Morgunblaðið - 10.06.1987, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
Banaslys í
Vaglaskógi
Grenivík.
FIMMTÁN ára gamall piltur frá
Akureyri fannst látinn í tjaldi í
Vaglaskógi á laugardagsmorg-
un.
Félagi piltsins var fluttur á
sjúkrahúsið á Akureyri þungt hald-
inn af reykeitrun. Talið er að
pilturinn hafí látist af völdum reyk-
eitrunar frá útigrilli, sem hann
notaði til að hita upp tjald sitt.
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
fór strax austur og rannsakar hún
þetta hörmulega slys. Piltamir voru
báðir ft'á Akureyri. Ekki er hægt
að birta nafn hins látna að svo
stöddu. Vigdís
Stórslasað-
ur eftir vél-
hjólaslys
SAUTJÁN ára piltur liggur nú
stórslasaður i Borgarspítalanum
eftir að hafa misst stjóm á stóra
vélhjóli aðfaranótt sunnudags-
ins.
Pilturinn var á leiðinni frá
Reykjavík um klukkan fjögur að-
faranótt hvítasunnudags. I Þver-
holti í Mosfellssveit, á móts við
Reykjaveg, missti hann stjóm á
hjólinu og ók á umferðareyju. Hann
kastaðist af hjólinu og slasaðist
mjög mikið, hlaut mikil innvortis
meiðsli og brotnaði á báðum hand-
leggjum. Pilturinn var þegar fluttur
í Borgarspítalann og liggur þar
þungt haldinn. Hann hafði ekki
réttindi til að aka hjólinu og talið
er að hann hafí ekið á mikilli ferð.
Wi ____________
Morgunblaðið/Sverrir
Það logaði glatt í rústum verkstæðis Vita- og hafnamálastofnun-
ar í gærkvöldi. Ekkert eignatjón varð.
Kópavogur:
Bruni í rústum
verkstæðis
Talinn vera af mannavöldum
VERKSTÆÐI Vita- og hafna-
málastofnunarinnar við Kárs-
nesbraut í Kópavogi brann í
gærkvöldi.
Það var kl. tæplega átta í gær-
kveldi að slökkviliðið í Reykjavík
var kvatt að birgðahúsi Vita- og
hafnamálastofnunar rikisins. Þar
logaði glatt í 7-800 fermetra verk-
stæðishúsi stofnunarinnar, sem
nýlega var hafíst handa við að
rífa.
Að sögn Amþórs Sigurðssonar
aðalvarðstjóra hjá Slökkviiiði
Reylqavíkur var allt tiltækt lið
kvatt út, enda leit bmninn út fyr-
ir að vera mun stærri en raun bar
vitni. Erfíðlega gekk í upphafí að
ná í vatn til brunastarfsins, en
eftir það tók það um hálftíma að
ráða niðurlögum bálsins. Unnu
um 40-50 manns að slökkvistörf-
um.
í gærdag var verið að vinna
að því að rífa verkstæðishúsið og
skrapp sá sem vann verkið heim
í mat um kvöldið. Á meðan hann
var §arverandi braust eldurinn
út. Að sögn Tómasar Sigurðsson-
ar hjá Vitamálastofnun var búið
að flytja allt verðmæti úr húsinu,
svo tjón varð ekkert.
Verkstæðishúsið hafði verið
aftengt rafmagni og var það álit
Amþórs Sigurðssonar að um
íkveikju væri að ræða.
Ólafur tekur við
stöðu fræðslu-
stjóra í dag
„ÓLAFUR Guðmundsson tekur
við stöðu sinni sem fræðslustjóri
Norðurlandsumdæmis á morgun,
það er fullfrágengið,“ sagði
Eldur
ííbúð
biskups
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var
i gær kallað að Reynigrund 67 í
Kópavogi, en þar hafði komið
upp eldur i íbúð.
Þegar slökkviliðið kom á vett-
vang reyndist eldur vera í skrif-
stofuherbergi, en í íbúðinni býr
Sigurbjöm Einarsson, biskup. Sig-
urbjöm hafði reynt að ráða niður-
lögum eldsins sjálfur, en að sögn
slökkviliðsmanna brást hann rétt
við þegar það tókst ekki og lokaði
hurð skrifstofu sinnar vel. Talsverð-
ar skemmdir urðu á skrifstofu
biskups og brunnu meðal annars
bækur og ýmis skjöl hans. íbúðin
slapp að öðru leyti við skemmdir.
Sigurbjöm Einarsson var fluttur á
slysadeild þar hann hafði orðið fyr-
ir lítilsháttar reykeitmn og einnig
sviðnaði hár hans og augabrýr.
Stjómarmyndunarviðræðum
var fram haldið í gærdag og
gætti aukinnar bjartsýni á að
þessi tilraun takist, í máli manna
að loknum viðræðum í gær. Bú-
ast menn jafnvel við því að á
þingflokksfundum í dag verði
hægt að komast að niðurstöðu
um það hvort raunverulegur
samkomulagsgrundvöllur þess-
ara þriggja flokka sé fyrir hendi.
Fleiri virðast hallast að þvi að
svo sé.
balsson, formaður Alþýðuflokksins,
við fréttamenn eftir viðræðumar í
gær. Hann sagði að nefndir hefðu
skilað niðurstöðum í gær, bæði
húsnæðisnefndin og vinnuhópurinn
í nkisflármálum, en landbúnaðar-
nefndin væri enn að störfum og
skilaði að Iíkindum niðurstöðum um
miðjan dag í dag.
Alþýðuflokkur og Framsóknar-
flokkur héldu þingflokksfundi í
hádeginu í gær, en kl. 14 hófust
viðræður á nýjan leik. Jón Baldvin
sagði að þá hefði verið rætt um
stjómkerfí, byggðastefnu og heil-
brigðismál. Hann sagði að enn hefði
ekkert verið rætt um skiptingu
ráðuneyta.
Á fundinum fyrir hádegi í dag
verða mennta- og skólamál rædd.
Jón Baldvin sagði að ef stuðst væri
við líkingar úr skólamáli þá mætti
segja að námsefnisyfírferð og upp-
lestri lyki á hádegi í dag og upp
úr því tækju við munnleg próf, þar
sem á það yrði látið reyna hvort
pólitískur vilji væri til samstarfs.
Sverrir Hermannsson, mennta-
málaráðherra, i samtali við
Morgunblaðið í gær.
Ólafur Guðmundsson, settur
fræðslustjóri, sagði í samtali við
Morgunblaðið að það væri rétt,
hann yrði fyrir norðan á meðan
staðan í þessari deilu milli fræðslu-
yfírvalda nyrðra og menntamála-
ráðherra stæði óbreytt.
„Ég er hins vegar reiðubúinn að
fara úr þessu starfí hvenær sem
er, verði það ein af þeim forsendum
sem settar verða fram til að sættir
takist," sagði Ólafur. „Það er hins
vegar ljóst að þetta mál þarf að
leysa í heild sinni, ekki bara ein-
staka þætti þess, og á þessu stigi
málsins skal ég láta ósagt hvort ég
verð í þessu starfí í 30 daga eða
30 ár, en ég reikna ekki með að
starfsaldurinn verði langur," sagði
Ólafur að lokum.
Aukin bjartsýni á að
stj ómarmyndun takist
Sameiginleg
yfirlýsing
um burðar-
þolsskýrsluna
Verkfræðistofa Háskóla ís-
lands og Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins sendu
frá sér sameiginlega yfiriýs-
ingu í gær vegna könnunar á
burðarþoli nokkurra bygg-
inga.
Yfírlýsingin er á þessa leið:
„Vegna misskilnings sem gætt
hefur í umræðu um burðarþols-
könnun sem gerð var fyrir
félagsmálaráðuneytið vilja und-
irritaðir taka eftirfarandi fram:
1. Könnunin leiðir ótvírætt í ljós
að hönnun og eftirlit með bygg-
ingum er áfátt. 2. Undirritaðir
gera sér vonir um að könnunin
leiði til jákvæðrar þróunar við
hönnun bygginga með verulegu
átaki í staðlamálum á sviði þol-
hönnunar."
Undir þetta skrifa Hákon Ól-
afsson forstöðumaður Rann-
sóknastofnunar byggingariðn-
aðarins og Ragnar Sigurbjöms-
son forstöðumaður
Verkfræðistofu Háskóla ís-
lands.
Vinnudeila verkfræðinga harðnar:
Stimpmgar við verkfræði-
stofu vegna verkfallsvörslu
Enn hefur ekki verið gert bind-
andi samkomulag fíokkanna um
eitt einasta atriði í þessum viðræð-
um, en menn eru sammála um að
línur hafí skýrst, þannig að nú verði
léttara að hefja eiginlegar samn-
ingaviðræður, verði niðurstaðan sú
að fara út í þær.
„Þetta hefur gengið nokkuð
greitt," sagði Jón Baldvin Hanni-
Annaog
Antti leiða
mótið
ANNA Ashsharumova vann Ró-
bert Harðarson í 8. umferð opna
Egilsstaðamótsins í skák í gær-
kvöldí en Antti Pyhálfl gerði
jafntefli við Þröst Áraason. Mót-
inu lýkur í dag.
Þessi tvö em efst og jöfn í 1.
riðli mótsins með 6 vinninga. Bela
Perenyi átti einnig möguleika á 6
vinningum en skák hans var ekki
lokið þegar síðast fréttist í gær-
kvöldi.
Til stimpinga kom við Verk-
fræðistofu Sigurðar Thoroddsen
hf. við Ármúla í Reykjavík í gær
þegar verkfallsverðir Stéttarfé-
lags verkfræðinga vildu hindra
meint verkfallsbrot. Mismunandi
sjónarmið eru uppi í Verkfræð-
ingafélagi ísland um hvort þeir
verkfræðingar, sem eiga hluta-
bréf í verkfræðistofunum sem
þeir vinna hjá, eigi að taka þátt
í verkfalli Stéttarfélags verk-
fræðinga, sem staðið hefur síðan
á föstudag.
Að sögn eins verkfallsvarðarins
höfðu 8-9 manns verið við verk-
fallsvörslu við verkfræðistofuna frá
klukkan 7.30 í gærmorgun og vísað
nokkmm starfsmönnum stofunnar
frá. Klukkan 12.45 hefðu 7-8 menn
komið í hóp að útidymm stofunnar
og dymar samtímis opnaðar inn-
anfrá. Til nokkurra stimpinga og
jafnvel handalögmála kom en á
endanurrt fóm allir inn sem þangað
sóttu.
Högni Jónsson, formaður Stétt-
arfélags verkfræðinga, sagði í
samtali við Morgunblaðið að stétt-
arfélagið liti svo á að verkfræðingar
ættu að vera í stéttarfélaginu og í
verkfalli, þótt þeir ættu hlutabréf f
þeim verkfræðistofum sem þeir
vinna hjá, á sömu forsendum og
verkamenn hjá til dæmis Eimskip
taka þátt í verkföllum sinna stéttar-
félaga þótt þeir eigi hlutabréf í
Eimskip eins og margir aðrir. Staða
þessara verkfræðinga væri í engu
ffábmgðin stöðu annarra launþega.
Högni sagði að verkfræðingar
myndu styrkja verkfallsvörsluna og
mæta tvíefldir við Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen hf. og fleiri
stofur í dag.
Viðar Ólafsson, formaður Verk-
fræðingafélags íslands, er fram-
kvæmdastjóri og einn hluthafa í
Verkfræðistofu Sigurðar Thorodd-
sen hf. Hann sagði við Morgun-
blaðið að á ýmsum stærri
verkfræðistofum væm margir með-
eigendur sem jmnu sjálfír á stofun-
um en væm um leið atvinnurekend-
ur og því ekki í stéttarfélagi.
Viðsemjandi Stéttarfélags verk-
fræðinga er Félag ráðgjafarverk-
fræðinga, sem era samtök verk-
fræðistofueigenda. Þessi háttur
hefði verið hafður á í 17 ár og aldr-
ei áður komið upp ágreiningur um
skyldur verkfræðistofueigenda þar
til nú að stéttarfélagið hefði uppi
þann málflutning að eigendur ættu
að vera í stéttarfélagi og í verk-
falli. Þessu hefði eigendur mótmælt
enda gildi allt annað um þá en
verkamenn hjá Eimskip.
Stéttarfélag verkfræðinga er
deild í Verkfræðingafélagi íslands.
Viðar sagði að verkfræðingafélagið
skiptist í nokkrar greinar, bæði fag-
legar og hagsmunalegar, þar á
meðal félög launþega og atvinnu-
rekenda meðal verkfræðinga. Því
væri ekkert óeðlilegt að mismun-
andi sjónarmið kæmu fram innan
félagsins.
Enginn sáttafundur hefur verið
haldinn í þessari vinnudeilu frá því
verkfall verkfræðinga skall á að-
faranótt föstudagsins. Að sögn
Guðlaugs Þorvaldssonar, ríkissátta-
semjara, í gærkvöldi bjóst hann þó
allt eins við að kalla deiluaðila sam-
an til fundar í dag, en hann kannaði
óformlega viðhorf samninganefnd-
anna í gær. Aðallega strandar á
launalið kjarasamningsins, en í við-
tali við Morgunblaðið fyrir helgi
sagði formaður samninganefndar
Stéttarfélags verkfræðinga að kröf-
ur þeirra væm um 32% launahækk-
un en Félag ráðgjafarverkfræðinga
hefði boðið 24% hækkun.