Morgunblaðið - 03.06.1987, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1987
Innskot
Ifyrrakveld var óvænt skotið inní
dagskrá ríkissjónvarpsins um-
ræðuþætti í umsjón Halls Hallssonar.
Snérist þáttur þessi um hina marg-
umræddu rannsóknarskýrslu um
könnun á burðarþoli bygginga sem
unnin var á vegum félagsmálaráðu-
neytisins en sú skýrsla vakti ugg í
brjósti jafnt sérfræðinga byggingar-
iðnaðarins og hins almenna hús-
byggjanda er hefur hingað til orðið
að treysta í blindni á hæstaréttardóm
verkfræðinganna. Nú, en í sjónvarps-
salinn mættu auk Davíðs Oddssonar
borgarstjóra byggingarfulltrúinn í
Reykjavík, Gunnar Sigurðsson, er
virðist hafa verið blekktur af sínum
undirmönnum sumum hveijum. Þá
mætti Jónas Kristjánsson ritstjóri
DV er taldi að ekki hefði verið ráð-
ist gegn rót vandans með því að
leggja eftirlitið að nokkru í hendur
verkfræðistofanna, nær hefði verið
að skoða innviði byggingareftirlitsins
í stað þess að auka stöðugt hönnun-
arkostnaðinn, og loks var mættur
Gunnar Torfason verkfræðingur er
sagði frá því að harðsnúinn hópur
mishæfra „byggingarsérfræðinga“
hefði á undanfömum árum vaðið hér
uppi í borginni en Gunnar Torfason
taldi tillögur borgarstjómar um úr-
bætur mjög til bóta og í anda þeirra
vinnubragða er þýðverskir stunda.
Ég sé ekki ástæðu til að rekja
frekar orðræðu hinna vísu manna í
sjónvarpssal en ég minnist hér á
rabb þeirra að ég tel afar mikilvægt
, að fréttamenn hói óhikað í þá er
standa í eldlínunni hveiju sinni jafn-
vel þótt hnika verði til auglýstri
dagskrá. Þó verður að gæta þess að
dagskráin raskist sem minnst og
gæta ber hófs í þessu efni sem ann-
arstaðar. Þá stund er Jón Óttar
skrýddi skerm Stöðvar 2 var gjaman
hóað í menn og tekist á um mál
málanna en nú virðist mér allur vind-
ur úr þeim Stöðvarmönnum og lítið
fer fyrir umræðuþáttum í anda hins
ágæta mánudagsþáttar Halls Halls-
sonar, en Hallur er slíkur eldhugi
að stundum býst maður við að hann
detti úr stólnum í fang gestanna.
Gæti ég ímyndað mér að Hallur hefði
að kjörorði: Elds er þörf!
íáttina?
Eins og tryggir lesendur hafa
sjálfsagt rekið augun í hefir undirrit-
aður að undanfömu leitað logandi
ljósi að nýstárlegum þáttauppskrift-
um er gætu máski lyft huga sjón-
varpsáhorfenda enn frekar í sumrinu
og sólinni. Rabbþáttur Halls hreyfði
þeirri hugmynd að sjónvarpsmenn
stormuðu í heimsókn til fólks út um
borg og bý að skoða heimilisaðstæð-
ur, arkitektúr hússins, innbúið,
garðinn eða svalimar, garðhýsið,
heita pottinn eða sundlaugina. Val-
gerður Matthíasdóttir arkitekt
stormaði stundum í þættinum Ljós-
brot er sýndur var í vetur á Stöð 2
— niðrí bæ að skoða verk hönnuð-
anna, þannig heimsótti Valgerður
eitt sinn ónefnda tískubúð hér í bæn-
um þar sem listræn hönnun húsmuna
og alls umhverfis var í hávegum
höfð. Hvemig væri að kveðja til arki-
tekta, listhönnuði, myndlistarmenn
og matargerðarsnillinga þá sjón-
varpsgengið stormar í heimsókn til
sjónvarpsheimilis vikunnar? Að sjálf-
sögðu yrði slegið upp veislu á kostnað
sjónvarpsmanna og svo yrði matar-
gerðarsnillingurinn fenginn til að
líma stjömur á matinn. Myndlistar-
maðurinn dæmdi málverkin og
höggmyndimar og hönnuðurinn aðra
innanstokksmuni. Arkitektamir
dæmdu síðan húsið og garðinn og
skýrðu teikningar fyrir áhorfendum
og svo gleymdi ég auðvitað að taka
með í reikninginn verkfræðinginn er
lýsti burðarþolsreikningunum.
Hneykslaður kæri lesandi — opnaðu
Hús og híbýli og þá finnurðu upp-
skriftina að þessum sjónvarpsþætti,
að þeirri framtíð er bíður okkar í
hinu galopna upplýsingasamfélagi
þar sem skilin milli þess lífs sem lif-
að er innan hinna flögurra veggja
heimilisins og á skerminum verða
sífelit óljósari.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
Stöð 2:
„Blue Note“
■■■■ Fyrri hluti tónlistarhátíðar blús-tónlistarmanna
91 50 í New York er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld.
^ A —’ Tónleikamir fóru fram 22. febrúar 1985 og
meðal annara komu fram Bobby Hutcherson, Herbie
Hancock, Stanley Jordan, Bobby Timons, Bennie Wall-
ance og Washington-Harline. Seinni hluti tónlistarhátíð-
arinnar verður á dagskrá Stöðvar 2 hinn 10. júní nk.
Herbie Hancock lék á hátíðinni.
Ríkissjónvarpið:
Hver á að ráða?
■■■■ Bandaríski gamanmyndaflokkurinn Hver á að ráða? er á dagskrá sjónvarps
1 Q 30 * kvöld og er þetta ellefti þátturinn. Einstæður faðir vinnur eldhússtörfin
A ** ~~ fyrir önnum kafna móður en margt fer úrskeiðis hjá honum. Með aðalhlut-
verk fara Tony Danza, Judith Light og Katherine Helmond.
UTVARP
©
MIÐVIKUDAGUR
3. júní
6.45 Veöurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir
7.03 Morgunvaktin. Hördís
Finnbogadóttir og Óðinn
Jónsson. Fréttir eru sagðar
kl. 8.00 og veðurfregnir kl.
8.15. Fréttayfirlit kl. 7.30 og
síöan lesið úr forystugrein-
um dagblaðanna. Tilkynn-
ingar lesnar kl. 7.25, 7.55
og 8.25. Fréttir á ensku
sagöar kl. 8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Sögur af Munda"
eftir Bryndisi Víglundsdótt-
ur. Höfundur les (6).
9.20 Morguntrimm. Tónleik-
ar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir
10.30 Óskastundin: Helga Þ.
Stephensen.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón:
Edward J. Frederiksen.
(Þátturinn verður endurtek-
inn að loknum fréttum á
miðnætti.)
11.55 Útvarpið í dag.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 I dagsins önn — Börn
og bækur.
Umsjón: Sigrún Klara Hann-
esdóttir. (Þátturinn verður
endurtekinn nk. sunnudags-
morgun kl. 8.35.)
14.00 Miðdegissagan: „Fall-
andi gengi" eftir Erich Maria
Remarque. Andrés Krist-
jánsson þýddi. Hjörtur
Pálsson les (29).
14.30 Harmoníkuþáttur. Um-
sjón: Bjarni Marteinsson.
(Endurtekinn þátturfrá laug-
ardegi.)
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Umkomuleysið var okk-
ar vörn. Þáttur um varnar-
mál íslendinga fyrr og siðar.
Umsjón: Þorsteinn Helga-
son. (Endurtekinn þáttur frá
mánudagskvöldi.)
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin.
Dagskrá.
16.16 Veöurfregnir
16.20 Barnaútvarpið
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Síðdegistónleikar.
Fiðlukonsert op. 36 eftir
Arnold Schönberg. Zvi Zeitl-
in og Útvarpshljómsveitin f
SJÓNVARP
MIÐVIKUDAGUR
3. júní
18.00 Úr myndabókinni
Endursýndur þáttur frá 31.
maí. Umsjón: Agnes Jo-
hansen.
19.30 Hver á að ráða?
(Who's The Boss). 11. þátt-
ur. Bandariskur gaman-
myndaflokkur um
einstæöan föður sem vinnur
eldhússtörfin fyrir önnum
kafna móður. Aðalhlutverk:
Tony Danza, Judith Light
og Katherine Helmond. Þýð-
andi Vrr Bertelsdóttir.
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingarog dagskrá
20.40 Spurt úr spjörunum.
Sautjándi þáttur. Spyrlar:
Ómar Ragnarsson, Kjartan
Bjargmundsson. Dómari:
Baldur Hermannsson.
Stjórn upptöku: Ásthildur
Kjartansdóttir.
21.15 Kane og Abel
Lokaþáttur. Bandariskur
framhaldsmyndaflokkur i sjö
þáttum gerður eftir skáld-
sögu Jeffrey Archers.
Aðalhlutverk: Peter Strauss
og Sam Neill. Þýðandi Jón
O. Edwald.
21.55 Nærmynd af Nikaragva
Þriðji og siöasti þáttur
Guðna Bragasonar frétta-
manns úr Miö-Amerikuferö.
Fjallað er um stöðu kirkjunn-
ar í Nikaragva og stjórnar-
andstæðinginn Obando y
Bravo kardinála. Rætt er við
Ernesto Cardenal, skáld og
fyrrum munk, og sagt frá
erlendu hjálparstarfi í
landinu. Þá veröur fjallað
urn hlutskipti einkafram-
taksins i Nikaragva og rætt
við talsmann atvinnurek-
enda, Nicholas Bolanos.
Þýðandi Sonja Diego.
22.30 Nýjasta tækni og visindi
Umsjónarmaður Siguröur
H. Richter.
23.05 Dagskrárlok.
í
5TOÐ2
MIÐVIKUDAGUR
3. júní
16.45 Að næturlagi (Into
The Night).
Bandarísk kvikmynd frá
1985 með Jeff Goldblum,
Michelle Pfeiffer, Richard
Farnsworth, Roger Vadim,
David Bowie, Vera Miles
o.fl. Leikstjóri er John
Landis.
Helsta einkenni þessarar
myndar er óvenjulegur og
margslunginn söguþráður
með litríkum persónum sem
margar hverjar eru leiknar
af Hollywood-leikstjórum. I
stuttu máli fjallar myndin um
hæglátan mann sem veitir
konu aðstoð þegar morðóð-
ir menn hundelta hana.
19.00 Benji (Benji).
Nýr leikinn myndaflokkur
fyríryngri kynslóðina. Hund-
urinn Benji vingast við
ungan prins frá annarri plán-
etu og kemur honum til
hjálpar á örlagastundu.
19.30 Fréttir.
19.55 Viðskipti.
i þættinum verður fjallað um
viðskipta- og efnahagsmál
innanlands og utan.
Stjórnandi er Sighvatur
Blöndahl.
20.15 Allt í ganni.
Júlíus Brjánsson og Skúli
rafvirki ræða við gesti og
gangandi. Að sögn Skúla
rikir alger leynd um nöfn
gesta.
§ 20.50 Listræningjarnir
(Treasure Hunt).
Italskur spennumyndaflokk-
ur. 6. og síðasti þáttur.
Flokkur glæpamanna rænir
styttu úr grafhýsi frá tímum
Pompeii, og hyggst selja
bandariskum listaverkasala
hana.
§ 21.50 „Blue Note".
Fyrri hluti tónlistahátíðar
blús-tónlistarmanna í New
York. Tónleikarnir fóru fram
22. febrúar 1986 og meðal
annarra komu fram Bobby
Hutcherson, Herbie
Hancock, Stanley Jordan,
Bobby Timons, Bennie
Wallace og Washington-
Harline.
Seinni hluti er á dagskrá 10.
júní nk.
§ 22.50 Hildarleikurinn í Guy-
ana (Guyana Tragedy).
Seinni hluti.
Árið 1978 sló miklum óhug
á menn þegar þær fréttir
bárust frá Guyana, að trúar-
leiötoginn Jim Jones og 900
áhangenda hans hefðu
framið sjálfsmorð.
I þessum þáttum er forsaga
málsins rakin, og storma-
samur æviferill „leiðtogans"
Jim Jones kannaður.
Myndin er stranglega bönn-
uð börnum.
§ 00.35 Dagskrárlok.
Múnchen leika; Rafael Ku-
belik stjórnar.
17.40 Torgið
Umsjón: Einar Kristjánsson
og Sverrir Gauti Diego.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar
20.00 Tónlistarkvöld Ríkisút-
varpsins.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir
22.20 Frá útlöndum
Þáttur um erlend málefni í
umsjá Bjarna Sigtryggsson-
ar.
23.10 Djassþáttur
Jón Múli Árnason.
24.00 Fréttir
00.10 Samhljómur. Umsjón:
Edward J. Frederiksen.
(Endurtekinn þáttur frá
morgni.)
01.00 Veðurfregnir. Næturút-
varp á samtengdum rásum
til morguns.
fyrir Akureyri og nágrenni
—FM 96,5
Fréttamenn svæðisútvarps-
ins fjalla um sveitarstjórnar-
mál og önnur stjórnmál.
É*
MIÐVIKUDAGUR
3. júní
6.00 í bítiö. Snorri Már Skúla-
son léttir mönnum morgun-
verkin, segir m.a. frá veðri,
færð og samgöngum og
kynnir notalega tónlist í
morgunsárið. Fréttir á
ensku sagðar kl. 8.30.
9.05 Morgunþáttur i umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Skúla Helgasonar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Umsjón:
Leifur Hauksson, Guðrún
Gunnarsdóttir og Gunnar
Svanbergsson.
16.05 Hringiðan. Umsjón:
Broddi Broddason og Erla
B. Skúladóttir.
19.00Kvöldfréttir.
19.30 iþróttarásin. Umsjón:
Ingólfur Hannesson, Samú-
el Örn Erlingsson og Georg
Magnússon.
22.05 Á miðvikudagskvöldi.
Umsjón. Kristin Björg Þor-
steinsdóttir.
00.10 Næturvakt útvarpsins.
Magnús Einarsson stendur
vaktina til morguns.
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00, 17.00, 18.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
18.03-19.00 Svæðisútvarp
MIÐVIKUDAGUR
3. júní
07.00—09.00 Pétur Steinn og
morgunbylgjan. Pétur kem-
ur okkur réttu megin framúr
með tilheyrandi tónlist og
lltur yfir blöðin. Bylgjumenn
verða á ferð um bæinn og
kanna umferð og mannlif.
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og
9.00.
09.00—12.00 Valdis Gunnars-
dóttir á léttum nótum.
Sumarpopp allsráðandi, af-
mæliskveðjur og spjall til
hádegis. Verður litið inn hjá
fjölskyldunni á Brávallagötu
92. Fréttir kl. 10.00 og
11.00.
12.00-12.10 Fréttir.
12.10—14.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson á hádegi. Þor-
steinn spjallar við fólkið sem
ekki er i fréttum og leikur
létta hádegistónlist. Fréttir
kl. 13.00.
14.00—17.00 Ásgeir Tómas-
son og siödegispoppiö.
Gömlu uppáhaldslögin og
vinsældalistapopp í réttum
hlutföllum. Fréttir kl. 14.00,
15.00, 16.00.
17.00-19.00 Ásta R. Jóhann-
esdóttir í Reykjavík siödeg-
is. Ásta leikur tónlist, lítur
yfir fréttirnar og spjallar við
fólk sem kemur við sögu
Fréttir kl. 17.00.'
18.00-18.10 Fréttir.
19.00-21.00 Anna Björk
Birgisdóttir á flóamarkaðí
Bygjunnar. Flóamarkaður
og tónlist. Fréttir kl. 19.00
21.00-24.00 Sumarkvöld á
Bylgjunni.
24.00—07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar — Ólafur Már
Björnsson. Tónlist og upp
lýsingar um veður og flug
samgöngur.
ALFA
IfiMtkg étTMiiilll.
FM 102,9
MIÐVIKUDAGUR
3. júní
8.00 Morgunstund: Guðs
orð og bæn.
8.16 Tónlist.
12.00 Hlé.
13.00 Tónlistarþáttur með
lestri úr Ritningunni.
16.00 Dagskrárlok.