Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 44
44
s*-
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
AHYGGJULAUS
ídaesinsönn/
Þú átt ekki að þurfa að hafa minnstu áhyggjur af sparifé þínu
EIGIR ÞÚ FÉ Á INNLÁNSREIKNINGI MEÐ ÁBÓT,
VÖKUM VIÐ YFIR ÞÍNUM HAG.
o
<
g
jj
(?>
Mánaðarlega aðgætum við hvort fastir vextir
eða verðbætur gefi hærri ávöxtun, og veljum svo,
— þér í hag. Auk þess býðst þér:
I. Full verðtrygging.
2. Fullir vextir strax frá innleggsdegi.
3. Ábót, sem leggst við innstæðuna mánaðarlega.
4. Frjáls úttekt, án úttektarkostnaðar.
ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS HF
Góð rekstr-
arafkoma
Kaupfé-
lags Aust-
ur-Skaft-
fellinga
Höfn, Hornafirði.
AÐALFUNDUR Kaupfélags
Austur-Skaftfellinga var haldinn
nýlega á Höfn í Hornafirði. Mik-
il umskipti hafa orðið í rekstn
félagsins frá síðasta starfsári. Á
þessu starfsári var 40 milljón
króna hagnaður en 50 milljón
króna tap árið áður, þó er
greiðslustaða fyrirtækisins ekki
nógu góð eða neikvæð um 100
milljónir en fjárfestingar urðu
miklu meiri en áætlanir gerðu
ráð fyrir.
Heildarvelta félagsins nam á sl.
ári 1.409.768 þúsund króna ogjókst
um 27,1%. 47,6% af veltunni koma
frá fiskvinnslunni, 28,5% frá versl-
un og þjónustu, 18,6% frá land-
búnaði og 5,3% frá annarri
starfsemi.
Mestum hagnaði skilaði físk-
vinnslan eða 31.870 þúsundum
króna. Sömuleiðis var hagnaður af
versluninni 1.477 þúsundir króna,
en halli varð á afurðareikningi land-
búnaðar, krónur 1.570 þúsund.
í máli kaupfélagsstjórans, Her-
manns Hanssonar, og stjómarform-
anns, Bimis Bjamassonar, kom
fram að helstu ástæður fyrir bætt-
um hag félagsins töldu þeir vera
aukinn sjávarafla og bætt staða í
sjávarútvegi, gott starfsfólk og
breytt skipulag sem gert var á sl.
starfsári, lækkun vaxta og verð-
bólgu og góð ytri skilyrði.
Meðal tillagna sem samþykktar
vom á fundinum má nefna: Tillaga
um stofnun sjóðs um byggingu
safnahúss á Höfn, tillaga um athug-
un á vinnslu humarklóa, tillaga um
að beina því til stjómar Sambands
islenskra samvinnufélaga að stofna
sjóð til að fjármagna viðhald og
varðveislu gamalla bygginga í eigu
eða umsjá kaupfélaganna og nefna
má tillögu þar sem stjóm Sambands
íslenskra samvinnufélaga er gagn-
rýnd fyrir að veija fjármunum til
að styrkja sýningu á alheimsfegurð-
arsamkeppni í auglýsingaskyni á
Stöð 2 sem nær aðeins til Stór-
Reykjavíkursvæðisins.
Ennfremur var á fundinum sam-
þykkt að veija 2,5 milljónum króna
til launauppbóta fyrir starfsmenn
félagsins.
- AE
4