Morgunblaðið - 14.04.1987, Qupperneq 78
78
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987
Eðvarð Þór Eðvarðsson, íþróttamaður ársins:
„Æfi 6 tíma á dag
botóaréttog
drekk niikid af mjóllC
„Þú kemst ekki á heimsafrekslista og setur ekki vel á annað hundrað
fslandsmet eða Norðurlandamet eins og Eðvarð án þess að hugsa um hvað þú
lætur ofan í þig“, segir þjálfari Eðvarðs, Friðrik Ólafsson. Með eftirtektarverðri
samvinnu og skipulegri uppbyggingu hefur þeim tekist að ná stórkostlegum
árangri og stefna enn hærra. Veigamikill þáttur þjálfunarinnar er heilbrigt
mataræði. Það hefur áhrif á alla starfsemi líkamans, hvort sem um er að ræða
skaphöfn, taugaviðbrögð, styrk eða annað.
Mjólkin er ómissandi uppistaða í daglegu fæði allra þeirra sem hugsa um
andlegt og líkamlegt heilbrigði. Hún erótrúlega auðug uppsprettaaf fjölbreyttum
bætiefnum. Úr mjólkinni fáum við kalk, magníum, zink, A og B vítamín,
steinefni, amínósýrur og fjölmörg önnurefni, sem eru líkamanum
lífsnauðsynleg.
Vegna þessa mikilvægis mjólkurinnar verður aldrei of oft brýnt fyrir ungum
sem öldnum að tryggja líkamanum nægilegt magn af mjólk eða
mjólkurmat á hverjum degi.
MJOLKURDAGSNEFND
íþróttamaður ársins, Eðvarð Þór
Eðvarðsson, sem hefur skipað sér
sess á meðal besta sundfólks í heimi
er vel meðvitaður um mikilvægi
mjólkur í alhliða líkamsuppbyggingu.
Engir sætudrykkir geta komið í stað
mjólkurinnar. Mjólk eða mjólkurmatur
er sjálfsagður hluti af hverri máltíð.
t i
11
lí|j
1 i
Hvað er hæfileg mjólkurdrykkja?
eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson
Aldurshópur ár Ráðlagður Hæfilegur dagsskammtur mjólkurskammtur (RDS)af kalki ímg (2,5dlglös)
Böm1-10 800 2
Unglingar 11-18 1200 3
Fullorönir karlar og konur* 800 2
* Margir sérfræðingar telja að kalkþörf kvenna eftir tíðahvörf sé mun hærri eða 1200-1500 mg/dag. Reynist það rétt er hæfilegur mjólkurskammtur ekki undir 3 glösum á dag.
Umferðarráð:
Abendingar
varðandi
páska-
ferðalög
NÚ sem endranær hyggja ugg-
laust margír á ferðalög innan-
Iands um páskana. Því er
hyggilegt að huga að þeim bún-
aði sem hæfir ferðalögum á
þessum árstíma.
Mikilvægt er að þeir sem ætla á
flöll eða aka um fjallvegi séu þess
meðvitaðir að nú er allra veðra von
og færð getur spillst fljótt. Hlýjan
fatnað og teppi er sjálfsagt að hafa
meðferðis. Einnig keðjur, skóflu,
dráttartaug og nauðsynlega vara-
hluti.
Aður en lagt er af stað í fjalla-
ferðir þarf að kanna veðurútlit og
færð. Nauðsynlegt er að tímasetja
ferðina og gefa einhveijum upp
fyrirhugaða leið og hvenær á að
koma til byggða. Slíkt getur komið
í veg fyrir áhyggjur skyldmenna,
og jafnvel óþarfa leit.
Notkun ökuljósa hefur aukist
mikið og sannað ágæti sitt. Á blaut-
um og forugum vegum verður
bíllinn oft samlitur umhverfinu og
sést illa. Ökuljósin eru því oft það
eina sem við sjáum þegar bíll nálg-
ast. Þegar for sest á ljósker dofna
ljósin og veður því að þurrka af
þeim eða þvo reglulega. Stöðuljós
má aldrei nota í akstri.
Væntanlega verður mikil umferð
við skíðastaði landsins. Förum ekki
á vanbúnum bílum í skíðalöndin því
það veldur erfiðleikum og óþægind-
um í umferðinni. Ganga verður
þannig frá bílum í bílastæði að þeir
trufli ekki eða tefji aðra umferð til
og frá skíðasvæðinu.
Vélsleða- og Qórhjólamenn sem
verða þar sem skíða- og göngufólk
er á ferð þurfa að sýna fyllstu tillits-
semi, og gleyma ekki að tæki þeirra
eru í senn kraftmikil og hættuleg
ef ekki er varlega farið. Við akstur
torfærutækja er mikilvægt að nota
hjálm og klæðast skjólgóðum fatn-
aði.
Um leið og Umferðarráð óskar
öllum ferðalöngum góðrar ferðar
minnir það á að í páskaumferðinni
höfum við tillitssemi við samferða-
menn að leiðarljósi. Bílbeltin
spennt, ökuljósin kveikt og ökum á
jöfnum hraða, það sparar bensín
og veldur minni streitu. Vart þarf
að minna á að akstur og ölvun eiga
ekki saman. Kæruleysi í þeim efn-
um getur eyðilagt helgina fyrir fullt
og allt, jafnvel framtíð ótalinna
aðila.
(Frá umferðarráði)
Prufu-hitamælar
+ 50 til + 1000 C
í einu tæki meö elektrón-
ísku verki og Digital sýn-
ingu.
■LN ■
Sfiiyifftmcgjtuiir cjfeffíjsscsini
VESTURGOTU 16 - SÍMAR 14630 - 21480