Morgunblaðið - 10.06.1987, Side 23

Morgunblaðið - 10.06.1987, Side 23
MORGUNBÍ^filÐ? ^^ÖC^Á’cÍtS'lO^ÍfMlÍ^Wáí ’ 23 S Islenska í skólum og fjölmiðlum eftir Baldur Ragnarsson í ritstjómargrein Morgunblaðs- ins sunnudaginn 24. maí sl. er m.a. fjallað um niðurstöður nýafstaðins samræmds landsprófs í íslensku. Þar segir orðrétt: Um það ætti ekki að þurfa að vera ágreiningur, að meðaleinkunn- in 4,8 í íslensku er alltof lág. íslenska er mikilvægasta náms- grein grunnskólanna og til að leiðbeina um hana þurfa að veljast hæfustu kennarar sem skólamir hafa völ á. Til þess liggja þær ástæður að framtíð okkar sem sjáf- stæðrar þjóðar veltur á því, hvort okkur tekst að varðveita og rækta tunguna. f því efni hafa skólamir jafn mikilvægu hlutverki að gegna og heimilin. Sjaldan er góð vísa of oft kveðin. Það á einnig við um hin tilvitnuðu ummæli hér að ofan. Ritstjóri Morg- unblaðsins telur stóraukna flölmiðl- un erlends efnis hugsanlega skýringu á bágri niðustöðu íslenskuprófsins. Ekki er að efa að síbylja enskra dægurlagatexta og ofgnótt myndbanda með ensku tali á hér dijúgan hlut að máli. Ritstjór- inn bendir á að fjölmiðlunin verður ekki stöðvuð en hins vegar minnist hann hvergi á þátt hennar í úrbót- um á þessu sviði. Hlutverk Qöimiðl- anna, ekki síst dagblaðanna, í baráttunni fyrir betri íslenskukunn- áttu bama og unglinga er á hinn bóginn mjög mikilvægt. Unglingar lesa dagblöðin engu síður en þeir sem fullorðnir em. Mikilvægt er því að málfar og staf- setning í dagblöðum sé til fyrir- myndar. Með því móti ma'vinna gegn fábreyttum orðaforða og rangri málnotkun unglinga og raunar alls almennings. Eitt af því sem dagblöð verða að forðast eins og heitan eldinn em stafsetningar- villur. Útvarp og sjónvarp byggja fyrst og fremst á töluðu máli, en ekki rituðu, og hafa því takmarkaða möguleika til að rækta þennan mik- ilvæga þátt móðurmálsins. Öðm máli gegnir hins vegar um dag- blöðin og því hljóta þau að gegna veigamiklu hlutverki á þessu sviði. Reyndir íslenskukennarar hafa ymprað á því við undirritaðan að stafsetningarkunnáttu gmnnskóla- nemenda hafí hrakað nokkuð við tilkomu Dagblaðsins á sfnum tíma. Telja þeir að samkeppni dagblað- anna hafi leitt til fljótfæmislegri vinnubragða þeirra. Ekki skal dæmt um það hér hvort dagblöð geta þannig haft bein áhrif á réttritunar- kunnáttu baraa og unglinga, en vissulega hafa ólíklegri tilgátur ver- ið settar fram. í áðumefndri ritstjómargrein Morgunblaðsins segir að það verði að vera leyfílegt að spyija allra spuminga varðandi slaka íslensku- kunnáttu grannskólanemenda, „ ... jafnvel þótt þær kunni að þykja óþægilegar eða komi ein- hveijum í uppnám." Þetta er hárrétt. Við vinnum ekki bug á vandanum án óþægilegra spum- inga. A.m.k. ein slík spuming snertir Morgunblaðið, nánar tiltekið íþróttafréttir blaðsins. Eins og kunnugt er hafa unglingar mikinn áhuga á alls kyns íþróttum. Langf- lestir meðlimir íþróttahreyfíngar- innar em á aldrinum 10-18 ára. Því er ekki ólíklegt að íþróttafréttir séu það efni sem fyrmefndur ald- urshópur les einna helst í dagblöð- unum, þ.á.m. Morgunblaðinu. Að undanförnu hafa stafsetningarvillur verið alltof tíðar á íþróttasíðum Morgunblaðsins. Æ ofan í æ hefur mátt líta bæði y-villur og n-villur í íþróttafréttum blaðsins. Tíðni þess- ara villna er slík að þær verða ekki afsakaðar sem prentvillur. Er þetta forsvaranlegt í stærsta dagblaði þjóðarinnar? Reglur um y og n em meðal gmnnreglna íslenskrar staf- setningar. Því verður ekki unað, að jafnstór og áhrifamikill fyölmiðill sem Morgunblaðið er, skuli bjóða ungum lesendum sínum upp á staf- setningarvillur af þessu tagi. íþróttafréttaritarar blaðsins em efalaust ágætir blaðamenn en á sviði réttritunar verða þeir að gera betur. Það er bæði ábyrgð og skylda Morgunblaðsins að bæta hér úr. Morgunblaðið kemst að þeirri niðurstöðu að brotalöm sé í undir- stöðuþætti skólakerfísins, þ.e. íslenskukennslunni. Blaðið spyr hvort breyta þurfí vinnubrögðum ( skólunum. Ef allir skólar hefðu „Dagblöð og aðrir fjöl- miðlar þurfa einnig að huga að ábyrgð sinni á ríkjandi ástandi og leið um til úrbóta. í barátt- unni fyrir varðveislu tungunnar má enginn skerast úr leik.“ notið sömu aðstöðu og Tjamar- skóli, t.d. hvað varðar meðalQölda nemenda í bekk, fjölda réttinda- kennara og velvild og flárhagslegan stuðning yfírvalda, er ekki að efa að meðaleinkunnin á íslenskupróf- inu hefði orðið talsvert hærri en raun varð á. Það er von undirritaðs að Morgunblaðið sjái sér fært að styðja þá kröfu gmnnskólakennara, að allir nemendur landsins njóti í fi-amtíðinni sömu aðstöu og Tjam- arskóli hefur getað boðið sínum nemendum upp á. Af því, sem hér að framan var sagt, má sjá að það em ekki ein- vörðungu skólamir sem þurfa að taka við sér í baráttunni fyrir betri íslenskukunnáttu bama og ungl- inga. Það er víðar pottur brotinn en í skólakerfínu. Dagblöð og aðrir fjölmiðlar þurfa einnig að huga að ábyrgð sinni á rílriandi ástandi og leiðum til úrbóta. I baráttunni fyrir Baldur Ragnarsson varðveislu tungunnar má enginn skerast úr leik. _ Höfundur er kennari. Til hamingju Ferðaskrifstofan Útsýn óskar Fegurðardrottninguís- lands og Fegurðardrottningu Reykjavíkur ÖNNU MARGRÉTIJÓNSDOTTUR til hamingju. Við bjóðum hana og aðra þátttakendur velkomna til samstarfs í sumar, hvort sem það verður á Costa del Sol, Lign- ano, Algarve eða í Svarta Skógi. Vonum að þið eigið ánægjulegt sumarleyfi með Útsýn. GÓÐAFERÐ Ferðaskrífstofan fBetri 'kostur Austurstræti 17, sími 26611 fKgyproftliiftifr Metsölubladáhverjum degi!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.