Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
Helgin langa
Minnismiðar hvítasunnuhelgar-
innar ættu að endast í ófá
greinarkomin en tími flölmiðlarýnis-
ins þýtur á ljóshraða og ekki dugir
að hanga í fortíðinni, því verður að
grípa það sem hendi er næst en
fleygja hinu. Skrifað stendur Ekki
gleyma lengstu samfelldu sjónvarps-
dagskrá íslenskrar sjónvarpssögu!
Hér hlýtur rýnirinn að eiga við hvíta-
sunnudagskrá Stöðvar 2 er hófst
klukkan 9 um morguninn og lauk
ekki fyrr en klukkan 2 um nóttina.
Tölvísir menn geta svo dútlað við að
reikna út sjónvarpsmínútufjöldann.
Og hér gríp ég annan miða glóðvolg-
an: Tónleikagleði ríkissjónvarpsins!
Bíddu nú hægur, er hér ekki átt við
sunnudaginn 7. júní þegar dagskrá
ríkissjónvarpsins hófst klukkan
14.15 á Leðurblökuóperunni hans
Jóhanns Strauss og uppúr kvöld-
fréttum hljómaði trúarleg popptónlist
í 45 mínútur, svo lauk dagskránni
um kl. 00.50 á tónlistarhátíð i Vínar-
borg. Og svo er hér minnismiði
skreyttur þessari dularfullu setningu:
Á sömu slóðir! Sennilega vísar þessi
miði á þá dagskrárstaðreynd að
bæði Bylgjan og hin nýfædda Stjama
skunduðu á tónleika hjá sömu hljóm-
sveitinni, það er að segja Stuðmönn-
um. Og hvað finn ég hér, heilan
bunka af miðum merktum: Fegurð-
arsamkeppnin ’87. Það er best að
reyna að moða svolítið úr þessari
hrúgu.
Þindaröndun
Já, svo sannarlega setti Fegurð-
arsamkeppnin ’87 svip á dagskrá
ljósvakafjölmiðlanna um hvítasunnu-
helgina, ekki síst á dagskrá nýju
útvarpsstöðvarinnar Stjömunnar,
þar sem var efnt til spumingakeppni
er snerist um þessá keppni í fortíð
og nútíð og svo var efnt til: Stjömu-
keppni ’87; þá mættu stúlkumar á
staðinn og sungu Litlu andarungana
fyrir hlustendur og loks var bein
útsending frá lokakeppninni í Broad-
way og ekki sá ég betur en að
aðalkynnir lokasprettsins væri einn
af nýbökuðum þáttastjórum Stjöm-
unnar. Það má því segja að Stjömu-
menn hafi sinnt Fegurðarsamkeppn-
inni af alúð, svo ekki sé meira sagt.
En þeir Stjömumenn vom ekki
einir um hituna. Valdís Gunnars-
dóttir á Bylgjunni var dugleg við að
spyija stelpumar spjömnum úr og
svo mætti Valdís líka uppí Broadway
á vegum Ríkissjónvarsins rétt um
miðnættið á mánudagskveldið; end-
urtók spumingamar og lýsti sjálfri
krýningunni. Satt að segja beið ég
spenntur eftir þessum lokamínútum,
ekki endilega vegna þess að ég bygg-
ist við óvæntum úrslitum heldur var
ég logandi hræddur um að einhver
stúlknanna hnigi f ómegin á sviðinu
sökum matarskorts og óhæfílegs lóð-
arís (nýyrði yfír vaxtarrækt). En allt
fór þetta nú vel enda stelpumar bún-
ar að læra að ganga og svo er mikill
stuðningur að þindarönduninni hans
Gunnars Eyjólfssonar. Verð ég að
segja alveg einsog er að mér fannst
hafa tekist frábærlega til með þjálfun
stúlknanna, að vísu riðaði ein þeirra
ögn og einni stúlkunni stökk ekki
bros, en tóku menn eftir líkamanum,
hinum huggulega innfallna maga og
svo smekklega kinnfískasognar þess-
ar litlu elskur. Ég er handviss um
að stúlkumar hefðu ekki litið betur
út hefðu þær notið handleiðslu aust-
ur-evrópskra þjálfara er hafa hingað
til náð hvað bestum árangri í mótun
kvenlíkamans.
Neðst f minnismiðabunkanum fínn
ég svo dularfullan miða þar sem
stendur: Gleymdu ekki spékoppunum
á Hófí og Elizabeth Taylor! Nei, svo
sannarlega gleymi ég ekki henni
Hófí okkar er geislaði af heilbrigði
á Breiðvangssviðinu né heldur henni
Elizabeth Taylor er lauk fyrrgreindri
maraþondagskrá Stöðvar 2 í hlut-
verki Kleópötru. Þessar konur hafa
náð að geisla vegna þess einfaldlega
að þær fengu notið sinna guðsgjafa
og hvað um hana Kleópötru er þótti
nú ekki beint fríð á sinni tíð en heill-
aði samt veldissprota úr höndum
heimsveldisstjómenda?
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
Stöð 2:
Annika
■■■■ Annika, ástar-
OA55 saga tveggja
ungmenna frá
ólíkum þjóðfélögum, er á
dagskrá Stöðvar 2 í kvöld
og er þetta fyrsti hlutinn
af þrem. Annika er ein
hundrað Svía sem koma í
sumarskóla til Englands.
Þar hittir hún breskan
strák, Pete, og gegn ætlan
Pete verða þau ástfangin.
Þegar Annika fer aftur
heim til Svíþjóðar fer Pete
á eftir henni. Hann kann
ekki sænsku og þykir Svíar
heldur framandlegir í hátt-
um. Annar hluti myndar-
inna^’Verður á dagskrá 12.
júní og þriðji hluti sunnu-
daginn 14. júní.
ÚTVARP
©
MIÐVIKUDAGUR
10. júní
6.46 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir
7.03 Morgunvaktin. Hördís
Finnbogadóttir og Óðinn
Jónsson. Fréttir eru sagðar
kl. 8.00 og veöurfregnir kl.
8.15. Fréttayfirlit kl. 7.30 og
síðan lesið úr forystugrein-
um dagblaðanna. Tilkynn-
ingar lesnar kl. 7.25, 7.55
og 8.25. Fréttir á ensku
sagöar kl. 8.30.
9.00 Fréttir. TÍIkynningar.
9.06 Morgunstund barn-
anna: „Sögur af Munda"
eftir Bryndisi Víglundsdótt-
ur. Höfundur lýkur lestrinum
(11).
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir
10.30 Óskastundin: Helga Þ.
Stephensen.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.06 Samhljómur. Umsjón:
Edward J. Frederiksen.
(Þátturinn verður endurtek-
inn að loknum fréttum á
miðnætti.)
11.66 Útvarpið i dag.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir
12.46 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 I dagsins önn - Barna-
menning.
Umsjón: Sigrun Proppé.
(Þátturinn verður endurtek-
inn nk. sunnudagsmorgun
kl. 8.35.)
14.00 Miödegissagan:
„Davíð", smásaga eftir Le
Clécio. Þórhildur Ólafsdóttir
þýddi og flytur formálsorð.
Silja Aðalsteinsdóttir les
fyrri hluta.
14.30 Harmoníkuþáttur. Um-
sjón: Sigurður Alfonsson.
(Endurtekinn þátturfrá laug-
ardegi.)
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
16.20 Hvernig má bægja
kjarnorkuvánni frá dyrum?
Þorsteinn Helgason leitar
svars hjá Páli Einarssyni
jarðeðlisfræðingi, séra
Gunnari Kristjánssyni og
Norðmanninum Erik Alfsen.
(Endurtekinn þáttur frá
mánudagskvöldi.)
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.06 Dagbókin.
Dagskrá.
16.16 Veðurfregnir
16.20 Barnaútvarpið
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.06 Síðdegistónleikar.
a. Concerto grosso op. 6 eftir
Arcangleo Corelli. Kammer-
sveit Slóvakíu leikur; Bodan
Warchal stjórnar.
b. Konsert í A-dúr fyrir tvær
fiðlur og hljómsveit eftir
Antonio Vivaldi. Susanne
Lautenbacher og Ernesto
Mampaey leika með Kamm-
9.20 Morguntrimm. Tónleik-
SJÓNVARP
MiÐVIKUDAGUR
10. júní
18.30 Úr myndabókinni.
Endursýndur þáttur frá 7.
júní. Umsjón: Agnes Jo-
hansen.
19.30 Hver á að ráða? (Who’s
The Boss?)
12. þáttur. Bandariskur
gamanmyndaflokkur um
einstæöan föður sem vinnur
eldhússtörfin fyrir önnum
kafna móður. Aöalhlutverk:
Tony Danza, Judith Light
og Katherine Helmond. Þýö-
andi: Ýrr Bertelsdóttir.
20.00 Fréttir og veöur.
20.40 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Spurt úr spjörunum.
Átjándi þáttur. Spyrlar: Óm-
ar Ragnarsson/Kjartan
Bjargmundsson. Dómari:
Baldur Hermannsson.
Stjórn upptöku: Ásthildur
Kjartansdóttir.
21.16 Garðastræti 79 (79 Park
Avenue).
Nýr flokkur — Fyrsti þáttur.
Bandarískur framhalds-
myndaflokkur í sex þáttum
geröur eftir skáldsögu Har-
old Robbins um léttúöar-
drós í New York. Aðalhlut-
verk: Lesley Ann Warren,
David Dukes, Michael
Constantine og Raymond
Burr. Sagan segir frá Mari-
önnu Morgan sem á heldur
dapurlega æsku og byrjar
snemma að vinna fyrir sér
í danshúsi einu. Á betrunar-
stofnun lærir hún nektar-
dans, karlmenn elta hana á
röndum og samskiptin við
þá verða helsta tekjulind
Maríönnu. Þýðandi: Jó-
hanna Þráinsdóttir.
22.06 Sjötta skilningarvitið.
Endursýning. 4. Endur-
holdgun. Myndaflokkur um
dulræn efni frá 1975. i þess-
um þætti er rætt við Kristján
frá Djúpalæk, Erlend Har-
aldsson og Sören Sörens-
son. Umsjón: Jökull
Jakobsson.
23.00 Dagskrárlok.
10. júní
§ 16.46 Shadey (Shadey).
Bresk gamanmynd frá árinu
1985 með Anthony Sher,
Billie Whitelaw, Lesley Ash
o.fl. ( aðalhlutverkum. Leik-
stjóri er Philip Saville.
Oliver Shadey hefur þann
eiginleika til að bera aö geta
framkallað hugsanir á auða
filmu. Hann vill helst nota
þennan eiginleika til góðs
en leiöist út i vafasamt at-
hæfi þegar hann þarf á
peningum að halda til þess
að gangast undir kynskipta-
aðgerö.
§ 18.30 Bestu lögin.
Gunnar Jóhannsson leikur
bestu lögin í dag.
19.00 Benji (Benji).
Nýr, leikinn myndaflokkur
fyrir yngri kynslóðina. Hund-
urinn Benji vingast við
ungan prins frá annarri plán-
etu og kemur honum til
hjálpar á örlagastundu.
§19.30 Fréttir.
§20.00 Viöskipti.
I þessum athafna- og efna-
hagsþætti er víða komiö við
í athafnalífi landsmanna.
Stjórnandi: Sighvatur
Blöndnal.
20.16 Happ í hendi.
Að þessu sinni snýr starfs-
fólk Heklu hf. lukkuhjólinu.
Umsjónarmaður er Bryndís
Schram.
§ 20.66 Annika (Annika).
Ástarsaga tveggja ung-
menna frá ólíkum þjóðfélög-
um. Fyrsti hluti af þremur.
Með aðalhlutverk fara
Christina Rigner, Jesse
Birdsall, Vas Blackwood,
An-Charlotte Stalhammar,
Birger österberg og Anders
Bongenhielm. Leikstjóri:
Colin Nutley.
Annika er ein af mörg
hundruð Svíum sem korna
I sumarskóla til Englands.
Hún hittir þar breskan strák,
Pete, og gegn ætlan Pete
verða þau ástfangin. Þegar
Annika snýr aftur til Sviþjóð-
ar eftir þriggja vikna dvöl
brestur hjarta Pete og fer
hann á eftir henni. Hann
kann ekki sænsku og þykir
Svíar heldur framandlegir í
háttum. Annar hluti myndar-
innar verður á dagskrá
föstudaginn 12. júní og
þriðji hluti sunnudaginn 14.
júní.
§21.60 Endurhæfingin
(Comeback Kid).
Bandarísk sjónvarpsmynd
frá árinu 1980 með John
Ritter, Susan Dey, Dough
McKeon, Jeremy Licht og
James Gregory [ aðahlut-
verkum. Leikstjóri: Peter
Levin.
Mynd þessi fjallar um fyrr-
verandi hafnaboltaleikmann
sem tekur að sér að þjálfa
nokkra götukrakka sem
treysta engum og engu. Þar
fyrir utan þarf hann að
tjónka við unga konu sem
stjórnar leikvallasvæðum
borgarinnar og eru krakk-
arnir ósparir á ráðin í því
sambandi.
§ 23.26 „Blue Note."
Síðari hluti tónlistarhátiðar
blús-tónlistarmanna í New
York. Tónleikarnir fóru fram
22. febrúar 1985 og meðal
annarra komu fram Bobby
Hutcherson, Herbie Han-
cock, Stanley Jordan,
Bobby Timons, Bennie
Wallace og Washington-
Harline.
00.26 Dagskrárlok.
ersveit Emils Seiler; Wolf-
gang Hofmann stjórnar.
17.40 Torgiö
Umsjón: Einar Kristjánsson
og Sverrir Gauti Diego.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.06 Torgið, framhald.
Tilkynpingar.
18.46 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar.
Staldrað við. Haraldur Ól-
afsson spjallar um mannleg
fræði og ný rit og viöhorf í
þeim efnum.
20.00 Ungir norrænir einleik-
arar 1986. Hakan Rosen-
gren leikur meö Fílharm-
oniusveitinni í Helsinki;
Osmo Vánská stjórnar.
Klarinettukonsert op. 57 eft-
ir Carl Nielsen.
20.30 Sumar í sveit. Umsjón:
Hilda Torfadóttir. (Frá Akur-
eyri.) (Þátturinn verður
endurtekinn næsta dag
kl. 15.20.)
21.20 Orgelvikan í Núrnberg
1986.
a. Hans og Martin Has-
elböck leika orgelverk fyrir
tvö orgel eftir Gaétano
Piazza, Johann Christian
Bach og Ludwig van Beet-
hoven.
b. Marie Bernadette Dufo-
urcet-Hakim leikur hugleið-
ingu sína um „uppgefið
stef" í Pachelbel-keppninni.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.16 Veðurfregnir
22.20 Frá útlöndum
Þáttur um erlend málefni í
umsjá Bjarna Sigtryggsson-
ar.
23.10 Djassþáttur
Jón Múli Árnason.
24.00 Fréttir
00.10 Samhljómur. Umsjón:
Edward J. Frederiksen.
(Endurtekinn þáttur frá
morgni.)
01.00 Veðurfregnir. Næturút-
varp á samtengdum rásum
til morguns.
10. maí
00.10 Næturvakt útvarpsins.
Magnús Einarsson stendur
vaktina.
6.00 (bítiö. Snorri Már Skúla-
son léttir mönnum morgun-
verkin, kynnir notalega
tónlist i morgunsáriö. Fréttir
á ensku sagðar kl. 8.30.
9.06 Morgunþáttur í umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Skúla Helgasonar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.46 Á milli mála. Umsjón:
Leifur Hauksson, Guðrún
Gunnarsdóttir og Gunnar
Svanbergsson.
16.06 Hringiöan. Umsjón:
Broddi Broddason og Erla
B. Skúladóttir.
19.00Kvöldfréttir.
19.30 (þróttarásin. Umsjón:
Ingólfur Hannesson, Samú-
el Örn Erlingsson og Georg
Magnússon.
22.06 Á miðvikudagskvöldi.
Umsjón. Kristín Björg Þor-
steinsdóttir.
00.10 Næturvakt útvarpsins.
Magnús Einarsson stendur
vaktina til morguns.
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00, 17.00, 18.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
18.03-19.00 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni
—FM 96,5
Fréttamenn svæöisútvarps-
ins fjalla um sveitarstjórnar-
mál og önnur stjórnmál.
10. júní
07.00—09.00 Pétur Steinn og
morgunbylgjan. Pétur kem-
ur okkur réttu megin framúr
með tilheyrandi tónlist og
lítur yfir blöðin. Bylgjumenn
verða á ferð um bæinn og
kanna umferö og mannlíf.
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og
9.00.
09.00—12.00 Valdis Gunnars-
döttir á léttum nótum.
Sumarpoppiö allsráðandi,
afmæliskveðjur og spjall til
hádegis. Veröur litið inn hjá
fjölskyldunni á Brávallagötu
92. Fréttir kl. 10.00 og
11.00.
12.00-12.10 Fréttir.
12.10—14.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson á hádegi. Þor-
steinn spjallar við fólkiö sem
ekki er i fréttum og leikur
létta hádegistónlist. Fréttir
kl. 13.00.
14.00—17.00 Ásgeir Tómas-
son og síðdegispoppið.
Gömlu uppáhaldslögin og
vinsældalistapopp i réttum
hlutföllum. Fréttir kl. 14.00,
15.00, 16.00.
17.00—19.00 Ásta R. Jóhann-
esdóttir í Reykjavik síðdeg-
- is. Ásta leikur tónlist, lítur
yfir fréttirnar og spjallar við
fólk sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 17.00.
18.00-18.10 Fréttir.
19.00—21.00 Anna Björk
Birgisdóttir á flóamarkaöi
Bygjunnar. Flóamarkaður
og tónlist. Fréttir kl. 19.00.
21.00—24.00 Sumarkvöld á
Bylgjunni.
24.00—07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar — Ólafur Már
Bjömsson. Tónlist og upp-
lýsingar um veöur og flug-
samgöngur.
ALFA
UMihi twn«m.
FM 102,9
10. júní
8.00 Morgunstund: Guðs
orð og bæn.
8.16 Tónlist
12.00 Hlé.
13.00 Tónlistarþáttur með
lestri úr Ritningunni.
16.00 Dagskrárlok.