Morgunblaðið - 03.06.1987, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1987
Endurskoðun gildandi kjarasamninga:
Vinnuveitendiir ræða
við landsamböndin
FORY STUMENN Vinnuveit-
endasambands íslands og Vinnu-
málasambands samvinnufélag-
anna munu á næstunni ræða
óformlega við forystumenn land-
sambanda Alþýðusambandsins
um hugsanlega endurskoðun á
gildandi kjarasamningum. Full-
trúar ASÍ, VSÍ og VMS komu
saman til fundar í gærmorgun
til að ræða endurskoðun samn-
inganna og var þetta niðurstaða
fundarins.
Ásmundur Stefánsson forseti
ASÍ sagði að fulltrúar launþega
hefðu lagt á það áherslu að samn-
ingamir yrðu endurskoðaðir sem
fyrst. Fulltrúar vinnuveitenda væru
hins vegar ekki tilbúnir til efnis-
legra viðræðna fyrr en vitað væri
um efnahagsaðgerðir nýrrar ríkis-
stjómar. Vinnuveitendur hefðu þó
verið tilbúnir til að ræða við forystu-
menn landsambandanna um stöð-
una og hvar brýnast væri að taka
á málum. Bjóst Ásmundur við að
slíkar viðræður hæfust fljótlega og
sagði að forystumenn ASÍ og VSÍ/
VMS myndi hittast aftur síðar.
Omar Ragnarsson 1egg-
ur inn flugskírteini
ÓMAR Ragnarsson fréttamaður
varð að leggja inn flugskírteini
sitt á meðan rannsókn fer fram
á atvikum sem leiddu til þess að
Ómar brotlenti flugvélinni
TF-AFL á Reykj ahlíðaraf rétti
fyrir rúmri viku.
Ómar sagði í samtaii við Morgun-
blaðið að þetta væri í samræmi við
reglur um atvik á borð við nauðlend-
inguna á Reykjahlíðarafrétti. Omar
sagði að þetta kæmi þó ekki að
mikilli sök nú því allar hans flug-
vélar hefðu farið í ársskoðun 31.
maí og hann væri því hvort eð er
loftfarslaus eins og stendur.
Flugslysanefnd hefur fengið
þetta óhapp til rannsóknar. Ekki
er vitað hvenær niðurstöður þeirrar
rannsóknar liggja fyrir.
VEÐURHORFUR íDAG, 03.06.87:
YFIRLIT á hádegi f gær: Skammt suðaustur af landinu er 1009
millibara lægð sem þokast vestur og grynnist. Yfir norðaustan-
verðu Grænlandi er 1031 millibara hæð.
SPÁ: Norðaustan og austan gola eða kaldi (3-5 vindstig) á landinu.
Skýjað og víðast súld eða rigning um norðan- og austanvert landið,
léttskýjað á suður- og suðvesturlandi en hætt við síðdegisskúrum.
Hiti á bilinu 4 til 8 stig norðanlands en 10 til 15 stig að deginum
syðra.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FIMMTUDAGUR: Austlæg og norðaustlæg átt og svalt í veöri.
Þurrt um mest allt land, slst þó á norðausturlandi.
FÖSTUDAGUR: Hæg breytileg átt og hlýtt yfir daginn inn til lands-
ins en annars fremur svalt. Þurrt um allt land.
TÁKN:
Heiðskírt
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrimar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
/ r r
/ r r r Rigning
r r r
* r *
/ * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
y Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO
4
K
Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR MÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 i gær að ísl. tima
Akureyri hhi B veður rigninfl
Reykjavlk 11 léttskýjað
Bergen 14 úrkomafgr.
Helsinki 11 þokumóða
Jan Mayen 2 alskýjað
Kaupmannah. 16 hálfskýjað
Naresarssuaq 11 skýjað
Nuuk 3 rignlng
Oaló 13 skúr
Stokkhólmur e rignlng
Þórehðfn 10 skýjað
Algarve 24 heiðskfrt
Amsterdam 16 rignlng
Aþena 21 akýjað
Barcelona 21 helðskírt
Berifn 13 skúr
Chicago 19 skúr
Feneyjar 22 léttskýjað
Frankfurt 19 skýjað
Hamborg 12 skýjað
LasPalmas 28 léttskýjað
London 14 rignlng
Lo* Angelea 16 mlstur
Lúxemborg 17 skýjað
Msdrid 29 mistur
Malaga 23 iéttskýjað
Mallorca 25 helðskfrt
Miami 27 hélfskýjað
Montreal NewYork 23 vantar skruggur
Parft 19 skýjað
Róm 22 hélfskýjað
Vfn 19 skýjað
Waahlngton 22 léttakýjað
Wlnnipeg 13 léttskýjað
Bókanir í borgarráði:
Samkomuhúsið málað
Húsavik.
LEIKFÉLAG Húsavíkur hefur áhugasömu félagar leikfélagsins
starfað af miklum krafti liðinn enduðu starfsárið nú um helgina
vetur og haft alls um 50 sýning- með því að hressa upp á gamla
ar á sjónleikunum Síldin kemur húsið og máluðu það allt að utan
og sUdin fer og Ofurefli. í sjálfboðavinnu. Þess skal getið
Félagið hefur aðstöðu í gamla sem vel er gert. Eins og myndin
samkomuhúsinu, sem byggt var ber með sér er gróður blómlegur
1929 og er í eigu bæjarins. Hinir eftir gott vor. — Fréttaritari
Hósavík:
Morgunblaðið/SPB
Kynjum mismunað
við styrkveitingar
VEGNA styrkveitinga iþrótta- og
tómstundaráðs úr afreks- og
styrktarsjóði Reykjavíkur, komu
fram bókanir á fundi borgar-
ráðs, en þar þykir gæta kynjam-
isréttis.
I bókun fulltrúa minnihlutans í
borgarráði segir: „Við viljum vekja
athygli á því ósamræmi sem á sér
stað í úthlutun afreks- og styrktar-
sjóðs Reykjavíkur til íþróttafólks.
Greinileg mismunun er milli kynja
sem lýsir sér í hærri úthlutun til
karlaíþrótta en kvennaíþrótta.“
Katrín Fjelsted lagði fram eftir-
farandi bókun: „Mér fínnst eðlilegt
að körlum og konum sé gert sem
jafnast undir höfði hvað varðar út-
hlutun úr afreks- og styrktarsjóði
Reykjavíkur. Óska ég upplýsinga
um það hvers vegna meistaraflokki
karla í knattspyrnufélaginu Fram
er veitt mun hærri upphæð, (kr.
200.000 þús.) en kvennaliði Fram
í handknattleik, (kr. 150.000 þús.)
og KR í körfuknattleik (kr. 100.000
þús.)“.
Landsvirkjun
sækir um heim-
ild til lántöku
LANDSVIRKJUN hefur sótt um
heimild borgarráðs fyrir láni að
upphæð 5 milljarða japanskra
yena eða um 1,3 miUjarða
íslenskra króna.
Með þessu láni hyggst Lands-
virkjun greiða niður annað eldra
og óhagstæðara lán.
Ogri RE seldi
fyrir 16,5 m.kr.
ÖGURVÍKURSKIPIN eru fengsæl um þessar mundir. Ögri seldi í
Þýzkalandi í gær og fyrradag 327,9 lestir af karfa og grálúðu fyr-
ir 16,5 miHjónir króna. Það er hæsta verð, sem fengizt hefur fyrir
afla úr einu skipi á fiskmörkuðum í Þýzkalandi. Freri kom til hafnar
á þriðjudag með 270 lestir af frystri grálúðu að verðmæti 20,5 miiy-
ónir króna eftir 14 daga túr.
Ögri fékk að meðaltali 50,42
krónur fyrir hvert kíló og heildar-
verð var í mörkum talið 775.776.
Næsthæstu sölu á Viðey RE. Hún
seldi 13. aprfl síðastliðinn 283 lest-
ir að verðmæti 751.435 mörk. Metið
þar á undan átti Ögri sjálfur, en
9. janúar á þessu ári fékk hann
747.370 mörk fyrir farm sinn,
260,8 lestir.
Á mánudag seldi Ottó Wathne
127 lestir, mest þorsk og ýsu í
Grimsby. Heildarverð var 7,9 millj-
ónir, meðalverð 61,99. Náttfari RE »
seldi sama dag 97 lestir af ýsu og
þorski í Hull. Heildarverð var 6
milljónir króna, meðalverð 61,31.
Loks seldi Þórshamar GK 77,5 lest-
ir í Hull á þriðjudag. Heildarverð
var 5 tæpar milljónir króna, meðal-
verð 64,33.