Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 66
Vlft 66 JVC DYNAREC MYNDBÖND 6 mismunandi lengdir Dreifing UMBOÐIÐ LAUGAVEGI 89 n 91-27840 UTANHÚS MÁLNING SEM DUGAR VEL KÓPAL-DÝRÓTEX hleyptir raka auöveldlega í gegnum sig. Mjög gott verörunar- og lútarþol og rakagegnstreymi. KÓPAL-DÝRÓTEX dugar vel. GEGN STEYPU SKEMMDUM STEINVARI 2000_ hefur þá einstöku eiginleika aö vera þétt gegn vatni í fljótandi ástandi, en hleypa raka í loftkenndu ástandi auðveldlega í gegnum sig, tvöfalt betur en heföbundin plastmálning. Viljir þú verja hús þitt skemmdum skaltu mála meö STEINVARA 2000. Nm o *r k . *r r^/Tf /i / MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987 M—hátíð á Isaf irði lauk á laugardaginn: Þjóðmenningin er okkar fram- lag til heimsmenningarinnar -sagði Þorvaldur Garðar Kristjánsson, forseti sameinaðs Alþingis Litli leikklúbburinn flutti atriði úr Kristrúnu í Hamravík eftir SVERRIR Hermannsson, menntamálaráðherra, efndi til menningarhátíðar á ísafirði, dagana 3—6. júní, í samvinnu við bæjarstjórn ísafjarðar. Var hátíðin með mjög svipuðu sniði og M—hátíðin á Akureyri sem haldin var á síðastliðnu ári. í ræðu sem menntamálaráð- herra hélt við setningu hátíðarinn- ar, sagði hann að M-ið stæði fyrir „mál, menntun, menning,“ með megináherslu á málið. Tilgangur- inn með hátíðinni væri að snúa vöm í sókn fyrir íslenska tungu. Hugmyndina að hátíðinni kvaðst hann hafa fengið fljótlega eftir að hann tók við embætti mennta- málaráðhera, þegar hann hélt ráðstefnu í Þjóðleikhúsinu með ungu fólki, hvaðanæva af landinu. Niðurstaðan af þeim fundi hefði verið sú að megináhersla skyldi lögð á það, á öllum stöðum á landinu, að láta hendur standa fram úr ermum til að varðveita tungumál okkar og þá þjóðmenn- ingu sem á hér þrífst. Sem fyrr segir hélt mer.nta- málaráðherra hátíðina nú öðru sinni og sagði hann að hún myndi haldin árlega og þá í „gömlu" fjórðungunum fyrst til að byija með. Eftir ávarp Sverris Hermanns- sonar, frumsýndi hópur frá Þjóðleikhúsinu nýtt íslenskt verk, „Hvar er hamarinn," eftir Njörð P. Njarðvík, við tónlist eftir Hjálmar H. Ragnarsson og var Brynja Benediktsdóttir leikstjóri sýningarinnar. Fyrr, þennan sama dag, var opnun sýningar á mál- verkum úr Listasafni íslands í Frímúrarasalnum á ísafirði. Við það tækifæri flutti Haraldur Líndal, bæjarstjóri ávarp. Þakkaði hann menntamálaráðherra fyrir að gera Vestfírðingum kleift að sjá listaverk þjóðarinnar í sinni heimbabyggð, í stað þess að þurfa að gera sér ferð til Reykjavíkur til þess ama. Að loknu ávarpi bæjarstjóra söng Guðrún Jóns- dóttir einsöng við undirleik Beötu Joó. Á fimmtudagskvöldið var sam- felld dagskrá úr verkum eftir Guðmund Gíslason Hagalín. vestfírska höfunda. Jónas Tómas- son, yngri, flautuleikari, flutti frumsamið verk, auk verka eftir Jónas Tómasson, eldri, Jón Lax- dal, Ragnar H Ragnar og Hjálmar H Ragnarsson. Félagar úr Litla leikklúbbnum á ísafirði fluttu at- riði úr Manni og konu eftir Jón Thoroddsen og kafla úr Kristrúnu í Hamravík eftir Guðmund G Hagalín. Páll Ásgeirsson las upp úr „Söguköflum af sjálfum mér“ eftir Matthías Jochumsson, Jakob F Garðarsson las nokkur ljóð úr „Þorpinu" eftir Jón úr Vör og Pétur Bjamason las smásöguna „Stiginn," eftir Fríðu Á Sigurð- ardóttur. Hátíðinni lauk með hátíðardag- skrá í Félagsheimilinu í Hnífsdal á laugardainn. Þorvaldur Garðar Kristjánsson, forseti sameinaðs Alþingis, stjómaði dagskránni og sagði meðal annars, „M—hátíð hefur tilgang og þessi tilgangur varðar það sem er mikilvægast í lífí íslenskrar þjóðar. Varðar tungu og þjóðmenningu og þjóð- menningin er framlag okkar til heimsmenningarinnar." Þvínæst ávarpaði Kristinn Jón Jónsson, forseti bæjarstjómar ísaflarðar, hátíðargesti og Sverrir Her- mannsson, menntamálaráðherra flutti erindi um Jón Sigurðsson og Vestfírðinga. Guðmundur Ingi Kristjánsson, skáld las frumsamin ljóð, Hrafns- eyri, Músarindill, Búmannskvæði 1980 og Fannfergi, auk smærri ljóða sem enn hafa ekki verið gefín út. Bjöm Teitsson, skóla- meistari á ísafírði flutti erindi um framtíð islenskrar tungu, Helgi Þorláksson cand.mag. um Jón Indíafara og Sigfús Daðason, skáld flutti erindi um Stein Stein- arr. Sunnukórinn söng á milli erinda, með aðstoð félaga úr Karlakór ísafjarðar, undir stjóm Beata Joó. Undirleikari var Sigríður Ragnarsdóttir. Auk þess lék Anna Áslaug Ragnarsdóttir einleik á píanó. Að lokinni þessari hátíðardagskrá var hátíðinni slit- ið. Hátíðin á ísaf irði vel sótt: M-hátíð verður næst haldin á Vesturlandi M-HÁTÍÐIN á ísafirði, sem stóð yfir dagana 3.-6. þessa mánaðar, þótti takast sérstak- lega vel og að sögn Haraldar Haraldssonar, bæjarstjóra þar, var hún vel sótt í alla staði og sagði hann bæjarbúa þakkláta menntamálaráðherra fyrir þetta framlag. „Það er mikill munur að fá menninguna flutta hingað vestur; að þurfa ekki að fara alla leið til Reykjavíkur til að geta séð leikrit í uppfærslu Þjóðleikhússins eða verk í eigu Listasafns íslands," sagði Haraldur. „Landsbyggðin öll á örugglega eftir að fínna hversu mikilsvert þetta framlag er eftir að menningar hátíðir af þessu tagi hafa farið víðar en til Akureyrar og ísafjarðar," sagði Haraldur. „Það er ætlunin að halda áfram með þessar M-hátíðir,“ sagði Sverrir Hermansson, mennta- málaráðherra í samtali við Morgunblaðið. Aðspurður um hvar halda ætti hátíð af þessu tagi næst sagði hann að Vesturland yrði næst fyrir valinu. „Stykkishólmur verð- Morgunblaðið/Bjami Guðrún Jónsdóttir, söngkona, söng fyrir viðstadda við opnun myndlistarsýningar í Frímúrarasaln- um á ísafirði, en þar var haldin sýning á verkum í eigu Listasafns tsiands. ur lfklega næsti viðkomustaður í tengslum við Gunnar Gunnars- ég þegar skipað nefnd til að und- og árið 1989 verður síðan haldin son, rithöfund, en þá verða 100 irbúa hana,“ sagði menntamála- hátið austur á Egilsstöðum og þá ár liðin frá fæðingu hans, og hef ráðherra að lokum. (
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.