Morgunblaðið - 10.06.1987, Side 1

Morgunblaðið - 10.06.1987, Side 1
96 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 128. tbl. 75. árg. MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Feneyjafundurinn: Shultz ánægður með stuðning við stefn- una á Persaflóa Feneyjum, Reuter. GEORGE Shultz, utanrfkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði að Bandaríkjamenn hefðu fengið stuðning leiðtoga helztu iðnrfkja heims við stefnu sfna f máiefnum Persaflóa á Feneyjafundinum. Bandarflrjamenn hafa heitið því að halda siglingaleiðum á Persaflóa opnum til að tryggja öryggi olíu- skipa. Leiðtogamir hvöttu til „raun- 110 ára kona kýs Thatcher Dundee, Reuter. KATE Begbie er 110 ára og hefur greitt atkvæði í öllum þingkosningum f Bretlandi frá árinu 1918, eða frá þvf konum var leyft að kjósa. Begbie ætlar ekki að bregða út af venju nú og fer ekki dult með hver fær atkvæðið á morg- un; Margaret Thatcher, forsætis- ráðherra. Samkvæmt skoðanakönnun- um, sem birtar voru í gær, stefnir allt í öruggan sigur íhaldsflokks- ins á morgun og þriðja kjörtímabil Thatchers, sem yrði einsdæmi í brezkum stjómmálum. Sjá „Glaumur og gleði á kosninganótt" á bls. 30 og „íhaldsflokkurinn lfklegur sigurvegari" á bls. 32. hæfra aðgerða" af hálfu Sameinuðu þjóðanna til að binda enda á Persa- flóastríðið. Slíkt gæti leitt til banns við vopnasölu til írans og þarmeð endaloka stríðsins. Feneyjafundinum lýkur í dag og er þá búist við sameiginlegri yfirlýs- ingu um aðgerðir til að draga úr viðskiptahalla og erlendri skulda- söfnun þróunarríkja. Auk þess er búist við að leiðtogamir samþykki meiriháttar flárhagsaðstoð við ríki þriðja heimsins, einkum við Afríku- ríki sunnan Sahara. Leiðtogamir vom sammála að taka upp nánara samstarf á sviði efnahagsmála og að samræma efna- hagsstefnu sína í auknum mæli. Sú ákvörðun hafði lítil sem engin áhrif á stöðu Bandaríkjadollars á gjaldeyr- ismörkuðum. Sjá „Bandaríkjamenn fá stuðn- ing á Persaflóa" á bls. 32. mm. Pht lí'BI . Bll p- I WMN (HM **•#• fveat* fu*~0 fwwd ^ fayH f, —SH—HHBSBHBHBBBSSSSBKgKBSB *g;mm mm sssssaaRSKssggKggaeaBs ufeijííLillLJ wwn '— .JSSSSBHSSSSSSSSBBS' Morgunblaðið/Árni Sæberg í gærkvöldi var veríð að leggja sfðustu hönd á undirbúning vegna fundar utanríkisráðherra Atlantshafs- bandalagsins í Reykjavík. Strengdur var öryggisborði kringum Hótel Sögu og á myndinni má sjá lögregluþjóna og starfsmenn Reykjavikurborgar á bak við borðann. Carrington lávarður framkvæmdastjóri NATO: Nafn Reykjavíkur tengt stórviðburðum sögunnar Utanríkisráðherrar 16 aðild- arríkja Atlantshaf sbandalagsins Páfi messar í Póllandi Reuter RÚMLEGA ein milljón Pólveija hlýddi á útimessu Jóliannesar Páls páfa n f borginni Lublin f gær. Áróðursspjöld fyrir hinni útlægu óháðu verkalýðshreyfingu, Samstöðu, voru áberandi. Messugestir klöppuðu af fögnuði er páfi hvatti 46 presta, sem tóku vfgslu við messuna, til að taka Samstöðuprestinn Jerzy Popi- eluszko, sem lögreglumenn myrtu árið 1984, sér til fyrírmyndar. Sjá „011 mannréttindabrot eru ögrun við friðinn" á bls. 33. hefja árlegan vorfund sinn hér f Reylqavik á morgun. Við því er búist, að þar verði rutt úr vegi sfðustu hindrunum innan banda- lagsins fyrir þvf, að þeir hittist f Bandaríkjunum í haust, Ronald Reagan, Bandarfkjaforseti, og Mikhail Gorbachev, leiðtogi Sov- étrfkjanna, og ljúki formlega við samning um brottflutning meðal- drægra kjamorkueldflauga frá Evrópu. Fyrsta sameiginlega skrefið til þessarar fækkunar stigu þjóðarleiðtogarnir hér f Reykjavfk í október síðastliðnum. Þá ræða utanríkisráðherramir einnig um stöðu hefðbundins her- afla í Evrópu og leiðir til að minnka hann. í sérstökum blaðauka Morgun- blaðsins í dag, sem er tileinkaður fundi utanríkisráðherranna, lýsa fjórtán þeirra afstöðu sinni til þeirra mála, sem hæst ber í störfum Atl- antshafsbandalagsins um þessar mundir. Þar er einnig grein eftir Carrington lávarð, framkvæmda- stjóra bandalagsins, sem segir, að í hugum manna sé nafn Reykjavíkur „óijúfanlega tengt einhveijum merkustu stjómmálaviðburðum í sögu eftirstríðsáranna" og vísar hann þar til leiðtogafundarins síðasta haust. Þar hafi opnast nýjar leiðir og takist samkomulag um meðaldrægu flaugamar hafi í fyrsta sinn verið „samið um útrýmingu heils vopnakerfis". Telur hann horf- ur í afvopnunarmálum nú sérstak- lega bjartar. í skeyti frá Reuter ræðir Michael Battye fréttaritari í Washington um að líkur á nýjum leiðtogafundi Reag- ans og Gorbachevs aukist, ef vel gengur á ráðherrafundinum hér, og segir, að það sé sérkennilegt, að í sömu borginni, Reykjavík, skuli leið- togamir hafa lagt gmnninn að samkomulagi og það hljóta blessun Atlantshafsbandalagsins. Tekur hann með því undir bjartsýnina vegna samnings um meðaldrægu flaugamar. Vahit Helefoglu, utanríkisráð- herra Tyrklands, kom fyrstur ráðherranna til landsins í gærkvöldi. Carrington lávarður er væntanlegur fyrir hádegi í dag og síðan koma ráðherramir hver af öðmm, sumir þeirra beint af leiðtogafundinum í Feneyjum. Ráðherrafundurinn verð- ur formiega settur fyrir hádegi á morgun í Háskólabíói en siðan hefj- ast lokaðir fundir á Hótel Sögu. Stefnt er að fundarslitum um hádeg- isbil á föstudag. Sjá ennfremur forystugrein, „Oflugasta friðarhreyfingin" á bls. 34, Reykjavíkurfundur Atl- antshafsbandalagsins á bls. 1-16 B og „Svæðið kríngum Sögu...“ á bls 28. Afganskir skæruliðar fella 80 Sovétmenn blamabad, Reuter. ERLENDIR stjórnarerindrekar í Kabúl, höfuðborg Afganistans, segja að skæruliðar hafi gert árás á sovéska bækistöð í norður- hluta landsins, við Salang-veg- inn, sem tengir Kabúl við sovésku landamærín, og felit um 80 her- menn. Árásin var gerð 30. mai síðastliðinn. Séu upplýsingamar réttar er þetta mesta mannfall sem Sovét- menn hafa orðið fyrir í einni árás síðan þeir réðust inn í landið í des- ember 1979. Sömu heimildir sögðu skæmliða hafa fellt sjö hermenn í árás á fylkingu hermanna í And- arab-dal 2. júní. Erindrekamir sögðu einnig að bardagar hefðu verið mjög harðir í nágrenni Kabúl undanfamar vikur en skæraliðar reyna nú að ná aftur fótfestu á hálendinu í austurhluta landsins sem þeir yfirgefa á vet- uma. Sovétmenn svara fyrir sig með sprengjuárásum úr lofti og beita einnig stórskotaliði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.