Morgunblaðið - 25.04.1987, Síða 48
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
48
Kosningarnar
Yiðamestu útvarps- og
sjónvarpsdagskrár til þessa
H
UNDIRBÚNINGUR að kosninga-
dagskrám útvarps og sjónvarp-
stöðvanna var i fullum gangi
þegar blaðamaður Morgunblaðs-
ins og ljósmyndari litu í gær við
á Stöð 2, Bylgjunni, ríkissjón-
varpinu og ríkisútvarpinu. Verið
var að leggja síðustu hönd á dag-
skrárnar, æfa útsendingar og
fara yfir tölvukerfin sem sjá um
alla útreikninga.
Öllu tjaldað sem til er
Páll Magnússon fréttastjóri og
Sigurveig Jónsdóttir fréttamaður á
Stöð-2 sátu í upptökusal ásamt
tölvufræðingunum þeim Bjama Jú-
líussyni og Friðrik Sigurðsyni. Um
leið og farið var yfír og æft hvem-
ig hugsanleg úrslit yrðu í hvetju
kjördæmi, var bmgði upp línuritum,
súluritum og sneiðmyndum í öllum
regnbogans litum sem sýndu at-
kvæðamagn og hlutfall hvers
flokks. „Þetta er tvímælalaust
stærsta verkefni sem stöðin hefur
farið út í til þessa," sagði Páll. „Ég
er ekki hræddur við samkeppnina.
Við verðum með um 80 til 90 manns
í vinnu um allt land og tjöldum öllu
sem til er.“
Útsending hefst kl. 22 í kvöld
og stendur fram til kl. 7 á sunnu-
dagsmorgun og sagði Páll að
dagskránni yrði skipt í tvennt. Fram
til kl. 6 verður fjörinu haldið gang-
andi með léttum innskotum milli
þess sem kosningatölur eru birtar
en eftir það verður annar svipur
yfír dagskránni og lögð meiri
áhersla á að nýr dagur er runninn
upp. Beint samband verður við kjör-
staðina í Reykjavík, á Suðurlandi
og á Reykjanesi og fréttamenn
verða á ferðinni með nýja örbylgju-
senda sem stöðin hefur fest kaup
á. „Sendamir gera okkur kleift að
senda út beint frá heimilum stjóm-
málamannanna og frá kosninga-
vökum flokkanna," sagði Páll.
„Gestir í sjónvarpssal verða stjóm-
málamenn, formenn flokkanna og
stjómmálaforingjar sem hafa látið
af störfum og að auki fólk sem
tengist þeim á einn eða annan hátt.
Bjamfreðssyni og Hannesi H. Gis-
surarsyni stjómmálafræðingi.
Fréttamenn í sjónvarpssal verða
Ingvi Hrafn Jónsson fréttastjóri,
Helgi V. .Tónsson, Edda Andrés-
dóttir og Ólafur Sigurðsson sem
ásamt Atla Rúnari Halldórsyni spyr
stjómmálmenn og flokksforingja
álits á stöðunni hverju sinni en þá
verður útsendingin samtengd hljóð-
varpinu. „Við leggjum áherslu á
fréttir í útsendingunni en ekki
skemmtidagskrá," sagði Helgi.
„Þetta er viðamesta dagskrá sem
send hefur verið út hér á landi með
beinum útsendingum frá átta stöðv-
um.“
í sjónvarpssal verða Hermann
Gunnarsson, Bubbi Mortens, Krist-
inn Sigmundsson, Sigríður Bein-
teinsdóttir, hljómsveitin Hljómar og
Jóhannes Kristjánsson eftirherma
og munu þau sjá um að skemmta
áhorfendum.
Ahersla á kosningatöl-
ur
Á Bylgjunni sjá Einar Sigurðsson
útvarpsstjóri, Hallgrímur Thor-
steinsson fréttastjóri og Sigurður
Tómasson um að koma úrslitum
kosninganna til skila í kosningadag-
skrá sem hefst kl. 22. „Við munum
útvarpa eins lengi og með þarf,“
sagði Hallgrímur. „Hér verður ekk-
ert skemmtikrafta úrval til að
Þorkell Helgason prúfessor sýndi fréttamönnum á fréttastofu ríkisútvarpsins hvernig tölvuforritið vinn-
ur sem mun spá kosningarúrslitum í kosningaútvarpi ríkisútvarpsins.
Beinar útsending’ar frá
sex kjördæmum
Ríkissjónvarpið verður með bein-
ar útsendingar frá sex talningastöð-
um, Reykjavík, Borgamesi,
Sauðárkróki, Akureyri, Selfossi og
Hafnarfirði í kosningadagskrá sinni
sem hefst kl. 22:20 í kvöld. „Tvö
upptökulið ásamt fréttamönnum
verða á ferð um Reykjavík og ná-
grenni og taka viðtöl við frambjóð-
endur," sagði Helgi V. Jónsson
aðstoðarfréttastjóri. „Efstu menn á
listum og formenn flokkanna verða
í beinni útsendingu í sjónvarpssal
ásamt fjölda annarra gesta.“ Ólafur
Þ. Harðarsson stjómmálafræðingur
verður í sjónvarpssal ásamt blaða-
mönnunum pskari Guðmundssyni,
Kristínu Ámadóttur, Magnúsi
. flækjast fyrir aðal málinu sem em
fyrst og fremst kosningatölur og
höfum við fengið tölvufræðinga til
liðs við okkur til að spá í þær. Við
munum heQa dagskránna með
vangaveltum um þetta flókna fyrir-
komulagi sem er á útreikningunum
og enginn skilur neitt í.“
Fréttamenn stöðvarinnar verða á
kjörstað og ræða við kjósendur en
gestir á Bylgjunni í beinni útsend-
ingu verða fyrrverandi stjómmála-
menn, frambjóðendur og formenn
flokkanna. „Við munum grennslast
fyrir um viðbrögð stjómmálamanna
sem ýmist koma til okkar eða við
förum í heimsókn út í bæ,“ sagði
Hallgrímur. „Þá eigum við von á
að til okkar komi ritstjórar dag-
blaða og aðrir sem þekktir em af
skoðunum sínum um menn og mál-
Hjá ríkissjónvarpinu ræddu Gísli Sigurðsson, Guðbjartur Davíðsson stjórnandi útsendingarinna um fyrir-
komulag kosningasjónvarps við Helga V. Jónsson aðstoðarfréttastjóra og fréttamennina Ólaf Sigurðsson,
Eddu Andrésdóttur og Hall Hallsson.
Bömin þeirra, ritarar og bifreiða-
stjórar svo að dæmi séu tekin.“
Hljómsveitin Stuðmenn og Gils-
bræður sjá um að skemmta áhorf-
endum heima og í sjónvarpssal í
beinni útsendingu en að auki verður
skotið inn atriðum úr „Spéspegli"
og vinsæl gömul lög leikin af mynd-
böndum. Dregið verður úr nöftium
sem borist hafa í getraun stöðvar-
innar og hringt í þá heppnum og
þeir beðnir að svara einni spumingu
varðandi dagskránna. í boði em
ferðavinningar og sportbifreið.
Hallgrimur Thorsteinsson fréttastjóri Bylgjunnar verður í hljóðstofu
með kosningavöku í kvöld.