Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
Hún Margrét Borgarsdóttir fekk ovænta
launauppbót um mánaðamótin.
Sextán þúsund krónur, skattfrjálsar.
Það þekkja flestir söguna um hana
Margréti Borgarsdóttur. Hún fór eft-
ir ráðleggingum þeirra hjá Fjárfest-
ingarfélaginu, sem aðstoðuðu hana
við kaup á verðbréfum. Ráðgjafinn
hennar áætlaði um síðustu áramót
að hún fengi um 42.000 krónur á
mánuði í verðtryggðar tekjur á
næstu mánuðum.
En hún Margrét fékk gott betur.
Margrét fór eftir persónulegri ráð-
gjöf þeirra hjá Fjárfestingarfélaginu.
Hún á nú rúmlega fjórar milljónir
bundnar í Tekjubréfum. Þau hafa
skilað 17.7% ársvöxtum umfram
verðtryggingu síðastliðna 3 mán-
uði. Þess vegna fékk Margrét 58.000
krónur í mánaðarlaun fyrstu þrjá
mánuði ársins. Það er 16.000 króna
launauppbót.
Fjárfestingarfélagið sendi Margréti
launin sín alla leið til Spánar. Hún
ætlar að búa þar í sumar. Margrét
s var hálfpartinn að vonast til þess að
Haraldur, frændi hennar, kæmi í
heimsókn í vikutíma eða svo. En
Haraldur sem nú er farinn að klóra
sér í skallanum, hefur ekki svarað
bréfunum hennar. Hann sást síðast
í biðröð fyrir framan ferðaskrifstofu
um hánótt.
TlL UMHUGSUNAR:
1. Hvernig getur venjulegt fólk, sem
ekki telur sig vera fjármálaspek-
inga, ávaxtað fé sitt í tryggum
verðbréfum?
2. Hvers vegna eru Tekjubréfin
heppileg fyrir þá sem eru að
komast á eftirlaunaaldur?
3. Hvaða fyrirtœki býður þér per-
sónulega ráðgjöf í sambandi við
sérfrœðilegt val á traustum verð-
bréfum?
Sendið rétt svar til Fjárfestingarfé-
lagsins, Hafnarstrœti 7, Reykjavík,
merkt Haraldur frœndi.
Besta svarið í viku hverri, allan
þennan mánuð fœr eintak af bók-
inni góðu FJÁRMÁLIN ÞÍN i verð-
laun.
FJARFESTINCARFEIAGIÐ
Hafnarstræti 7 101 Reykjavík ^ (91) 28566
Góðan daginn!
Morgunblaðið /V aldimar Kristinsson
Öllum á óvart sigraði Freyja frá Efstadal í 250 metra skeiði en knapi
á henni var Jóhann Valdimarsson.
Hvítasunnukappreiðar Fáks:
Oþekkt hryssa,
Freyja frá Efsta-
dal, sigraði
Leist í skeiðinu
Hvftasunnukappreiðar Fáks voru að venju haldnar nú um helgina
og stóð mótið yfir í fjóra daga. Þátttaka í flestum greinum mótsins
var heldur minni en verið hefur undanfarin ár og sérstaklega var
þátttaka í brokki og stökkgreinum kappreiða slök. Aðeins tveir hest-
ar voru skráðir í 250 metra unghrossahlaup en nokkrir voru skráðir
á mótsdag þannig að hægt var að skrapa í riðil. Einn riðill var í
hverri grein kappreiðanna nema skeiðinu en þar voru samtals skráð-
ir 43 hestar og virðist ekkert lát
Þátttaka í gæðingakeppninni var
heldur í minna lagi en hestamir sem
þar komu fram voru yfir höfuð
mjög góðir. í A-flokki varð efstur
Þokki frá Höskuldsstöðum sem Ing-
imar Ingimarsson sat, annar varð
Heljar frá Stóra-Hofí og í þriðja
sæti Tinni frá Efri-Brú. Knapi á
Heljari var Albert Jónsson en Sig-
valdi Ægisson sat Tinna. í B-flokki
sigraði Bijánn frá Hólum en knapi
á honum var Sigurbjöm Báðarson,
annar varð Kjami frá Egilsstöðum
sem Sævar Haraldsson sat og í
þriðja sæti varð ísak frá Runnum
en hann sat Hafliði Halldórsson.
í yngri flokki unglinga sigraði
Edda Sólveig Gísladóttir á Janúar
frá Keldnaholti en í eldri flokki sigr-
aði Ragnhildur Matthíasdóttir á
Bróður frá Kirkjubæ.
. vinsældum þess.
í skeiðinu gerðust þau undur og
stórmerki að óþekkt hryssa með
jafn óþekktan knapa sigraði í 250
metra skeiði öllum á óvart og skaut
hún þar aftur fyrir sig ekki ómerk-
ari hesti en Leisti frá Keldudal sem
er methafí í bæði 150 og 250 metra
skeiði. Hryssan sem hér um ræðir
er Freyja 6581 frá Efstadal en
knapinn heitir Jóhann Valdimars-
son og er hann eigandi hryssunnar.
Tímar í kappreiðunum voru þokka-
legir ef mið er tekið af því að nýju
eftii var ekið á hluta brautarinnar
skömmu fyrir mót og var völlurinn
mjög laus í sér á köflum.
Aðsókn að mótinu var frekar
dræm en ekki var selt inn á mótið
að þessu sinni. Nánar verður sagt
frá mótinu síðar.
Edda Sólveig Gisladóttir sigraði í yngri flokki unglinga á Janúar
frá Keldnakoti sem reyndar var skráður sem Máni frá Hnausum.