Morgunblaðið - 10.06.1987, Page 30

Morgunblaðið - 10.06.1987, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987 Reuter Endurfundir íMoskvu Síðastliðinn laugardag komu tvö barnabörn Sakharov-hjón- anna til Moskvu. Það voru þau Anna og Matvei, sem sjást á meðfylgjandi mynd ásamt afa og ömmu, þeim Yelenu Bonner og Andrei Sakharov. Börnin voru þó ekki einu gestirnir sem komu til Nóbelsverðlaunahaf- ans og konu hans, því að börnin komu í fylgd móður sinnar, Tatjönu Yankelevich, og langömmu, Rutar Bonner. Bretland: Glaumur o g gleði á kosninganóttína St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttarit&ra Morgunblaðsins. MIKIÐ verður um dýrðir á kosn- inganóttina, aðfararnótt föstu- dags, hér í Bretlandi. Almennt virðist iandslýður nota tækifærið til að skemmta sér, og stjórn- málamenn geta ekki lengur sest niður eftir kosningadag með flokksfólki og drukkið eitt sherry-glas. Á Piccadilly-torgi í London verð- ur kosningahátíð, þar sem risastórt skilti — í beinu sambandi við BBC- sjónvarpið — birtir úrslitin jafnóð- um og þau berast. Ritz-hótelið í London heldur skemmtun í fyrsta sinn á kosninganótt, þar sem þjónar með slaufur munu bera gestum stjómmálakokteila. Gestir, sem biðja um íhaldsdrykk, fá þurran vermouth, blandaðan við bláan curacao til að ná hægrisveiflunni. Stuðningsmenn Verkamanna- flokksins fá kirsuberjabrennivín blandað í créme de cassis, svo að þeir verði algerlega vamarlausir. „Bijálaði flokkurinn" (The Monster Raving Loony Party) held- ur kosningaskemmtun í aðalstöðv- um flokksins á ölstofu í Dartmoor, en flokkurinn fékk mann kosinn í bæjarstjóm í vor í fyrsta sinn í sögu sinni, enda bauð hann einn fram í þeim bæ. Að venju verður mikið um að vera í sjónvarpi. BBC byijar dag- skrá sína klukkan 22 um kvöldið og stendur hún til klukkan fjögur um nóttina og heldur síðan áfram daginn eftir. ITN byijar sína dag- skrá kl. 22.30 með sérstakri kosningaútgáfu á „Spéspegli" (Spitting Image), sem sumir óttast að verði fullerfið fyrir þandar taug- ar stjómmálamannanna þessa nótt. V opnasölumálið: Einkaritari Norths eyði- lagði og breyttí skjölum Washington, Reuter. FAWN Hall, einkaritari Olivers North ofursta, hefur nú greint rannsóknamefnd Bandarikja- þings í vopnasölumálinu frá þvi er hún aðstoðaði yfirmann sinn við að eyðileggja og breyta skjöl- um varðandi vopnasöluhneykslið áður en hann var rekinn úr Hvita húsinu. Einnig kvaðst hún hafa smyglað út skjölum innan klæða. „Ég tók við skjölum, sem hann tók upp úr skúffum peningaskáps síns, og eyðilagði milii tólf og átján síður í einu,“ sagði Hall á mánudag fyrir þingnefndinni. Hún kvað trúnaðarskjöl hafa ver- ið eyðilögð af slíku kappi 21. nóvember á síðasta ári að kalla þurfti á viðgerðarmenn til að gera við sérstakan pappírstætara. Fjór- um dögum síðar var North rekinn úr starfí sínu hjá þjóðaröryggisráð- inu vegna gruns um að hann hefði átt'þátt í að greiðslur fyrir vopn Fawn Hall. Reuter mnnu í vasa skæruliða í Nicaragua. Þegar þessir atburðir áttu sér stað hafði dómsmálaráðuneytið haf- ið rannsókn á vopnasölumálinu, sem var þá að koma fram í dagsljósið. Gæti því reynst ólöglegt að eyði- leggja, breyta eða fjarlægja slfk skjöl til þess að hindra ffamgang réttvísinnar. Lawrence Walsh, rannsóknar- dómari í vopnasölumálinu, hefur ákveðið að Hall verði undanþegin málshöfðun og verður vitnisburður hennar því ekki notaður gegn henni í rétti. Hall greindi einnig frá því er hún fór í skrifstofu Norths í þjóðarör- yggisráðinu, sem er á sömu lóð og Hvíta húsið, nokkrum klukkustund- um eftir að hann hafði verið rekinn. Komst hún að því sér til skelfingar að þeim hafði sést yfir ýmis skjöl 21. nóvember. „Ég tók afrit af skjöl- um, sem breytt hafði verið, braut þau saman og setti í stígvél mín,“ sagði Hall. Hún kvaðst hafa falið önnur skjöl innan klæða og gengið með þau á brott nokkrum klukku- stundum áður en skrifstofan var innsigluð. Lét hún North hafa skjöl- in í bifreið fyrir utan Hvíta húsið. Castro sleppir föngum Washington, Reuter. KÚBÖNSK yfirvöld hafa faUizt á að láta lausa úr haldi um 300 pólitíska fanga, fyrir milligöngu kaþólskra biskupa, að því er skýrt var frá á ráðstefnu kaþó- likka í Washington um helgina. Að svo stöddu hefur ekki verið skýrt frá nánar, hvenær mennimir verða látnir lausir, en haft eftir öruggum heimildum, að það verði fljótlega. Nicholas DiMarzio, biskup sat nýverið ráðstefnu kaþólskra í Havana og ræddi hann þá tvisvar við Fidel Castro, hæstráðanda landsins. Að þeim fundum loknum lýsti Castro því yfir að hann ætlaði að sleppa nefndum fongum og myndu kaþólskir biskupar, sem ekki voru nafngreindir hafa samvinnu við Kúbani um málið. Austur-Berlín: „Það verður að rífa múrinn“ -hrópuðu þúsundir ungmenna Austur-þýskir lögreglumenn berja á mótmælendum þriðja daginn í röð Svíþjóð: Nancy forsetafrú í heimsókn Stokkhólmi, Reuter NANCY Reagan, forsetafrú Bandaríkjanna kom á mánudag í opinbera heimsókn til Svíþjóð- ar, en þangað kom hún frá Feneyjum eftir að hafa fylgt bónda sínum á leiðtogafundinn þar. í Svíþjóð hitti hún meðal annars Lisbet Palme, ekkju Olofs Palme, Ingvar Carlsson, forsæt- isráðherra, heimsótti meðferðar- heimili eiturlyfjasjúklinga og snæddi hádegisverð með Silvíu Svíadrottningu. Nokkuð bar á mótmælum vegna komu forsetafrúarinnar og voru alls um 90 manns handteknir fyrir að giýta Iögregluvörðinn við hótel hennar. Þeim var flestum sleppt, en verða kærðir fyrir árás á lög- regluþjóna. Nancy virtist sjálf ekki kippa sér upp við mótmælin og sagði að Svíar væru friðsöm og íjöl- menn þjóð — ofbeldisaðgerðir 90 manna lýstu aðeins innræti þeirra sjálfra. til Bandarílqanna í september. Það verður í fyrsta skipti í 25 ár sem sænskur valdamaður fer vestur um haf til Bandaríkjanna, en samskipti ríkjanna kólnuðu mjög í valdatíð Olofs Palme. Þótti afstaða hans til Bandaríkjanna vera fjandsamleg mjög og voru stjómmálasambands- slit jafnvel til umræðu. Austur-Berlín, Moskvu, Reuter. LÖGREGLUMENN í Austur- Berlin börðust í gær við á að giska fjögur þúsund ungmenni sem höfðu safnast saman nálægt sovésku og bandarisku sendiráð- unum í borginni. Kallaði fólkið vígorð gegn Berlínarmúmum, sem aðskilur borgina frá Vest- ur-Berlín, og sönglaði einnig nafn Gorbachevs Sovétleiðtoga. Mótmælin hófust á sunnudags- kvöldið er fjöldi unglinga hafði safnast saman á hinni frægu breið- götu „Uhter den Linden" rétt hjá múmum og sendiráðum risaveld- anna í von um að heyra í bresku rokkhljómsveitinni Genesis, sem nú heldur hljómleika í Vestur-Berlín. Lögreglumenn stugguðu þá við fólkinu. Fréttamenn töldu að 50 manns hefðu verið handteknir í gær en Sao Paulo: Fimm rottur á hvern íbúa Nancy Reagan. Auk þess að snæða hádegisverð með Sylvíu Svíadrottningu gekk forsetafrúin á fund Ingvars Carls- sonar, forsætisráðherra, en hann er væntanlegur í opinbera heimsókn Sao Paulo, Bramlíu, Reuter BLAÐ í Sao Paulo, höfuðborg Brasilíu, skýrði frá því í síðustu viku að mikil rottuplága heijaði á borgina og væri nú svo komið að í borginni væru 40 milljónir rottur. Blaðið hafði þetta eftir heilbrigð- isyfirvöldum í borginni og líta þau málið alvarlegum augum. Er verið að skipuleggja tuttugu daga herferð til að reyna að útrýma þessari plágu, eða að minnsta kosti reyna að fækka rottum svo, að ekki verði eftir' nema um það bil rotta á íbúa. yfírvöld gáfu engar tölur upp. Olætin hófust með því að nokkur hundruð unglingar umkringdu hóp óeinkennisklæddra leynilögreglu- manna og heimtuðu að múrinn yrði rifinn niður. Sömuleiðis söngluðu þeir nafn Gorbachevs en margir ungir Austur-Þjóðveijar vona að fijáislynd stefna hans muni hafa áhrif á harðlínumennina sem stjóma Austur-Þýskalandi. Er handtökumar hófust beitti lögreglan kylfum og svaraði fólkið m.a. með því að æpa:„Niður með svínin" og syngja Intemationalinn, Alþjóðasöng verkamanna.Einnig var skotið flugeldum. Okyrrð var á svæðinu í meira en sex klukkustundir í gær en skömmu eftir miðnætti tókst lögreglunni að hrekja unglingana burt frá múm- um. Opinber talsmaður Sovétstjóm- arinnar sagði í gær að Kremlveijar gætu ekkert haft á móti því að ungmenni hrópuðu nafn Gorba- chevs þegar þau mótmæltu við Berlínarmúrinn. „Unglingar eru atorkumiklir. Stundum get ég ekki annað en öf- undað ungt fólk þegar ég sé dugnað þess á íþróttavöllum. í leikfimisölum og á götum úti", sagði talsmaður- inn, Boris Pyadyshev, hjá upplýs- ingadeild utanríkisráðuneytisins. Hann sagðist jafnframt vilja taka skýrt fram að forysta og almenn- ingur í Austur-Þýskalandi styddu umbótastefnu Sovétríkjanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.