Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987 39 Kosið á milli tveggja lista í sameinuðum Reykhólahreppi Miðhúsum, Reykhólasveit. TVEIR listar hafa komið fram vegna fyrstu hreppsnefndar- kosninganna í hinum nýja Reykhólahreppi, sem varð til eftir sameiningu allra hreppa Austur—Barðastrandarsýslu. Eru það U-listi uppstillinganefndar hreppsnefnda gömlu hreppanna og R-listi Samtaka um eflingu byggðar í Reykhólahreppi. Kosningarnar verða laugardaginn 20. júni næstkomandi. U-listinn er listi uppstillinganefndar hreppsnefnda Geiradals-, Reyk- hóla-, Gufudals- og Flateyjar- hrepps. Hann er þannig skipaður: 1. Guðmundur Olafsson, oddviti, Grund, Reykhólahreppi. 2. Áshildur Vilhjálmsdóttir, oddviti, Króksfjarð- amesi, Geiradalshreppi. 3. Einar Hafliðason, sýslunefndarmaður, Gufudal, Gufudalshreppi. 4. Jó- hannes Gíslason, hreppstjóri, Skáleyjum, Flateyjarhreppi. 5. Smári Baldvinsson, bóndi, Borg, Reykhólahreppi. 6. Karl Kristjáns- son, bóndi, Gautsdal, Geiradals- hreppi. 7. Valdimar Jónsson, verkstjóri, Reykhólum. Guðmundur Ólafsson, efsti mað- ur U-listans, vildi sem allra minnst láta hafa eftir sér um framboðið. Hann sagði að engin flokkspólitík væri með í spilinu á U-listanum og menn hefðu ekki verið valdir á list- ann eftir stjómmálaskoðunum. Hann hvatti alla til þess að vera varkára í dómum, því að hinni vænt- anlegu hreppsnefnd veitti ekki af því að standa saman. Hann sagði að stefnuskrá listans væri ekki komin fram, enda nýlega búið að ákveða framboðið. R-listinn, listi Samtaka um efl- ingu byggðar í Reykhólahreppi, er þannig skipaður: 1. Stefán Magnús- son, verkstjóri, Reykhólum. 2. Siglufjörður: Aætlunar- fluginu flýtt um helgina Siglufirði. ARNARFLUG flýtti áætlunar- flugi sínu til Blönduóss og Siglufjarðar um helgina. Varð það til þess að Siglfirðingar fengu sunnudagsblað Morgun- blaðsins á laugardagskvöldið en það hefur ekki gerst áður. Flugvélin sem átti að koma á sunnudagskvöldið, hvítasunnudag, kom á laugardagskvöidið. Með henni var aðallega póstur auk dag- blaðanna. Morgunblaðið var borið út þá strax um kvöldið, sólarhring fyrr en vant er, og kunnu Siglfirð- ingar vel að meta þessa þjónustu Amarflugs. Matthías Hafnarfjörður: Apótekin safna göml- um lyfjum FRAM tíl 19.júní gefst Hafn- f irðingum kostur á að losa sig við ljff, sem ekki eru lengur notuð á heimilinu. Apótekin í Hafnarfirði; Hafnarfjarð- arapótek og Apótek Norður- bæjar taka við lyfjunum. Markmiðið með þessari lyfja- söfiiun er að losa heimiiin við ónauðsynleg lyf og þau sem eru fymd. Jafnframt er það hent- ugra frá umhverfissjónarmiði að almenningur skili inn lyfjum í apótek fremur en að farga þeim sjálfur. (Frá Heilsugæslu Hafnar- fjarðar og Apótekunum í Hafnarfirði.) Hafsteinn Guðmundsson, oddviti, Flatey. 3. Daníel Jónsson, bóndi, Ingunnarstöðum, Geiradalshreppi. 4. María Björk Rejmisdóttir, hjúkr- unarfræðingur, Reykhólum. 5. Dagný Stefánsdóttir, bóndi, Selja- nesi, Reykhólahreppi. 6. Halldór Gunnarsson, bóndi, Gilsfjarðar- múla, Geiradalshreppi. 7. Sólrún Ósk Gestsdóttir, kennari, Reyk- hólum. „R-listinn er ekki flokkspólitfsk- ur, en auðvitað er hann pólitískur, því að orðið pólitík þýðir fram- kvæmd stefnu," sagði Stefán Magnússon, efsti maður R-listans. Listinn er með markaða stefnuskrá og Stefán segir hann skipaðan ungu fólki, sem sækja vill fram í málefn- um hreppsins. Helstu stefnumálin eru: R-listinn vill afla fjármagns til nýrra atvinnutækifæra og stuðla að því að fullvirðisréttur bænda nálgist meðalbústærð. Listinn vill vinna að bættum samgöngum við aðra hluta Vest§arða, að brú komi yfir Gilsfjörð og að samgöngur verði bættar á sjó og landi innan byggð- ar. Hann vill gera fólki auðveldara að setjast að í hreppnum og bæta þjónustu. R-listinn vill styrkja hvem þann nemanda sem búsettur er í Reykhólahreppi, sem nær fram- haldseinkunn, og hvetja til fram- haldsnáms. Sveinn Morgunblaðið/Sigurgeir Alda Björnsdóttir frá Vest- mannaeyjum við eina mynda sinna. Vestmannaeyjar: Sýnir í Akóges -húsinu Vestmannaeyjum. ALDA Björnsdóttir opnar mynd- listarsýningu í Akóges-húsinu í Vestmannaeyjum fimmtudaginn 11. júní kl. 20.00. Sýningin verð- ur opin í fjóra daga frá kl. 14.00-22.00 fram á sunnudags- kvöld. Alda sýnir 30 olíumálverk sem flest eru máluð á þessu og síðasta ári. Einnig eru um 20 myndir á sýningunni sem eru málaðar á fjau- el. Þetta er þriðja einkasýning Öldu Bjömsdóttur og hún hefur áður tekið þátt í samsýningum. Hún var síðast með sýningu í Reykjavík 5 nóvember 1986. - hkj. VATN glörðu svo vel Hvort sem þú ætlar aö veita vatni um lengri eða skemmri veg er varla til auðveldari og ódýrari leið en gegnum rörin frá Reykjalundi. Rörin frá Reykjalundi eru viðurkennd fyrir gæði og auðvelda meðferð. Flestar stærðir vatnsröra, kapalröra, frárennslisröra og hitaþolinna röra eru jafnan til á lager og með tiltölulega stuttum fyrirvara er hægt að afgreiða sverari rör. Sérstök áhersla er lögð á mikla og góða þjónustu. Rörin frá Reykjalundi - rör sem duga. REYKIALUNDUR i Söludeild • Sími 666200
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.