Morgunblaðið - 14.04.1987, Qupperneq 94
94
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987
Morgunblaöið/Árni Saaberg
Lokahátíð handknattleiksfólks:
Kristján og Kolbrún best
KRISTJÁN Sigmundsson og Kol-
brún Jóhannsdóttir voru kjörin
bestu leikmenn síðasta keppn-
istímabils í handknattleiknum.
Kjörið var tilkynnt á lokahófi
handknattleiksfólks sem fram fór
Frábær mynd- og tóngæöi!
Einstök ending!
VHS: 60,120,180 og 240 mínútna.
á sunnudagskvöldið. Efnilegasta
stúlkan var kjörin Guðný Gunn-
steinsdóttir úr Stjörnunni og hjá
körlunum var Konráð Olavsson
úr KR valinn sá efnilegasti.
Það þarf víst ekki að koma nein-
um á óvart að markverðirnir
Kristján og Kolbrún yrðu fyrir val-
inu. Bæði hafa þau leikið vel í vetur
og eiga ekki svo lítinn þátt í því
að lið þeirra, Víkingur og Fram,
náðu eins langt og raun ber vitni.
í hófinu vartilkynnt um kosningu
besta varnarmannsins í báðum
deildum og þar urðu Geir Sveins-
son úr Val og Jóhanna Halldórs-
dóttir úr Fram fyrir valinu. Bestu
sóknarmennirnir eru Guðmundur
Guðmundsson úr Víkingi og
Guðríður Guðjónsdóttir úr Fram.
Markahæstu einstaklingarnir urðu
Sigurjón Sigurðsson úr Haukum
og Erla Rafnsdóttir úr Stjörnunni.
Varla þarf að taka fram að bestu
markverðirnir voru Kristján og Kol-
brún.
Árni Indriðason var kjörinn besti
þjálfarinn á síðasta keppnistíma-
bili og Ólafur Haraldsson og Stefán
Arnaldsson voru kjörnir besta
dómaraparið.
Sú nýbreytni var tekinn upp að
verðlauna það félag sem leggur
mikla rækt við yngri flokkana og
það var Stjarnan úr Garðabæ sem
hafði öflugasta unglingastarfið í
vetur. Víkingur og Fram fengu
einnig viðurkenningu fyrir ungl-
ingastarfið í vetur.
í hófinu var í fyrsta sinn veitt
gullmerki HSÍ með lárviðarsveig
og hlutu þeir Gísli Halldórsson,
forseti íslensku Ólympíunefndar-
innar, Sveinn Björnsson forseti
ÍSÍ, og Bogdan Kowalzcyk, þjálfari
íslenska landsliðsins, merkin.
Á myndunum hér að ofan eru
allir þeir sem viðurkenningu hlutu
og á minni myndinni eru bestu
handknattleiksmenn landsins.
Kristján Sigmundsson:
Gerir mér erfitt fyrir
„ÞAÐ er mikill heiður sem mér
er sýndur með þessu kjöri, en
ég get ekki neitað því að það
setur mig í nokkurn vanda,“ sagði
Kristján Sigmundsson, besti
handknattleiksmaður á íslandi
eftir að hann hafði tekið við viður-
kenningu sinni á sunnudags-
kvöldið.
„Ég hafði hugsað mér að hætta
eftir þennan vetur, að minnsta
kosti með landsliðinu, en ég verð
að viðurkenna að viðurkenning
sem þessi setur mig í ákveðnar
stellingar og ég verð að hugsa
málið vel.
Það er mjög erfitt að samræma
vinnu mína og allan þann undir-
búning sem þarf fyrir Ölympíuleik-
ana, og það er raunar ekki hægt.
Ég mun þó væntanlega reyna eins
og ég get að gefa mig í þann undir-
búning -ef ég verð valinn til þess
- en ég held það megi segja að
sá tími þegar handboltinn var alltaf
númer eitt só liðinn."
Kristján sagðist hafa farið upp
á svið til að taka við viðurkenningu
sem besti markvörðurinn. „Ég var
alveg sáttur við það en þegar eng-
ir lausir stólar voru eftir á sviðinu
og enn átti eftir að tilkynna þann
besta kveiknaði smá von í manni.
Ég átti þó frekar von á að Guð-
mundur félagi minn yrði valinn, en
það var Ijóst að sá besti var á
sviðinu. Allir stólarnir voru upp-
teknir. Ég lít á þetta sem mikla
viðurkenningu til Víkings, sama
hvort ég eða Guðmundur hefðum
verið útnefndir.
Ég er mjög glaður að hafa feng-
ið þessa viðurkenningu en eins og
ég sagði áðan gerir hún mér erfitt
fyrir," sagði Kristján að lokum.
Morgunblaðið/RAX
• Landsliðshópurinn í sundi sem stóð sig frábærlega vel á alþjóðlegu sundmóti sem fram fór í Aberdeen
í Skotlandi um helgina. Á myndina vantar Ragnar Guðmundsson og Ólaf Einarsson.