.
Hafnar, og Álfheiður Magnúsdóttir,
formaður, kona Gísla Arasonar,
safnvarðar. Fleiri vildi ég nefna en
hér læt ég staðar numið. Á 60 ára
afmæli félagsins 1984 var ég gerð
að heiðursfélaga í Tíbrá. Mínar
bestu þakkir eru enn bornar fram.
Þó ég hafí verið heiðruð af Hafnar-
hreppi á 40 ára afmæli hans, gat
ég ekki tekið á móti merkinu fyrr
en við þessi veisluhöld. Sturlaugur
Þorsteinsson, oddviti og verkfræð-
ingur, kvaddi sér hljóðs og bað mig
að taka á móti heiðursmerki frá
Hafnarhreppi. Hann nældi heiður-
inn á bijóst mér og talaði til mín á
snilldarlegan hátt. Hann gaf mér
koss á kinn, rétt eins og flugkapp-
inn Nelson forðum.
Af öllum þessum heiðri ásamt
stækkaðri ljósmynd sem Hermann
Hansson, kaupfélagsstjóri, gaf mér
af togaranum Þórhalli Daníelssyni,
komst ég í sjöunda himin. Ég flaug
upp í pontu Heimis, hagræddi hátal-
aranum og mælti þessi orð:
Kæru samkomugestir. Ég leyfi
mér að' þakka forstjóra Héraðs-
skjalasafnsins, Gísla Sverri Árna-
syni, fyrir þá miklu vináttu og
góðvild að bjóða mér að vera við
vígslu safnsins nú í dag og verða
þess aðnjótandi að sitja þessa virðu-
legu veislu hér á Hótel Höfn.
Austur-Skaftafellssýsla er eitt feg-
ursta landsvæði á byggðu bóli og
fólkið sem þar býr er okkur, mér
og fjölskyldu minni, einkar kært.
Aldrei gleymist sá dýrðardagur 17.
september 1978 þegar minnismerki
foreldra minna var afhjúpað, í feg-
ursta veðri.
Það var Hafnarhreppur sem stóð
fyrir þeirri vegsemd, en Hermann
Hansson, kaupfélagsstjóri, beitti
sér fyrir því að togarinn hér á Höfn,
sem nú flytur mikla björg í bú, ber
nafn föður míns. Alúðarþakkir til
alira hér sem hafa sýnt mér þessa
vegsemd og virðingu.
Reykjavík, 24. mars 1987.
Höfundur er söngkona.