Morgunblaðið - 25.04.1987, Page 91
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987 91
Norðurlandamótið í handknattleik:
Getum gert
miklu betur
-sagði Geir Hallsteinsson eftir sigur á Dönum
„STRÁKARNIR voru allt of miklir
egóistar í seinni hálfleik. Kannski
er því um að kenna að spennan
er mikil því væntingarnar eru
miklar, en liðið getur spilað miklu
betur en það gerði í kvöld. Ef það
spilar sem lið - en ekki þegar
menn leika aðeins fyrir sjálfa sig.
bá er vonlaust að ná árangri,11
sagði Geir Hallsteinsson, þjálfari
■slenska U-18 ára landsliðsins f
handknattleik, eftir fyrsta leik
þess á Norðurlandamótinu sem
hófst í Digranesi f gærkvöldi. fs-
lenska liðið sigraði þó Dani,
24:20, eftir að hafa haft yfir f leik-
hléi, 15:9.
„Þessi leikur er góð áminning.
Við virðumst oft þurfa einn svona
leik til að komast niður á jörðina.
Sóknin var ekki góð og vörnin var
skrykkjótt, þó góð á köflum. Við
eigum eftir að bæta þetta, en við
fengum tvö dýrmæt stig,“ sagði
-Geir ennfremur.
Danir voru yfir í byrjun en síðan
tóku íslensku strákarnir sig heldur
betur á og náðu öruggri forystu.
Sóknarleikurinn var vel yfir meðal-
lagi góður, Héðinn yljaði áhorfend-
um með nokkrum þrumumörkum
og og Konráð gerði falleg mörk
úr horninu. En sérstaklega var það
vörnin sem var góð - og á köflum
éttu Danir sérlega erfitt með að
brjóta hana niður.
En í síðari hálfleik var allt annað
að sjá til íslenska liðsins. Danir
breyttu reyndar varnarleik sínum,
Iþróttir um
helgina
Norðurlandamótið f hand-
knattleik pilta ber hæst
fþróttaviðburða hér á landi
þessa helgi. Mótið hófst f
gærkvöldi. Unglingameistara-
mótið f borðtennis fer fram f
fþróttahúsi Seljaskóla f dag
og á morgun.
Dagskrá Norðurlandamóts-
ins í handknattleik fer hér á
eftir og verður leikið í íþrótta-
húsinu í Digranesi í Kópavogi.
Laugardagur:
Kl. 18.00 Svíþjóð—Finnland
Kl. 10.30 Færeyjar—Island
Kl. 12.00 Danmörk—Noregur
Kl. 15.00 Finnland—Færeyjar
kl. 16.30 Island—Noregur
Kl. 18.00 Danmörk—Svíþjóð
Sunnudagur:
Kl. 09.00 Danmörk—Færeyjar
Kl. 10.30 Finnland—Island
Kl. 12.00 Svlþjóð—Noregur
Kl. 15.00 Finnland—Danmörk
Kl. 16.30 Noregur—Færeyjar
Kl. 18.00 Island—Svíþjóð
Borðtennis
Unglingameistaramót ís-
lands í borðtennis fer fram
íþróttahúsi Seljaskóla í dag og
á morgun. Keppni hefst í yngri
flokkunum í dag kl. 10. Á morg-
un verður keppt í eldri flokkum
og hefst keppni á sama tíma
og stendur til kl. 18. Um 150
keppendur eru skráöir til leiks,
yngsti keppandinn er aðeins
fjögurra ára og sá elsti 17.
Keppt verður í 11 flokkum.
Knattspyrna
Fram og Ármann leika í
meistaraflokki karla í Reykjavík-
urmótinu í knattspyrnu á
gervigrasinu í laugardal í kvöld
kl. 19.30. Þessum leik varð flýtt
vegna landsleiksinsvið Frakka.
Island-Danmörk
24:20
Norðurlandamót Í handknattleik,
leikmanna 18 ára og yngri, í fþrótta-
húsinu Digranesi í Kópavogi.
0:2, 1:3, 3:4, 6:5, 8:5, 9:7, 11:8, 15:8,
15:9 16:12, 18:13, 20:13, 20:15, 21:19,
22:20, 24:20.
Mörk íslands: Héóinn Gilsson 7, Konr-
áð Olavsson 7/1, Ámi Friðleifsson 4,
ólafur Kristjánsson 4, Sigurður Sveins-
son 1 og Halldór Ingólfsson 1.
Mörk Dana Ulrik Asmusen 4, Peter
Jörgensen 4/1, Christian Dalmos Lars-
en 3, Rene Boeriths 2, Jesper Degn
2/1, Morten Smith 2, Dan Iversen 1,
Carsten Eriksen 1 og NicklRasmusen
léku framar og nánast maður gegn
manni og við því áttu íslensku
drengirnir ekki svar. Þeir róuðu
sóknarleikinn ekki þegar þess
þurfti og þegar einstaklingsafram-
takið þurfti að njóta sín brást það.
Sóknarleikurinn var allt of óyfirveg-
aður og íslendingar voru heppnir
að Dönum voru álíka mislagðar
hendur í sókninni. Því til sönnunar
má geta þess að níu mínútna kafli
leið, seint í leiknum, án þess að
hvorugu liðinu tækist að skora.
íslensku strákarnir leika gegn
Færeyingum og Norðmönnum í
dag og eiga báðir þeir leikir aö
vinnast. Liðið getur leikið mjög
vel, í því eru virkilega góðir ein-
staklingar og nái þeir að vinna fyrir
liðsheildina er hægt að búast við
miklu. Héðinn og Konráð voru
bestir í sókninni í fyrri hálfleik, en
varla er hægt að hrósa neinum
fyrir sóknarleik í þeim síöari. Vörn-
in var aðall liðsins að þessu sinni,
Ólafur Kristjánsson, Héðinn, Þor-
steinn Guðjónsson, Sigurður
Sveinsson, Guðmundur Þ. Guð-
mundsson og Halldór Ingólfsson
léku allir vel í vörninni.
-SH.
■
■
Morgunblaöiö/Bjarni Eiríksson
• Héðinn Gilsson skoraði alls sjö mörk f leiknum - þar af nokkur með glæsilegum þrumuskotum.
Hér þrumar hann að marki.
Sigurður í KR
SIGURÐUR Sveinsson, einn
leikmanna fslenska hand-
boltalandsliðsins sem nú
tekur þátt f Norðurlandamót-
inu, hefur ákveðið að ganga
til liðs við KR-inga og leika
með þeim f 1. deildinni næsta
vetur. Hann staðfesti þetta f
samtali við Morgunblaðið f
gærkvöldi. Sigurður er örv-
hentur og var f hlutverki
útileikmanns hjá Aftureldingu
sfðastliðinn vetur - en KR-
ingar hyggjast nota hann f
hægra horninu, sem er f raun
hans „rótta“ staða. Sigurður
lék mjög vel með Aftureldingu
f vetur og á án efa eftir að
verða KR-ingum góður liðs-
styrkur. Það má þvf búast við
þvf að báðir hornamenn U-18
ára landsliðsins verði f KR-
liðinu næsta vetur þvf fyrir er
hinn skæði Konráð Olavsson
hlnum megin.
• Sigurður Sveinsson klæð-
ist KR-búningnum næsta
vetur.
Evrópukeppni unglingalandsliða:
íslendingar mæta
Dönum á þriðjudag
ÍSLENSKA unglingalandsiiðið í
knattspyrnu, skipað leikmönnum
18 ára og yngri, leikur sinn fyrsta
leik í Evrópukeppni unglingalands-
liða nk. þriðjudag gegn Dönum.
Verður leikurinn haldinn í Born-
holm i Danmörku.
Lárus Loftsson landsliðsþjálfari
hefur valið liðið, en það er skipað
eftirtöldum leikmönnum. ( marki
eru Karl Jónsson, Þrótti og Kjartan
Guðmundsson, Þór Akureyri, en
aðrir leikmenn þeir, Rúnar Kristins-
son, KR, Þormóður Egilsson, KR,.
Bjarni Benediktsson, Stjörnunni,
Valdimar Kristófersson, Stjörn-
unni, Helgi Björgvinsson, Fram,
Hólmsteinn Jónsson, Fram, Árni
Þór Árnason, Þór Akureyri, Gunn-
laugur Einarsson, Val, Steinar
Adólfsson, Val, Egill Orn Einars-
son, fyrirliði, Þrótti, Leifur Haf-
steinsspn, Tý, Haraldur Ingólfs-
son, ÍA, Þórarinn Ólafsson,
Grindavík og Ólafur Viggósson, en
hann kemur úr Þrótti á Neskaups-
stað.
Flestir þessarra pilta hafa leikið
í drengjalandsliðinu og Rúnar
Kristinsson, KR er leikjahæstur,
hefur leikið 18 leiki með landsliði
16 ára og yngri.
í riðli íslenska liðsins eru, auk
Dana, lið Belgíu og Póllands. Leik-
ið er heima og heiman og verða
næstu leikir íslenska liðsins gegn
Belgíu hér heima þann 26. maí og
gegn Dönum 8. júní. Síðari leikúr-
inn gegn Belgíu og báðir leikirnir
gegn pólska liðinu verða leiknir í
haust.
SVÍAR unnu yfirburðasigur á
Færeyingum, 36:9 (16:3) og Norð-
menn sigruðu Finna 27:24 (10:7)
á Norðurlandamótinu f Dlgranesi
f gærkvöldi. Mótið hófst á leik
Norðmanna og Finna en viður-
eign Svfa og Færeyinga var
sföustu á dagskránni, á eftlr sigur
íslendinga á Dönum.
Norðmenn voru mun betri aðil-
inn í leiknum gegn Finnum og
hefðu átt að geta unnið enn stærri
sigur. Þeir höfðu örugga forystu
en á lokamínútunum náðu Finnar
að minnka muninrt. Bestir Norð-
nrjanna voru Arve Muffatangen,
mjög sprækur hornamaður (nr. 5),
Fredrik Oster (nr. 6) og Rune El-
land (nr. 3). Mörk liðsins gerðu
Muffetangen 10, Elland 7, Oster
5, Asle Gran 2, Knut Olav Holt 1,
Bard Tonning 1 og Trond Botnen
1. Jan Kállman var langbestur
Finna og skoraði 8 mörk, Jan Eriks-
son gerði 6, Johan Berglund 3,
Thomas Holberg 2, Timo Vihersa-
ari 2, Tage Wennerström 1, Kri-
stoffer Kumenius 1 og Antti
Huuskonen 1.
Yfirburðir Síva í viðureigninni við
Færeyinga voru gríðarlegir eins og
tölurnar gefa til kynna. Leikurinn
fór rólega af stað, ekkert var skor-
að fyrstu fimm mínúturnar, en eftir
að Svíar keyrðu upp hraðann var
eftirleikurinn auðveldur. Claudio
Zec var markahæstur Svía með 7
mörk, Björn Bertolino gerði 5, All-
an Delac einnig 5 (1 víti), Niclas
Johannesson 4, Anders Backgren
4/2 og Michael Schjölin og Petri
Heiskanen 3 hvor. Aörir minna.
Johan Antoninssen, Nielse Pauli
Winthereig og Elias Hansen gerðu
allir 2 mörk hver fyrir Færeyinga
og Uni Wardum (víti), Neil Blaha-
mer og Jakup Joanesarsson gerðu
1 hver.