Morgunblaðið - 03.06.1987, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1987
39
St|örnu-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Tvíburi
í dag ætla ég að fjalla um
Tvíburamerkið (21. maí-20.
júnQ í samstarfi og vinnu.
Einungis er flallað um hið
dæmigerða fyrir merkið og
eru lesendur minntir á að
hver maður á sér nokkur
stjömumerki.
Samstarf
Við fyrstu kynni virðast
Tvíburar hinir fullkomnu
samstarfsfélagar. Þeir eiga
auðvelt með að aðlaga sig að
nánast hvaða umhverfi sem
er og síðan kemur til hin
fræga viðfelldni þeirra, já-
kvætt viðmót og tjáskipta-
hæfileiki.
Breytileiki
Hið framangreinda veldur því
að Tvíburinn á auðvelt með
að vinna með fólki. Það sem
hins vegar háir honum í sam-
starfi er breytileikinn. Nokkr-
um mínútum eftir að hann var
þér innilega sammála, hefur
hann skipt um skoðun og er
málsvari fyrir gagnstæð sjón-
armið. Stundum tekur breyt-
ingin nokkra klukkutíma,
daga eða mánuði en stað-
reyndin er sú að erfitt getur
verið að festa Tvíburann niður
og treysta á viðhorf hans og
ætlunarverk. Tvíburinn á því
til að vera heldur óáreiðanleg-
ur viðskiptafélagi. Vert er að
taka það fram að hér er ein-
ungis verið að tala um nei-
kvæða hlið Tvíburans sem
margir þeirra eru lausir við.
Streita
Önnur neikvæð hlið er sú að
Tvíburinn á það til að verða
stressaður þegar illa gengur
og snúast í hringi í kringum
sjálfan sig. Hann er ekki bar-
áttuglaður en vill frekar fara
í kringum mál. Hann á því til
að flýja af hólmi þegar hann
mætir mótspymu.
Vinna
Störf sem höfða til fjölhæfni
Tvíbura henta honum best.
Að upplagi er hann fljótur til
verka, snöggur í hugsun og
handlaginn. Hann er klár,
þegar hann hefur áhuga. Til
að halda áhuganum vakandi
þarf hann einungis að geta
breytt til. Helsti styrkur hans
liggur síðan á hugmyndasvið-
um, í því að tala við fólk,
selja, taka á móti og skemmta
öðrum með sögum, eða hlusta
á aðra. Hann þarf einungis
að geta komið og farið eins
og honum sýnist. Það eru t.d.
mistök að ráða Tvfbura í vinnu
sem krefst þess að viðkom-
andi sé bundinn á staðnum
allan daginn.
Hátt uppi
Þar sem Tvíburinn er hátt
stemmdur, þarf hann visst
aðhald í vinnu. Það getur t.d.
verið ágætt fyrir hann að
hafa félaga sem heldur honum
niðri á jörðinni. Félagi hans
má hins vegar ekki vera
þvingandi eða halda honum
sjálfum niðri. Létt aðhald
nægir. Til að beita slíku að-
haldi er nauðsynlegt að nota
hugsun og röksemdir. Tvíburi
þolir ekki skipanir en getur
hlustað á rök ef þau eru skyn-
samleg.
Ekki líkamlegur
Tvíburinn er ekkert sérstakur
í líkamlegri vinnu. Hann er
byggður fyrir hraða og and-
lega snerpu, síður fyrir
líkamlegt púl. Hann er því
fyrstur að mæta á fundi eða
í samkvæmi, er fyrstur að
grípa símann og hringja út í
bæ að þjarga málunum, en
síðastur að mæta í garðvinnu
eða flutninga. Tvíburinn er
bestur þegar hann starfar sem
milliliður. Hann er góður að
miðla á milli manna, hvort
sem um peninga, vörur, talað
eða skrifað mál er að ræða.
GARPUR
aAZPUR. HBLUR. SÉR. ÚT i BARÞAGASlN VlD
HlN BAHVÆNU SKR/ÐKV/K/NÞ/ HVjCSIS
HONVNGS-1 r
4 /HEÞAN /NN/ 1 HÖLÍ-/NN/
t (SBFSTV EKK/ UPP. VÞAR
HÁTIGN. pESS! TÖFPAPULA
STÖÞVAFt GLAM!
GRETTIR
HANN /MÆrn HAFA /MElS
UTAN 'A 0EINUNUM
eÚPLYHPOZ, \( hann ERVEIKVR
ER \?AV EKKi ?f'yyR.lRJ}UÐUHbTUH
5-20
DYRAGLENS
UOSKA
l t ^ \ r fr , / N 1 L rCDIMM AMH
rbKLHIMANLI
SMAFOLK
/0-23
Það er gaman þegar hund-
ur fagnar manni úr skólan-
um...
Andvarp.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Strax í öðrum slag sá austur
leið til að hnekkja þriggja tígla
samningi suðurs.
Norður
♦ 764
♦ ÁKD9
♦ Á9
♦ ÁK109
Austur
in... ♦ KDG109
111111 TL,
♦ DG65
Vestur Norður Austur Suður
— 1 lauf 1 spaði Pass
Pass Dobl 2 spaðar Pass
Pass Dobl Pass 3 tíglar
Pass Pass Pass
Vestur spilaði út spaðaás og
meiri spaða. Austur átti slaginn
og fann nú snjalla vöm. En
spumingin sem lesandanum er
boðið að svara er þessi: Hvaða
fimm slagi fékk vömin?
Vöm austurs fólst í því að
spila strax einspilinu ! hjarta,
geyma spaðaslaginn. Sagnir
benda til að suður eigi aðeins
fimmlit í tígli og vestur tvílit í
spaða. Ef svo er getur vömin
sótt sér þijá slagi á tromp og
tvo á spaða!
Norður
♦ 764
♦ ÁKD9
♦ Á9
♦ ÁK109
Vestur Austur
♦ Á2 ♦ KDG109
♦ 108752 ¥3
♦ 532 ♦ K87
♦ 732 +0065
Suður
♦ 853
♦ G62
♦ DG1064
♦ 84
Sagnhafi tók hjartaslaginn í
blindum og spilaði trompás og
meira trompi. Austur fór strax
upp með kónginn, spilaði spaða-
níunni, sem vestur hafði vit á
að trompa og spila hjarta. Bingó.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Jerúsalem
fyrir síðustu áramót kom þessi
staða upp í viðureign danska stór-
meistarans Curt Hansen, sem
hafði hvítt og átti leik, og heima-
mannsins Kraidman. Svartur lék
síðast 15. - Bd7-a4?
m issl ^rfi
H
mm,
JAlA
M liH..■
11 Ta
iM O *■ I
■ mm ■
16. Bxh7+! og svartur gafst upp,
því eftir 16. — Kxh7, 17. Dh5+
- Kg8, 18. Dxf7+ - Kh7, 19_
Hd3 fær hann ekki til lengdar
varist máti. Mótið var haldið á
sama tíma og Ólympíumótið í
Dubai til að mótmæla því að fsra-
elsmönnum var meinuð þátttaka.
Norðmaðurinn Simen Ágdestein
og Bandaríkjamaðurinn Dmitri
Gurevich sigruðu á mótinu, hlutu
8 v. af 11 mögulegum, en Hansen
varð þriðji með 7‘/z v.