Morgunblaðið - 10.06.1987, Side 22
22 oo
MORGUNBLABIÐ, MIBVIKUDAGUR 10..JÚNÍ 1987
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA
hefur af stórhug styrkt happdrættið
LANDSSAMBAND
H JÁLPARSVEITA SKÁTA
- HARDSNUNAR SVEITIR Tll HJÁLPAR ÞÉR 06 ÞÍNUM.
Með einstakri samvinnu björgunarsveita og
þjóðarinnar hefur miklum fjölda mannslífa verið
bjargað.
Fyrirstuðning þinnog þinnalíkaeru harðsnúnarog
vel búnar hjálparsveitir í viðbragðsstöðu um land
allt, hvenær sem hjálparbeiðni berst.
Að kaupa miða í stórhappdrætti okkar er ein leið til
framlags. Það munar um miðann þinn -og þig
munar vissulega um hvem og einn af þeim 265
stórvinningum sem í pottinum eru - mundu enginn
veit heppni sína.
Við látum vinningshafa vita um vinninginn.
HELGAfíRE,SUfí
fyrir 2 til Hamborgar
** með Arnarflugi
FIATUN045S
yJB ifyyyJujjj
"WDL yklZZ
'Sk0l“yn,>,
Bíldudalur:
Minnisvarði um
Þormóðs slys-
ið afhjúpaður
Bfldudal.
HÁTÍÐARHÖLDIN 14. júní hefj-
ast með siglingu Sölva Bjarna-
sonar með íbúa staðarins um
Arnarfjörð. Síðan verður hátíð-
arguðsþjónusta í Bíldudalskirkju
og hefst hún kl. 14.00. Það verð-
ur prófastur Barðstrendinga,
séra Þórarinn Þór, sem prédikar
og setur séra Flosa Magnússon í
embætti sóknarprests staðarins.
Við hátíðarmessuna í Bíldudals-
kirlqu munu hjónin séra Gunnar
Bjömsson prestur Fríkirlqunnar í
Reykjavík og Ágústa Ágústsdóttir
flytja tónlist með söng og einleik á
selló. Minnst verður 80 ára afmælis
Bfldudalskirkju sem var á síðast-
liðnum vetri, gjafa og áheita sem
henni hafa borist. Að lokinni guðs-
þjónustu verður afhjúpaður minnis-
varði um Þormóðsslysið mikla árið
1943 en margir Bflddælingar fórust
með því skipi. Minnisvarðinn er
þriggja metra há blágrýtissúla með
áletruninni Til minningar um þá
sem fórust með Þormóði 1943 og
alla aðra sem farist hafa í Amar-
fírði í tímans rás. Það verður Páll
Ægir Pétursson sem afhjúpar
minnisvarðann en Jón Kr. Ólafsson
söngvari á Bfldudal hefur haft veg
og vanda að uppsetningu hans. Að
lokinni kirkjuhátíðinni verður kaffi-
samsæti í félagsheimilinu og svo
venjuleg dagskrá sjómannadagsins
sem endar með dansleik um kvöldið.
Bflddælingar hafa lagt töluverða
áherslu á að fegra og snyrta bæinn
fyrir hátíðina, m.a. er hafín vinna
við nýtt útitorg sem stendur neðan
við félagsheimilið Baldurshaga.
Miklar framkvæmdir verða hjá
hreppnum í sumar. Lokið verður
við að setja bundið slitlag á allar
götur staðarins og eru það u.þ.b. 2
km sem eftir em. Þá era einnig
töluverðar framkvæmdir við
íþróttavöllinn og þar er einnig verið
að ganga frá tjaldstæði.
— Hannes
Leiðrétting
í Morgunblaðinu laugardaginn
6. júní var birt mynd af Leikhópnum
Perlunni, sem starfar í Þroska-
þjálfaskólanum í Stjömugróf í
Reykjavík. Þau mistök urðu í
vinnslu blaðsins, að nafn eins þátt-
takandans féll niður, en það er nafn
Birgittu Harðardóttur. Biðst Morg-
unblaðið velvirðingar á þessum
mistökum.
MAGN-
ÞRUNGNAR
RAFHLÖÐUR
m